Þjóðviljinn - 18.05.1947, Qupperneq 8
5W5
m
fZ&Jl
fes-3
tanxa a
Ofr
Náln saatvldRð péSskra tm
Miðstjóm póiska Sósíaldemókratafiokksins samþykkti
á fundi 8. maí að fiokkurinn héldi áfram 3iánu samslarfi
\ið Kommúnistafiokk Pólíands.
í ályktun miðstjórr.arinnar er {h'ssí ákvörðun rök-
studd með því að báðir fiokkamir'*berjíst fyrir sönni mark-
miðum, sósíalisma, iýðræði, sjálfstæði |>jóðarinnar og virð-
ingu fyrir lögum og þjóðfélagsstoínunum.
Meðal pólskra stjómmálamanna er talið að ekki muni
a. m. k. á næstunni koma ti! sameiningar sósíaklemókrata
og kommúnista í einn flokk, segir fréttaritarinn cnnfremur.
Á dvalarlieimili mæðra og barna að Reykholti.
Mæðradagurinn
Framh. af 1. siðu.
með sér. Varð það til þess að
nefndin hefur starfrækt sumar
dvalarheimili fyrir mæður og
börn þeirra.
-r-í Húsnæði?
— Við höfum alltaf verið á
hrakhólum með húsnæði til
þessarar starfsemi, höfum feng
ið heimavistarskóla í sveit, en
þó aldrei átt tryggingu fyrir
vissum stað, t. d. eigum við enn
engan stað vísan fyrir þessa
starfsemi í sumar.
Hvíldarvikan á Laug-
arvatni
— En Laugarvatn ?
— Já, við höfum haft hvíld-
arviku fyrir mæður að Laugar-
vatni undanfarin sumur, þar
sem þær hafa notið hvíldar um
eina viku hver, en þar hafa að-
eins verið konur en ekki börn
þeirra.
Eg vil taka það fram að við
höfum alltaf átt að fagna góð-
um skilningi hjá skólastjóran-
um á Laugarvatni, starfsfólk-
inu þar og Ólafi Ketilssyni, sem
annast flutningana austur, og
vil ég nota tækifærið til að
færa öllu þessu fólki þakkir
mæðrastyrksnefndar. Skóla-
stjórinn á Laugarvatni hefur
mörg sumur látið okkur hafa
húsnæði fyrir dvalargesti hvíld
arvikunnar, og svo vona ég að
verði enn.
En það er fyrir sumardvöl
mæðra og barna sem okkur
vantar húsnarði.
Yantar sumardvalar-
heimili
— Eigið þið ekki húsþýgg-
ingarsjóð ?
— Jú við eigum vísi að hús-
Aflafréttir
Frá Suðureyri hafa aflabrögð
verið heldur treg en þó mikið
um steinbít. Sjóferðir voru flest
ar sjö.
Frá Flateyri var jafnan góð-
fiski þegar á sjó gaf, allt upp í
15 smál. í sjóferð en mikill hlut
inn steinbítur.
Frá Þingeyri voru aðeins 5-6
sjóferðir og var afli yfiileitt
rýr eða 4-5 smál. í sjóferð. Þar
eins og annarsstaðar á Vest-
fjörðum var steinbítsaflinn all-
jnikill.
byggingarsjóði fyrir slíkt sum-
ardvalarheimili.
— Hvert er upphaf hans?
— Það voru börn Margrétar
Gunnlaugsson sem á 60 ára af-
mæli hennar gáfu fyrst 10 þús.
krónur í þessu augnamiði.
Næsta gjöfin var þá 12 barna
móður á Akranesi. Börnin henn
ar glöddu hana á fimmtugsaf-
mælinu og gaf hún þá 4 þús. kr.
í húsbyggingarsjóðinn.
Síðar arfleiddi Reykvíkingur
sjóðinn að eignum sínum og j
námu þær 6—7 þús. kr. svo nú
eru í sjóðnum um 24 þús. kr.
— en það er dýrt að byggja
núna og upphæð sem þessi nær
skammt.
En ef fleiri færu að hinum
ágætu fordæmum þessara gef-
enda myndi ekki líða mjög
langt þangað til fast sumar-,
dvalarheimili fyrir mæður og.
börn þeirra gæti tekið til starfa.
Þörfin fyrir sumardvalar-
heimili mæðra og barna er svo
brýn að um hana þarf ekki að
deila og þá fyrst getur þessi
starfsemi náð tilgangi sinum
þegar hún á sér fastan sama-
stað, sitt eigið hús er hægt er
að starfrækja allt sumarið —
eða jafnvel allt árið, því á því
væri full þörf.
Helzt vildum við fá stað und-
ir sumardvalarlieimili ekki allt í
of fjarri Reykjavík, og þar sem
væri jarðhiti. — En slíkt er nú
aðeins draumur ennþá, en þó
draumur sem ég vona að verði
að veruleika sem fyrst.
Skrifstofa mæðrastyrks-
nefndar
—- En mæðrastyrksnefndin
gerir meira en starfrækja sum-
ardvalarheimiti ?
— Já, nefndin hefur skrif- i
stofu í Þingholtsstræti 18 sem
opin er atla virka daga til
Þar eru mæðrum veittar
margháttaðar upplýsingar og
lögfræðileg aðstoð eins og til
að ná rétti sínum í barnsfaðern
ismálum, skilnaðarmálum og
tryggingamálum.
Mæðradagurinn
— Og dagurinn í dag?
— Tilgangurinn með mæðra
deginum liefur frá upphafi hans
verið sá að safna fé til að stand
ast kostnað við sumardvalir
illa stæðra mæðra og barna.
Merki dagsins -— mæðrablóm
ið — er selt á götunum til á-
(Tímaritið „Flug“
er komið út
Tímaritið „Flug“, 2. hefti ann
ars árgangs, er komið út.
Aðal- greinin að þessu sinni
fjallar um þrýstilofthreyfilinn
og er eftir Jón N. Pálsson, flug-
virkja. Þrýstilofthreyfillinn lief
ur valdið stórbreytingum í allri
flugtækni; en almenningur hef-
ur hinsvegar fram að þessu feng
ið mjög litlar upplýsingar um
eðli þessarar nýungar. Grein
þessi mun því velþeginn fróð-
leik.
Einnig er í blaðinu alllöng
grein er nefnist ,,Úr minnisblöð-
um orustuflugmanns“ eftir Þor-
stein E. Jónsson sem barðist í
brezka flughernum á stríðsár-
unum; þá er það önnur grein
eftir Jón N. Pálsson um sér-
staka tegund æfingarflugvéla
„piper club trainer;“ grein um
loftsiglingafræði eftir Eirík
Loftsson, grein í flokknum „það
kenndi mér . . . . “ eftir Kjartan
Guðbrandsson. Steindór Hjalta-
lín skrifar um fólk- og vöru-
flutninga með svifflugum; Eric
E. Cooney, sem áður var flug-
eftirlitsmaður brezkra flugferða
á íslandi, segir álit sitt á kost-
um og ókostum Keflavíkurflug-
vallarins og Rej'kjavíkurvallar
ins. Auk þessá er i heftinu f jöldi
smágreina og fróðleikskorna um
flugmál. Myndir eru margar.
Landnám mink-
anna
Meðan fjargviðrast er um það
hver vágestur hafi komið hing-
að til lands með innflutningi
minkanna halda þeir áfram að
stækka l&ndnám sitt.
Fyrir tæpri viku voru drepnir
tveir minkar austur í Land-
eyjum, annar í Vestur- en hinn
í Austur- Landeyjum.
TjamaEboðhlaupið verðu?
háð í dag.
Tjarnarboðhlaupið fer fram í
dag. Hefst það hjá Hljómskál-
anum kl. 3,30 og verður hlaup-
inn rúmur hringur í kringum
Tjörnina og endað hjá Barna-
skólanum. Keppt verður í 10
manna sveitum og taka 5 sveit-
ir þátt í hlaupinu, 2 sveitir frá
K.R., 2 frá Í.R. og ein frá Ár-
manni.
góða fyrir þessa sumardvalar-
starfsemi, en það er hins vegar
ekki lagt í húsbyggingarsjóð-
inn. Skilningur Reykvíkinga á
nauðsyn þessa máls hefur stöð
ugt farið vaxandi, t. d. urðu
tekjur mæðradagsins s.l. ár 34
þús. kr. og ég efast ekki um,
sagði Katrín, að í dag munu
Reykvíkingar sína meiri skiln-
ing á þessu máli en nokkru
sinni fyrr.
★
Eins og ljóst verður af frá-
sögn Katrínar er starf mæðra-
styrksnefndar að sinna einni af
skyldunum er þjóðfélagið hefur
vanrækt: að létta mæðrum
hinna uppvaxandi borgara
störf sín og stuðla að því að
þær sem verst eru settar geti
notið nokkurrar hvíldar. Bygg
ing sumardvalarheimilis er því
hin mesta nauðsyn og þyrftu
fleiri að fara að dæmi þeirra er
gefið hafa fé í húsbyggingar-
sjóðinn, — ef nógu margir leggj
ast á eitt er heimilið risið upp
fyrr en nokkurn óraði fyrir.
Náraskeið æsku-
lýðsleiðíoga
Fræðslumálaskrifstofunni hafa
borizt frá skrifstofu British
Council hér upplýsingar um
tvenn námsskeið fyrir íþrótta-
kennara, almenna kennara og
aðra æskulýðsleiðtoga.
1. Um líkamsþjálfun á veg-
um ,,The National Association
of Boys’ Clubs.“ Námsskeiðið
er endurtekið f jórum sinnum. en
fer í öll skiptin fra.m að, Ford
Castle, Berwick-onTweed."
1) 28. maí — 4. júní
2) 28. júní — 5. júlí
3) ,30. júlí — 6. ágúst
4) 1. okt. — 8. okt.
II. Um íþróttir sem hressingar-,
hvíldar — og tómstundastörf;
sérstaklega ætlað fyrir kennara.
Námsskeið þessi eru haldin af
, The Central Council of physi-
cal Recreation“.
1) 5. júlí — 26. júlí að St.
Andrews University í Skotlandi
þátttökugjald £ 4, 15.
2) 6. ágúst — 30. ágúst að
College of Physical Education
Dartford, Kent. Þátttökugjald
£ 4, 10.
Þeir, sem vildu taka þátt í
þessum námsskeiðum snúi sér
til eftirgreindra aðila:
Varðandi I. námsskeiðin til
„The National Association of
Boys’ Clubs, 17 Bedford Square
London W.C. I“.
Varðandi II. námsskeiðin til
„The Central Council of Physi-
cal Recreation 6 Bedford
Square, London W.C. I“.
(Frétt frá fræðslumálaskrifstof
unni).
Minningarsjáður
Aðalsteans Sig-
mundssonar
Minningarsjóður Aðalsteins
Sigmimdssonar nemur nú rúm-
lega 23. þús. og jókst á síðasta
ári um kr. 1600.00.
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið
að fresta um sinn úthlutun úr
sjóðnum, þar sem hún telur iipp
hæð þá, sem má úthluta úr hon-
um ófullnægjandi, eins og nú
er ástatt um gildi peninga. Hins
vegar mun hún leggja allt kapp
á að efla sjóðinn á þessu ári og
beinir þeim tilmælum til Umf.
og hinna fjölmörgu vina Aðal-
steins heitins, að minnast sjóðs-
ins með einhverjum hætti í sam
bandi við 50 ára afmælisdag
hans 10. júlí næstkomandi.
Stjórn sjóðsins skipa: Ingi-
mar Jóhannesson formaður,
Helgi Elíasson og Daníel Ágúst-
ínusson.
(Frétt frá U.M.F.L).
Myndðsýnsng
Arna ÖBafssonar
s ijariiðborg
Árni Ólafsson, rithöf. og mól
ari, ætlar að halda sýningu á
eitthvað um 20 málverkum og
tekningum eftir sig að Hverfis-
götu 83 (Bjarnaborg) kl. 5—7
í kvöld, og næstu kvöld.
Ungur að aldri lærði Árni að
mála hjá Þór. heitnum Þorláks
syni listmálara. Myndir þær
sem Árni ætlar að hafa til sýnis
og sölu, eru gerðar frá árinu
1942 og til þesa dags.
NorskÉ æskn-
fólk óskar
bréfaskipta
Margt norkt æskufólk hefur á
síðasta ári skrifað Ungmennafé-
lagi íslands og óskað eftir að
komast í bréfasamband við ís-
lenzka æskumenn.
Nöfn þess og heimilsföng eru
birt í 1. hefti Skinfaxa 1946 og
viðbót verður birt í 1. hefti Skin
faxa 1947. Þá veitir stjórn U.M.
F.í. upplýsingar um bréfaskipt-
in. Hvetur U.M.F.Í, ungt fólk
til þess að verða við umræddum
tilmælum og hefja bréfasam-
band við norska æsku.