Þjóðviljinn - 13.07.1948, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 13.07.1948, Blaðsíða 1
13. árgangur. VIUIN Þriðjudagur 13. júlí 1948. Lesið land- > Fáðasaittn- ■ iiftglnn — Harni var birtur í Þjóð vilianum, miðvikudaginn 155. tölublað. 1 . júlí. Eí Arabarikin ganga í berhögg við SÞ og neita að íallast á vopnahlé í Palestínu verða þau lýst árás- arríki aí öryggisráðinu. Þá létta Bandaríkin bann- inu á vopnasölu til Israelsríkis en Bretar verða að hætta vopnasölu til Arabaríkjanna. Þetta yrði til þess, að Arabar íæru mjög halloka, og her Israels- ríkis kynni jafnvel að leggja Transjórdan undir sig. að til ör>*ggisráðið hefði látið Þessa skoðun lét George Waterfield, einn af stjórnmála • frétte.riturum brezka útvarps- ins í ljós í gær. Hann kvað ekki útséð um, að Arabar myndu hafna tilmælum öryggisráðsúis um vopnahlé þótt þeir höfnuðu tilmælum Bemadotte greifa. ' Öryggisráðsfimdur í gær- kvöld i Greifinn kom til New York ! gær til að gefa öryggisráðinu skýrslu. Var ráðið kvatt saman á aukafund strax í gærkvöld. Brezka utanríkisráðuneytið til- kynnti að það myndi fresta greiðslu 500.000 sterlingspunda fitj'rks til Transjordanhers þang Trumanvill banna kolanámuverk- fall Verkfall á annað hundrað þús und kolanámumanna í Banda- ríkjunum heldur áfram. Aðeins 40.000 eiga í deilu en hinir hafa gert samúðarverkfall. Neita sumir námueigendur að láta fé- lagsbundna menn hafa forgangs rétt til, vinnu. Stjórn Trumans hefur beðið dómstólana að kveða upp úrskurð, er banni verkfallið. Er búizt við að það verci gert næstu daga. Soffía GtiÓlaugs- déttir látin Soffía Guðlaugsdóttir, lézt í sjúkrahúsi í fyrradag, sunnu- daginn 11. júlí. Soffía Guðlaugsdóttir fæddist árið 1896 í Kirkjubæjarklaustri. Hún fékk snemma áhuga á leik- list og stundaði nám í þeirri grein bæði í. Danmörku og Þýzkalandi. Siðan hefur hún sem alkunnugt er verið ein hezta og vinsælasta leikkona landsins. til sín heyra. Mikitvægir slgrar Israeís- hers Barizt var á flestum vígstöðv um í Palestínu í gær. Israels- her tók bæinn Lydda nærri sam Framhald á 7. síðu „Hekla“ kom í gærkvöld Múgur og margmenni safn- aðLst saman niður \ið höfn í gærkvöld til að bjóða ,,Heklu“ hið nýja skip Skipaútgerðar ríkisins, velkomna, en hún lagðist að hafnarbakkanum skömmu eftir miðnætti. Þeir Pálmi Loftsson, forstj. Skipaútgerðarinnar og Emil Jónsson, siglíngamálaráðherra héldu ræður, en lúðrasveit lék nokkur lög. Var það mál manna, að sjaldan eða aldrei hefði glæsilegri farkostur sést í íslenzkri höfn en „Hekla“. III að hemámi lerlínar sé hætf Varaborgarstjóri Berlínar sagði í gær, að eina leiðin til nð 1-eysa öngþveitið í borginni væri að öll hernámsveldin flyttu her sinn á brott úr henni. Hemáms yfirvöld Sovétríkjanna hafa rekið tvo þýzka embættismenn í stjórn jámbrautanna og á- minnt þann þriðja fyrir að járn brautarlínan frá Berlín til her- námssvæða Vfesturveldanna komst í niðurníðslu. Sólarhring inn, sem lauk i gærkvöld, fóru flugvélar Vesturveldanna 420 ferðir til Berlinar og er það met. Átfa ný landsmet í sundi sett í gærkvöld Á sundmóti væntanlegra Ól- ympíufara í gærkvöld voni sett 8 ný landsmet í sundi. Metin voru þessi: í 100 m. Framh. á 2. síðu. Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingnr, ber logandi kyndil að leinni kolsýrulindinni hjá Næfurholti. En skyndilega slokknaði á honum og npp steig reykur éins og myndin sýnir. Sjá grein á 8. siðu. ítt undír Bandaríkjaieim ai keíja atvmnorekstuí í MarshalUöndnnum Stjórnendur Maiáhalláaethinarinnar munU gérá allt, sem þeir geta, til að ýta undir bandaiáska borgara að nota sér réttindi þau til atvinnurekstrar í Marshalllöndunum, sem þeim eru veitt í Marshallsamningunum sem nýlega voru undirritaðir við hvert einstakt land. Hoffman, yfirstjómandi Mars halláætlunarinnar skýrði frá þessu í gær. Hann birti um leið reglur, sem veita Bandarikja- mönnum, sem stofna ný fyrir- tæki í Marshalllöndunum, kost á að fá gróða sinn yfírfærðan í dollurum til Bandaríkjanna. Bandarískur yfirgangur Hoffman hefur skýrt frá því, að verkalýðssamtök, æm úti- loki kommúnista frá áhrifa- stöðum, verði höfð með í ráð- um við framkvæmd Marshallá- ætlunarinnar. Verlcalýðssamtök undir stjórn kommúnista verði hinsvegar sniðg'engin. ¥ Þessi yfirlýsing Hoffmans er enn eitt dæmi um yfirgang Bandarikjamanna. Þsir þykjaat þess umkomnir, að geta skipað verkamönnum Vestur-Evrópu fyrir verkum, hverjum þeir fela forj’stu samtaka sinna. Flokksþing demó- krata haiið i $ Flokksþing demókrata sem kýs frambjóðanda í forsetakðsn ingunum í Bandarikjunum í haust hófst í Philadelphia í gær. Það er haldið í sömu salarkynn um og flokksþing republikana fyrir þrem vikum. Talið er víst, að Truman forseti verði vaíin.t frambjóðandi flokksins. Claude Pepper, hinn frjálsljmdi öld- ungadeildarmaður frá Flórida, er sá eini, sem gefið hefur kost á sér annar en Truman. Truman hefur látið uppi, að hann vildi fá Douglas hæstaréttardómara til að vera í framboöi með sér sem varaforsetaefni, en Qouglas hefur þvemeitað. Eru öldunga- deildarmennimir Barkley frá Kentuclcy og O’Mahoney frá Wyoming taldír liklegastir sem varaforsetaefni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.