Þjóðviljinn - 29.02.1948, Síða 4
I
Þ JÖÐyiL JINN
Sunnudagur 29. febrúar 1948.
IIJÓÐVILilNN
Útgefandi: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason
Blaðamenn: AriKárason, Magnús Toríi Ólafsson, JónasÁrnason
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur)
Áskriftaverð: kr. 10.00 á>mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Prentsmiðja ÞjóðvUjans h. f.
Sósíallstaflokkurinn. Þórsgötu 1
Sími 7510 (þrjár línur)
Barnahjáípin
í bæklingi frá barnahjálp sameinuðu þjóðanna eru þess-
ar línur:
Hve oft hefur þú gefið drengnum þínum munnsopa af
mjólk? Það er meira en hann fengi á heilum degi ef hann
ætti heima sumstaðar í Varsjá. Eða ketti fulla undirskál ?
Það er þriggja daga skammtur barns.
*
Máltíð sem þú gæfir hundi — gætirðu hugsað þér átta
börn á hnjánum rífandi hana í sig? Það væri meiri næring
en þau átta böm fengju í Aþenu allan daginn. Hún væri
einnig ólíkt lystugri.
Hefurðu nokkurntíma hnotið um tuttugu bamslíkami
á götunum á heimleið að kvöldi? Það yrði ef þú ættir
heima í Kanton eða Sjanghaj.
Um ruslaskjóluna í eldhúsinu hjá þér yrði slegizt i
Rangún.
I Evrópu einni eru um f jörutíu milljónir barna og ung-
linga yngri en 18 ára sem hafa brýna þörf matvæla- og
meðalahjálpar.
Þó er Asía enn ver stödd en Evrópa. Talið er að 29
milljónir barna í Kína, jmgri en 14 ára þarfnist stöðugrar
hjálpar og auk þeirra séu 64 milljónir bama er geti átt líf
sitt undir því að þau fái aukaskammt af matvæliun og
nauðsyuíeg lyf.
í Afríku em ótaldar milljónir barna sem þarfnast mat-
væla og meðalahjálpar.
Um allan heim eru hjálparvana böm, sem þarfnast
mikillar hjálpar. Um allan heim velta örlög þessara bama að
miklu leyti á því hvemig tekst til með söfnun bamahjálpar
sameinuðu þjóðanna.
BÆJARP0ST1RINN
tJr byggingarvinnunni á
eyrina
Verkamður við höfnina sltrif-
ar mér eftirfarandi:
,,Eg ætla að biðja Þjóðviljann
að birta eftirfarandi línur. Eg er
einn af þeim sem hef unnið við
byggingarv., og á síðastliðnu
hausti stöðvaði fjárhagsráð og
stjórn Stefáns Jóhanns í sam-
einingu þær byggingar sem við
unnum við. Þá urðum við að
fara á eyrina eins og aðrir sem
við byggingavinnu hafa unnið.
Laust fyrir klukkan 8 fai’a
verkamenn að streyma að úr
öllum áttum. Fastir starfsmenn
eru mikið færri en þeir sem fá
vinnu dag og dag. Nú safnast
flestir saman hjá horninu
skammt frá afgreiðslunum. Svo
lætur höfuðpaurinn sjá sig,
gengur í gegnum hópinn og
skimar til beggja hliða og tínir
einhverja úr, helzt þá sem bún
ir eru að vaka við síldarvinnu,
því það er hans gengi, eins og
það er kallað.
★
Sex vinnudagar í
febrúar
„Þolinmæði verkamanna er
mikil; ennþá bíða þeir í von um
að verða teknir, og stundum er
það svo, að þegar flestir eru
famir heim, þá er farið að
smala mönnum saman. Aldrei
erum við látnir vita það hvort
við fáum vinnu eða ekki. Og nú
í febrúar hefur það farið hríð-
versnandi, oftast verið þannig,
að sárafáir hafa verið teknir
: sem hafa komið. Eg hefi komið
alla daga niður að höfn í febr.
en vinnudagamir eru 6 en heim
ferðimar 14 og eins er það hjá
mörgum. í dag stöndum við í
2 tíma á bakkanum og um kl. 10
fara margir heim. Þá vantar
menn og smalamennskan byrj-
ar.
★
Finnur hælir sér af
stöðvun byggingarvinn-
unnar
„Egget ekki annað en fyllzt
gremju þegar ég hugsa til ræðu
Finns Jónssonar þegar hann síð
ast með sinni alkunnu rödd út-
málaði það að Fjárhagsráð
hefði unnið eitthVert meistara-
verk við að sjá um að nógur
mannafli fengist á nýsköpunar-
tækin. Þessvegna hefði verið
nauðsynlegt að stöðva bygging-
ar eins og gert hefui’ verið. En
þessi mannræfill ætti að ltoma
niður að höfn þegar ekki er því
meira af skipum og sjá mönn-
um fyrir atvinnu á nýsköpimar-
tækjunum sem hann var að tala
um. En ég býst við að það verði
bið á því að hann láti sjá sig.
Dagsbrún ætti að boða
til fundar um vinnu-
miðlun
„Eg ætla ekki að tala um það
firin Qf'm hlv7.f- af hPAAii fl.uk
þess hvað það er niðurdrepandi.
fyrir verkamenn að búa við
þetta. Eg viðurkenni að margir
hafa alltaf vinnu ög jafnvel
meiri, en þeir hafa gott af, en
það er ekki nóg þegar fleiri hafa.
ekki ofan í sig. Mín tillaga er sú
að Dagsbrún taki stjórn’vinn-
unnar í sínar hendur eftir því
sem fært er, eða að Dagsbrún
hefði maim sem skrifaði alla þá
menn sem ekki fá vinnu þenn-
an daginn og fengju þeir svo
vinnu daginn eftir. Eg held að
stjórn Dagsbrúna rætti að boða
til fundar um atvinnumálin og
að verkamenn, þeir sem ekki
hafa fasta vinnu, ættu sem flest
ir að mæta.
★
Verum þess minnugir
verkamenn
„Eg fyrir mitt leyti tel mig
sama sem atvinnulausan þrátt
fyrir þetta snatt, og oft og ein-
att hefur mér kólnað við að
bíða. Eg treysti Dagsbrúnar-
stjóminni til hins bezta. Og svo
að endingu þetta: Við verka-
menn, verum minnugir við
næstu kosningar þeirra mamia
sem eru valdir að því að við
stöndum og höngum eða hím-
um eða hvað það á að kallast.
Eg á enga ósk heitari en að ís-
lenzkur verkalýður hrindi þeim
mönnum af valdastóli sem með
ráðstöfunum sinum gera olckur
lífið súrt. Eg hefði ekki ritað
þetta nema vegna þess að ég
hefi heyrt að ég sé að verða
slæpingi, því að sumir eru
þannig gerðir að kenna mönnum
um að þeir nenni ekki að
vinna þegar þeir fá ekki vinnu.
Verkamaður“.
Að sjálfsögðu ætlast barnalijálp sameinuðu þjóðanna
pkki til þess að þessi orð hennar séu skilin svo að fjársöfn-
un, þó framkv. sé um allan heim, ráði bót á öllu böli þeirra
tuga ef ekki hundruð milljóna barna, sem nú líða skort í
heiminum. Þeim sem standa að barnahjálpinni er það fylli-
lega ljóst að rætur þess böls að börn fá ekki liið allra nauð-
synlegasta til að geta lifað og dafnað og orðið heilbrigðir
menn eru dýpri en sem þvi svarar. En auk þeirra þjóðfé-
lagshátta sem dæma mikinn hluta mannkynsins til skorts
hefur nú farið um heiminn ægivaldur styrjaldar og heraáms
og skilið heil lönd eftir í rústum og fólk bjargarlausara en
svo að Islendingar síðustu áratuga að minnsta kosti geti
gert sér það í hugarlund. Og söfnun barnahjálpar samein-
uðu þjóðanna er svo viðtæk, að hún getur vafalaust orðið
það sem hún ætlar sér, hjálp til sjálfshjálpar, fyrir milljón-
ir baraa og unglinga, „brúað bilið milli þess sem þau fá og
lágmarks þeirra iífsnauðsynja sem þau þurfa til að lifa“,
þann tíma sem eymdin er mest. Hugmynd Norðmannsins
um að allir launþegar , heimi gefi eins dags laun í þemian
sjóð, atvinnurekendur eins dags gróða, og aðrir eitthvað
tilsvarandi hefur fengið ágætar undirtektir hvar sem hún
hefur verið borin frarn, og er ekki aö eia að söfnunin nær
inn miklum fjárfúlgum.
★
Einnig hér á íslandi hefur barnahjálp sameinuðu þjóð-
anna verið mjög vel tekið. Fjölmennustu félagasamtök þjóð-
arinnar hafa tekið höndum saman um skipulagningu söfnun-
arinnar og hún hefur hafizt um allt land með þeim myndar-
skap, sem einkennt hefur fiársafnanir til mannúðarmála
hér á landi undanfarandi ár.
Dagurinn í dag, sunnudagurinn 29. febrúar er um all-
an heim helgaður bamahjálp sameinuðu þjóðanna, og er
vel til fallið að láta þann óvenjulega mánaðardag ýta við
mönnum í þessu máli. 1 dag verour leitað til íslendinga eins
og annarra, og er þess að vænta að árangur dagsins verði
mikill. Ur öllum álfum heims mæna hungruð börn eftir hjálp
og í dag gefst Islendingum tækifæri til að svara nokkrum
jþeirra.
Þar kastaði fll-
þýðublaðið
mörsiðrinu
Margt hefur gerzt undanfarið
sem valdið hefur þeim Alþýðu-
blaðsmönnum sviða og gremju.
Helzta ráð þeirra liefur þá ver-
ið að skamma Dagsbrún, — Al-
þýðublaðsmönnum er nefnilega
mjög illa við Dagsbrún, því eng-
ir hafa tekið eins litið mark á
Alþýðublaðinu og Dagsbrímar-
menn. Þrátt fyrir hina hörmu-
legu reynzlu heldur Alþýðublað
ið í gær áfram að birta „sigur-
fréttir“! í þetta sinn frá Ólafs-
firði.
Þótt Alþýðublaðsmenn hafi
fá tækifæri látið ónotuð til að
auglýsa fávizku sína í málum
verkalýðsins er of mikið að ætla
þeim að þeir viti ekki betur um
Ólafsfjörð. Það sem gerðist var i
þetta:
Fráfarandi stjórn í Ólags-
fjarðarfélaginu lýsti því yfir í
byrjun kosningar að engir
hefðu kosningarrétt sem væri
innan 16 ára. Hófst svo kosn-
ing, sem stjórnin hafði umsjón
með. Þegar talningu var lokið
og sósíalisti liafði sigrað ])ótti
stjórninni málið taka að vand-
ast, greip hún til þess ráðs að J
ógilda kosninguna á þeirri for- í
sendu að einhvef innan 16 ára j
myndi hafa greitt atkvæði —
k
icElkwrf'' oti ifeiáfei Jft
vilfelfeðfelfefelfe sffl’sltsfe
AÐALFUNDUR
Farsæls Hofsósi
Á aðalfundi verkamannafé-
lagsins Farsæll á Hofsósi voru
þessir menn kosnir í stjórn:
Formaður: Kristján Ágústs-
son. Varaformaður: Guðmund-
ur Steinsson. Ritari: Björn
Jónsson. Gjaldkeri: Jón Stefáns
son. Meðstjórnandi: Bjöm Þor
grímsson.
---★----
AÐALFUNDUR
V erkamannaf élag
Raufarhafnar
Verkamannat'élag Raufarhafn
ar hélt aðalfund sinn seint í
jan. s.I. Þessir voru kosnir í
stjórn:
Formaður: Ölafur Ágústsson.
en meðan þvælt var um þetta
voru sendir út smalar til að ná
í atkvæði. Var svo kosið að
nýju og fékk þá samfylking
stjórnarflokkanna 45 atkvæði
en sameiningarmenn 44. Mir nú
stjórnin ekki sein á sér að lýsa
kosninguna lögmæta! Þetta er
framhald á 7. síðu.
Varaformaður: Ágúst Nikulás-
son. Ritari: Lárus Guðmunds-
son. Gjaldkeri: Stefán Guð-
mundsson. Meðstjórnandi: Ein-
ar Borgfjörð.
---★----
AÐALFUNDUR
Varnar Bíldudal
Verkalýðsfélagið Vörn á
Bíldudai hélt aðalfurid sinn 22.
þ. m. Þessir vcru kosnir í
stjórn:
Formaður: Ingimar Júlíus-
son. Varaform., Guðmundur
Árason. Ritari: Kristján Ás-
geirsson. Gjaldkeri: Gunriar
Valdimarsson. Meðstjómandi:
Guðný S. Guðmundsdóttir.
---★----
ÍAÐ ALFUNDUR
(V erkalýðsf élags
Ólafsfjarðar
Verkalýðsfélag Ólafsfjarðar
hélt aðaifund sinn 22. þ. m.
Þessir voru kosnir í stjórn:
Formaður: Gunnar Steindórs
son. Ritari: Georg Þorkelsson.
Gjaldkeri: Sigurður Ringsted.
Meðstjórnendur: Guðmundur
Steinsson og Víglundur Niku-
lásson.