Þjóðviljinn - 29.01.1948, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 29.01.1948, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 29. janúar 1948. ÞJÖÐVILJINN Jónas Árnasom Heyrt og séð AÐ REYKJALUNDI Þar er lífsgleðin á rentum og vextirnir ótrúlega háir Vinna í járnsmiðaverkstœðinu að Keykjahxndi. Vonir standa til að stórhýsið að Keykjalundi verði fullbúið fyrir 10 ára afmæii S. í. B. S. á liausti komanda. næstkomandi. Er þá í ráði að halda þar stofnfund fyrir sam- band berklasjúklinga á Norður- löndum; þessi staður valinn 1 viðurkenningarskyni fyrir þann glæsilega árangur, sem náðst heíur' með starfsemi S.í. B.S. Stenzt ekkert hinna Norð- urlandanna samanburð við ís- land í því tilliti. „Æ, láttu nú ekki svona ...“ Við erum í lieimsókn að Reykjalundi fyrir fáum dögum. Læknir vinnuheimilisins, Oddur Óiafsson, fylgir okkur um stað- inn. , Gamlir menn smíða j leikföng handa litlum börnum Og við göngum í fleiri skála. Þarna eru smíðaðar stálgrindur í stóla, og þarna er eina vélin á landinu, sem getur framleitt gorma, í húsgögn og er fær um að fuhnægja allri eftirspurn landsmanna, og þarna eru smíð uð bök og sæti á stóla, legubekk ir og önnur húsgögn. Vistmenn- irnir fá allir föst laun fyrir vinnu sína, og af þeim greiða þeir vistargjöld til heimiiisins. Að lokum göngum við í skála, þar sem gamlir menn smíða leik föng handa litlum bömum. Hér hittum við gamlan sjómann sunnan úr Miðnesi, ganilan skip stjóra að vestan og gamlan bónda norðan úr Þingeyjar- sýslu. Einmitt núna eru þeir að smíða trébíla. Þetta eru bílar, sem veita gömlum mönnum gleði vinnunnar og eiga eftir að veita litlum drengjum gleði leiksins. Og þama hefur maður kannski kjamann í hinni göfugu starfsemi vinnulieimilisins að Reykjalundi. Venjulega vekur það fremur dapurlega tilfinningar að koma í heimsókn á spítala eða sjúkra- hæli. Ekki veit maður þó ætið glöggt, af liverju sá dapurleiki stafar. Kannski er orsök hans sú tilfinning, að lífið sé þarna að vissu leyti munaður, gleði þess varla til nema í vonum fólksins, gáski þess þar af leið- andi svipuð smekkleysa og veizluglaumur í nágrenni solt- inna. — Annars er það svo að heilbrigður maður í heim- sókn hjá sjúkum er gjam á als- konar tilfinningasemi og við- kvæmni, sem hinn sjúki er ef til vill frábitinn með öllu. Gleði lífsins og jafnvel gáski þess er kannski hvergi eins velkom- inn og við heimsókn heilbrigðs manns hjá sjúkum. „Hvað er nú að frétta úr lífinu ?“ á Þorsteinn Erlingsson að hafa sagt eitt sinn er hann var þungt haldinn og vinur hans einn var kominn að heimsækja hajrn. En menn ráða sjaldnast sínum tilfinning- um. Og sú staöiæymd, að fólkið í kringum mann hefur orðið að lúta i lægra haldi fyrir heilsu- leysinu, andstæðingi lífsgleðinn- ar, oi-ðið að sleppa tilkalli til lífsgleðiimar, að minnsta kosti um stundarsakir, hlýtur að orka á hugarástándið. Þar gseiir amiarra áhrifa Heimsókn að Reykjalundi í Mosfellssveit er mjög frábrugð- in venjulegri heimsókn á spítala eða sjúkrahæli, og er þar þó nær eingöngu fyrir að finna sjúkt fólk. En afstöðu veikindanna og hins veika hefur þar verið snúið við, ef svo mætti að orði komast. Þar er hinn 'sjúki í vissum skilningi orðinn herra síns heilsuleysis. Þangað gætir þú jafnvel komið í heimsókn heilbrigður maður og spurt: „Hvað er nú að frétta úr líf- inu?“ Heimsókn að Reykjalundi vek ur ekki hjá manni dapurlegar tilfmn'ingar. Hún er miklu frem ur hressandi uppörfun, vegna þess að hún kemur manni í reisa sérstakan vinnuskóla og eiga þeir að standa þar sem braggarnir eru nú. Stórhýsi er þama í smíðum og á þar að vera aðsetur allrar félagsstarf- semi og annars þess, sem vist- mennirnir eiga sameiginlegt, Stór samkomusalur verður þar t. d. og borðsalur; en á efri hæð unum íbúðarherbergi fyrir um 60 manns og baðherbergi svo mörg, að ekki verða fleiri en 3 vistmenn um hvert. Með lxúsi þessu verður sem sé hægt að auka vislmannatölu vinnuheimil isins uppí rúml. 100. Svokölluð geislahitun yi: í húsinu og þegar búið að ganga frá lienni til fulln ustu. Hitaleiðslurnar eru í lofti og gólfi. Þetta hentuga fyrir- komulag er aðeins í tveim öðr- um húsum hér á landi, nýbygg- ingimni að Kleppi og rannsókn- arstofunni að Keldum. Vonir standa til að stórhýsi þetta verði fullbúið fyrir 10 ára afmælið S.Í.B.S. í september ¥ Vinnuheimilið að Reykjalimdi verður þriggja ára um næstu mánaðamót. Við óskum því til hamingju með afmælið. ASalfandar Fálkans Sauðárkróki Vörubíistjóraféiagið Fálkinn á Sauðárkróki héit aðaifund sinu s.l. sunnudag. I stjórn voru kosnir: Fonnað ur Jóhannes Hansen. Ritari: Árni Gíslason. Gjaldkeri: Sig- urður Bjömsson. Varaforrn.: Valgarður Björnsson. Meðstjórn andi: Sveinn Guðmundsson. DeiSt y en stjórn S&rsSiaSiáætl- unar Vandenberg og Conally, for- 'jigjar republikana og demo- krata í utanríkismálanefnd öld- ungadcildar Bandaríkjaþings, hafr, báðir lýst sig Tylgjandi því, að sérstakt ráðuneyti sé sett á stofn til að annast Mar- shallaðstoðina. Marshall utan- ríkisrá ðhcrra hafði áður lýst sig andvígan sliku fyrirkomu- lagi og krafizt, að stjórnin yrði í höndum utanríkisráðuneytis- ins. kynni við fólk, sem hefur aflað sér hlutdeildar í lífinu og gleði þess og stefnir, með því ör- yggi sem lífið og gleði þess veitir, að endanlegum sigri yfir heilsuleysi sínu. Að Reykjalundi í Mosfellssveit er lífsgleðin á rentum og vextirnir ótrúlega háir. / 10 ára afmæli í septem- ber næstkomandi Víðtækari starfsemi með ári hverju Vinnuheimilið að Reykjalundi .hefur reynzt hlutverki sínu vax ið og starfsemi þess hefur með hverju ári orðið víðtækari. Nú dveljast þar 44 vistm., konur og karlar á aldrinum 18—70 ára. Það eru 11 íbúðarhús og haíast við 4 vistmenn í hverju, íbúðirn ar 1 herbergi fyrir 2 og tvö her- bergi fyrir 1, — auk þess setu- stofa, eldhús og baðherbergi. Innrétting húsanna allra er hin sama, en svipur íbúðanna auð- vitað breytilegur eftir persónu- legum smekk þeirra, sem þar dveljast. Vinnustofur og alls- herjar matstofa er í 20 snyrti- lega máluðum bröggum, sem látnir voru standa, þegar lóðin var annars rudd að bröggum. (Ameríkanarnir höfðu þarna spí tala og skildu eftir sig 100 bragga, þegar þeir fóru). Fólk- ið vinnur 3—6 tíma 4 dag; allir vinna eitthvað. Það er í ráði að Við komum í skála, þar sem ungar stúlkur sitja við sauma. Þarna eru gerðir borðbúkar, allskonar kjólar o. fl. o. fl. Stúlkumar fá þama svo mikla æfingu við saumaskap, að þær eru flestar fyllilega hæfar til starfa á saumastofum, þegar þær hverfa burt af vinnuheim- ilinu. í öðrum skála hittum við fyrir aldursforseta heimilisins, konu á áttræðisaldri, og hún situr einnig við sauma. Þegar Oddur segir, að þær séu ekki margar ungu stúlkurnar, sem standi hcnni á spoi'ði vi^sauma skapinn, kemur ofurlítill roði fram i kinnar henni og hún seg ir, um leið og hún bandar frá sér með hendinni: „Æ, láttu nu ekki svona, Oddur minn.“ Og hún tíefur orð á því að alveg sé það ómetanlegt að geta feng- ið að vinna svona. „Hvergi gæti mér liðið eins vel og hér“, segir hún. I september næstk. verða liðin 10 ár síðan stofnað var Samband ísl. berklasjúklinga, og skipuleg barátta þeirra hófst gegn sjúkdóminum, sem þjáði þá. Öllum mun vera kunnugt um hinn glæsilega árangur af starfi S.Í.B.S., en gleggst kom hann í ljós fyrir þrem árum, þegar vinnuheimilið að Reykja- lundi tók til starfa. Sjúklingar, sem útskrifast af berkiatíælunum, liafa sjaldnast nægilegan styrk til þess strax að ganga til venjulegra starfa í þjóolífinu; — og oft verða sjúklingar, sem öðiazt hafa styrk til að stunda ýmsa léttari vinnu, að dveljast áfram á hæl unum í þeim ömurleika sem fylgir aðgerðaleysi. Með stofn- un vinnuheimilisins að Reykja- lundi var stefnt að því að koma þessu fólki til hjálpar. Vinnu- heimilið skyldi vera milliliður milli hælanna og kins starfandi þjóðlífs. Þar skyldu þeir, sem risið höfðu af sjúkrabeðinum, en voru ekki undir það búnir að ganga strax til starfa sem jafn- drættingar við þá, er fullliraust- ir voru, liafa tækifæri til að afla sér þjálfunar, ef svo mætti segja, undir eftirliti sérfræð- inga. Það hafði margsinnis kom ið í ljós, að sjúklingar, sem út- skrifaðir voru af hælunum, urðu flótt að hverfa þangað aftur, vegna þess að þeir höfðu geng- ið beint til venjulegra starfa í þjóðlífinu en skorti styrk til að þola þau. Vinnuheimilinu var einnig ætlað að fyrirbyggja slíkt afturhvarf til heilsuleysis. Það skyldi vera áningarstaður fyrir sjúklinga á leið þeirr'a til fullrar þátttöku í þjóðlífinu. í sólskiiii á sumrin er nota i legt að sitja j við skálann; siuman í móti.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.