Þjóðviljinn - 06.04.1946, Page 4

Þjóðviljinn - 06.04.1946, Page 4
4 Þ JÖÐVIL JINN Laugardagur 6. apríl 19 L6. þlÓÐVILJINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn Ritstjórar: Kristinn E. Andrésson, Sigurður Guðmundsson, áb. Fréttaritstjóri: Jón Bjamason. 19. Sími 2270 (Eftir kl. 19.00 einnig sími 2184). Ritstjórnarskrifstofur: Austurstrppti 12 og Skólavörðustíg Afgreiðsla: Skólavörðustíig 19, sími 2184. Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399. Prentsmiðjusími 2184. Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: kr. 6.00 á mánuði. Úti á landi: kr. 5.00 á mánuði. Prentsmiðja Þjóðviljans h. f. i -- -------- , J fyrir sjálfu sér Vér biðjum afsökunar á því, að vér birtum hér í heild grein úr Morgunblaðinu, sem ber yfirskriftina „Pottlokin“- Þetta greinarkorn er þannig: „Forstöðumenn útifundarins, er haldinn var á sunnu- daginn við Miðbæjarskólann treystu of mikið á leikaraskap flokksbræðra sinna. í fundarlok léku þeir íslenzka þjóðsöng inn. Þegar hann er leikinn taka íslendingar ofan höfuð- föt sín. En þá nféllu frelsishetjur“ hins íslenzka kommúnista- flokks „út úr rullunni". Þe'r eru vanir andrúmsloftinu eins og það er á „sellufundum“. Þar er frelsismál íslands ekki í hávegum haft. Þar er meira hugsað um að koma íslandi undir hin austrænu áhrif. Mennirnir, sem vanastir eru sellufundum, gleymdu að taka ofan, þegar þjóðsöngurinn var leikinn. Kom þá í ljós það, sem menn raunar vissu áður, að kommarnir sem þykjast bera sjálfstæði landsins fyrir brjósti, hafa velgengni annars ríkis meira í huga en þjóðernis- og sjálf- stæðismál íslendinga“. Því er ekki auðsvarað, hvað er undrunarverðast við 9vona skrif, hvort heldur rangfærslurnar, vesalmennskan eða illgirnin, því að allt er þetta svo fléttað saman í þess- um línum, að ekki verður úr því leyst, á hverju ber mest. Líklega er það þó í senn undrunarverðast og ófyrir- leitnast, að þessi Morgunblaðsauli skuli halda því fram, að fundur stúdentanna um herstöðvamálið hafi verið flokksfundur sósíalista. En þessu er hiklaust haldið fram, og ef þið efist um það, þá lesið greinina um „pottlokin“ aftur. Augljóst er. í hvaða tilgangi þetta er gert. Það er gert til þess að læða inn þeim skilningi, að baráttan gegn landsafsali og framhaldandi hersetu á íslandi, sé sérmál éins flokks og þess vegna eigi góðir menn úr öðrum flokk- um að lítilsvirða hana. Að vásu ætti þess ekki að vera þörf, en er þó að gefnu tilefni rétt að taka fram, að baráttan gegn því, að erlendur her verði hér til frambúðar, er og á að vera hafin yfir alla flokka. Hún er sjálf barátta þjóðarinnar fyrir frelsi og fullveldi, og fyrst þegar menn hafa snúið bökum sam- an í þeirri baráttu, sem heiðarlegir Íslendingar, er réttmætt að spyrja um flokka. Sjálfstæðisibaráttan fyrst, flokkarnir síðar. Þegar stúdentarnir hófu merkið á fundintim í barna- skólaportinu, var það rödd þjóðarinnar sjálfrar, sem heyrð- ist í ræðum þeirra. Stúdentamir skiptast milli stjórnmála- flokka, sem kunnugt er og glöggt kemur í ljós við kosn- ingar til stúdentaráðs á hverju hausti, en í herstöðva- málinu eru þeir alli.r sem einn maður. í hópi þeirra eru ekki nein vesalmenni á borð við Morgunblaðsmanninn, sem á óviðurkvæmilegan hátt er að reyna að vinna gegn málstað Íslendinga. Auðvitað gleymir ekki þessi ærusnauði ameríku- agent Morguniblaðsins að geta þess, að flokkur sá, sem hann vistar hjá alla stúdenta, „Kommúnistaflokkurinn", sé í þjónustu erlends ríkis og þar með að allir fylgjendur hans séu landráðamenn. Það er erfitt verk, sem þessi starfsmaður Morgun- blaðsins hefur tekið að sér, að vinna fyrir landsölustefnuna. Það er ekki von, að framkoman sé burðugri en raun ber NOKKUR ORÐ TIL ÞEIRRA SEM SJÁ UM NÝBYGGINGAR HÚSA OG ÞEIRRA SEM SJÁ UM LEIKVELLI. ,,H. S. B.“ skrifar um leiki barnanna við hús sem eru í smíðum, og telur þá ekki hættu- lausa. Iæggur hann til að girt verði í kringum húsin svo börn- in geti ekki farið sér þar að voða. Hann minnist á barnaleik vellina í því sambandi og vill að þeir verði endurbættir. — Hann skrifar: „Eins og kunnugt er þá sækja börn og unglingar mjög í hús, sem eru í smíðum og ekki síst þar sem búið er að grafa grunna, því að þar er oftast vatn, sem þeim þykir mjög gaman að vaða og busla í. Það er ekki ósjaldan sem börn detta þá ofan í, og þó ekki hafi enn slys hlotist af, þá þykir húsmæðrum að sjálfsögðu ekki gaman af að vita börnin sin í stöðugri hættu. Sama er að segja um hús sem byrjað er að reisa, börnum þyk- ir gaman að klifra, en eins og vænta má, þá er slíkur leikur ekki hættulaus, einnig er það að börnin rífa iðulega föt sín. Húsmæður mundu eflaust vera húsasmíðameisturum þakklátar, ef þeir létu girða allt í kringum nýbyggingar þær, er þeir hafa með að gera. ÞÁ ERU ÞAÐ ÞEIR, SEM SJÁ UM LEIKVELLI. Eins og fram kemur af ofanrit uðu, þá hafa böm gaman af að klifra og einnig af vatni til að busla í og láta skip sín sigla. — Það þvrfti þvi að setja upp klifurgrindur og sjá um að þrær með vatni, séu á öllum leikvöll- um auk annara leiktækja. Aft- ur á móti mætti taka burtu hraunhellumar, sem látnar hafa verið á suma leikvellina, þær eru að vísu til prýðis en ekki með öllu hættulausar. H. S. B“. ÓÞARFUR INNFLUTNINGUR. ,,Borgari“ skrifar mér um er- lendu myndablöðin sem fást hér í bókaverzlunum og telur að þar sé ekki einungis um óþarfan inn- flutning að ræða, heldur séu þau miður heppilegar ,,bókmenntir“ handa bömum. Hann skrifar: „Flestir munu kannast við lit- prentuðu mvndablöðin erlendu, sem bókaverzlanir hér eru að pranga út í börn og unglinga. Á meðal barnanna ganga mynda- blöð þessi undir nafninu „hazar- blöð“, og gefur sú nafngift dá- litla hugmynd um innihald þeirra. Venjulega eru þetta teikningar af glæpasögum, bar- dagasögum eða viðureign við villidýr, þar sem hver endileys- an rekur aðra. Þetta þykir böm unum ákaflega spennandi og vilja óvæg ei'gnast þessi blöð, sem fljótt vilja þá ganga til þurrðar í bókabúðum. Ganga blöðin svo kaupum og sölum milli barnanna fyrir mikið hærra verð en sett var á þau í verzlunum. Þegar svo börnin taka þessi myndablöð fram yfir góðar ís- lenzkar bækur, sem þau fást þá helzt ekki lengur til að líta í, held ég flestir verði mér sam- mála um það að við mættum gjarnan vera lausir við þetta ,,hazar“blaðafargan og það sem því fylgir. Við höfum annað þarfara með gjaldeyri okkar að gera en að verja honum til inn- flutnings á þvílíkum „bókmennt- um“. Borgari“. KVARTAÐ UM KLUKKULEYSI. Einhver K. O. skrifar mér kvörtun út af þvi að engin vegg klukka sé í lestrarsal Bæjarbóka safnsins. Segir hann það mjög bagalegt fyrir þá sem sækja i lestrarsalinn, og nefnir sem dæmi að Menntaskólapiltar komi þar oft í frímínútum til að lesa blöð og bækur, en þá sé erfitt fyrir þá að fylgjast með hvað tímanum liði. Oft séu menn að spyrja hver annan hvað klukkan sé, en þá geti oft svo farið að enginn viðstaddur hafi klukku. Lýkur liann bréf- inu með ósk um að klukka verði sett upp í lestrarsal Bæj- arbókasafnsins svo komið verði í veg fyrir þessar sífelldu spurn ingar um hvað klukkan sé. Stj4h~rirf7zá/as7*tzfár Tvær myndir úr Morgunblaðsins. Föstudaginn 5. apríl 1946 voru þessi orð skráð í fjórða dálki á fimmtu síðu Morgumblaðsins: „Útúrsnúningur er annað fyr- irbrigði í opinberum deilum í ís- ienzkum blöður. Oft eru mönn- um gerð upp orð, sem þeir hafa aldrei sagt eða skrifað og síð- an er lagt út af þeim. Slíkt er ekki annað en óheiðarleiki i leik og á vitanlega ekki að eiga sér Gtað“. í fyrsta óg öðrum dálki hinn- ar sömu síðu hins sama blaðs skartar leiðari blaðsins, hann fjallar um frumvarp Nýbygging- arráðs um fiskveiðasjóð, og er fyrri hlutinn um það, hversu illa Framsókn hafi tekið þessu ágæta frumvarpi. í niðurlagi leið arans snýr blaðið sér að Sósíai- istum, og mælir svo: „Hitt hefur að vonum vakið undrun, að einn af stuðnings- flo'kkum ríkisstjórnarinnar, Sós- íalistaflokkurinn, skuli hafa sung ið tvísöng með Framsókn í þessu máli, að vísu undir öðru lagi, en þó þannig að f jandskapurinn gegn málinu er énigu minni úr þeirri átt“. Staðreyndirnar uni fisk- veiðasjóðsfrumvarpið. Fiskveiðasjóðsfrumvarpið var samið af Nýbyggingarráði, og er óhætt að fullyrða að Einar Olgeirsson var aðal-hvatamaður þess. um þetta frumvarp, rigndi niður áskorunum um að leggja það fram á Alþingi og fá það samþykkt. Nú leið og beið og þrátt fyrir allar áskoranir kom frumvarpið ekki fram. Ástæðan var sú að stjóm Landsbankans hafði hafið harðvítuga herferð gegn því og hún fékk því til vegar komið að ríkisstjórnin hikaði. Loks tók Áki Jakobsson at- vinnumálaráðherra af skarið og fékk málið flutt inn í þingið. Þá hófst nýtt þóf. Stjórn Landsbankans reyndi að hindra framgang málsins. Það endaði með því að Sjálfstæðisflokkur- inn og Alþýðuflokkuririn gáfust upp og féllust á að breyta frum varpinu í það horf að Lands- bankinn fengi málið til fram- kvæmda, stofnuð skvldi sérstök stofnlánadeild innan Lands- bankans, í stað þess að efla Fiskveiðasjóðinn. Talsmenn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu- flokksins hafa þó lýst því yfir, á þingi, að þeir kysu málið held ur í þess upphaflegu mynd. Á þingi hefur Sósíalistaflokk- urinn staðið fast gegn því að breyta frumvarpinu um fiskveiða sjóð, eftir kröfu Landsbanka- stjórnarinnar, hann hefur lagt kapp á að fá frumvarpið sam- þykkt í þeirri mynd sem Ný- byggingarráð gekk frá því. Fáist það ekki, munu þingmenn Sósíal ista að sjálfsögðu greiða frum- varpinu atkvæði, þó stórslcémmt sé með því að fá höfuðandstæð- ingi þess framkvæmdirnar. Á máli Morgimblaðsins. Þessi afstaða Sósíalista til frumvarpsins heitir á máli Morg unblaðsins „fjandskapur gegn málinu“. Sjálft hefur blaðið kveðið upp dóminn yfir eigin málflutningi, dómurinn var þannig: „Slíkt er ekki annað en óheið- arleiki og á vitanlega ekki að eiga sér stað“. Stundum dæmir Morguniblað- ið rétt. Virðulegur fundur — ógleymanleg stund. Það hefur áreiðanlega ekki verið haldinn virðulegri fundur hér í bæ en fundur stúdentanna í barnaskólaportinu. Þrátt fyrir slæmt veður stóð fjöldinn og hlustaði á hinar snjöllu ræður í tvær stundir. Þegar ræðunum lauk sýndi fólkið ekki á sér far arsnið, eins og oft vill verða við slík tækifæri. Fullkomin k.vrrð var því meðal fjöldans er þjóðsöngurinn hófst, menn stóðu kyrrir, tóku ofan höfuð- föt sín og lifðu ógleymanlega stund. Þvættingur Morgunblaðsins urn að fylgjendur eins stjórn- málaflokks hafi ekki tekið ofan við þetta hátíðlega tækifæri, er eitt hið svívirðilegasta, sem sést hefur í íslenzkum blöðum og engin afsökun er það fyrir blaðið, þó einn af aðaleigendum þess væri svo fjarhuga á þess- ari stundu, að honum láðist að sýna þá háttvísi að taka ofan. Þetta var vissulega leiðinlegt at- vik ekki síst fyrir Morgunblaðið, en samt sem áður ætti það nu að geta haldið sönsum. Þegar almenningi varð kunn- vitoi. Vonandi á hann ekki marga skoðanabræður í Sjálf- stæðisflokknum. En Morgunblaðsritstjóramir, sem láta slík sknf birtast, bera ekki orðið mikla virðingu fyrir sjálfum sér. bréfi ugt

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.