Þjóðviljinn - 08.02.1950, Síða 4
1
rrrr^r
ÞJÓÐVILJINN
Miðvikudagur 8. feferúar 1950
Þióðviliinn
Útgelandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason
Augiýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson
Ritstjórn, aígreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skóíavörðu-
atíg 19 — Siml 7500 (þrjár linur)
'Áskriftarverð: kr. 12.00 á mán. — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Sósíailstaflokkurinn, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár línur)
—. -i .... i -----—— —.... i
Auðvaldsárás — alþýðuvörn
Atvinnuleysisskráning — þaO er orðið alllangt síðan
þetta orð hafði ískyggilegan hljóm brýnnar nauðsynjar
og átakanlegs skorts, ný kynslóð er komin til þroska og
vinnu, sem lítið hefur kynnzt atvinnuleysi. Og brýn nauð-
syn atvinnuleysisskráningar er enn ekki orðin mönnum
eins ljós og núverandi atvinnuástand, og þó miklu fremur
atvinnuhorfur, krefjast. Þeim verkamönnum og iðnaðar-
mönnum sem atvinnulausir eru, ungum sem gömlum,
verður að skiljast að atvinnuleysiskráning er skylda, að í
henni felst engin minnkun heldur brýn nauðsyn, að lítil
þátttaka atvinnuleysingja í skráningu er notuð miskunn-
arlaust af burgeisamálgögnum og afturhaldsseggjum á
Alþingi og í bæjarstjórnum til að hindra atvinnufram-
kvæmdir og aðrar ráðstafanir vegna atvinnuleysis.
Sú skráning sem birt var í gær, gefur áreiðanlega
ekki líkt því sanna mynd af atvinnuleysinu, sem þegar er
orðið í Reykjavík. Fjöldi manna sem unnið hefur bygg-
ingavinnu hefur ekki haft annað en snapir eða ekkert að
gera síðustu mánuðina. Við mörg fyrirtæki, þar á meðal
t. d. bæjarsímann, hefur mönnum verið sagt upp vinnu,
Kvöldúlfur hefur fyrirvaralaust sagt upp verkamönnum
sem unnið 'hafa áratugi hjá honum, margir ungir sjó-
menn frá sumrinu hafa ekki haft handtak að gera síð-
an síldarvertíð lauk, og meira að segja átt I stríði að fá
sumarkaupið greitt, vinna við höfnina er í daufasta lagi,
frystihúsin starfslítil. Þeir sem kunnugastir eru atvinnu-
ástandinu í bænum telja útkomu atvinnuleysisskráningar-
innar mjög villandi, atvinnuleysi nái nú þegar til miklu
fleiri manna en þar koma fram.
Og þó eru tölumar sem gefnar eru nógu ískyggilegar
og átakanlegar. Atvinnuleysingjar, konur þeirra og böm
em talin 517. Ekki er getið um aldrað fólk á framfæri, en
áreiðanlega em fleiri eða færri gamalmenni á þessum heim-
ilum, og hækka töluna talsvert upp á sjötta hundraðið. Á
þessum heimilum em 185 börn; á einu þeirra em sex
böm, á fimm heimilanna eru fimrn börn, á sjö þeirra era
f jögur börn, á átján heimilum 3 börn, á tuttugu og þrem
heimilum tvö böm og á tuttugu og sex heimilum eitt
barn. Auðvitað em verkamenn, bílstjórar og iðnaðarmenn
talsvert misjafnt stæðir, en engir menn í þeim stéttum
em það vel efnum búnir að þeir þoli atvinnuleysi svo
nokkra nemi. Hver heimilisfaðir sem enn hefur atvinnu
ætti að líta í sjálfs sín barm. Flestum vinnandi mönnum
gengur orðið illa að láta laun sín hrökkva fyrir brýnustu
nauðsynjum og opinbemm gjöldum. En hvernig færi um
heimili þeirra ef vika eftir viku, mánuður eftir mánuð
liði án þess að nokkur laun væri oð fá9 En við það öm-
urlega ástand býr nú hátt á sjötta hundrað manns í
Reykjavík, samkvæmt skráningunni, en engir sem til
þekkja mxmu áætla raunverulegan fjölda atvinnuleys-
ingja og fólks á framfæri þeirra lægri en þá tölu tvöfalda.
Þetta er ástandið sem þríflokkastjórn Stefáns Jó-
hanns, Bjarna Ben. og Eysteins Jónssonar stefndi þjóð-
inni í vitandi vits, þetta er ástandið sem íslenzkt auðvald
Thórsaraklíkan, Claessen og kumpánar hefur talið nauð-
synlegt til að hægt væri með árangri að framkvæma stór-
árásir á þau lífskjör fólksins er það hefur áunnið sér í
harðri og fórnfrekri baráttu. Mennirnir sem í vanmegna
gremju hafa orðið að láta undan mætti verkalýðshreyf-
ingarinnar og hótað að jafnað skyldi um verkamenn þegar
atvinnuleysið kæmi aftur, ha-lda að nú sé sinn tími kominn.
Opið bréf til séra Jóns
Thorarensens.
„Sóknarbarn á Melunum"
hefur beðið mig fyrir eftir-
farandi opinð bréf til séra Jóns
Thorarensens: — „Kæri sálu-
sorgari minn! — Eitt fávíst
sóknarbarn yðar á Melunum
sendir yður kveðju guðs
og sína ásamt nokkrum fátæk-
legum línum, í hverjum það
vildi láta í ljós nokkra forundr-
un yfir yðar, að þess dómi, kyn-
legu uppátækjum í seinni tíð.
— Þegar ég og aðrir mínir lík-
ar hér á Melunum áttum þess
kost á sínum tíma, að fá yður
fyrir sálusorgara hugðum við
gott til þess. Við höfðum álit
á yður sem merkum klerki, er
væri líklegur til að styðja okk-
ur áhinni erfiðu göngu um
torfæran veg kristilegs Jífernis.
Við bjuggumst einnig viii að
þér mynduð, svo sem margir
merkisprestar áður, beita yður
fyrir félagslegum umbótum,
ekki sízt í málum okkar, sem
ekki erum stöðugir á hinu
fjárhagslega svelli. Alllengi höf
um við beðið þess að þér upp-
hæfuð raust yðar hinni rang-
látu þjóðfélagsskipan ttf dóms-
áfellis.... En hér fór því mið-
ur mjög á aðra leið en við
höfðum vænzt.
□
í félagsskap Hallgríms
Ben. og Guðmundar Ás.
„Þegar Reykjavíkuríhaldið
birti lista sinn í þessum kosn-
ingum gaf þar að líta nafn
yðar í félagsskap Hallgríms
Benediktssonar og Guðmundar
Ásbjörnssonar og annarra
slíkra vesalings auðmanna
hverra fjárplógsstarfsemi Jesús
Kristur dæmdi svo • syndsam-
lega, að hann eftirskildi þeim
ekki meiri mcguleika til að
öðlast það guðsríki, er þér boð-
ið á sunnudögum, en einni úlf-
aldaskepnu að troða sér í gegn-
um auga á saumnál. Og nokkru
síðar gerðuð þér í Morgunbl.
grein fyrir afstöðu yðar til
þjóðfélagsmála. Þar teljið þér
Sjálfstæðisflokkinn þá einu
sönnu pólitísku líknarstofnun
þessari aðþrengdu smáþjóð. —
1 geistlegri hrifningu dásamið
þér lífskjör okkar undir stjórn
Sjálfstæðisflokksins og for-
dæmið jafnframt allskonar spill
ingu, svo sem höft og svartan
markað, sem hafa þó dafnað
furðulega í móður skauti þeirra
verzlunarsstéttar er miðlar
þessum sama flokki fé sínu og
móral. „Það er dásamlegt og
dýrmætt að lifa þar sem ríkis-
valdið er ekki óvinur einstakl-
ingsins . .. . “ segið þér, séra
Jón. Þar „þekkjast ekki hreins-
anir“; fá meira að segja fjár-
glæframenn og Farísear að
leika þar lausum hala!
□
Játningin veldur
vonbrigðum.
„Jæja! Eins og ég sagði áð-
an, sendi ég yður þessar línur
til að láta í ljós undrun mína
yfir þessari nýju pólitísku játn-
ingu. Húp hefur nefnilega vald-
ið mér og ýmsum fleiri fátækl-
ingum í söfnuði yðar nokkrum
vonbrigðum. Okkur hefði lang-
að til að þér sýnduð trú yðar
og kristindóm í verki, úr því
þér fóruð að skipta yður af
þjóðfélagsmálum, og gerðuzt
baráttumaður fyrir bættum lífs-
kjörum alls þess fjölda sem
stefna og hagkerfi íhaldsins
Framh. á 7. síðu
HÖFNIN.
Karlsefni og Ingóifur Arnarson
fóru á veiðar i fyrrinótt.
ÍSFISKSSALAN
Þann 6. þ. m. seldi Marz 5645
vættir fyrir 9574 pund í Fleet-
voodr Askur seldi 3660 kits fyrir
7798 pund í Grimsby 7. þ. m.
EIMSKIF:
Brúarfoss fór frá Reykjavik 6.2.
til Hull, Gdynia og Ábo í Finn-
landi. Dettifoss kom til Leith 5.2.
frá Hull. Fjallfoss kom til Leith
5.2. fer þaðan til Frederikstad og
Menstad í Noregi. Goðafoss fór
frá Reykjavík kl. 22.00 í gærkv.
7.2. til N. Y. Lagarfoss kom til
Reykjavíkur 4.2. frá Álaborg. Sel
foss er í Reykjavík. Tröllafoss
kom til Reykjavíkur 4.2. frá N.Y.
Vatnajökull kom til Hamborgar
19.1.
Þeim hefur enn tekizt í tvennum síðustu kosningum, að
véla ti! sín það mikið f jöldafylgi, að þeir ætla í krafti. þess
valds að ráðast á fólkið, líka það fólk sem í blindni lyfti
afturhaldsþingmönmmi og bæjarfulltmmn í valdasess.
Þeir þykjast hafa lamað Alþýðusambandið með stjórn
verkfallsbrjótsins frá ísafirði, þeir þykjast hafa lamað
alþýðuna með ógn og ógnun atvinnuleysisins.
Sarnt reikna þeir skakkt. íslenzkir verkamenn snúa
enn sem fyrr bökum saman þegar á reynir, til varnar og
sóknar alþýðumálstaðnum, til varnar heimilum sínum og
lífsafkomu. Afturhajdið hefm: ákveðið að segja alþýðunni
stríð á hendur, en það strið verður ekki með því móti að
aðeins annar aðilinn berjist. Verkalýðshreyfingin íslenzka
er orðin það vald í þjóðfélaginu að hún lætur ekki kúga
sig niður í atvinnuleysi og eymd. Islenzkt þjóðfélag „spar-
ar“ ekki á þann hátt, en það getur sparað sér arðráns-
klíkur Thórsaranna, heildsalanna, Claessens og kumpána,
Vinnandi fólkið, það sem skapar þjóðarauðinn, getur sjálft
stjórnað þessu landi þannig að hér ríki atvinna og vel-
megun; sú árás á lífskjör fólksins sem burgeisar landsins
og blóðsugur hóta nú, munu opna augu þúsunda alþýðu-
mauna fyrir þeirri einföldu staðreynd.
RIKISSKIP:
Hekla er á Ákureyri. Esja er í
Reykjavík og fer þaðan annað
kvöld austur um land til Siglufj.
Herðubreið er í Reykjavík. Skjald
breið átti að fara frá Reykjtivík
kl. 21.00 í gærkv. á Húnaflóa-
hafnir til Skagastrandar. Þyrill
er í Reykjavík. Skaftfellingur átti
að fara frá Reykjavík í gærkvöld
til Vestmannaeyja.
Skipadeild S.l.S.
Arnarfell er í Hamborg. Hvassa
fell er í Álaborg.
EIMSKIPAF. REYKJAVÍKUR
Katla er á leið til Italíu og
Grikklands frá Reykjavík.
EINARSSON & ZOÉGA H.F.
Foldin hefur væntanlega farið
frá Hull á mánudagskvöld áleiðis
til Reykjavíkur. Lingestroom er í
Amsterdam.
Blfreiðaárekstrar voru talsvert
miklir í fyrradag, vegna hálku á
götunum. Flestar bifreiðarnar
sém í árekstrum lentu voru keðju
lausar.
Skemmtifund heldur félagið
Berklavörn n. k. föstudag kl. 8.30
e. h. að Röðli. Til skemmtunar
verður félagsvist og dans. . .
Minningargreinar um séra Ein-
ar Thorlacius prófast í Saurbæ og
Jóhönnu Thorlacius konu hans
eru komnar út sérpx-entaðar og
hefur Snæbjörn Jónsson bóksali
séð um útgáfu þeirra. Greinarnar
lxafa áður birzt í ýmsum blöðum,
en höfundar þeirra eru: Séra
Árni Sigurðsson, séra Ásgeir Ás-
geirsson, sr. Benjamín Kristjáns-
son, sr. Einar Guðnason, Pétur
Ottesen, frú Guðlaug Gisladóttir
og Snæbjörn Jónsson.
Espei-antistafélagið „Auroro"
heldur fund í Aðalstræti 12, í
kvöld, miðvikudaginn 8. febrúar,
kl. 9 síðdegis.
Nýlega opinber-
uðu trúlofun sína,
Rakel Sigvalda-
dóttir, Grænugötu
4, Akureyri og Sig
tryggur Jónsson,
Keldunesi, Kelduhverfi, N-Þing. —
Nýlega opinberuðu trúlofun sína,
ungfrú Elín Guðbjörnsdóttir, Haga
mel 18 og Björn Halldórsson, rak
ari frá Dalvík. — Nýlega opinber
uðu trúlofun sína ungfrú Erna
Jensen, Leifsgötu 3, Reykjavík og
Hörður Jónasson, Spítalastíg 9,
Akureyri. — Nýlega hafa opinber
að trúlofun sina, ungfrú Jakobína
Jónsdóttir, Norðurgötu 38 og Nils
Hansen frá Danmörku.
Nýlega voru
gefin saman x
hjónaband af
séra Jóni Thor-
arensen, ungfr,-
Una Eyjólfsd.
og Eiríkur Sigfússon. Heimili
þeirra er að Lækjarbrekku, Blesu-
gróf. — 1. febrúar voru gefin
saman í hjónaband, Hólmfriður
Þorláksdóttir og Eiríkur B. Stef
ánsson, húsasmíðanemi. — Heim-
ili þeirra er að Hríseyjargötu 2,
Akureyri. — Nýlega voru gefin
saman í hjónaband, Kristín Sig-
urðardóttir frá Sjávarbakka og
Styrmir Gunnarsson, sjómaður
Akureyri. — Nýlega voru gefin
saman í hjónaband, Arnfríður J.
Jóhannsdóttir og Jóhann Sigþór
Björnsson, verkamaður. — Nýlega
voru gefin saman í hjónaband af
séra Þorvarði G. Þormar í Lauí-
ási, ungfrú Friðrika Jónsdóttir frá
Birningsstöðum í Ljósavatnsskai-ði
og Erlingur Arnórsson, Þverá,
Dalsmynni.
18.30 íslenzkxxi-
kennsla; I. fl. —
19.00 Þýzku-
kennsla; II. fl.
19.25 Þingfréttir.
— Tónleikar. 20.30
Kvöldvaka: a) Erindi: „Norsel"-
leiðangurinn (dr. Sigurður Þórar-
insson). b) Útvarpskórinn syngur
íslenzk lög (plötur). c) Upplestur:
Þóroddur Guðmundsson les frum-
ort kvæði. d) Erindi: Upphaf kvik
myndasýninga á Islandi (Ólafur
B. Björnsson rítstjóri). 22.10
Passxusálmar. 22.20 Danshljóm-
sveit Björns R. Einarssonar leik
ur. 22.50 Dagskrárlok,
Næturakstur í nótt annast Hreyf
ill. — Sími 6633.
Næturvörður e/ í lyfjabúðinni
Iðunni. — Sími 7911.
Næturlæknlr er í Jeeknavarð-
stofunni. — Sxmi 5030.