Þjóðviljinn - 09.12.1947, Side 6

Þjóðviljinn - 09.12.1947, Side 6
6 ÞJÓÐVILJ INN Þriðjudagtir 9. desember 1947 79. Samsærlð mikla eftir MICHAEL SAYEHS osr ALBEHT E. KAHN 11. dagur. GLÆPUR SYLVESTRE BOMNARDS iðnaði og landbúnaði Sovétríkjanna til að vekja óánægju almennings og veikja sovétstjórnina, og mynda samtök er gætu veitt innrásarherjunum beina hjálp með skemmdar- verkum og hermdarverkum að baki sovétherjanna. Peningar streymdu ti! Rússlands frá Torgprom, gegn- um franska erindreka í Moskvu, til að kosta skemmdar- verk í hinum ýmsu greinum iðnaðarins. Málmiðnaðinum voru úthlutaðar 500 þús. rúblur; eldsneytis- og olíuiðnað- inum 300 þús. rúblur; vefnaðarvöruiðnaðinum 200 þúsiind, raforkuiðnaðinum 100 þúsund. Öðru hvoru gáfu meðlimir- Iðnaðarflokksins njósnaskýrslur, að tilhlutun franskra enskra og þýzkra njósnara, um flugvélaframleiðslu Sovét- ríkjanna, byggingu flugvalla, þróun hergagnaframleiðsl- unnar og ástand járnbrautanna. Eftir því sem innrásarstundin nálgaðist jókst eftirvænt- ing hinna landflótta milljónamæringa frá keisaratíman- um. Einn af Torgprom-foringjum, Vladímír Ríabúsinskí birti 7. júlí 1930 furðulega grein, með fyrirsögninni ..Nauðsynlegt stríð“ í hvítliðablaði í París „Vsorosdeníe“. „Væntanleg barátta við Þriðja alþjóðasambandið til að færa Rússlandi frelsi, verður eflaust af mannkynssögunni dæmt sem eitt hitt réttlátasta og gagnlegasta stríð sem háð hefur verið“, ritaði Ríabúsínskí. Fyrri innrásartil- raunir hefðu mistekizt, bætti hann' við, vegna þess að talið hefði verið of fjárfrekt að framkvæma þær. „Árið 1920 og allt til 1925 voru sérfræðingar einhuga um að hægt væri að framkvæma þessar hernaoaraðgerðir á sex mánuðum með einnar milljón manna her. Kostnaðurinn var útreiknaður 100 milljónir sterlingspunda.“ En nú, sagði hinn landflótta milljónamæringur, mundi ekki verða líkt því svo kostnaðarsamt að steypa sovét- stjórninni, vegna innanlandserfiðleika á sviði stjórnmála og atvinnumála: „Líklega þyrfti nú ekki nema 500 þúsund menn og þrjá til fjóra mánuði til að ljúka aðalverkinu. End- eftir Aimtole Frunee (Monte Allegro 30. nóv. 1859.) Við hvílum okkur, ég og fylgdarmaðurinn og ; • - ■ múlasnarnir á leiðinni frá Sciacca til Gngenti 1 veitingastað í hinu fátæka þorpi Monte Allegro, þar sem íbúarnir, hrjáðir af malaríu, skjálfa í sól- skininu. En þó sverja þeir sig í ætt við Forn- Grikki, því að engin vesöld megnar að hefta glað- værð þeirra. Þeir þyrpast að veitingahúsinu með áhyggjulausri forvitni. Eitt ævintýri, ef ég hefði kunnað að segja það, hefði dugað til að fá þá til að gleyma öllum raunum sínum. Þeir eru greindarlegir a svipinn, og konurnar sem eru sólbrenndar og blikn aðar, bera fyrirmannlega hin síðu svörtu klæði sín. Við mér blasa rústir sorfnar af næðingum frá hafinu, svo að þar grær ekki nokkurt strá. Hér er dapurt og ömurlegt um að litast. I þessum skræl- þurra jarðvegi vex ekki annað en nokkrar blað- fáar mímósur, kaktusar og dvergpálmar. I tuttugu skrefa fjarlægð má sjá hvíta hnullunga í urðinni, og það glyttir i þá eins og gröft í kirkjugarði. Fylgdarmaðurinn segir mér að þarna sé þornaður lækjarfarvegur. Fimm dagar eru liðnir síðan ég kom til Sikileyjar. Eg sigldi um Palermoflóa, sem gengur inn á milli hinna bröttu, gróðurlausu höfða Pellegrius og Catalfano, og umkringis Gullkufungs, sem er hulinn þéttum skógi af myrtum og appelsínutrjám. Og þetta er svo fögur sjón, að ég ákveð þegar í stað að koma til þessarar eyjar, sem göfguð er minjum og minningum, og prydd fögrum fellum og asum. Eg, hinn aldri pílagrímur, sem gránað hefur um langa ævi í hinum menntunarsnauðu vestari löndum álfunnar, dirfist þó að ferðast um þessar fornfrægu slóðir. Ásamt fylgdarmanni mínum, ferðaðist ég frá Palermo til Trapani, frá Trapani til Sélinonte, frá Sélinonte til Sciacca, en þaðan lagði ég af stað í morgun tií Girgenti, en þar býst ég við að finna nandrit Jean’s Toutmouillé’s. Allt hið fagra, sem borið hefur fyrir augu mín, er mér í svo fersku minni, að það hvarflar varla að mér að fara að skrifa um það. Eg mundi skemma fyrir mér þessr dásemd- ir, með því að reyna að lýsa þeim, þess munu fá iæmi að elskendum verði það á að trufla ástarsælu sina með því að skrifa_um hana í dagbók. Það er við söknuðum líðandi stundar og yndi hins liðna, og öll hugskot skreytt fögrum myndum, sem svífa mér fyrir hugskotsaugum bjartar og hreinar, að ég dreypi á döggskærum veigum af sterku víni, og þá sé ég að inn í veitingastofuna kemur falleg ung kona með stráhatt á höfði og klædd í kjól úr ólituðu silki. Hár hennar var dökkt, augnaráðið dimmt og skínandi. Af göngulagi hennar mátti ráða, að hún væri frá París. Hún settist. Veitingamaður- inn setti fyrir hana glas af köldu vatni og vönd af rósum. Eg stóð upp, þegar hún kdm inn og færði mig dálítið frá borðinu til þess að vera ekki fyrir henni, og fór að skoða helgimyndimar, sem festar voru á vegginn. Þó að ég sneri baki við henni, varð ég þess var, að henni varð hverft við að sjá mig. Eg gekk út að glugganum og fór að horfa á umferðina. Z*i<><l<><i><S<>&Z>&i>&<i>&Z><Z><i><i><>&<><i><i<^<><>&i><i><X><i<><i><i><Z><£><£>&i<><i><i><Z><Í><Z><i<>&t><^><Þ^^ í I A I NYJAR BfKUR HANDA •■iv ■'rnri BORNUM 06 UNGLINGUM Ragnars saga loðbrókar og sona hans Helgi og Hróar Mcð myndum eftir dönsku listakonuna Hedvig Colliu, sem fræg er orðin víða urn lönd fyrir myndir sínar úr sögum og ævintýrum. / Ragnars saga loðbrókar er gefin út óbreytt með núgildandi stafsetningu og prýdd 24 heilsíðu- teikningum og 4 litmyndum. Helgi og Hróar er frumsamin afHedvig Colin, en efnið sótt í Hrólfs sögu Itraka. ölafur Jóh. Sigurðsson íslenzkaði textann. í bókinni eru 30 heilsíðumyndir auk margra smærri mynda. Öldum saman hafa íslenzkir unglingar lesið íslenzkar fornaklarsögur, en aldrei hafa þeir átt kost ú þeim í eins fallegnm búningi og nú. Iíötturinn sem hvarf Nýstárleg barnabók handa yngstu lesendunum eftir Nínu Tryggvadóttur. Klipptar litmyndir í þremur litum, prentaðar á stinn spjöld við hæfi yngri barna. Textinn í einföldum og auðlærðum vísttm. FÁST HJÁ ÖLLIJM BÖKSÖLLM u- HEIMSKRINCLA

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.