Þjóðviljinn - 30.04.1946, Qupperneq 4
4
ÞJÓÐVILJINN
Þriðjudagur 30. apríl 1946.
þJÓÐVILJINN ]
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — SósíalistaflokKurinn
Ritstjórar: Kristinn E. Andrésson, Sigurður Guðmundsson, áb.
Fréttaritstjóri: Jón Bjamason.
Ritstjórnarskrifstofur: Skóíavörðustíg 19. Simar 2270 og
6509 (eftir kl. 19.00 einnig 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Áskriftarverð; kr. 8.00 á mánuði. — Lausasölu 50 aurar
eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
\___________________________________________________/
Þinglok
Þingi er lokið. Þingkosningar eru ákveðnar 30. júní.
Þetta langa þing hefur verið afkastamesta Alþingi ís-
lendinga fram til þessa. Fer vel á því, að reglulega Al-
þingið á fyrsta ári eftir lýðveldisstofnunina skuli leysa
slíkt afrek af hendi sem þetta þing hefur gert.
Stórvirki liggur eftir þing þetta á sviði atvinnulífsins
— og þá fyrst og fremst á sviði sjávarútvegsins. Lögin um
stofnlánadeild sjávarútvegsins eru þýðingarmestu lög, sem
samiþykkt hafa verið í þeim málum. Lögin um kaup 30 tog-
ara og smíði ca. 30 vél'báta innanlands ásamt lögunum um
nýjar sildarverksmiðjur, niðursuðuverksmiðjur og tunnu-
verksmiðjur eru met í framkvæmdum af hálfu þings og
þjóðar.
Þing þetta hefur staðið í tákni nýsköpunar atvinnulífs-
ins og lagt hinn drýgsta skerf fram á því sviði undir for-
ustu ríkisstjórnarinnar. Samtímis hafa svo verið gerðar
hínar veigamestu ákvarðanir til þess að tryggja afkomu
útvegsins og markaðina, svo sem með lögum þeim, sem
atvinnumálaráðherra flutti um tryggingu fiskverðsins.
Með þingsályktuninni um aðstoð við bæjarfélögin til
togarakaupa eru gerðar ráðstafanir til þess að dreifa hin-
um stórvirkustu framleiðslutækjum þjóðarinnar út um
land í stað þess að láta þau öll safnast fyrir hér við Faxa-
flóa. Og með lögunum um nýbygglngar í Höfðakaupstað
er gerð fyrsta tilraunin til skipulagðrar myndunar ný-
tízku bæjar.
Á sviði þjóðfélagsmálanna er með samþykkt laganna
um alþýðutryggingar stigið stærsta sporið, sem enn hefur
verið stigið á landi voru til þess að tryggja almenning
gegn skorti, — og með því að halda áfram að reisa traustan
grundvöll að atvinnulífinu, ætti að vera unnt að herða á
því að þessar almannatryggingar yrðu enn stórum bættar
og fullkomnaðar, svo stórt spOr sem þó var stigið nú.
Skólalöggjöfin markar tímamót í menntunarsögu ís-
lendinga og með örri byggingu skólahúsa og með fjár-
hagslegri aðstoð við æskulýðinn þarf að stefna að því marki
á grundvelli þessarar löggjafar, að gera hverjum uppvax-
andi íslending kleíft að öðlast þá menntun, er hann þráir.
Byggingalöggjöfin er hin merkasta löggjöf og reynir nú
brátt á banka lands vors að stuðla að framkvæmd þeirra
góðu laga.
„Nú er eftir yðvar hlutur“, geta þeir þingmenn, sem
unnið hafa bezt að framgangi þessara mála, sagt við kjós-
ehdur, er þeir nú leggja til kosninga. Nú er það þjóðar-
innar sjálfrar að halda svo á málunum í kosningunum að
haldið verði áfram jafnvel og betur en hér var byrjað og
Þætt 'úxj því, sem elgi fékkst lagað nú.
Afstaða Sósíalistaflokksins hefur verið og er:
Engar erlendar herstöðvar á Islandi til langs
eða skamms tíma
Stefán Jóhann Stefánsson og Haraldur Guðmundsson neita að
svara, þegar beðið er um greið svör um afstöðu Alþýðuflokksins
Að gefnu tilefni spurði Brynjólfur Bjarnason
menntamálaráðherra Stefán Jóhann Stefánsson
formann Alþýðuflokksins, þessarar spurningar á
fundi sameinaðs Alþingis í gœr:
Er Alþýðuflokkurinn andvígur því að leigja
Bandaríkjunum og hverju öðru ríki herstöðvar á
íslandi til langs eða skamms tíma?
Það komu vöflur á Stefán Jóhann og hann
hliðraði sér frá því að svara spurningunni. Loks
reyndi Haraldur Guðmundsson að koma honum
til hjálpar, með því að segja af miklum rembingi,
að þessari spurningu yrði svarað á réttum tíma
á réttan hátt!
Brynjólfur benti á, að þetta vœri heldur aum-
leg frammistaða samtímis því, er Alþýðuflokkur-
inn þykist vera öðrum flokkum fremri í her-
stöðvamálinu.
Á þessum þingfundi urðu
fróðlegar umræður um af-
stöðu flokkanna til herstöðva-
málsins. Lúðvík Jósefsson
sýndi fram á loddaraleik Al-
þýðuflokksmanna í útvarps-
umræðunum og í Alþýðublað
inu, er þeir reyndu að slá sig
sérstaklega til riddara á
þessu má,li. (Brynjólfur
Bjarnason rakti að nokkru
gang málsins og lagði áherzlu
á, að Sósíalistaflokkurinn
hefði frá upphafi lagt til, að
svarið yrði ekki einungis ský-
laus neitun við beiðni Banda-
ríkjanna um herstöðvar til
langs tíma, heldur einnig yf-
irlýsing um það, að íslend-
ingar vœru ekki til viðtals
um leigu á herstöðvum, hvort
sem væri til langs eða
skamms tíma, og hefði eng-
inn hinna flokkanna viljað
hafa svarið á þá leið.
En svo gæti farið, að Banda
ríkin tæki málið upp á ný, þó
þau hefðu fallizt á að stöðva
það í bili. Því væri aðalatrið-
ið að fá nú skýrt fram af-
stöðu flokkanna. Afstaða
Sósíalistaflokksins hefði frá
upphafi málsins verið skýr
og væri það enn.
Því næst spurði Brynjólfur
beint um afstöðu Alþýðu-
flokksins, eins og þegar hefur
verið skýrt frá.
Einar Olgeirsson dró sam-
an aðalatriðin í herstöðva-
málinu eins og það stendur
nú, á þessa leið:
1. Því hefur verið neitað
afdráttarlaust, að verða við
þeim tilmælum Bandaríkja-
stjórnar, að leigja Bandaríkj-
unum herstöðvar á íslandi til
langs tíma. Bandaríkjastjórn
hefur lýst yfir, að hún láti
málið falla niður í bili. Þó ís-
lendingar hafi borið gæfu til
að standa saman um þetta
svar, getur hugsast, að beiðn-
in verði endurnýjuð. Þing og
þjóð þarf að vera á verði,
reiðubúin til að svara aftur
a. m. k. eins ákveðið og nú,
ef til kæmi.
2. Hugsanlegt er, að til-
mæli berist um að leigja her-
stöðvar til skamms tíma. Það
er jafnnauðsynlegt að þjóðin
standi saman um að neita
þeim. Æskilegt hefði verlð að
þing og stjórn hefði lýst því
yfir fyrirfram, að því yrði
neitað.
3. Enn er her á íslandi, og
að mínu áliti búinn að vera
lengur en hann hefur rétt til
samkvæmt samningum. Eg
tel æskilegt, að ríkisstjórn
æski eftir því að þessi her
fari burt. Það má ekki drag-
ast lengi að slík ósk komi
fram.
Bandaríkjastjórn
gef ur skýrslu um
herstöðvamálið
I)ean Acheson, bara-ulanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna liefiir
gefih út tilkynningu um dvul
Bandaríkjahers á Islandi.
Rekur liann þar mikilvægi Is-
lands fyrir i'lug- og sjósarngöng-
ur Bandamanna á Norður-Atl-
anzhafi á styrjaldarárunum. -—
Flest telur hann Bandaríkjalið
liafa verið hér 45,000 manns en
nú séu liér 1000 hermenn. I yf-
irlýsingunni er sagt, að Banda-
ríkjalier verði fluttur héðan og
flugvellir hans afhentir Islend-
ingum, er lriðarsamingar liafi
verið gerðir. En skoðun okkar
Islendinga er sú, að Bandaríkja-
her liafi átt að fara liéðan strax
að styrjöldinui lokinni samkv.
samningum og loforði Raose-
velts forseta.
4. Uppástúngur eins þing-
flokksins um að gerðir verði
sérstakir samningar við sér-
stök stórveldi um öryggi
landsins tel ég hættulegar, og
hefði þurft að koma ótvírætt
fram, að ríkisstjórn og þing
vilji ekki að neln stórveldi
eða stórveldasambönd fái hér
forréttindi til hernaðarað-
gerða.
5. Varðandi inngöngu í
Sameinuðu þjóðirnar er það
að segja, að samkvæmt lög-
um sambandsins getur það
ekki orðið ein af skyldum ís-
lands að leggja því til her-
stöðvar, nema sérstakur samn
ingur hafi verið gerður um
það við íslendinga.
Tillögu Hermanns var vís-
að frá með rökstuddri dag-
skrá.
:MfÍi&ÍÍ l- iíi i *-!
Alþingi kýs
í nefndir
Þingi slitið
Hafði staðið 170
daga, samþykkt 81
lög og 25 þihgs-
ályktanir
Þingilausnir voru í gær kl. 5
e. h., og flutti Jón Pálmason
forseti sameinaðs . þings ræSu,-
og minnlist helztu múla sem
þingió hcfði afgreitt.
Forseti Islands, hr. Sveinn
Björnsson, sleit þinginu, og til-
kynnli jafnframt cið þing væri
rofiö frá þeirn dcgi «ð telja er
þingkosningar verða í sumar.
Þingið stóð 1. okt. til 21. des.
,1945 og 1. febr. til 29. apríl
1940, eða alls 170 daga.
Haldnir voru 129 fúndir í
neðri deild, 119 í efri deild og
45 í sameinuðu þingi, alls 293
fundir.
Alls voru 81 lög afgreidd, 16
stjórnarfrumvörp og 65 þing-
mannafrumvörp, 11 þingmánna-
frumv. voru afgreidd ineð rök-
studdri dagskrá, en 2 stjórnár-
frumvörp og 02 þingmanriafrv.
urðu ekki útrædd.
Þirigsálvktunartillögur samþ.
þingið 25, felldar voru tvær,
tvær afgreiddar með rökstuddri
dagskrá, sex vísað til ríkisstjórn
arinnar og 49 urðu ekki útrædd
ar.
Tala prenlaðra þingskjala
varð alls 1024.
1 ritstjórnargrein blaðsins í
dag er rætt um þetta. gagnmerka
þing, sem nú. hefur lokið störf-
um.