Þjóðviljinn - 13.09.1946, Síða 3
Föstudagur 13. sept. 194ö.
ÞJOÐVILJINN
S
ÍÞRÓTTIR
Ritstjóri: F.IÍMANN IIELGASON
Þátttaka íslands í E.M.-mótinu:
ir\
Arangur Islendinga fram yfir
allar vonir og vakti mikla
athygli
Þessi þátttaka íslands í E.
M.-mótinu hefur orðið til
að vekja meiri athygli á ís-
lenzkum frjálsíþróttum en
nokkuð annað fram til þessa
dags- Við höfum sannað að |
hér meðal þessarar fámennu
þjóðar eru íþróttamenn sem
þegar eru komnir með árang
ur á heimsmælikvarða, og
flestir þessara manna hafa
aldur og möguleika til að
bæta árangra sína til mikilla
muna.
Það var mikil eftirvænting
í íslenzku „nýlendunni“ á
Ðisletvellmum þegar kúlu-
varpið átti að fara fram. Á
æfingunum á Jordalvellinum
fyrir mótið hafði Huseby
kastað nær 16 m, svo útlitið
var í rauninni gott. í for-
keppni hafði Huseby kastað
15.64. Síðan hófust úrslitin. I
fyrsta kasti nær hann 14,94
m. Gorjaninoff, Rússinn sem
varð annar, kastaði 15,28.
Huseby kann þessu illa og
kastar 15.56 sem varð hans
sigurkast. Hin köstin voru:
14,82, — 15,49, — 14,98, —
15,22- Þessi fyrsti Evrópu-
meistari íslands var þegar
orðin hetia dagsins, ísland
varð á hvers manns vörum.
íslenzki fáninn er dreginn að
hún til heiðurs sigurvegaran-
um. þarna blakti hann í sín-
um fögru litum þetta blíða
ágústkvöld í miðið sem tákn
þess að ís|endr(ngur halði
unnið sér og landi sínu glæsi-
legan orðstír sem ekki gleyrn
ist. Til beggja hliða voru
fánar þeirra þjóða er áttu j
annan og þriðja mann. Til
hægri rússneski fáninn, og* 1
til vinstri sá finnski. Þetta'
verður ógleymanleg stund
þeim Islendingum er cil sáu
og heyrðu. Áhorfendur hyltu
Huseby ákaft og blöðin birtu
myndir og frásagnir af þessu
afreki Huseby. Þau tala um
hann sem h'nn ósigrandi ,,ís-
lenzka björn“, sem búi yfir
ógurlegum krafti.
Finnbjörn varð einnig mjög
vinsæll og vakti mikla at-
hygli. í 100 m hlaupinu var
„spenningurinn" ekki minr.i
en við keppni Huseby. í
fyrsta lagi hvort hann kæm-
ist í milliriðil. I forkeppni
sigraði Finnbjörn glæsilega
á 10,8 varð 1/10 á undan ítal-
anum Monti, mjög góðum
hlaupara- Hann hefur tryggt
sér keppni í milliriðli. Þar
verður hann nr. 2 á 10,8
næst á eftir Tranberg Noregi.
Bally Frakkland er nr. 3 og
Stig Danielsson Svíþj. sá er
hingað kom í sumar varð nr.
4. Þetta vakti óhemju fögn-
uð íslendinganna og undrun
áhofenda. — Finnbjörn
hafði náð mjög góðu við-
bragði. Stutt stund leið þar
til úrslitin fóru fram. Við-
Gunnar Haceby kastar kúlunni á EM.
"T
Vanti yöur bíl, þá muniö
sími 6633
Bifreiöastöö Hreyfils.
Sendisveinn
óskast til sendiferða á skrifstofu vorri.
Finnbjörn.
bragðið var svipað hjá öllum
nema hvað Tranberg varð að
eins síðastur- Eftir 50 m var
Archer fyrstur þá Bally og
Monty jafnir. Finnbjörn og
Háíkonsson (Svíi) alveg á
eftir og Tranberg síðastur.
Þegar 80 m. voru búnir var
Archer IVz m á undan. Bally
og Monti jafnir og Tranberg
fáa cm á eftir. Finnbjörn og
Hákonsson voru síðastir og
börðust um 5. og 6. sæti. Við
markið var Archer fyrstur ó
10.6 og þá Tranberg á 10,7.
Monti brjóstþykkt á undan
Bally á 10,8 báðir og Hákons
son líka en Finnbjörn fær
10,9, þó myndir af hlaupinu
bendi til að tíminn hljóti að
vera sami- Finnbjörn var
ekki nógu hvíldur fyrir úr-
slitasprettinn. Þetta var góð
frammistaða af Finnbirni.
í 200 m hlaupi lenti Finn-
björn í öðrum riðli og varð
nr. 2 á 22,4 sem er nýtt ísl.
met. í milliriðli er hann nr.
6 í rlðlinum og setur þó enn
nýtt met á 22,3. Fyrsti maður
var aðeins 3/10 úr sek. á
undan-
í 800 m hlaupi áttum við 2
keppendur, þá Kjartan Jó-
hannsson og Óskar Jónsson.
Hljóp Óskar í fyrri riðlinum
og varð nr. 6 á sama tíma
og nr. 5 — 1,56,1, sem er nýtt
ísl. met. í þessum riðli voru
8 menn. Kjartan varð óhepp-
inn í sínum riðli, lenti í
þröng og lokaðist innú I
þröng þessari varð hann fyr-
ir alvarlegu olnbogaskoti í
kviðinn sem sýnilega hafði
mjög lamandi áhrif á Kjart-
an og tafði hlaup hans, þó
náði hann ágætum tíma 1,56.7
sami tími og Bretinn Sali er
varð nr- 7.
í 400 m hlaupi varð Kjart-
an síðastur í sínum riðli á
50.7 sem er mettími hér.
Hamar h,f.
Hótel Garður
Lokað suniTudaginn 15. september.
Hótelstjórnin.
r.rF-V
Skúli Guðmundsson varð nr
7 í hástökkinu og er það góð
frammistaða. Hann fór létti-
lega yfir 1,90. En þegar hæð-
in varð 193 cm byrjaði 5000
,m hlaupið sem setti Bislét-
áhorfendurna í ,.æsing“, og
það var sýnileglt eins og
sænska Idrottsbladet segir að
þetta andrúmsloft hafi þessi
rólegi íslendingur ekki þolað
án þess að tapa stílnum, og
felldi alltaf á þessari hæð.
Að verða nr. 7 á svona móti
er mjög góð frammistaða.
Sennilegt er þó að Skúli í
fullri þjálfun hefði orðið með
al 6 beztu.
í langstökkinu áttum við
tvo menn. Oliver Stein og
Björn Vilmundarson. í for-
keppni varð Oliver nr- 4 og
stökk 7.06. Bezta stökk var
7,18, en Björn varð nr. 11 og
stökk 6,69. í úrslitunum náði
Oliver sér aldrei á strik og
stökk lengst 6,82. Hefði hann
náð aftur stökki sem var 7.06
hefði hann orðið nr. 5. Virtist
Oliver vera ver fyrir kallaður
í úrslitunum því allir kepp-
endurnir bæta við sig nema
hann.
í spjótkastinu varð Jóel Sig
urðsson nr. 10 í forkeppninni
og kastaði 58,06, náði hann
því þegar 1 fyrsta kastinu.
Aðeins 7 menn köstuðu yfir
60 metra, svo þetta má kall-
j ast góð frammist. í kringlu-
i kastinu voru tveir keppendur
frá íslandi, Huseby og Jón.
Ólafsson og urðu þeir nr. 13
Jón og 14. Huseby, af 16
keppendum. Kastaði Jón
42.40 en Huseby 41-74. Síð-
asti maður til úrslita náði
44,90. S.VO Huseby hefði með
metkasti, 45,40 orðið í úrslit-
um og orðið nr. 7 í úrslituni
en lakasti maður þar kastaði
44,11.
Sennilega hefur árangur
Stefáns Sörenssonar komið
mest á óvart af okkar mönn-
um, hann verður nr. 7 og set-
ur nýtt met. Virðist að með
góðri kennslu í næstu 1—-2
ár ætti Stefán að komast
hátt á 15- meterinn. í þetta
sinn stökk hann 14,11 lengst.
Hin stökkin voru 13.67 og
13,80.
Eins og fyrr segir vöktu
j árangrar íslendinganna mikla-
athygli og orð hins fræga
! íþróttaritstjóra Lauri Pihk-
ala um annan dag mótsins!
1 eru athyglisverð: England
vann 100 m og 5000 m. Norð-
urlönd ennþá meira, 400 m
hástökk, göngu og kúluvarp.
Já var ekki dagurinn dagur
íslands, þessarar íshafseyju
með eldinn í baimi? Huseby,
Finnbjörn, Skúli og þeir,
tveir í gær undir 1,57 á 800
m. Getur nokkur önnur þjóð
með rúml. 100 þús. íbúa sýnti
nokkuð þvílíkb Heill þér! Þúj
gamli sögubundni l.tli bróðirlj