Þjóðviljinn - 22.05.1946, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 22.05.1946, Qupperneq 2
2 r ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 22. maí 1943 mii TJARNARBÍÓ Sími 6485. Víkingurinn (Captain Blood) Eftir R. Sabatini. Errol Flynn Olivia de Havilland. Sýning kl. 9 Bönnuð bömum innan 16 ára. Regnbogaeyjan (Rainbow Island) Söngva- og gamanmynd í eðlilegum litum. Dorothy Lamour Eddie Bracken Gil Lamb Si/ning kl. 5. og 7 NÝJA BÍÓ (við Skúlagötu): Hart á móti hörðu (The Naughty Nineties) Bráðskemmtileg gaman- mynd með skopleikurun- um frægu: ABBOTT og COSTELLO Sýning kl. 5, 7 og9 Vtbreiðið Þjóðviljann Fjalakötturinn Sýnir revýuna Upplyfting annað kvöld kl. S Aðgöngumiðasala í dag kl. 4—7 Ný atriði. — Nýjar vísur. Aðeins þrjár sýningar eftir. Skurðgröftur með sprengiefni er fljót- leg en ódýr aðferð 10 tonn af skurðasprengiefni flutt til landsins S. I. laugardag var blaða- mönnum boðið að vera við- stöddum tilraun er verkfœra- nefnd ríkisins gerði með notk un sprengiefnis við skurð- gröft. Er sérstakt sprengiefni, svokallað skurðadynamit, notað í þessu skyni. Hefur tekist að útvega 10 tonn af því frá Ameríku og verður það selt bœndum. Námskeið, þar sem skurð- gröftur með sprengiefni verð- ur kenndur, hefst í ,þessari viku. Skurðlr, grafnir með að- ferð þessari, verða miklu ó- dýrari en handgrafnir skurð- ir. Verð sprengiefnisins er ca. 7 kr. hvert kílógramm. Hef- ur verið áætlað að sprengdur skurður muni kosta 2—3 kr. pr. teningsmeter, en til sam- anburðar skal þess getið, að handgrafinn skurður kostar varla innan við 6—7 kr. hver teningsmeter, með núverandi verðlagi vinnuafls. Þetta er í fjórða sinn sem tilraunir eru gerðar með notkun þessa sprengiefnis hér á landi, og hafa þær yf- irleitt heppnast vel. Hefur aðferð þessi ekki náð neinni útbreiðslu vegna þess, að sprengiefnið hefur verið of dýrt samanborið við vinnu- aflið, og þess vegna ekki þótt borga sig að nota það í stað venjulegra verkfæra. Nú er þetta breytt, og má því bú- ast við að þessi aðferð við skurðagerð nái útbreiðslu hér, ef sæmilega gengur að útvega sprengiefnið. Sprengiefni þetta var fyrst reynt á Vífilsstöðum árið 1921, á Hólum og Iivanneyri 1932 og nokkrum árum síð- ar á Lágafelli. Tilraun verk- færanefndarinnar á laugar- daginn var gerð í Mosfells- dal. Þegar skurður ' er grafinn með sprengiefni, er byrjað á því að stinga út línu eins og skurðurinn á að liggja. — Síðan eru gerðar holur í mið- línu skurðsins með sverum bor og sprengiefnispakkarn- ir látnir í þær. Er haft 40— 50 cm. bil á milli holanna eftir því, hvern'g jarðvegur- inn er. Má bilið vera lengst, þegar sprengt er undir vatni eða í mjög blautum jarðvegi. Sjaldan er hafður nema einn pakki í hverja holu. Fer dýpt holunnar eftir breidd skurðs ins að ofan. Hver sprengiefn- ispakki er hálf enskt pund að þyngd, og er 8 tommur að lengd. Mun hæfilegt að setja hann um 6 tommur undir yf- irborðið, ef skurðurinn á að vera 3 m. á breidd að ofan. íkveikju er komið fyrir með sprengiþræði og er nóg að tengja við einn pakkann. — Stinga þarf fyrir skurðbökk- um og sé grasrót samfelld fer hún svo hátt við spreng- inguna, að ruðningurinn fell ur dreift niður í nokkurri fjarlægð frá skurðbökkunum. Þáð er misjafnt hvað leggja þarf mikla vinnu í að la.«a skurðbakkana eftir sprenging una, stundum er nóg að hleypa vatni í skurðinn, og hreinsa hann á þann hátt. Skurðurinn sem sprengdur var í mýrinni hjá Mosfelli, var ca. 120 m. langurog voru um 300 sprengiefnispakkar notaðir til að sprengja hann. Varð skurðurinn 80—90 cm- djúpur og þurfti eigi mikillar lagfæringar við. Virðist mega fullyrða að hér sé um að ræða aðferð við skurðagerð, sem bæði er fljótleg og ódýr, og því vonandi að bændum lærist brátt að hagnýta sér hana. u —-----------------------------------------------------------—--------------------—---------------- Bækurnar í „Listamannaþinginu44 munu alltaf verða uppáhald bókamanna Þær verða tvímælalaust verðmeiri með hverju ári Utgáfu Listamannaþingsins verður lokið í næsta mánuði Nú er eitt af dýrmætustu tækifærum bókamannanna að líða hjá. Listamannalúngið er að verða upp- selt og bækurnar koma aldrei í bókabúðir, aðeins örfá eintök eru nú eftir af fyrstu bókunum „Nóa Nóa“ „Birting“ og Jöklinum“. „Að haustnóttum“ er nú komin út Það er að margra dómi fegursta skáldsaga Hamsums. Eitt allra fegursta skáldrit í bógmenntum Norðurlanda og í hinni snilldarlegu þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi mun hún verða hverjum einasta íslenzkum lesanda ógleymanleg. Geymið fé yðar í góðum bókum. Með því móti getið þér og heim- ilisfólk yðar daglega notið fjármuna yðar án þess að skerða höfuðstói- inn. Munið að góð bókaeign er betri en nokkur sparisjóðsbók. Nöfn liöfunda og þýðenda ,,Listamannaþingsins“ tryggja það að þær hækka í verði því lengur sem þær hafa verið í eigu yðar. Nú eru síðustu forvöð að gerast áskrifandi að ,,Listamannaþinginu“. Fyrstu bækurnar eru alveg á þrotuin og verða ekki til sölu í bókaverzl- unum framvegis. Útfyllið pöntunarseðilinn áður en það er of seint. Undirritaður gerist hérmeð áskrifandi að Lista- mannaþinginu, öllum 10 bókunum með áskriftar- verði. • Nafn ....................................... Heimili .................................... Sími 1653 Helgafellsútgáfan Box 263 LirL mYLIFÆl Helgafell, Garðastræti 17 Aðalstræti 18 „Listamaiinaþingið" einn mesti bókmenntaviðburður hér á landi. Á s. 1. ári sneri bókaútgáfan Helgafell sér til nokkurra manna og bað þá að þýða .og undirbúa útgáfu á uppáhalds- bók sinni. Þeir menn, sem fyrstir urðu við þessum tilmælum voru þeir Halldór Kil'jan Laxness, Tómas Guðmundsson, Sverrir Kristjánsson, Gunnar Gunnars- son, Árni frá Múla, Ólafur Hall- dórsson, Sigurður Grímsson, Sigurður Einarsson, Jón Sigurðs- son frá Kaldaðarnesi og Krist- mann Guðmundsson. Völdu þeir og þýddu hver eina bók og urðu fyrir valinu þessar bækur: Birt- ingur eftir Voltire, Nóa Nóa eftir Gauguin, Jökullinn eftir Jóhann- es V. Jensen, Mikkjáll frá Kol- beinsbrú eftir von Kleist, Simon Bolivar eftir van Loon, Blökku- stúlkan eftir Bernard Shaw Kaupmaðurinn í Feneyjum eftir Shakespeare, Salome eftir Oscar Wilde, Að haustnóttum eftir Hamsun og Martha Oulie eftir Sigrid Undset. Þessi einstæða út- gáfa hefur vakið svo mikla at- hygli að einsdæmi mun vera hér á landi. Er það fyrst og fremst tvennt, sem gerir útgáfuna eigu- lega. Hér eru samankomnir 10 úr hópi þeirra manna, sem bezt skrifa íslenzka tungu með verk sem þeir hafa valið sjálfir og 10 af fremstu og frægustu verkum, sem yfirleitt hafa verið skrifuð í heiminum. Það þykir flestum kostur við þessa útgáfu áð fyrir valinu hafa yfirleitt orðið bæk- ur, sem fólk vill eiga og lesa oft, en ekki bækur sem aðeins eru til stundaránægju.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.