Þjóðviljinn - 24.10.1947, Side 8
Skammtur þessa gróðafyrirtækis Kefur ekkert
verið minnkaður síðan ríkisstjórnin fyrirskip-
aði hina nýju skömmtun
Coca Cola verksmiðjan fær óskertan sykur-
skammt eins og ekkert hafi í skorizt.
Þetta játaði skömmtunarráðherrann Emil Jónsson
í þingræðu í gær, í svari við beinni fyrirspurn frá
Einari Olgeirssyni..
Átaldi Einar harðlega þá
' hræsni sem kæmi fram í sífelldu
eymdartali ráðherranna og kröf
um til almennings um sparnað
á öllum nauðsynjavörum, en
samtímis væri algerlega ó-
þörfum gróðrafyrirtækjum
einstakra manna, eins og t. d.
Coca Cola verksmiðju Björn Öl-
afssonar, leyft að hrifsa til sín
mikið magn af skömmtunar-
vörum, og væri ekki einu sinni
borið við að draga neitt úr því.
Einar spurði hve mikið magn
af sykri ýmis tiltekin fyrirtæki
fengju af skömmtunarvörum,
þar á meðal um sykurskammt í
Coca Cola verksmiðjunnar, Emil
kaus að þegja um það, en Þjóð-
viljinn hefur fregnað að verk-
smiðjan hafi fengið 2500 kg. af
sykri mánaðarlega, auk jDess
sykurs er hún hefur, mú vitorði
islenzkra yfirvalda -— fengið hjá
erlenda liðinu hér á landi.
Iraitn til kaldra
kola í gærkvöld
í gærkvöld kl. 11 var
slökkviliðið kvatt að bragga
nr. 8 við Háteigsveginn. Þeg
ar það kom á vettvang var
bragginn íUeida og brann
aliur að innan ásamt inn-
anstokksmunum þeirra sem
í hontim voru.
Braggarnir standa þarna
mjög þétt en stinningskaldi
var af suðaustri og því
dugnaði slökkviliðsins að
þakka að eldurinn breiddist
ekki út.
I norðurenda braggans
bjó Ingi Þ. Einarsson bif-
reiðastjóri ásamt konu sinni
og tveim börnum, cn ekkert
þeirra var heima þegar ekl
urinn kom upp. í suðurenda
braggans bjuggu tveir
menn, er voru háttaðir og
vöknuðu við Aondan draum.
Þótt slökkviliðinu • tækist
að hiiulra að eldurinn breidd
ist út neyddist fólk í næstu
bröggum til að flýja úr
þeim meðan slökkviliðið var
að fást við eldinn.
Keflavikurflugvöllurinn, fram
kvæmd herstöðvarsamningsins,
var enn á dagskrá sameinaðs
þings í gær, en kom ekki til um-
ræðu.
[ Bjarni Benediktsson utanríkis
[ málaráðherra var enn fjarver-
andi.
Síðasta varsiarlína skömmtanarheíð-
ingjanna Emils lénssonar og Elísar
Guðmundssonar
í algerum rökþrotum vegna ósannindavaðals síns um
að Sósíalistafiokkurinn liafi skipulagt hömstrimmá í
haust greip Emil Jónsson viðskiptamáiaráðlierra til ii jálpar-
tækis í gær sem lengi mun minnzt.
Þetta lijálpartæki var kosningarsmali Sjálfstæðisflokks
ms, EIís Guðmundsson, sem Emil hefur gert að skönnntun-
arstjóra. Las ráðherrann upp bréfkafla frá þessum undir-
manni sínum, þar sem sagt var m. a. að í „búðum kommún-
ista“ hafi verið hvíslað til viðskiptavinanna um væntanlega
skóskömmtun og leynilegir áróðursmenn konunúnista ætt
um allan bæ til að æsa upp hamstur! Aðspurður hvort þetta
væri EMBÆTTISBRÉF, játaði Emil því!
Einar Olgeirsson taldi þakk-
lætisvert að ráðherrann skjúdi
leyfa þingheimi að fá innsýn í
emhættisfærslu þá sem menn
ríkisstjórnarinnar eru að taka
upp. Alþingi væri ætlað að taka
sem sönnunargagn í deilumáli
embættisbréf, sem væri með
þeim endemum, að slíkt mundi
einsdæmi. Embættismaður þessi,
kosningasmali Sjálfstæðisflokks
ins í Reykjavík, léti sér sæma
að skrifa slúðursögur um„kom-
múnista" í embættisbréfi til
æðsta yfirmánns síns, og þessar
slúðursögur væru svo af ráð-
Iierra bornar inn á þing.
Vonandi birtir ráðherrann
þetta dæmalausa plagg í Alþýðu
blaðinu í dag, svo almenningur
geti fengið að kynna sér livað
gerizt þegar kosningasmal-
1
ar Sjálfstæðisflokksins fa
Ivandasöm embætti. En eitthvað
|var Aiþýðuflokkurinnn óstyrk-
I
ur út af þessu „sönnunar-
gagni“, því Emil ætlaði að verða
orðfa.11 fyrir nokkrum spurning-
um sem vikið var að þessu at-
riði. Varð það til að Stefán Jó-
hann sleppti sér og æpti grát-
klökkur hvort ek)d væri hægt að
láta þingmenn þegja, og meira ‘
að segja Eysteinn reyndi að
hjálpa Emil, sem alltaf verður
aðþrengdari og vesælli eftir því
sem lengra iíður á skömmtunar-
umræðurnar.
Jolivet, prófessor
sæmdur orðu
Forseti Islande hefur þann
22. þ. m. sæmt Alfred Jolivet,
prófessor í norrænum fræðum
við Sorbonne háskólann í Parísj
stórriddarakrossi fálkaorðunn-
ar.
Prófessor Jolivet hefur unnið
mjög að því að kynna íslenzkar
bókmenntir í Frakklandi.
(Fréttatilkynning frá
orðuritara).
♦
♦
ýðusaisibandsþing kvatt sae-
an é næsta mánuði
Stjórn Aiþýðusambands .íslands hefur boðað til
aukaþings sambandsins og á það að hefjast 8. næsta
mánaðar.
iJaislegt ue iir gerzf að undanförnu sem gerir það
nauð niegt að þing verkaiýðsins komi saman og ráði
ráðum íimm.
Fuliirúai á þessu þingi verða þeir sömu og kosnir
voru á síðasta reglulegt Alþýðusambandsþings.
Einar Olgeirsson beindi þeirri
fyrirspurn til Emils Jónssonar
skömmtunarmálaráðherra livað
ætti að gera við hinar alræmdu
nótur, sem ráðherrann lét skrifa
svo þúsundum skipti í verzlun-
um um land allt, meðan stjórn-
in var að rífast um fyrirkomu-
lag skömmtunarinnar.
Emil svaraði ekki þeirri spum
ingu, en taldi nótufyrirkomu-
lagið gott og hefði verið mjög
ljótt af Þjóðviljanum að skamm
ast út af því!
íslendingar á flugskóla í KaMfornm
Fyrir skömmu hófu tveir íslendir.gar nám á flugslióla í
Glendak, Kaliforníu. Heita þeir Haraldur Hagan og Viggó Ein-
arsson og leggja báðir stund á tæknileg fræði. Lögheimili beggja
er í Reykjavík, Haraldur á Laufásvegi 12, og Viggó á Iiára-
stíg 9.
Á skóla þessum eru nemendur frá ýmsum löndum heims. í bekk
þeirra Haraldar og Viggós eru 14 nemendur, þar af aðeins 6
Bandaríkjamenn. Á myndinnni kér að ofau sést Haraldur stand-
andi 5. maður frá vinstri, en Viggó standandi iengst til hægri.
— BYRNES
Framhald af 1. síðu.
Snmkomulag rr.öguiegt
í bók sinni játar Byrnes,
að samkomulag við Sovétríkin
væri mögulegt strax á morgun.
En það myndi kosta það, ac
rtanda yrði við loforðin, sem
þeim voru gefin um stríös-
skaðabætur og veita Sovétríkj-
unum hluttöku í stjórn Rulir
héraðsins. Byrnes vill heldur
stríð en ganga að þeim kost-
um.
Byrnes hefur Iengi verið ná-
inn vinur Trumans forseta og
ér það honum sem forsetinn á
að. þakka, að demókratar kusu
hann varaforseta Roosevelts,
en' ekki Ilenry Wallace. Byrnes
var fyrrum öldungadeildar-
maður fyrir Suður-Karólínuríki,
sem frægast er fyrir tíð negra
morð;
ís’slif b raðskák-
móts í fyrrakvöld
HraSsIiákmótið í 1. fioiiki fór
fram í fýiTakvöld. IJrslit nrðu
þessi:
1. Friðrik Ölafsson 1\'<> vinn-
ing, 2. Hjalti Elíasson 7y2, 3.
Ingimar Guðmundsson 6, 4. Ing-
var Ásmundsson 5y2 vinning.
Ingvar er aðeins 13 ára gamall,
nýkominn upp í 1. flokk.
I kvöld kl. 8 hefst í samkomu-
sa! Alþýðubrauðgerðarinr.ar
keppni í meistaraflokki. Keppa
þar m. a. Baldur Möller, skák-
meistari Islands, Guðmundur
Ágústsson, braðskákmeistari ís
lands, Eggert Gilfer og Guðjón
M. Sigurðsson.
Drengur skersf á
pela sírhri
í gærmorgun viidi það slys
til i húsi hér í bænum, að dreng-
ur á öðru ári skarst alvarlega á
1 handlcgg, cr pcli hans bratnaði.
Drcngurinn var að leika sér
með þelann og datt með hann.
Við fallið brotnaði pehnn og
skarst drengurinn á brotunum,
eins og fyrr er sagt. Gert var
að sárum drengsins á Landa-
kotsspítala, en síðan var hann
fluttur heim til sín.
Á sunnudaginn kemur efnir
Ferðaskrifst. ríkisins til Heklu
ferðar. Verður lagt af stað fyr-
ir hádegi.
Fjölmargar Hekluferðir hafa
verið famar í sumar og aðsókn
alltaf jafnmikil. Mun .þetta-
verða ein af síðustu ferðunum
því vegif' eru nú óðum að spill-
ast.
Farmiðar verða seldir í Ferða
skrifstofunni á laugardag.
Sextíu og fimm ára er i dag
Guðmundur Geinnundsson frá
Súgandafirði nú sjúklingur á
Landakotsspífala hér í bænum.
—I—!—I—:—Í--Í—I—I-.;—I—í—i—£——5—í—!—Í--Í.-I—I--I—I—I—í—!—I- -I——I—I—3—I--I—!—I—I--;-
4-
¥Ú 4-
4-
£
lioldur Sósíalistafélag Reykjavíkur í Nýju Mjólkurstöð- j
unni á sunnudaginn kenmr. — Fundarefni: j
t
t
Rbi ♦ ® s • * a
iiumaf i
ur .j.
Ræðumenn verða LúðVík Jósepsson, Hennann Guft- £
mundsson og Sigiús Sigurhjartii i-.on. Fun<lurins verð- $
ur getiö nánar síðar hér í blaðinu.
4,4*4*4-4-4-4-4*4*4-4-4-4*4*4*4"!"14-4-4-4*4-4-4*4'4-4-4-4*4*4-4-4-4*4-4*4rí~f4-4-4.4'4-4*4*4"