Þjóðviljinn - 27.04.1947, Qupperneq 3
27. -apríl 1947
ÞJÓÐVILJINN
Næturakstur í nótt annast
Litla bílstöðin, sími 1380, en
aðra nótt Hreyfill, simi 6633.
Næturvörður er í Reykjavík
ur Apóteki.
Útvarpið í dag:
18.30 Bamatími (Þorsteinn Ö.
Stephensen o. fl.).
19.20 Tónleikar (plötur): a.
Þættir úr Árstíðaballettinum
eftir Glasunow. b. Blómavals-
inn úr Hnotobrjótnum eftir
Tschaikowski.
20.20 Einleikur á harmonium
Eggert Gilfer): a. Ave verum
corpus (Mozart). b. Þjóðlag
(Sinding). c. Koral úr Norð-
urlandatilbrigði (E. Gilfer).
d. Adagio (Beethoven).
20.35 Erindi.
21.00 Karlakórinn Fóstbræður
syngur (Jón Halldórsson
stjórnar).
22.05 Danslög til kl. 1.30 e. mið
nætti.
Trúlofun. Síðastliðinn mið-
vikudag opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Kristín Claessen
stud. phil. og Guðmundur Bene
diktsson stud. jur.
Það var ranghermi í blaðinu
í gær að fimm manna sveit ÍR
hefðu haft lægstu stigatölu í
Víðavangshlaupinu á sumardag
inn fyrsta. Það var Ármann
sem hafði fæst stig í þessari
sveitakeppni, átti 2., 3., 4., 8. og
11. mann, og hlaut því 28 stig.
iR átti hinsvegar 5., 6., 7.-, 9.
og 10. mann og hlaut 37 stig.
— Það sem misskilningnum olli
var að reglur Coca-cola-verk-
smiðjunnar um verðlaun i þess
ari keppni og leikregur ISl um
Víðavangshlaup voru í nokkru
ósamræmi. Munu reglur ISl
hafa verið látnar gilda.
Vísitla eymdarinnar
Framh. af 1. síðu.
tölunnar nema a. m. k. 2220 kr.
yfir allt árið.“ Og nú eftir að
tollalög heildsalastjórnarinnar
hafa verið samþykkt er fölsun
vísitölunnar ennþá stórvægilegri
en hún var þegar Jón Blöndal
skrifaði grein sína.
Alþýðusamtökin hafa getað
bætt upp vísitölu eymdarinnar
með hækkuðu grunnkaupi, en
nú á auðsjáanlega að beita vísi-
tölunni til þess að koma lífs-
kjörum almennings á sama
eymdarstig og 1939. Aðferðin
er sú að hækka tolla á öllum
þeim vörum sem lítil sem engin
áhrif hafa á vísitöluna. Þannig
á að gera húsgögn, þokkalegt
húsnæði, fatnað, búsáhöld,
menningartæki o. s. frv. að lúx-
usvörum sem efnastéttin ein á
að vera fær um að veita sér.
Enda hefur Alþýðublaðið marg-
lýst því yfir að fábreyttustu
matvæli( rúgbrauð og hafa-
grautur) séu hinar einu sönnu
nauðsynjar alþýðunnar. Aðeins
þær vörur, sem fátækustu al-
þýðumenn gátu keypt 1939 og
reiknað er með í vísitölu eymd-
arinnar, á nú að telja til lífs-
nauðsynja almenings.,
Þar til vísitala eymdarinnar
hefur verið afnumin - hafa al-
þýðusamtökin engin ráð til að
vega gegn tollahækkunum og
öðrum kúgunarráðstöfunum
önnur en grunnkaupshækkanir
sem samsvara tollahækkunun-
um.
ORÐSENDING
Að gefnu tilefni viljum vér hér með taka fram: Ástæður fyrir því, að vér sjáum oss fært að taka upp
þá nýbreytni í bifreiðatryggingum, að lækka iðgjöld á þeim bifreiðum, er sjaldan valda tjóni, eru
meðal annars:
Ódýr og hagkvæmur rekstur.
Framúrskarandi hagkvæmir endurtryggingarsamningar. Að liagnaður sem kann að verða áf
tryggingarstarfseminni, verði notaður til þess að lækka iðgjöldin, en eltki ti.1 þess að greiða
liáan arð til hluthafa, svo sem tíðkast í tryggingarhlutafélögum.
Samvinnutryggingar gerðu endurtryggingarsamning við sænsku samvinnutryggingarfélögin, og eru
þessir samningar sérstaklega hagkvæmir, enda byggjast þeir ekki á gróðavon endurtryggjenda, held-
ur samhjálp fyrir góðu málefni. Samningarnir eru gerðir til margra ára og tryggja afkomu Sam-
vinnutrygginga eins vel og hægt er,. Það má geta þess, að hin sænsku • samvinnutryggingarfélög
greiða sænskum bifreiðaeigendum, allt að 50% afslátt af iðgjaldi fyrir þær bifreiðar, sem ekki hafa
orðið fyrir neinu tjóni í 4 ár.
Samband ísl. samvinnufélaga hefur tryggt afkomu Samvinnutrygginga með 500.000 króna framlagi
í trvggingarsjóð.
Hafi orðið tap á bifreiðatryggingum hjá þeim félögum, sem rekið hafa þá starfsemi hér á landi, hefur
slikt tap orsakað iðgjaldahækkun, samanber hækkun þá, er Almennar Tryggingar h.f. og Sjóvátrygg-
ingarfélag íslands h.f.' auglýstu fyrir nokkrum dögum.
Umferðarmálin hér á landi eru nú orðin aðkallandi vandamál. — Daglega koma fyrir umferðaslys,
og ekki ósjaldan berast fregnir um dauðaslys á mönnum. Þegar Samvinnutryggingar tóku upp hið
nýja fyrirkomulag um iðgjaldaafslátt, vildu þær stuðla að auknu öryggi í umferðarmálum. Fyrir-
komulag þetta er mjög algengt erlendis og gefst allsstaðar vel.
Er ekki sanngjarnt, að eigendur þeirra bifreiða, er sjaldan valda tjóni, fái ódýrari tryggingu?
Reykjavík, 26. apríl 1947.
Samvinnutryggíngar.
Aðalf undur
Flugféiags ðslands h.f.
verður haldinn í Oddfellowhúsinu (uppi) í Reykja-
vík föstudaginn 30. maí 1947 kl. 2 e. h.
DAOSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
Afhending aðgöngumiða og atkvæðamiða fer fram í +
í skrifstofu félagsins í Lækjargötu 4, Reykjavík, *• L
t dagana 28. og 29. maí.
Stjórnin.
■H-H"H-i"l-i"l"H"i-i-H-i"i-l-H-I"i-i"I-H"H"H"H"I"I"I"H-i"I"i"H"i"l'4-i-
Fasteignaeigendafélag Reykjavíkur
heldur
AÐALFUND
n. k. miðvikudag, 30. þ. m. kl. 8,30 í Breiðfirðinga-
búð.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Afstaða þings og stjórnar til húsaleigulag- f
anna.
Félagsmenn eru beðnir að sýna skírteini við inn- ;;
ganginn.
Stjórn Fasteignaeigendafélags Reykjavíkur.