Þjóðviljinn - 17.07.1946, Qupperneq 8
Mildar líkur til að Þj óðleikhús-' Svíþjóðarbátur til
ið verði lullgert • paesía stimar
Fyrirkomulag allt hið íullkoíiiiiasta
I gær kallaði Hörður Bjarnason skipulagsstjóri, form.
Þjóðleikhúsnefndar, blaðamenn á sinn fund og skýrði frá
því, að miklar líkur væru til, að Þjóðleiklnisið yrði að öllu
leyti tilbúið til notkunar haustið 1947.
Blaðamenn ræddu einnig við Eric Löwen-Áberg, tekn-
iskan leiðbeinanda við Konunglega dramatíska leikhúsið í
Stokkhólmi, en hann liefur dvalið hér undanfarinn liálfan
mánuð tU að gera uppdrætti að leiksviði Þjóðleikhússins
og öllu fyrirkomulagi þess.
Eins og kunnugt er hófst
smíði Þjóðleikhússins árið
1928 og var varið til hennar
öllum tekjum af skemmtana-
skatti. En árið 1932 samþ.
Alþingi að verja þessum
styrk til annarra málefna, og
stöðvuðust þá allar fram-
kvæmdir við bygginguna. Á
hernámsárunum höfðu Bretar
bækistöðvar í Þjóðleikhúsinu,
en að stríðinu loknu hófust
aftur byggingarframkvæmdir,
þegar tekjur af skemmtana-
skatti voru aftur látnar ganga
til hennar.
í ftktóber síðastl ðnum fór
húsameistari ríkisins til Norð
urlanda 1 þeim erindum að
afla sér upplýsinga um fram-
boð á, nauðsynlegum tækjum
til Þjóðleikhússins. — Gekk
þetta vonum betur og er nú
svo komið, að allar nauðsynj
ar til Þjóðleikhússins eru
tryggðar og mun vera hægt
að fullgera það næsta sumar
svo framarlega sem gjaldeyr-
isskortur hindrar ekki fram-
kvæmdir.
Hörður Bjarnason tjáði
blaðamönnum, að kostnaður
við byggingu Þjóðleikhússins
til þessa hefði verið furðan-
lega lítill eða alls um 2 millj.
kr. og stafar þetta af því, að
miklu hefði verið lokið áður
en dýrtíðin kom til sögunnar.
Erik Löwe-Áberg hefur
gert uppdrátt að leiksviði
Þjóðleikhússins og leiðbeint
um alla tilhögun hennar. —
Hann er nú á förum heim til
Svíþjóðar en mun aftur koma
hingað næsta sumar til að
ganga endanlega frá þessum
málum. Lætur hann í ljós
þá skoðun, að allt fyrirkomu
lag Þjóðleikhússins muni
verða mjög fullkomið á nú-
tíma mælikvarða.
Símasambandið við Siglufjörð
í megnasta ólagi yfir síldveiði-
Ríkisstjórnin verður tafarlaust að gera
ráðstafanir til úrbóta
Það lætur að líkum, að eitt
mikilvægasta atriðið í sam-
bandi við síldarútveginn er
það, að sem greiðast samband
og samvinna sé milli allra1
aðila, sem að síldveiðun-'
um starfa. Það er m. a. hlut-j
verk símans að sjá um þetta. |
Hins vegar er það svo, að ef j
ná þarf sambandi milli Siglu-
fjarðar og Raufarhafnar (svo
dæmi sé nefnt), verður að
panta það með margra i
klukkutíma fyrirvara, ef um
hraðsamtal er að ræða. Al-
menn samtöl koma ekki til
greina á Siglufirði. Forgangs-
hraði er notaður, ef fljótt
þarf að fá samband, og er
það oft. Geta má þess, að
fyrir hraðsamtöl er tekið þre-
falt gjald, en tífalt fyrir for-
gangshraða. Sést á þessu, hví-
líkt feikna tjón þjóðin bíður
árlega vegna þessa sleifar-
lags á símanum. Þannig hef-
ur. þetta gehgið ár eftir ár,!
«alltaf endurtaka sig sömu
vandræð'n. ,,Jú, þetta er
náttúrlega óþolandi ástand,“
segja ráðamennirnir, ,,en það
er bara of seint að byrja
núna, svo það lagist í sumar“.
Síðan er sofið fram á næsta
sumar og þá endurtekin sama
setningin.
Það er vitanlega fullkomið
ábyrgðarleysi af viðkomandi
aðilum að hafa ekki þegar í
ófriðarlokin undirbúið þær
ráðstafanir, sem vitanlegt var
að gera þurfti í þessu mikil-
væga málj.
Afkoma þjóðarinnar bygg-
ist að verulegu leyti á síldar-
útveginum. Siglufjörður er
miðstöð sildveiðanna. Þaðan
verður að vera mjög greitt
samband við allar hinar síld-
arvinnslustöðvarnar. Þetta
samband hefur lengi verið
lélegt og er nú orðið alveg
óþolandi. Raunhæfar aðgerð-
ir til úrbóta verður því að
hefja nú pegar.
Biíðareyrar
Frá fréttaritara Þjóðvilj-
ans Reyðafirði:
I gær kom lúngað til Búð-
areyrar einn Svíþjóðarbátur.
Hann er rúml. 80 smálestir,
hefur 215 ha. Atlas-dieselvél.
Ganghraði um 9 mílur. —
Hann fer vœntanlega á síld
veiðar í dag.
Bátur þessi heitir Snæfugl,
eign samnefnds útgerðarfé-
lags. Skipstjóri á leiðinni upp
var Júlíus Kemp, en skip-
stjóri í sumar verður Bóas
Jónsson frá Eyri. Báturinn
reyndist vel á leiðinni hingað.
Var komu bátsins mjög fagn
að og fánar dregnir að hún.
Bátur þessi er smíðaður í
Landskrona í Svíþjóð, en á
leiðinni hingað kom hann við
í Álaborg og tók þar se-
mentsfarm.
Mihailowk'li tek-
inn af líf i í morgun
Forsetar júgoslavneska
þingsins synjuðu í gœr náð-
unarbeiðni Mihailowich og
var hann samkvæmt júgo-
slavneskum lögum, skotinn
við sólarupprás í mor-gun.
Forseti réttarins, sem
dæmdi hann, segir, að komið
hafi í Ijós að brezkir foringj-
ar hafi hvatt Mihailowich til
að ráðast á skæruliða. Brezka
stjórnin ber á móti þessu.
tfjárveiting til
Bandaríkjahers
Triiman forseti undirirtaði
í gær hæstu fjárveitingu til
ÍSaiidaiík jahers, sem átt hef-
ur sér stað á friðartímum.
Fjárveitingin er til eins árs
og nemur 7Vá milljarði doll-
ara. Af þessu fara 1,75 mill-
jarður til kjarnorkusprengju
framleiðslu. Gert er ráð fyrir
að herinn telji 1,550.000
menn. Herskyldualdur hefur
verið lækkaður úr 20 árum
í 18 ár.
Ohagstæður
verzlunarjöfn
uður
Útflutningurinn í júní mán
uði sl. nam 14,6 millj. kr. en
innflutningurinn 18,2 millj.
kr. og var verzlunarjöfnuður
inn í mánuðinum því óhag-
stæður um 3,6 millj. kr.
I júní sl. ár var verzlunar-
jofnuðurinn óhagstæður um
5,3 milj. kr.
„BnIarfoss4i til
Rússlands
Brúarfoss fór héðan í fyrra
kvöld til að taka um 1000
smálestir af hraðfrystum
físki á höfnum á Norður- og
Austurlandi.
Skipið fer að því loknu til
Sovétríkjanna með fiskinn.
Kunnur danskur söngvari
kominn liingað til landsins
Heldur hér 3 hljómleika
Hingað til lands kom með „Dronning AIexandrine“ í
fyrradag danski söngvarinn Einar Nörby ásamt konu sinni.
Mun hann halda hér þrjá hljómleika á vegum Tónlistar-
ielagsis og verður sá fyrsti annað kvöld. Kona hans mun
annast undirleik.
Nörby er einn kunnasti
söngvari Dana, hefur sungið
við konunglegu óperuna í
1 Kaupmannahöfn síðan 1928
hlotið heiðursnafnbótina
„Kammersanger“, en hana fá
aðeins úrvalslistamenn.
Fréttamenn áttu í gær við
tal við hann, konu hans og
Ragnar Jónsson, formann
Tónlistarfélagsins.
Þau hjónin létu mjög vel
yfir komu sinni hingað og öll
um viðtökum. Nörby kvað
það mikið tilhlökkunarefni að
syngja fyrir íslenzka áheyr-
endur. Hann hefur víða farið
og haldið hljómleika, og hef-
ur nú fyrir skömmu sungið í
Oslo og Stokkhólmi. Annars
I kvað hann erfitt fyrir fast-
| ráðna listamenn eins og sig
| að ferðast erlendis, því að
skyldustörfin kalla jafnan að.
Hann getur heldur ekki dval-
izt hér nema stuttan tíma,
mun fara aftur 25. þ. m.
Tímaskortur veldur. því einn-
ig, að hann getur ekki haldið
hljómleika annars staðar á
landinu en í Reykjavík, þótt
hann hefði fullan hug á því.
Hins vegar getur til mála
komið, að hann komi hingað
aftur næsta ár, og syngi þá
söngljóð eftir Schubert og
fleiri, en í þetta skipti mun
hann aðallega syngja aríur
og óperusöngva.
Á fyrstu hljómleikum sín-
um hér í Gamla Bíó á morg-
un mun hann syngja aríur úr
óperum eftir Mozart, Vcrdi
og Rossini, einnig rússneska
og bandaríska söngva.
Ekki er að efa, að Reyk-
víkingar muni nú sem endra-
nær nota sér tækifærið til að
hlýða á snjöllustu verk tón-
listarinnar í flutningi ágæts
listamanns. Hafi Tónlistarfé-
lagið þökk fyrir að hafa gefið'
þeim kost á því.
Ekki sama hv?r liturinn er
1‘essi laglega svertingjasiúlka er stúdent viö Vernmont-háskóla
i Bandarikjunuin og heitir Crystal Malotíe. Ilún iar svo vinsæl
af skólasystrum sínum, aö þær kusu hana i kvenstúdentafélagiíi
Alpha Xi Dclla, sem aöcins úrvals slúdenlar fá inngöngu i. En
þá kom landssamhand kvcnslúdenlafélaga lil skjalaiuia og krafö-
ist þess, aö slúlkurnar i Vermont rækju Malone úr félaginu þar
sem hún væri svcrtingi. Þær ncituöu, cn þá rak landssambandiö
Varmontdeild Alpha Xi Delta félagsins úr samtiandinu.