Þjóðviljinn - 08.02.1950, Page 5

Þjóðviljinn - 08.02.1950, Page 5
Miðvikudagur 8: febrúar 1950 Þ JÖÐ VILJINN 5 Fyrir rúmum sex mánuðum foirti utanríkismálaráðuneyti Bandaríkjanna mikið rit um samskipti sín og Kínaveldis — United States relations vvith China, einkum að því er varðar árabilið 1944—1949. I riti þessu, sem er um 1050 bls. að stærð, eru birtar skýrslur banda rískra sendiherra, fulltrúa, trún aðarmanna og njósnara um málefni Kína, milliríkjasamn- ingar Bandaríkjanna og Kína, auk margs annars fróðleiks. Þótt margt sé undan dregið í foók þessari, þá er hún beinlínis gullnáma að fróðleik um ein- hver stórkostlegustu tíðindin í sögu samtíðarinnar. III. Á stríðsárunum. starfaði mik- ill f jöldi trúnaðarmanna banda- ríska utanríkisráðuneytisins í Austur-Asíu að rannsókn ýmissa vandamála hinna asísku þjóða. Menn þessir virðast hafa verið i miklu nánara sambandi við hið lifandi þjóðlíf Asíuþj. en hinir háttsettari fulltrúar í sendiráðunum. Bók utanríkis- •málaráðuneytisins birtir út- drætti úr skýrslu þriggja slíkra trúnaðarmanna, þeirra John Davies, Raymond Ludden og John Service. Skýrslur þeirra fjalla um árin 1943—1945 og túlka vel ótta Bandaríkjanna við þróun kínverskra mála. Trúnaðarmennirnir óttast mest áhrif Rússa í Kína að stríðinu ioknu og veldi kommúnista í landinu. Svo mikið er í húfi, að þeim dettur ekki í hug að rugla staðreyndum eða láta folekkjast af persónulegum póli tískum óskum sínum, og því bera skýrslur þeirra óvenju- legan hlutlægan blæ. Þeir máttu þekkja það af eigin reynd, hve hernaðarrekstur Kúómintang- stjórnarinnar var mátt'laus og lítils háttar, þrátt fyrir sívax- andi hjálp Bandaríkjanna. Þess vegna er þeim það mikið furðu- efni að sjá íbúa kommúnista- héraðanna berjast eins og ljón gegn Japönum, þótt þeim berist engin hjálp utan að frá. Davies segir i skýrsiu sinni 9. okt. 1944, að í kommúnistahéruðum Nórður-Kína sé Japönum veitt mikið viðnám, er fari sívaxandi. Hann telur þetta viðnám vera inögulegt og bera svo góðan árangur vegna þesá, að hér sé um að ræða algert íkæruliða- stríð, sem háð sé af öllum íbú- um kommúnistahéraðanna. Allir íbúar kommúnistahérað- anna' séu kvaddir til herþjón- ustu og styrjöldin sé rekin sem sóknarstríð. Þessi almenna her- kvaðning grundvallast á því, 'er Davies kallar atvinnulega, pólitiska og þjóðfélagslega bylt ingu. Bylting þessi er lýðræðis- leg og laus við öfgar (moder- ate). Hún hefur bætt efnahag bænda með því að skera niður landskuldir og vexti, hún hefur endurbætt skattkerfið og komið 'á góðri stjórn í héruðunum. Byltingin hefur veitt bændum lýðræðislega sjálfstjórn, skapað íneð þeim politíska sjálfsvitund og gefið þeim -'skilning á rétt- indum £inum.‘ Hún hefur brotið af þeim hlekki lénsánauðar, ASÍA sefwr — ASÍA vaknar x.grein, KÍNAVELDI BANDARÍKiK OG KÍNA vakið sjáffsvirðingu þeirra og sjálfstraust. Hin óbreytta al- þýða hefur í fyrsta skipti eign- azt eitthvað til að berjast fyrir. Davies teiur, að alþýðan muni berjast gegn hverri ríkisstjórn, sem svipti hana ávöxtum sigra sinna. Davies verður einnig mjög starsýnt á kínversku kommún- istana, sem hafi lifað af allan háska og vaxið við hverja raun. Árið 1937 hafi kommúnistar ráðið yfir 100 þús. ferkm lands og hálfri annarri millj. manna. Nú ríki þeir yfir 850 þúsund ferkm. lands og um 90 milljón- um manna, og þeir haldi áfram að vaxa. Davies telur það vera orsök þessa furðulega lífrþrótt- ar, að þeir njóti stuðnings og þátttöku alþýðunnar:, „Stjórnir og herir kommúnista eru fyrstu stjórnir og herir í nútímasögu Kína, er njóta mikils og víð- tæks stuðnings aiþýðunnar. Þeir njóta þessa stuðningíi vegna þess, að stjómir þeirra og herir eru í raun og sann- leilca af alþýðunnar bergi brot- in.“ (United States relations, bls. 566—567). Þá víkur sögu hinna banda- rísku trúnaðarmanna til Kúó- mintangstjórnarinnar og þess heims, tem hún var fuiltrúi fyrir. Verstu fjandmenn Kúó- mintangflokksins mundu ekki lýsa honum með dekkri litum en þessir bandarísku erindrekar gera í skýrslum sínum. John Service ssgir svo í skýrslu. sinni 20. júní 1944, að Kína stanai á barmi fjárhagslegrar glötunar. Stjórnarfarsleg og hernaðarleg bygging ríkisins sé gegnsósa og maðksmogin af spillingu, frá grunni til hálofts, og séu ekki dæmi til svo stórkostiegrar ög blvgðunarlausrar spiilingar. Kúómintang er að týna virð- ingu og stuðningi þjóðarinnar vegna sérgsésku sinnar og vegna þess, að hún tekur ekki til greina neina gagnrýni frá framfaramönnum þjóðfélagsins. Á pólitísku sviði ræður löngun Kúómintangleiðtoganna til að halda völdum öllu öðru tilliti. Á efnahagslegu sviði vill Kúó- mintangstjórnin ekki gera nein ar virkar ráðstafanir gegn verð bólgunni, því að slíkt mundi skaða stéttir stórjarðeigenda og auðmanna. Stjórnin gerir ekkert til að leggja hömlur á stórgróðann, vistasöfnun og brask — én allt er þetta gert Eftir Sverri Kristjánsson af mönnum, sem eru ýmist voldugir í Kúómintangflokknuin eða hafa þar mikilvæg pólitísk sambönd. Þeir verzla við Jápana og greiða munaðarvör- ur þeirra með hernauðsynjum. Stjórnin neitar að leysa mikil- vægustu efnahagsvandamál Kína, svo sem söfnun jarðeigna á færri hendur, banvænar vaxta greiðslur og varobóigu. , Hinir bandarísku erindrekar útskýra „s j álfsmorðistefnu' ‘ Kúómintangstjórnarinnar á þá lund, að Kúómintangflokkurinn sé samsuða úr íhaldssömum póiitískum klíkum, sem hugsi um það fyrst og fremst að varðveita völd sín gegn öllum, sem itanda utan við klíkurnar. Efnahagslega hvílir flokkurinn á þröngum grundvelli sveita- aðals og óðalseigenda, herfor- ingja, æðri embættismanna og bankastjóra, sem séu nátengdir stéttum skrifstofuveldisins. IV. Skýrslur þær, sem hér hefur verið vitnað í, eru frá síðari hluta stríðsins, er Bandaríkin bjuggu sig undir innrás í Japan. Acheson, núverandi utan ríkismálaráð’nerra, segir í bréfi til Trumans forseta, sem prent- að er í bdkinni um Kína, að menn hafi óttast að fórna yrði 1 milijón amerískra mannslífa í fyrirhugaðri innrás á japönsku eyjamar. Bahdaríkjaitjórn var mjög um það húgað að draga úr þessu blóðbaði á amérískum þegnum og gerði því allt sem hún gat til þess að eggja Kúó- mintangstjórnina til dáða. Kúómintaagstjóminni vom sendar geysilegar birgðir vista og vopna, það var hlaðið á I hana gulii og dollurum til að styðja gengi kínverskrar mynt- ar. Kúómintangstjórnin hafði í frammi hreina og beina f járkúg un, er hún var að hafa fé út úr Bandaríkjunum á stríðsárun um. Þessir fjárprettir vom svo blygðunarlausir að maður kenn ir stundum meðaumkunar með Bandaríkjunum á þessum árum. En vörur og vistir Bandaríkj- anna hurfu í botnlausa hít hins kínverska svartamarkaðar, sem skipulagður var af áhrifamönn- um Kúómintangflokksins. Og herir Kúómintangstjórnarinnar lifðu friðsamlegu herbúðalífi og voru æfðir undir þá borgara- styrjöld, sem Sjangkaisék ætl- aði að hleypa af stað að stríð- inu loknu. I sama mund börð- ust alþýðuherir kommúnista, lítt vopnum búnir, án .læknis- lyf ja og sárabinda, við hersveit ir Japana og þjörmuðu svo að þeim, að allt Norður-Kína mor- aði í skæruliða'véitum og al- Bandarikjamena notuðu aðstöðu sína gagnvart stjórn Sjangkaiséks í Kína til að kotna sér upp her- óg ilotastöð í Tsiagtao á austurströnd Kína. Þegar kommón- istar cáiguðust Tsingtao höfðu Baudarí kjamenn sig á brott. Hér sést bandarískt lið á hergöngu í Tsingtao. þýðleg kínversk stjórn fór með völd í þeim héruðum, sem öll herkort styrjaldarinnar sögðu vera hernumin af Japönum. Erindrekar Ban'daríkjanna í Kína skildu, glögglega fyrir- ætlanir Sjangkaiséks. I skýrslu 14. febrúar 1944, túlka þeir Ludden og Service, sem fyrr voru nefndir, afstöðu kínversku stjórnarinnar á þe:sa lund: „Það er deginum ljósara, 'að núverandi Kúómintangstjórn telur styrjöldina gegn Japan vera lítt mikilvæga í saman- burði við })að að halda sjálf vöidunum. Hernaðarleg mistök Kína eiga að miklu leyti rót sína að rekja til stjórnmálalegs sundur lyndis innanlands og viðleitni Kúómintangstjórnarinnar að geyma allan herafla sinn til þess að nota hann stjórnmála- völdum sínum til framdráttar.“ Þeir segja ennfremur, að sú stefna, er Bandaríkin hafi fy’gt í Kína hafi „sannfært Kúómin- tangstjómina um, að þau muni halda áfram að styðja hana og hana eina. Kúómintang- stjórnm heldur, að hún muni fá í hendur vaxandi birgðir hergagna og skyldra vista, og ef marka má fyrri reynslu, þá mun hún beita þessari aðstoð gegn fjandmönnunum með mik- illi tregðu, ef hún þá á annað borð fæ:t til þess.“ í sama mund og Sjangkaisék bjó sig undir boigarastyrjöld- ina við kommúnista átti har.n í endalausum samningum við fulltrúa þeirra um að jafna deilurnar við þá ,,að pólitískum hætti“, eins og hann orðaði það. Hinir bandarísku erind- rekar létu ekki blexkiast af friðarhjali hins kínverska mar- skálks. Davies eegir svo í skýrslu 24. júní 1913: „Mar- skálkurinn getur ekki gengið að hinum sakleysislegu xröfum kommúnista, að flokkur þeirra verði leyfður og gerðar vprði ráðstafanir til aukins iýiræð.s. Slíkt mundi sennilega verða til þes3, ■ að Kúóruintangstjórnin og fylkishöfðingjar henurir yrðu að hrökklast frá völdum.“ Dav- ies segir í annan stað í skýrsla 9. des. 1944: „Marskálkinum er’ | ljóst, að ef hann gengur að skilyrðum kommúnista um sam steypustjórn, þá m.uni þeir fyrr eða síðar bola honum frá völd- um. Þess vegna mun hana bíða átekta og þrauka af styrj- öldina.“ Hinum bandarísku sendimönn um var það ljóst, að Kuórnín- tangstjórnin mund: aldr'.i lifa af raunhæft lýoræði .í ’andinr, og þess vegna fór hún j..fnan undan í fiæmiúgi, gr húr átti að svara hiaum einÍGn u og sjálfsögðu kröfum kommunistá' um lýðræðisréttindi. S-jórnin beið þess eins í ofvæni, að Japan yrði brotið á bak aftur með sameiginlegu átaki Bandaríkj- anr.a og hinr.a evrópsku banda- manna þeirra. En erindr :karnir eru mjög vondaufir um sigt.r Kúómintangstjórnarinnar í hinni komandi borgarastyrjöld. Servicc segir í skýrslu 9.;okt. 1944, að kommúnistar njuni Framhald á 7. síðu. ■

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.