Þjóðviljinn - 02.11.1947, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 02.11.1947, Qupperneq 3
Sumrudagur 2. nóvember 1947. •c. * »■ 3 WÍ»>vlUINN STURLUNGA SAGA Sturlungasaga, í 2 bind- um, 608 + 60 + 502 bls. + myndir og kort. — Reykjavik 1946. Jón Jó- hannesson, Magnús Finn- bogason og Kristján Eld- járn sáu um útgáfuna. Sturlunguútgáfa þessi eru merkasti viðburðurinn í fom- ritaskýringum síðustu 10 ára. Með því lofi er ekki lítið sagt, því að margar útgáfur prýði- legar hafa birzt á þeim tima. Hér er ekki tekin til samanburð- arins Heimskringluútgáfa Bjarna Aðalbjamarsonar, þar sem henni er ólokið. Og af Njálu rannsóknum Einars Ól. Sveins- sonar nýtur almenningur þá fyrst fullnaðarárangurs, þegar Fornritafélagið kemur á prent útgáfu hans af Njálu (eftir 2— 3 ár?). Með þessum tveim dýr- gripum fornmenntanna í hönd- um Bjarna og Einars hygg ég Fomritafélagið muni í framtíð bera hæst allra fomritaútgáfna frá fyrra helmingi þessarar ald- ar. En meðan Fornritafélagið skaut á frest (um áratugi?) Sturlunguútgáfu þeinú, sem það ráðgerði, vom góðir fræðimenn fengnir til þess af öðrum aðil- um að gera vandaða skýringa- útgáfu af Sturlungu i nokkru alþýðlegra stíl en félagið kaus sér. Hér sést árangur þess verks. Úr því ég minntist Fornritafé- lags, sem ég ann góðs, verð ég að skjóta inn þeirri skoðun minni, að félagið þurfi að læra margt af útgáfum Helgafells og Sturlunguútgáfimni. Útgáfu- snið þess hlýtur að haldast ó- breytt í mörgu á þeim 4 bind- um, sem eftir eru af gömlu ís- lendingasögunum með Land- námu, og nokkrum konunga- sagnabindum. En að því búnu eða helzt samtímis ætti félagið að hefja útgáfu yngri sagnarit- anna í þeim stíl, sem vandað- astur verður fundinn handa nú- tíðarlesendum. Þar skal vera nútíðarstafsetning, en fornar beygingarmyndir, greinaskil séu allþétt og skýringar örlátlegar, Ijósmyndir, litmyndir og drátt- list prýði bækurnar. Hið fyrsta, sem mætir manni við að handleika Sturlunguút- gáfuna, eru kortin 7 (12) aft- ast í hvoru bindi um sig og myndir, 201 að tölu, á dreif milli lesmálsblaða, þar sem myndarstöðvanna getur í sög- unni. Flestar myndirnar voru beinlínis teknar vegna útgáf- unnar, og engin mun vera áður birt. Litmyndir eru af tveim málverkum Ásgríms'Jónssonar: Hvammi í Dölum og hinni fr’á- bæru Reykholtsmynd. Næst verður mér litið á 147 blaðsíðna kafla, sem er allþurr álitum, tóm mannanöfn og stagl, en kemur hjarta allra Sturlunguvina til að slá hrað- ar. Þetta eru ættskrár og nafnaskrá, samdar af Jóni Jó- hannessyni háskólakennara. Til- vísanir og efnisskýringar nafna- skrár eru til fyrirmyndar og virðast vandlegar unnar en títt er. Tímatal hefur Jón sett utan- máls við texta í allri sögunni, og það er regla, sem fylgja ætti i sem flestum útgáfum sögu- heimilda. Bókinni fylgir skrá um ati’ið- isorð (27 bls.), m.vmdaskrár og uppdrátta. Atriðisorðaskráin nær til fimmtán hundruð heita eða meira og er mikil hjálp við rannsóknir í menningarsögu. Söfnun slíkra atriðisorða þyrfti að auk-a og skipuleggja betur í útgáfum en orðið er enn, og þó er þessi skrá meðal hinna myndarlegustu sinnar tegundar. Textaskýringar bg vísnaskýr- ingar hvors bindis um sig eru aftast í bindimum. Margur hefði lieldur kosið þær neðanmáls, og reynsla sýnir, hve flestum les- endum er hjábægt að fletta úpp skýringunum fyrir aftan jafnóð- um og þeir lesa söguna. Textaskýringarnar hefur Kristján Eldjárn fornfræðingur gert. Hann sýnist ætla að verða einhver fjölhæfasti könnuður okkar í sögufræðum. Skerfur hans til Sturlunguútgáfunnar' fær þröngt rúm í skýringunum, og þær líta út eins og þær væru orðaðar til að standa neðan- máls á síðum. Vísnaskýringarnar liefur Magnús Finnbogason gert, og hann hefur búið allan textann til prentunar með samanburði við það, sem í handritum stend- ur. Þetta er af góðri dómgreind unnjð, og sjaldan þarf að deila um skilning vísna i Sturlungu. Um stafsetning fornrita eru skoðanir skiptar, og í formála þessarar útgáfu er komizt svo að orði: „Stafsetningin er nokkru nýtízkúíegri en í forn- ritaútgáfum Hins íslenzka forn- ritafélagsJ' Orðið nýtízkulegur getur ekki bent til hinnar lög- giltu nútímastafsetningar, sém var. mótuð í aðalatriðum litlu eftir 1800 og fullgerð að kalla í Nýjum Félagsritum Jóns Sig- urðssonar. „Nýtízka“ hlýtur að vera einhver þeirra fornritastaf- setninga, sem fundnar hafa ver- ið upp seinna en nútíðarstaf- setning okkar. Þessa ,,nýtízku“' prýða ágætar fornmyndir eins og kembði og rýmði (f. kembdi og rýmdi) og í vísunum vesa, vas, es (vera, var, er), meðr (menn), hildar ruðr (hildar runnur — maður; vísan ort á 14. öld!). Þegar þessi „nýtizku“- stafsetning mundi spilla rími á vísunum, er þó flúið að nokkru leyti aftur til gömlu nútíðar- stafsetningarinnár okkar, og er það vel: . . röskliga dugði, runnr, í háska ranaa svinnr, ok nauðum stinnum. (Menn aðgæti að setja kommu eftir orðunum í háska, því að prentari hefur týnt henni). Ó- neitanlega veri ruðr randa sviðr hin rétta framburðarmynd frá lieiðnum tírna á mannkenningu þessarár vísu og kann að sjást í málfyrndurn liandritum 14. ald ar (sbr. hilldar rudr enn milldí :: hildar runnr inn mildi, Ar- onsdrápa í A. M. 394, 4to, sem raunar er miklu yngra handrit). En íslenzka Sturlungaaldar stendur miðja vega milli nútíð- ar og Egils Skalla-Grímssonar, ef ekki nær nútímanum að fram burði. Þess vegna er rétt að nmrgra dómi, að nútíðarmál ráði meira en Egils mál um stafsetning 13. aldar rita. Verðmætasta nýjung þessar- ar útgáfu er þéttletraður 50 bls. formáli eftir Jón Jóhannesson. Formálinn er í 20 smáköflum, margbreyttum að efni. Þeir eru stuttorðir og gagnorðir. Höf. hefur bæít niður með harðri hendi hneigð sína til smáatriða, án þess að hugsunin, sem hann hefur gjarnan ósjálfrátt um þau milli skrifuðu línanna fipi nokkurn tima hann eða lesand- ann. Markmið og þráður livers formálakafla eru því skýr, og maður fær einhvern veginn þá trú við lesturinn, að vandleg athugun felist þar bak við liverja grein. Það er á þessa lund, en ekki sakir mælsku, sem Jón ér að véfða vel ritfær maður. Allmikið djarfræði er að leysa Sturlungu uppi í frumrit sín, en það hefur Jón gert í þessari útgáfu. Hverri sögu inn- an safnsins er skipað sér og samskeyti þeirra leyst sundur eins vel og rannsóknir fremstu Sturlunguskýrenda leyfa. Guð- Ljós yfir noróurslóð , Tichon Semúsjin: Ljós yfir norðurslóð. Þýð.: Halldór Stefánsson. Útg.: Reykholt. Verð: ib. kr. 30.00 ób. kr. 23.00. Stærð 237 bls. Fortíð nyrztu íbúa jarðarinn- ar er löngum eins. Þrátt fyrir hörð skilyrði gekk lifið slysalít- ið og kynstofnunum fjölgaði, meðan þeir fengu að vera óá- reittir, en svo kom „menning- in“ til þeirra. Hún barst þeim í líki kaupmanna, sem hirtu veiði þeirra og eignir, en skildu eftir í staðinn sjúkdóma og brennivín. Þessi eyðing hins ,,menntaða“ auðvaldsheims á frumstæðum þjóðum hefur bor- ið svo rnikinn árangur, að þjóð- flokkunum hefur fækkað stór- kostlega, sumir komnir að því að deyja út. Með rússnesku byltingunni var ej'ðileggingarstarfsemi gegn íbúum Norður-Asíu lokið. Menningarstofnanir, — skólar og sjúkrahús, — voru settar á stofn í löndum þeirra, og fólk- ið<eyndist námfúst og gáfað. Ljós yfir norðurslóð segir okkur, hvernig gekk til á fyrstu menningarstöðinni á Tjúkotkuskaganum, sem er • nyrzt og austast í Asíu. Þar bjuggu Tjúkotkar við svo hörð lífsskilyrði, að þetta eðlisgóða og hjálpfúsa fólk neyddist til að lífláta gamalmenni sín, eftir að þau voru orðin vandamönn- brandur Vigfússon, Björn M. Ólsen og Pétur Sigurðsson hafa. þrautrætt þau rnál', en Jón dæmt viturlega um vafaatriðin, sem enn eru. Hann færir góð rök fyrir því, að frásagnir Sturlu Þórðarsonar nái til al- þingis 1262, ef ekki til þjóðveld- islokanna 1264, þegar Gissur tók af lífi Þórð AndrésSon. Með þeim frásögnum er 1. bd. Sturl- ungu látið enda hér. En Þórðar saga kakala, Svínfellinga saga, Þorgils saga skarða, Sturlu þáttur og Arons saga mynda síðara bindið. Útgefendum hef- ur verið ljóst, að með skipting- unni í sérstakar sögur mundi mikíð vinnast, en mikið vera Iagt í hættu, ef skiptingin þætti að einhverju leyti röng og vill- andi. Sá, sem þetta ritar, telur verulegan gróða fenginn með skiptingunni. Þórður lögmaður Narfason á Skarði, d. 1308, hefur sett Sturl- ungu saman úr ritasyrpu Sturlu Þórðarsonar, frænda síns, og öðrum þeim sögum, sem hann náði til, og aukið við smáþátt- um (Geirmundarþætti, Kauk- dælaþætti, Sturluþætti o. f 1.). Arons saga er 14. aldar rit, sem tilheyrir ekki Sturlungu. Þor- gils saga skarða hefur komizt inn í Sturlungu ha.dr. eftir daga Þórðar Narfasonar. Myndunarsaga Sturlungarit- anna er allglöggt rakin í for- málanum. Elztu ritin eru frá 1. fjórðungi 13. aldar eins og Is- Framhald á 7. síðu. um sínum byrði. Ögnir og sjúk- dómar óðu uppi. Allt var það kela, illa andanum að kenna og eina hjálpræðið var að særinga maðurinn lemdi bumbur sínar um nætur', — til þess að blíðka hann. Fvrir það lét hver fjöl- skylda særingamanninn fá bezta refaskinnið, sem hún átti til í eigu sinni. Tangi — hvíti maðurinn — á við mikla erfiðleika að etja í1 fyrstu. Fólkið vill ekki láta börnin sin frá scr í heimavist- arskólann. Þó tekst að fá 35 börn, eftir að hafa sannfært vitran öldung, sem Tjúkotkar meta mikils. En höfundur bók- arinnar, scm er skólastjóri á menningarstöðinni, hefur ferð- azt fram og aftur meðal íbú- anna oft í stórhríðum — áður en þetta hefúr tekizt. Hinir sjúku koma ekki til læknanha, enda hótar særinga- maðurinn þeim reiði kela, ef þeir geri það. Þess vegna verða læknarnir að fara til hinna sjúku, og gengur fullilla samt að fá þá til að stíga fæti inn í sjúkrahúsið. Bókin lýsir því meistaralega hvernig þetta fólk kemst smátt og smátt undan áhrifavaldi sær ingamannsins, en trúna á kela missir eldra fólkið ekki. Maður, sem neyðzt hefur til að láta skera hár sitt á sjúkrahúsinu, þorir ekki annað en skipta um nafn, svo að keli þekki hann ekki. En eitt veit hann: Hvíti læknirinn er óskaplega sterkur maður, hann getur læknað alla sjúkdóma. Öðru máli gegnir um börnin í skólanum. Sum voga sér jafn vel að gera grín að kela, a. m. lc. meðan þau eru hjá Tangi. Annars eru þetta óve-njulega skemmtileg börn, t. d. elskar maður og dáir Tajet-Hemu litlu, hún er svo yndislega kímin og hreinskilin og óskaplega klók, ef hún hefur gert eitthvert skammarstrik. Hvítu kennar- ana umgengst hún alveg eins og skólasystkini sín. Eða þá Tagrai, sem mátar skákmeist- ara Tjúkotku — hvíta doktor- inn — í fyrsta skipti, sem hann grípur í taft. Tograi hafði orðið svona sleipur af því einu áð horfa á hvítu mennina tefla. Auðvitað verður doktorinn fok- reiður, og klagar strákinn fyr- ir skólastjóranum •— og svo gera börnin grín að öllu saman. Enda þótt skammúr tími sé liðinn, er af sem áður var í Tjúkotku Reglulegum flugferð- um er haldið uppi til landsins, og sjö ungir Tjúkotkar eru orðnir útlærðir flugmenn. Börn in stunda nám í eðlisfræði, eína fræði, stærðfræði og sögu og lesa bækur eftir rúrsneska skáldsnillinginn Púsldn. Ljós yfir norðurslóð er mjög skemmtileg og mjög góð bók. Hún lýsir óvenjulega yndis- legu fólki, er ágætlcga rituð, og um þýðinguna þarf ekki að spyrja. Hreinn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.