Þjóðviljinn - 21.05.1949, Blaðsíða 5
Leugard&gur 21. mai 1949.
ÞJÓÐVIUINN
5
Þegar deildum er lokað kveð-
tur forseti þingnienn og árnar
þeim heilla, á þinglausnafundi
er -það forseti sameinaðs þings,
sem í áheyrn alþjóðar ber fram
ámaðaróskir. Þingvenja er að
foringi stjórnarandstöðunnar
svari forsetum til kveðju, þakki
þeim samstarfið og árni þeim
alls góðs.
I neðrideild og sameinuðu
þingi tók Einar Olgeirsson til
máls. Engum þingmanni er
jafn eðlilegt að lífga hvert mál
og atvik, gæða jafnvel forms-
atriði virkra daga lífi af lífi
sterks persónuleika, snerti hamn
við þeim. Þannig urðu þessar
tvennu kveðjur ekki blælaus
framkvæmd formbundinnar
venju, heldur fengu hvor sinn
svip. Þegar Einar Olgeirsson
kvaddi forseta neðri deildar
Barða Guðmundsson, lagði hann
áherzlu á þakkir fyrir drengi-
lega fundarstjórn, og það ekki
að ástæðulausu. Barði Guð-
mundsson er orðinn ágætur
forseti, sem ekki gleymir því
að hann á að gæta lögbundinna
og hefðbundinna þingreglna,
hvað sem ríkisstjórn Iiggur á
að hraða af vondum málum,
framkomu hans i garð stjórnar-
andstöðu á jafn hörðu þingi og
þessu tjáði Einar Olgeirsson
með þeim orðum sem tilfærð
eru hér að framan.
Kveðjan til forseta samein-
aðs þings, Jóns Pálmasonar,
var með öðrum hætti. Þeir Ein-
ar þekkjast vel. Og í kveðjunni
var ekkert annað en kveðja til
mannsins Jóns Pálmasonar, ósk
um fararheill og hlýja heim-
komu. Um starf forseta sam-
einaðs þings var ekki getið,
aðeins minnzt á „harðan vetur“.
En það var bóndinn Jón Pálma-
son, sem lét nota forsetavald
sitt tii óhæfuverkanna 29. og
30. marz. — Hvert orð sem
Einar sagði, var sagt í einlægni.
En það sem ósagt var og djúp
hryggð í röddinni sem kveðj-
una flutti, talaði skýru máli til
hvers þess sem fundið hefur
ógæfu og afbrot þessa þings
liggja eins og möru yfir öllum
vetrinum, afbrot sem gera 37
alþingismenn þriggja flokká að
sekum mönnum í sögu íslend-
inga.
*
Þeir fundu til . þess, seku
þingmennirnir, hve þungt lá á
þeim grunsemd þjóðarinnar
fyrri hluta veturs, en reiðin og
fyrirlitningin er staðfesting
hafði fengizt á svikum þeirra
30. marz. Það sást á mörgu
í framkomu þeirra eftir óheilla-
daginn, að þeir vissu hvað þeir
höfðu gert, með ofþandar taug-
ar fannst þeim allt á móti sér,
ruku upp út af engu, og væri
minnzt á sjálfan atburðinn,
emjuðu þeir með raust Finns
Jónssonar og reyndu að hugga
sig við að þeir gætu þó alltaf
samþykkt með þingmeirihluta
sínum að þeir hefðu staðið sig
vel 30. marz. Samvizkubitið og
smánarþunginn, óttinn við dóm
þjóðarinnar, virtist orka á suma
hinna seku þingmanna eins og
sterk vjn i stórum skömmtum,
. ÞINGSJÁ
Þjóðviíjans 21. maí 1949.
hefði ekki verið búið að lýsa i hinna 37 seku manna, og lög
yfir að þingmenn væru aldrei
drukknir á þingfundum, hefðu
áhorfendur og heyrendur síð-
ustu fundanna ekki fundið aðra
skýringu á framkomu nokkurra
íhaldsmanna í þingsalnum en
að þeir væru „draugfullir“ eins
og pallgestur einn orðaði það.
Upplausn sú og virðingarleysi
fyrir Alþingi sem kemur fram
í slíku, talar sínu máli um
sálarástand þess lýðs.
★
Er frá líður mun það sjást
enn skýrar en nú hvernig ís-
lenzkt afturhald og bandarísk
stjórnarvöld hafa allt frá 1940
unnið að innlimun Islands í hern
aðarkerfi og áhrifasvæði Banda
ríkjanna. Bezt tókst viðnámið
er Bandaríkjunum var neitað
um herstöðvar til 99 ára árið
1945. Nú skilja allir, með hlið-
sjón af atburðum þeim er síðar
hafa gerzt, að sá sigur íslenzks
málstaðar ' vannst eingöngu
vegna þátttöku Sósíalistaflokks
ins í ríkisstjórn, vegna þess að
fulltrúar íslenzka afturhaldsins
gátu ekki makkað að baki þjóð-
inni um afsal landsréttinda og
svikizt til að samþykkja þau á
einum sólarhring. En þjóðin
skildi það ekki 1946, treysti enn
fagurgala landsöluflokkanna.
Vegna þess að Sósíalistaflokk-
urinn vann ekki stórsigur í
kosningunum 1946 tókst hinu
skuggalega bandalagi banda-
ríska auðvaldsins og íslenzkra
leppa að gera þetta kjörtímabil
að ömurlegum uppgjafarkafla
Islandssögunnar. Á fimm ára
afmæli lýðveldisins Islands er
búið að afhenda land og þjóð á
vald Bandaríkja Norður-Ame-
ríku, og henda fyrir borð sjálf
stæði landsins og friðarstefnu
vopnlausrar þjóðar. „Herraþjóð
in“ hreiðrar um sig á Keflavík
urflugvelli eins og hún ætli
aldrei þaðan að fara, ríkisstjórn
íslands hangir við völd á Mar-
shallmútunum, og hefur í stað-
inn ofurselt Islendinga tortím-
ingarhættu af 20 ára hernaðar-
bandalagi við auðvaldsríki
heims sem fyrr eða síðar hætta
tilveru sinni í síðustu örvænt-
ingartilraun að snúa mannkyn-
inu við á þróunarbrautinni,
liindra sigurför alþýðunnar til
valda.
'k
Þegar litið er yfir langa þing-
ið sem nú er lokið sést að öll
meginátök íslenzkra þjóðmála
eru farin að snúast um einn
möndul, sjálfstæðisbaráttu Is-
lendinga. Baráttan gegn land-
ráðunum 30. marz er eins og
þungur undirstraumur allan
þingtímann og nær hámarki 29.
og 30. marz með afburða þrótt-
mikilli baráttu þingflokks Sósíal
istaflokksins við hin örðugustu
skilyrði, er afturhaldið átti enga
vörn nema atkvæðameirihluta
leysishraðann svo þjóðin fengi
ekki skilið þá örlagaríku stund
íslandssögunnar 'fyrr en um
seinan.
Á sviði atvinnumála og fjár-
mála verður baráttan einnig
milli sömu fylkinga, Sósíalista
flokksins annarsvegar og þrí-
flokkaafturhaldsins hinsvegar,
baráttan milli stórhugs, bjart-
sýni, og trúar á íslenzku þjóð-
ina annarsvegar og hinsvegar
stefna mútuþeganna, hinna
seku manna sem eru að gegn
sýra atvinnulíf og fjármál is
lenzku þjóðarinnar mútuspill-
ingunni. Enginn sem heyrt hef-
ur og séð þau átök efast um
hvora stefnuna framtíðin hyll-
ir, nýsköpunarstefnu Sósíalista-
flokksins eða lágkúrulega mútu
þágustefnu Bjarna Benedikts-
sonar, Lavals Islands; Stefáns
Jóhanns Stefánssonar og Ey-
steins Jónssonar.
★
Það var ætlun þríflokka-nna
að rjúfa þing í vor og hafa kosn
ingar í næsta mánuði. Þeir
töldu sér það hagstæðari víg-
stöðu til blekkinga en að hanga
við völd út kjörtímabilið. Þetta
breyttist vegna þess hve geysi
öflug andstaðan gegn landráð-
unum 30. marz varð, en hún
náði langt inn í raðir stjórnar-
flokkanna. Afturhaldsklíkurnar
sem halda þessum flokkum í hel
greipum, þorðu ekki i kosning-
ar vegna þess að þær finna að
aldan gegn þeim, aldan gegn
leppmennsku, landráðum og
mútuþágum rís enn með sívax-
andi þunga. Eysteini og aftur-
haldsklíku hans tókst að láta
Framsókn þrælast áfram í
stjórninni enda þótt blökk
ihaldsins og Alþýðuflokksins
veitti þessum samstarfsflokki
síðustu daga þingsins þá útreið
að engin flokksstjórn með
snefil af sjálfsvirðingu hefði lát
ið bjóða sér slíkt. En svo er
búið að þvæla Eysteini & Co.
upp úr óþrifaverkum leppstjórn
arinnar, að hann þiggur kjafts-
höggin með kristilegu umburð-
arlyndi.
★
Samt getur komið til kosn-
inga í sumar eða haust. Alþýða
landsins verður að vera við öllu
búin. Hún hefur margt lært síð
| an sumarið 1946, og mun ganga
til þingkosninga hvenær sem
þær verða með þann skilning, að
eigi íslenzkur málstaður, bjart-
sýni og stórhugur, íslenzkur
metnaður og snilli að móta þjóð
líf íslendinga, verður að stór-
auka áhrif Sósíalistaflokksins á
Alþingi og refsa hinum seku
flokkum og sekum þingmönnum
þeirra. Frjálslyndir menn Fram
sóknarflokksins og Alþýðu-
flokksins munu einnig finna að
í þeim kosningum verður að
ur að finnast fyrir vilja fjölda
manna í þessum flokkum til
heiðarlegrar, róttækrar, ís-
lenzkrar stefnu.
Milljónaburgeisarnir í Reykja
vík og bandamenn þeirra vest-
an hafs hafa misnotað Alþingi
gegn Islendingu'm þetta kjör-
tímabil. Þeir þykjast hafa bund
ið þjóðina svo að hún hvorki
þori né geti hrært sig til sjálf-
stæðisbaráttu næstu áratugi. I
blindni sinni halda þeir að úr-
slitasigur ýfir íslenzkri alþýðu,
íslenzkum málstað sé þegar
unninn.
En þeir reikna skakkt. Al-
þýða Islands á leikinn, og hún
mun í næstu kosningum leika
sterkan leik sem gerbreytir tafl
stöðunni. Þrátt fyrir allt, Kefla
víkursamning, Marshallfjötra,
hernaðarbandalagshlekki, getur
alþýða Islands til sjávar og
sveita, í samvinnu við frjáls-
lynd öfl annarra stétta, ráðið
þessu landi, leyst sig úr viðjum,:
hafnað mútunum, byrjað nýtt
líf, sem íslendingum sæmir
Þess vegna er enn vor í lofti,
arnsúgur sókndjarfrar alþýðu.
Þess vegna sér þjóðin ekki sex-
tugasta og áttunda löggj.þing-
ið fyrst og fremst í mynd þeirr
ar smánar sem sekir flokkar og
sekir menn hafa þrýst á ásýnd
Alþingis, heldur sem haslaðan
völl þar sem fámennur flokkur
harðsnúins liðs var ofurliði bor
inn af leppum, mútuþegum og
landráðarhönnum í baráttu um
sjálfstæði, frelsi og framtíð ís-
lenzku þjóðarinnar. Og við þá
sýn meitlast heitstrenging í hug
hvers frjáls Islendings, heit af
hatri til hinna seku manna og
seku flokka, hert í sigurvissu
alþýðusamtakanna, að láta
flokkinn verða liðfleiri næst þeg
ar þú færð biturt vopn kjör-
seðilsins lagt í hönd. Liðsauka
er þörf, hörð barátta er fram-
undan næstu árin. Minnumst
þess ætíð: íslenzk alþýða getur
tapað orustum. En hún vinnur
stríðið.
S. G.
14,800 þátftakendur í Lingiaden
90 eilenák Ikkkai sýna
Ritari Linghátíðarinnar í
Svíþjóð, Agne Holmström, hef-
ur nýlega skýrt frá því að alls
muni um 14,000 þátttakendur
frá 48 þjóðum, koma til „Lingi-
aden“ í sumar. Alls koma 90
erlendir flokkar og auk þeirra
26 frá Svíþjóðr
*
Á fyrstu Linghátíðinni voru
7,339 þátttakendur frá 37 lönd-
um. Þátttakendur verða frá
hinum f jarlægustu stöðum:
Brasliíu, Columbía, franska
Indókína. Frakkland tók ekki
þátt í mótinu 1939, en sendir
nú 6 flokka og greiðir franska
ríkið kostnaðinn aí þátttöku
þeirra.
Erfiðasta atriðið að leysa,
kvað ritarinn vera húsnæðið og
hafa öll gistihús verið fengin
á staðnum og auk þess 41 skóli.
I Svíþjóð einni hafa 5850 hús-
mæður tilkynnt þátttöku sína
i. mótinu. Af þeim eru St50 frá
Lapplandi. Elzta húsmóðirin
er 69 ára(!) og jafnaðaraldur-
inn er um 50 ár. „Það er ekki
laust við að maður sé svolítið
smeykur, en það fer nú allt vel“
sagði talsmaðurinn.
I sambandi við þessa Ling-
hátíð er stórkostleg íþrótta-
sýning.
sir g maij
Garðyrkjufélag is bagnýtar leiðbeiningar um
lands hefur gefið út nýj-1 ræktun matjurta. Frámleiðsla
an leiðarvísir um ræktun
matjurta- Nefnist hann
Matjurtabókin, og er
skrifaður af þeim Iialld.
Ó. Jónssyni, Ingimar sig-
urðssyni, Ingólfi Davíðs-
syni,. Ragnari Ásgeirs-
syni
syni.
og Sigurði Sveins-
í formála er þess getið, að
félagsmenn fái bók þessa í
stað ársritsins, semN félagið
hefur gefið út undanfarandi
ár, og að Garðyrkjufélagið
muni halda áfram að gefa
út garðvrkjubækur svipaðar
þessari. í formála bókarinn-
ar, sem er skrifaður af Hall-
dóri Ó. Jónssyni segir enn-
fremur: ,,Með bók þessari
garðafurða þarf að margfald-
ast frá því sem nú er. Að-
staða íslendinga er þannig
í manneldismálum, að þeim
er nauðsyn að neyta meira
nýmetis, en allur þorri
rnanna hefur átt kost til
þessa. Aukin grænmetis-
notkun mun leggja þýðing-
armikinn skerf til heilbrigð-
is og bættrar heilsu lands-
manna”.
Lengsta og ýtarlegasta
greinin í bókinni er rituð af
Ragnari Ásgeirssyni, ráðu-
naut, og nefnir hann hana
Undirstöðuatriði. Ennfremur
eru greinar um hinar ýmsvt
tegundir matjurta, flokkun
þeirra o. fl. Alls er bókin
110 bls., og með mörgum
skríða til skarar, farvegur verð er leitast við að gefa fólki rnyndunr