Þjóðviljinn - 24.12.1946, Side 5

Þjóðviljinn - 24.12.1946, Side 5
Þriðjudagur, 24. des. 1946. ÞJÓÐVILJINN Þá var hún ung, þetta mó- eygða fiðrildi, og hún hló út í vorið og sagði: -,Eg vil þig einan“. Og ég ástfanginn — hvað er það sem maður gæti ekki gert ástfanginn? Maður gæti hoppað unp í loftið og gleypt flugu, væri jafnvel til í að drekka ofan í sig sjóðandi tjöru. og þá er nú ekki horft í skildingana, sem maður hef- ur önglað sér. Og hvað sagði ég ekki, ég sagði: --Við skulum fara á sumar- hótel og hafa það gott“- Og svo fórum við. Það var svo ánægjulegt að sjá þorp- ið hverfa með sitt slor, sína báta og sína tjörulykt. Nýtt umihverfi verkar á mann eins og vín. Við tókum sitt herbergið hvort, það var skemmtilega, eða öllu heldur myndarlegra, þar sem við vorum ekk' gift. Þetta var mjög skemmtilegt hótel og fullt af nýju fólki. Við vorum glöð, og lund okkar fylltist hálfgerðri freJs iskennd og nýjungaþrá, þeg- ar við gengurn út í hinn fyrsta morgun okkar á þess- um stað- Það var hvít sól. sem þurrkaði döggina af blómunum og ylmur var í loftinu. Við leiddumst, lás- um blóm og drukkum angan. Seinni hluta þessa dags hittum við skrítinn náunga- Hann hafði stillt upp trön- um skammt frá stórum steini og kallaði: ,,Eigið þið sígarettu?" Jú, við áttum sigarettu, svo við gengum til hans. Þetta var e'nn af þessum náungum, sem kalla sig málara. Hann stóð með pensilinn í hend- inni, klíndi litum á léreftið og þóttist vera að mála stein- inn. „Þið eruð gott fólk“, sagði hann, og púaði og svældi. — „Skínandi áttu laglega frænku, — þið búið á hótel- inu, ég bý þar líka, — en h-vaðan annars eru þið?“ „Úr Þarafirð'num“, sagði ég- „Hvað stundarðu?“ sagði hann- „Eg er með bát“. ,,Nú-já, þetta sá ég, því bú ert svo sterklegur, Það var ekki svo slæmt að kynnast heilum skipstjóra- „Hann er bara með trillu“, sagði hún. Þetta fannst mér óþarft innskot, þar sem ég var með stærsta opna bátinn í þorp- inu og var þar að auki tal- inn mjög efnilegur fiskimað- ur. Málarinn skirpti sígarett- unni, svo varð hann glettnis- legur. „Eg þarf að mála blóm ð, hana frænku þína. Fáðu bér stöðu þarna við steininn“, sagði hann, og benti, ,,nú skal ég vanda mig“. Hún hlýddi, og málarinn tók til- Það voru komin ein- -hver leiðindi innan í mig; hún leit ekki. til mín, en Stefán Hörður Grímsson: MÁLNIN stillti sér upp eins og madonna. Eftir örstund sló málarinn upp penslinum og sagði: „Búið“. Svo komum við nær og Mt- um á myndina- Andlitið á myndinni var nokkuð líkt stúlkunni og myndin var í fal legum litum, en brjóstin voru of stór og þó sérstaklega lend amar. Við þögðum bæði. — Þá sagði málarinn: „Þetta er annars tæplega nógu gott, hún á skilið m'klu betri mynd; ég- skal vanda mig betur á morgun. Svo mál aði hann yfir myndina með nokkrum pensildráttum. ..En nú skal ég mála þig“- sagði hann og ýtti mér að steininum. „Stilltu þér nú myndarlega upp, hafðu hand leggina niður með síðunum og láttu handarbökin snúa fram“- Svo rauk hann í að mála. Eftir dálitla stund réttc hann aftur upp pensil- ým og sagði: „Búið“. Eg kom að myndinni og leit á hana- Það var engin skilsmynd á þessu, fæturmr á mér voru brúnir og gildir eins og símastaurar, maginn blár, sama var að segja um kinnarnar, nefið blóðrautt vg eyrun stóðu út í loftið og svo hendurnar; þær voru með einhverjum lit, sem ég vissi ekki deili á og líktust trölla- höndum, en enninu hafði hann gleymt. Ofan á höfðinu var einbver hárflóki, .(en ég tek það fram að ég var vand- lega greiddur), sem byrjaði rétt upp af augabrúnunum. Eg starði með skelfingu á myndina og stúlkuna á víxl. En þá sagði málarinn: „Eg sé. að þér lízt illa á þetta, annars er þetta list sem venst“. Síðan málaði hann vfir myndina. Þá tók ég und'r handlegg stúlkunnar og við þökkuðum og kvöddum- 'Hann veifaði og sagði: „Við sjáumst í kvöld“. Við leiddumst á ný eftir grasinu og klettarnir huldu málarann. Aftur vorum við ein- Nú var döggin löngu þurr og blómin hlóu opnum krónum, en við vorum eitt- hvað skrítin, eitthvað þving- aðr'. Eftir skamma stund fór- um við heim á hótelið. Við snæddum kvöldverð, svo fór- um við upp á herbergið mitt: við röbbuðum saman og urð- um aftur sæl og elskuleg, og blátt vorhúm lá á glugganum. Seinna um k\röldið var far- ið að spila niðri í danssaln- um og lyftandi tónar bárust til okkar. Þá gengum við nið- ur og fengum okkur borð; það var bezt að dansa og njóta allra þeirra gæða, sem hótelið hafði að bjóða. Við dönsuðum, og ég var sæll, og hún var rjóð og fín- Þarna var málarinn kominn, hann var orð'nn prúðfcúinn og sleiktur og þeyttist um hans er líka að hátta sig, en það er þil á milli þeirra? Hann hugsar margt. En hann er glaður í sál sinni ef hann veit að hann á hana e'nn og mun einn njóta þessa blcms. En svo heyrðist mér eins og hvísl bærist gegnum þilið- Það var öllu heldur eins og óljós kennd styngi m'g, um gólfið með einhverja hof-1 að eitthvað mér dulið væri rófu, s.jáanlega úr Reykjavík Hann kom til okkar, hlamm- aði sér niður á stól, þakkaði fyrir síðast og spurði hvort hann mætt: ekki fá sér einn bjór við hornið. Hann talaði um allan fjandann og þó ekki um neitt, en þegar hljómsveit in tók upp á því ódæði að spila Vínarvals, sagði hann: ,,M;g langar til að dansa við hana frænku þína“- Þegar ég var hálfnaður oð segja honum, þetta væri alls ekki nein frænka mín, held- ur, .... þá voru þau rokin út á gólfið og dönsuðu í of- forsi. Þau dönsuðu samfleytt næsta klukkutíma og á þeim tíma liðnum sá ég engan lit1 þess, að þau byggju sig undir að hætta. Eg var orðinn leið- ur á þessu og sár inni í mér og fannst líka hálf kjánalegt að sitja þarna alltaf einn. og mér sýndist jafnvel fólkið vera farið að gefa mér horn- auga. Eg tók því rögg á mig, gekk snúðugt út úr salnum og upp á loft til herbergis míns. Þar lagðist ég fyrir og fékk mér sígarettu. Dansinn átti að hætta eftir korter- Hvað allt gat verið skrítið og breytilegt. í kvöld var rökkrið blátt, nú var það ein- hvemveginn allt öðruvísi. — Stundum er maður hoppandi glaður, stundum fúll- Eg var að hugsa á þessa leið, þegar ég heyrði hana koma. Fvrst heyrði ég eitthyert hljóðskraf frammi á ganginum. heyrði hana snöggvast opna her- bergi sitt, en svo kom hún inn til mín. Hún var heit og rjóð og sagði: ,,Af hverju fórstu?“ Eg gat engu svarað, það var einhver fjandinn 1 hálsinum á mér. Hún sagði, að hljóm- sveitin væri draumur og að við skyldum vakna snemma á morgun, bauð góða nótt, kyssti mig og fór. Þegar hún var farin, fannst mér hún hafa verið eitthvað annarleg, en svo hætti ég að hugsa um það og fór að hátta. Eg heyrði einnig til hennar, að hún var að hátta sig hinum. megin við þilið- Hvað hugsar maður,-sem hátt þar að gerast. En svo hvarf þetta, þó heyðrist mér hálf- partinn sem einhver segði uss. Eg taldi þetta vltleysu og reyndi að sofna. Stuttu síðar heyrðist mér þetta aft- ur; það fór um mig hrollur og ég gat ekki legið kyrr. Eg laumaðist fram úr og leit út um gluggann. úti var aðe'r.s vorið og kyrrðin. En það var einhver framandi titringur í blóði mínu, einhver lamand: spenna hið innra með mé~ Svo læddist ég fram í gang- inn og reyndi hljóðlega á nurð hennar. Hurðin var læst — vitanlega var hún læst. Eg lagð.'st aftur uppí og leið betur og tókst að sofna- Að vakna við sól að morgm bægir burt hverjum illum þanka, sem kann að hafa graf ið sig inn á mann að kvöld- inu. Þegar ég hafði farið í bað og gert mig fínan, fór ég ti-1 herbergis minnar elskuðu. Hún var þá komin á fætur og það var sæla og dreynrú í móleitum augum hennar. Nsestu þrjá daga skein sól- in jafn glatt. Við nutum surn- arsins úti við á daginn, en dönsuðum inni á kvöldin. — j Málarinn var alloft með okk-i ur; sagðist vera hér e'nn síns | liðs- Þetta var skemmtilegasti J náungi, og þótt hann dansaði1 við mína elskuðu, svona við og við, þá tók ég ekkert til þesis. En aldrei minntist hann á að mála af henni myndina, sem hann hafði lofað. — Að morgni hins fjórða dags fór hann- Þá var rigning og við kvöddum hann á hlaðinu. Allan þennan dag var stúlkan mín dálítið annar- leg, reyndar ég líka, maðui er allt öðruvísi í rigningu en í sól. Um kvöldið sagði hún: „Eigum við ekk' að fara á morgun. Við erum búin að vera svo lengi?“ Þetta fannst mér heillaráð, reikningurinn var víst orðinn nógu hár. Seinna um kvöldið fórum við að láta niður í ferðatöskurnar, en þá kom hú dálítið fyrir- Eg varð fljótari að láta niður í mína tösku. en þegar ég fór yfir ar og hann heyrir að stúlkan í um til aðstoðar minni elsk- uðu, þá stóð hún út við gluggann og hélt í sundur litlu olíumálverki, sem hún skoðaði vandlega. Mér sannar lega brá og það ekki lítið. 1 Þetta var mynd af henni sjálfri, allsberri- Og þarna stóð hún og horfði hugfangin á sjálfa sig nakta og lenda- mikla. Svo hrökk hún við. þegar hún varð mín vör, ng henti myndinni niður í tösku. „Skammastu þín ekk:‘?“ sagði ég“, titi-andi af reiði, ..að láta þennan dólg mála þig bera“. ..Þetta er hugmynd11, sagði hún, „bara hugmynd“. Mér létti- Annars var ég orðlaus af undrun og skiln- ingslaus á þetta tiltæki. En þessa nótt magnaði ég í mér heiftina, sára, auð- mýkta heift. Og þá sá ég þetta í skíru ljósi, sá hvemig þetta hafði allt saman genglð til- Náttúrlega var þetta eng- in hugmynd. Auðvitað hafði hún látið hann mála sig bera, allsfcera. Og vitanlega hafði hann málað af henni stóra mynd, sem hann hafði farið með sjálfur. Litlu myndina hafði hann málað handa henni á eftir. Eg svaf litið þessa nótt. Og í bílnum á heimleiðinni daginn eftir sat ég þögull og viðaði að mér hatri- Hún hafði látið hann njóta bliðu sinnar, látið hann taka sig. Hún hafði hljóðað af frygð á meðan ég svaf í grunleysi. Og þegar ég lét töskuna hennar inn fyrir hliðið heima hjá henni. bá sagði ég: „Eg vil ekki sjá þig framar. mér býður við þér, farðu“- En þegar maður hefur kast að frá sér stúlku, sem maður hefur elskað og er orðinn einn, verður maður dálítið kindarlegur innvortis. Og þegar maður skoðar herberg isþiljur sínar úr bólinu á kvöldin, verður maður svolít ið angurvær, jafnvel þó að stúlkan hafi gert manni ill- an grikk. Dagarnir líða í eirð arleysi og sál manns er tvinn íngur af hatri og óviðurkennd um söknuði. En mánuði seinna kom hún um nótt. Eg vaknaði þegar hún kom inn úr dyrunum, og hún sagði: „Eg er komin til þín“. Og hvað gerir maður, þegar stúlka kemur til manns á blárri vornótt og augun í henni segjast elska mann? Maður tekur hana uppí til sín og nýtur hennar. Síðan þetta var eru liðin tíu ár, og á næstunni eigum við tíu ára hjúskaparafmæli- Við eigum hús, hvítt hús með raaðu þaki, og ég á sjálfur bátinn, sem ég er með, nú er það ekki lengur trilla. En svo eigum við líka snáða, kominn á táunda ár. Myndarlegan og kartinn ekki vantar það. en ófyrirleitinn Framhald á 6. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.