Þjóðviljinn - 19.07.1947, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 19.07.1947, Qupperneq 4
4 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. júlí 1947. þJÓÐVILIINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn Hitstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, áb. Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Ritstjórnarskrifstofur: Skólavörðust. 19. Eímar 2270 og 7500 (eftir kl. 19.00 einnig 21S4). Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, simi 2184. Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, simi 6S99. Prentsmiðjusími 2184. Áskriftarverð: kr. 8.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Ríkisstjérnin níðist á síldarsjómönn- Með samningunum um síldveiðikjörin milli Alþýðu- sambands íslands og Landssamband ísl. útvegsmanna á- kváðu samböndin að vinna að því sameiginlega að síld- arverð yrði sem hæst og ákváðu að kref jast þess, að sam- böndin fengju að hafa fulltrúa sína með í útreikningi á síldarverði er það yrði framkvæmt. Þessir tveir aðilar Al- þýðusambandið og Samband ísl. útvegsm. eru umbjóðend- ur sjómanna og útgerðarmanna og því ekkert eðlilegra en að þau vinni saman að því að halda uppi verði á síldarafl- anum. Það er nú komið á daginn, að sízt var vanþörf á þvi að útgerðarmenn og sjómenn bindust samtökum um að fá eðlilega hækkun á síldarverðinu. Ríkisstjórnin er nú ber að því að ákveða verð á síldinni kr. 40,30 á mál, þrátt fyrir það að vitað er að hækkun á verði síldarlýsisins gefur til- efni til mikið meiri hækkunar. Ríkisstjórnin reynir að verja þetta óhæfuverk sitt, að ætla að svifta síldarútveginn eftir tvö síldarleysissumur verulegum hluta af raunveru- legu and\árði síldarinnar, með því að síldarverðið hafi verið ákveðið með 6. gr. fiskábyrgðarlaganna. Þessi röksemda- færsla sýnir betur en nokkuð annað að ríkisstjórninni er Ijóst, að með því að ákveða hrásíldarverðið kr. 40,30 frem- ur hún stórfelldan þjófnað á sjómönnum og síldarútvegs- mönnum. Það vita allir að 6. gr. fiskábyrgðarlaganna var knúin í gegnum þingið með hinu mest harðfylgi og raun- verulega gegn vilja meirihlutar þingsins. Greinin var felld í neðri deild með atkvæðum sósíalista og Framsóknar- manna og nokkuri'a annarra þingmanna. En hún var sett aftur inn í efri deild og þegar málið kom á ný til neðri deild- ar var afturhaldið búið að ,,handjárna“ nægilega marga til þess að greinin var samþykkt með örfárra atkvæða mun. Sósíalistaflokkurinn stóð alveg óskiptur gegn síldarkúfs- ákvæðinu og er það í fullu samræmi við hina jákvæðu afstöðu hans til sjávarútvegsins. Það eru engin rök fyrir 40,30 króna síldarverði að þa'ð sé ákveðið í lögum. Ef svo er þá getur ríkisstjórnin hvenær sem er breytt þeim lagaákvæðum með bráðabirgðalögum. Enda finnur ríkisstjórnin, að það eru haldlítil rök að bera fyriis sig, 6. gr. fiskábyrgðarlaganna. Þess' vegna hefur Sveinn Benediktsson verið látinn halda_fund, þar sem* mættir voru tveir aðalmenn og einn varamaður úr stjórn S. R. til þess að gera samþykkt um að síldarverðið skuli vera kr. 40,30 á mál. Til grundvallar þessari samþykkt var lögð „verðáætlun", sem í verulegum liðum er fölsuð og til þess fallin að gefa einkaverksiuiðjunum óhóflegan gróða á kostnað sjómanna og útgerðarmanna. Tiltæki Sveins Benediktssonar sýnir það að ríkisstjórn- in viðurkennir, að það eru ekki nægileg rök fyrir 40,30 ikróna veroinu aö þaö sé ákveðiö með lögum. SLÆM FRAMMISTAÐA FLUGFÉLAGS. Haraldur Guðnason Vest- mannaeyjum skrifar: ,,Með hinum hraðvaxandi flug vélakosti íslendinga nú síðustu árin, stóðu vissulega vonir til þess, að verulega mundi rakna úr samgönguörðUgleikum ýms- um á landi hér, og einkum hinna mest einangruðu staða, sem jafnan verða verst úti í þessum efnum. Þessar vonir hafa þó ekki rætzt, svo viðunandi sé. Allir vita, að veður hamlar oft flugi, og við því er vitanlega ekkert að gera meðan flugtæknin er á núverandi stigi; hvað síðar verður leiðir framtíðin í Ijós. — ir LOFORÐ SVIKIN » ,,Hitt er óþolandi og óverj- andi, að menn geta á engan hátt treyst því, að staðið sé við gef- in loforð um einstakar ferðir og áætlanir, og það þótt flug- veður sé hið ákjósanlegasta. Einkum á þetta við um flugfé- lagið „Loftleiðir" h/f. Félag þetta virðist fyrst og fremst keppa að því, að flytja fólk á þeim leiðum sem gefa öruggast ar tekjur, hvað sem hátíðlegum loforðum líður og jafnvel aug- lýstum áætlunum til staða, sem hafa flugsamgangna mesta þörf Áætlunarferðir að Fagurhóls- mýri í Öræfum falla iðulega niður, þótt flugveður sé ágætt og farþegar bíði þar eystra og í Reykjavík, .sem liggur á að komazt leiðar sinnar. Ekki vantar það, að heir Loftleiðamenn eru ósparir á lof orðin, en vart verður annað á- lyktað, en að efndir og orð- heldni liggi þeim góðu herrum í mjög léttu rúmi. -— — •k EEYNSLA FERÐAFÉL. VESTM. „Nýlega fengum við nokkrir Vestmannaeyingar, úr Ferða- fél. Vestm.eyja flugvél leigða austur í Öræfi, hjá Loftleiðum I h./f. Var svo um samið að við skyldum sóttir að þrem dögum liðnum, að ákveðinni stundu. Jú, öldungis sjálfsagt. Hinn ákveðna dag er prýði- legt flugveður; við notum góða veðrið til að ferðast um sveit- ina, en erum mættir tveim stundum fyrir hinn ákveðna tíma á flugvellinum. En hvað skeður? Engin flug- vél kemur í dag frá Loftleið- um og boi’ið við tylliástæðum einum, enda flogið þennan dag allan milli Reykjavíkur og Vest mannaeyja. Og svo er bætt gráu ofaná svart: Ekki mátti senda okkur skeyti um að við mund- um ekki verða sóttir, en þá hefð um við tafarlaust samið við Flugfélag íslands um að sækja okkur, og við höfum fulla vissu um að, þar var ekkert til fyrir stöðu.----- * LOKS EFTIR 6 DAGA „Framhald sögunnar er svo það, að næstu daga er ekki flug veður og við bíðum frá mánud. ForsælísráðtierraMi kemur upp ■ sk 1 gær birtir Alþýðublaðið langhund á 3„ 5. og 7. síðu eft- ir forsætisráðherrann, Stefán Jóhann Stefánsson. Ráðherran um er orðið eitthvað órótt vegna afstöðu ríkisstjórnarinn- ar í kjarabaráttu verkamanna, og vill sjálfur — væntanlega í krafti vinsælda sinna! —1 reyna að draga eitthvað úr andstyggð almennings á ráðamönnum Al- þýðuflokksins og Alþýðublað- inu. En hugkvæmnin er þó ekki meira en svo að hann jórtrar á síendurteknum fullyrðingum aft urhaldsblaðanna um pólitísk verkföll og segir að verkalýðs- ] félögin hafi beðið ósigur, þar 1 sem ríkisstjórnin sé enn við völd! Honum hefur aldrei verið sýnt um að hugsa, þeim manni. En það eru samt nokkur at- riði í grein forsætisráðherrans, sem vert er að gefa gaum. Hann viðurkennir þar að Dagsbrún- arstjórnin hafi gengið á fund ríkisstjórnar, skömmu eftir að hún var mynduð, og rætt um lífskjör verkamanna, enda þótt Morgunblaðið og Alþýðublgðið hafi áður talið þessar viðræður „hreinan uppspuna kommún- ista.“ Og hann viðurkennir meira: „Fulltrúar ríkisstjórnar- innar Iýstu yfir því, að það va?ri vilji og stefna stjórnarinn ar að verjast því eftir megni að.kjör verkalýðsíns yrðu rýrð og b.vrðar dýrtíðarinnar lentu á bökurn hans og óskaði ríkis- stjórnin þess eiitdrcgið, að sein be/.t samvinna gæti orðið við Alarei hafa yjómenn og útgerðarmenn verið í meiri jþörf en nú aö hafa sæmiiegar tekjur af síldveiðum, eftir að tvær vertíöir hafa brugöizt aö heita má algjörlega. Nú. gildir því að síldarverro ué ákveöið í samræmi við meðal- verð síldarafurðanna. 8ýnt er nú að ríkisstjórnin ætlar ekki að unna síldarútveginum sanugirni livað verð snertir ef ihún má ráða. Verkalýðssamtökin hafa nú sýnt að ekki er J)örf að láta þessa illgjörnu afturhaldssjórn sem nú situr við völd á íslandi fara sínu fram. Alþýðusambandið er I reiðubúið til baráttu fyrir því að síldarverðið verði álcveðið i 50 kicnur fyrir málið og Landssamband útvegsmanna hefur líka tjáð sig tilbúið til að vinna að því að síldarverð- ið verði sem hæst. Nú reynir á hvort útvegsmenn verða nógu einbeittir í baráttu fyrir sjálfsögðum rétti útgerðar- innar. Ef þeir verða það þá er víst að ríkisstjórnin neyðist til að hækka síldarverið. 16. júní til sunnudagskvölds 22. s. m.; Þá erum við loks sóttir. Samt þótti afgreiðslunni liggja meira á, að flytja farþega milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja, því 3 ferðir var fkigvél sú er sótti okkur búin að fara þá leið, þegar afgr. loks þóknaðist að senda hana austur í Öraífi. Við höfum víst varla verið bún- ir að bíða nógu lengi að dómi ráðamanna Loftleiða í Vest- mannaeyjum og Reykjavíkur. Svona framferði má ekki end urtaka sig. — Mikil óánægja er hér í Eyjum vegna afgreiðsl- unnar hér og í Reykjavík og verður að vænta þess, að því máli verði k-omið í viðunandi liorf. Og tryggja verður rétt far þega gagnvart flugfélögum, sem láta. um of stjórnast af gróðasjónarmiðum einum sam- an. Haraldur Guðnason. ★ Það skal tekið fram, að ef stjórn „Loftleiða" vill gera at- hugasemdir við þetta bréf, mun. þeim fúslega verða veitt rúm hér í dálkunum. ★ BRÉF FRÁ SKÓLAST J ÓRA Bæjarpósturinn birti fyrir nokkrum dögum fyrirspurn um bílakaup Ingimars Jónssonar og nú hefur skólastjórinn svar- að henni af sinni alkunnu geð- prýði á þessa leið: „Herra ritstjóri Þjóðviljans. Þér gefið í skyn í blaði yðar í dag undir nafni „utanbæjar- manns", að ég hafi notað flokks aðstöðu mína til þess að fá keypta 4 bíla á þessu ári. Sann- leikurinn er sá, að ég hef engan bíl fengið á þessu ári, hvorki Framh, á 2. síðu. verkalýðssamtökin í baráttu stjórnarinnar fyrir stöðvun dýr tíðar ..... hún óskaði sam- starfs við verkalýðsféiögin í þá átt að halda kjörum verka- manna eins og þau þá voru.“ Efndir þessarar yfirlýsingar, sem Stefán Jóhann játar að rik isstjórnin hafi komið með, urðu síðan þær að ríkisstjórnin jók dýrtíðina með 45 millj. króna tollum, án þess að segja auka- tekið orð við alþýðusamtökin, hækkaði með öðrum orðum verð^ á erlendum vörum um 12% að meðaltali, án þess að ætla verkamönnum nokkrar uppbætur. Allt hjal um pólitísk verk- föll fellur um sjálft sig með þessari yfirlýsingu forsætisráð- herrans. Verkamenn voru fúsir til samstarfs og sýndu það; ríkisstjórnin lofaði samstarfi, en sveik það. Þegar búið var að gera árás á afkomu verka- manna, var þeim nauðugur einn kostur að snúast til varnar, og þar með hefst, annar þáttur þessa máls. Og þar kemur forsætisráðherr ann einnig upp um sig með annarri yfirlýsingu. Hann segir svo um þá samninga sem að lok um tókust: „Hefði verið unnt að ná þessu samkomulagi Iöngu fyrr.“ Þar með viðurkennir Framh. á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.