Þjóðviljinn - 30.04.1946, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 30.04.1946, Qupperneq 1
Þriðjudagur 30. apríl 1946. 96. tölublað. mabavarp eeasamtakaona í í næstu tveim blöðum birtist að- alefni úr grein Sigurðar Nordals, er hann ritaði í Nordisk Tidskrift um rétt Xslendinga til hinna fornu handrita sinna í dönskum söfnum. Framboð Sósíalistaflokks- ins við alþingiskosningarnar í sumar hafa nú verið ákveð- in í nokkrum kjördæmum. í blaðinu á morgun verður skýrt frá fyrstu framboðum flokksins. © O N«fntl frá Oryggisráðinu rann- sakar Spánarmálin Francostjórnm fordæmd Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman á fund í gær og samþykkti tiilögu frá fulltrúa Ástralíu um að Itjósa 5 manna nefnd til að rannsaka þá kæru PóIIands, að Francostjórnin stofnaði lieimsfriðinum í hættu. Tillag- an var samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum, en Gromy- ko, fulltrúi Sovétríkjanna, sat hjá. Nefndarskipun til tafar Gromyko kvaðst ekki vilja greiða atkvæði um tillöguna, þar sem hann áliti, að kæra Póllands væri réttmæt og þegar sönnuð. Nefndarskip- un myndi leiða til frekari taf ar og aðgerðaleysis í málinu, en þegar væri orðið. Almenn ingsálitið í heiminum myndi ekki fallast á þessa af- greiðslu. Hann tók það fram, að þessi afstaða sín skapaði ekki fordæmi að því, að stór veldin sætu hjá við atkvæða- greiðslu í stórmálum. Útbreiðsla fasismans ógnar friðinum Fulltrúi Mexico kvað stjórn sína vera þeirrar skoðunar, að Francostjórnin ógnaði friðinum þar sem hún ynni að útbreiðslu fasismans í öðrmn löndum. Engu að síð- ur myndi hann greiða tillög- unni atkvæði til að samkomu lag næðist í ráðinu. Auk tillögunnar sam- þykkti ráðið yfirlýsingu um að það fordæmi Francostjórnina frá sið- ferðilegu sjónarmiði: I nefndina voru kosin þessi ríki: Ástralía, sem leggur til forseta nefndarinnar, Pól- land, Mexico, Frakkland, Kína og Brasilía. Fundur ráðsins stóð í hálfa klukkustund. Ráðið kemur næst saman, er því berst mál til úrlausnar. "N ííaiidaríkin haf a ekki öðlazt neinn rétt til framhaldshersetu á íslandi Utanríkisráðherra svarar fyrirspurnum Hermann Jónasson spurði utanríkisráðherra þ2ss á fundi í gær, hvort komið hefði nokkur ný tilnvæli frá stjórn Bandaríkjanna um leigu á herstöðvum hér á Iandi þar til friðarsanmingar hefðu verið gerðir, en slíkt hefði verið gefið í skyn í blaðafregnum. Ólafur Thórs kvað engin slík tilmæli hafa komið fram. Pétur Ottesen spurði utanríkisráðherra livort ekki bæri að skilja svar ríkisstjórnarinnar svo að öllum samn- ingum um herstöðvamál vid Bandaríkin væri lokið, og hyort Bandaríkin hefðu fengið nokkurn rétt til framhalds- hersetu á Xslandi þó hún teldi að samningsviðleitni héldi áfram. Ólafur Thórs svaraði því, að Bandaríkjastjórn kynhi að líta svo á að samningsviðleitni við jslendinga væri ekki lokið, én Baiidarikin hefðu ekki í skjóli þéss öðlazt neinn rétt til hersetu hér á landi, frám-yfir það, sem ákvcðið hefði verið_ í herverndarsamningnum frá 1941. Alþýða Reykjavíkur, íslcndingar! 1. maí er baráttzi- cg hátzðisdagur launastéttanna um allan heim. Þá minnast þœr þess að þrátt fyrir mismunandi þjóðerni, hörundslit og trú- arbrögð er hið háleita markmið þeirra sameiginlegt: Frjáls þjóðfélög vinnandi fólks, þar sem alþýðan nýtur sjálf ávaxt- anna af erfiði sínu, arðrán er afmáð og engin þjóð kúgar aðra, þar sem frclsið er fyrir fjöldann og hverju mannsbarni er tryggður réttur til at- vinnu og menntunar og hin fullkomnasta tækni mannanna er notuð til að bœta kjör vinnandi fólks og allrar alþýðu. En frumskilyrði þess, að markn iði alþýðunnar um allan heim verði náð, er friður. 1. maí mumi hinar 70 milljónir skipulagðra launþega um allan heim sýna vilja sinit í baráttunni fyrir varanlegum friði meðal þjóðanna. 1. maí 1945 fagnaði íslenzk alþíða liinu nýfengna sjálfstœði íslands, eftir nœr 7 alda ósjálfstœði. Síðan hafa nýjar hœttur steðjað að föðurlandi okkar. Enn er föður- landi okkar ógnað af erlendri ásœlni. Enn dvelst crlendur her á íslenzkri grund, þrátt fyrir gefin loforð um brotthvarf. Afstaða íslenzkra launþegasamtaka er ótvírœð og ákveðin: Sú að veita engu erlendu ríki neinskonar íi ilnanir um landsréttindi né herstöðv- ar, krefjast þess að allur erlendur hcr verði tafarlaust fluttur burt af Is- landi, að aldrei skuli nein bönd binda ísland, nema „bláfjötur Ægis“. Varanlegt fullveldi og sjálfstæði íslands er undirstaðan að þeirri framfarastefnu í þjóðmálum, sem mörkuð var í stefnuskrá núverandi rík isstjórnar. Stórl átak hefur verið hafið í ancla þessarar stefnuskrár á sviði at- vinnulífs, menntunar og almannatrygginga. Árangur er meðal annars sá, að ennþá hefur íslenzkum verkalýð verið þyrmt við atvinnuleysi og fylgj- um þess, að skiíyrði æskunnar til menntunar hafa gjörbatnað, að trygginga kerfi landsmanna er að taka miklum framförum. Launþegasamtökin álíta þó að hraða verði framkvœmd þeirrar stefnu- skrár, er þau hétu liðsinni sínu, og taka verði hagsmunamál alþýðu fast- ari tökum. ! * Höfuðkröfur þeirra eru: ^ Ötulli markaðsleit til að tryggja sölu á aukinni framleiðslu þjóðar- innar. Fjármggn bankanna verði notað til hins ýtrasta í þjónustu nýsköpun- arinnar og annara nauðsynlegra framkvœmda. Stefnt verði að fullkomnu lýðra ði í atvinnumálum. Gerðar verði árangursríkar ráöitafanir gegn verzlunarokrinu. Fullnœgjandi ráðstafanir verði gerðar til þess að reisa öUum Reykvík- ingum mannsœmandi húsnœði. Fullkominni löggjöf og eftirliti urh öryggi sjófarenda verði komið á, og um varnir gegn slysum á sjó og landi. Höfð verði nánari samvinna við launþegasamtökin um framkvœmd á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar. Lifi eining alþýðunnar í öjlum löndum! Lifi frelsisbarátta þjóðanna! Alþýða Reykjavíkur, íslendingar! Sláið vörð um þúsund ára arf Is- lendinga, sjálfstæði œttjarðarinnar! Engu erlendu ríki herstöðvar á íslandi! Burt með erlendan her af íslenzkri grund! Lifi Alþýðusamband íslands og önnur hagsmunasamtök alþýðunnar! Samnings- og verkfallsrétt fyrir alla launþega! Fullnaðarframkvœmd á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar! Nýsköpun atvinnuveganna í þágu alþýðunnar! Burt með verzlunarokrið! Húsnœði fyrir alla Reykvíkinga! Gegn hverskonar erlendri íhlutun. Island fyrir Islendinga! Lengi lifi hið frjálsa fullvalda föðurland okkar, ÍSLAND! 1. maí-nefnd FuIItrúaráðs verka- lýðsfélaganna í Reykjavík. Bjöm Bjarnason, form., Eð- Reykjavík, 29. apríl 1946.- varð Sigurðsson, Ásgeir Torfa- son, Birgitta Guðmundsdóttir, Tryggvi Kristjánsson. Bandalag starfsmanna ríkis »>g bæja, Framhald á 7. síðu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.