Þjóðviljinn - 08.02.1950, Síða 8

Þjóðviljinn - 08.02.1950, Síða 8
Verkamannafélag A kureyrarkaupsfaSar skorar á Alþýðusambandið að kalla saman ráðstefnu allra sambandsfél. Aðalíundur Verkamannaíélags Akureyrarkaup- staoar samþykkti einróma eítirfarandi: „Vegna sívaxandi dýrtíðar og þar a£ ieið&ndi versnandi afkomu launþeganna í landínu, sam- þykkir aðalfundur Verkamannaíélags Akureyrar- kaupstaðar, haldinn 5. febrúar 1950, að skora á Alþýðusamband íslands að kalla saman ráðsiefntt allra sambandsfélaga á landinu um launamáíín, svo fijótt sem fök eru á“. Ætlar Alþingi ú íella 21% uppbót á laun gamals fólks og ^ia? 1 gær hófst í sameinuðu þingi síðari umræða um þá tillögu sósíalísta að 20% uppbót verði greidd á lífeyri aldraðs fólks og öryrkja samkvæmt al- mannatryggingalögunum. Eins og áður hefur ver- ið skýrt frá klofnaði fjárveitinganefnd um af- greiðslu málsins og leggur spyrðuband íhaMsins, Alþýðuflokksins og Framsóknar til að tillögunni verði vísað frá. AHharðar umræður urðu um málið. Fylgdu þeir Asniundur Sigurðsson, Sigurður Guðnason og Einar Olgeirsson þessu sjálfsagða réttlætismáli fast eftir, en á móti mæltu Gísli Jónsson og Har- aldur Guðmundsson! Vakti afstaða hins síðarnefnda sérstaka athygli. Hann er forstjóri almannatrygg- inganna og hefur jafnan þótzt bera hag hinna tryggðu nijög fyrir brjósti. Auk þess var hann á þessu þingi flutningsmaður tillögu um 20% upp- bót á laun opinberra starfsmanna og tryggði m. a. sjálfum sér hámarksuppbót! Umræðunni varð ekki lokið í gær. Kosninpsjóður- inn Við birtum hér rö5 deildanna í samkeppninni eins og hún var í gær, en peningar hafa verið að berast daglega í kosn ingasjóðinn: 1. Bolladeild 184% 2. Kleppsholtsdeild 141— 3. Langholtsd. 119— 4. Skóladeild 118— 5. Barónsdeild 112— 6. Njarðardeild 107— 7. Skjerjafjarðard. 100— j 8. Sunnuhvolsd. 95— 9.—10. Laugarnesd. 84— Þingholtad. 84—: 11. Vesturdeild 80— 12. Eskihlíðard. 75— ; 13. Nesdeild 66— 14. Vogadeild 63— 15. Valladeild 61— 16. Hlíðadeild 52— ‘ 17. Túnadeild 49— 18. Skuggahverfisd. 46— 19. Meladeild 43— Æskulýðsfylkingin 40— Um Jeið og við þökkum öll- um þeim flokksmönnum og öðr- nm, sem hafa lagt kosninga- sjóðnum lið, viljum við minna þá, sem enn kunna að hafa söfnunargögn hjá sér, að skila þeim í skrifstofu Sósíalistafé- lagsins, Þórsgötu 1, hið allra fyrsta. Söfnunarnefnd. Krefjast fram- sals kjarnorku- fræðings McMahon, forxnaður kjarn- orkunefndar Bandaríkjaþings, lýsti yfif að afloknum lokuðum fundi nefndarinnar, að farið muni þess á leit, að Bretar framselji í hendur bandarískra yfirvalda kjarnorkufræðinginn Fuchs, sem sakaður hefur ver ið um að hafa tvívegis gefið óþekktum aðila upplýsingar um kjamorkuleyndarmál. Sagði McMahon, að Fuehs hefði haft aðgang að upplýsingum um vetnissprengjuna, er hann starf aði í Bandaríkjunum. Fullyrti McMahon að Fuchs hefði látið Sovétríkjunum í té aíar þýðing armiklar upplýsingar. Brátt i brék að s I gær fór fram í samein- uðu þingi síðari umræða og atkvæðagreiðsla um tillögu rikisstjórnarinnar um þátt- töku íslands í svonefndu Evrópuráði, sem Finnbogi Kútur Valdimarsson hefur hnyttilega kallað „skálka- skjól fyrir skrafskjóður Fór Einar Olgeirsson fram á að afgreiðslu niálsins væri frestað, þar sem Finnbogi Rútur, sem var framsögu maður minnihluta utanríkis málanefndar, er veikur. Var þeirrj beiðni hafnað af for- seta sameinaðs þings, Stein- grími Steinþórssyni, og er slíkur asi á afgreiðslu því- líks máls mjög óvenjulegur. Frumvarpið var síðan sam þykkt með 35 atkv. gegn 8, 3 sátu hjá en 6 voru fjar verandi. Auk sósíalista greiddi Páll Zóphóníasson at kvæði gegn frumvarpinu og gerði hann þá grein fyrir af stöðu sinni að hann sæi ekki ástæðu til að stórfé í erlend um gjaldeyri væri árlega eytt til þess að taka þátt í einskisverðu „málfundafé- Iagi“ eins og Evrópuráðið væri. Þeir sem sátu hjá voru Ásgeir Bjarnason, Rannveig Þorsíeinsdóttir og Páll Þor steánsson. Jóhannes léhann- Aðalfundur Verkamannaíélags Glæsibæjarhrepps Aðalfundur Verkamannaíé- lags Glæsibæjarhrepps var haldinn fyrir nokkru. I stjórn. voru kjörnir : For- maður: Friðrik Kristjánsron. Ritari: Sigurður Brynjólfsson. Gjaldkeri: Gunnlaugur Einars- son. Meðstjórnendur: Sigurjón Jónsson og Jónas Aðalsteins- son. Kl. 10 í gær andaðist að heimili sínu hér í bænum Jó- hannes Jóhannesson, fyrrum bæjarfógeti, 84 ára að aldri, og var hans minnzt á Alþingi í gær með ræðu sem Steingrímur1 Steinþórsson, forseti sameinaðs þings hélt. Jóhannes Jchannesson fædd- ist 17. janúar 1866 í Hjarðar- [ liolti í Sta'fholtstungum, sonur iJóhannesar sýslumanns Guð- mundssonar og konu hans Mar- enar Lárusdóttur sýslumanns Thorarensens í Enni. Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1886 og lagaprófi í Kaupmanna höfn 5 árum síðar, 1891. Að loknu því prófi gerðist hann að stoðarmaður i stjórnarráði fs- lands í Kaupmannahöfn og gegndi þvi starfi í rúm 3 ár. Næstu 3 ár þar á eftir var hann settur sýslumaður í Húna vatssýslu, en 1897 var hann skipaður sýslumaður í Norður Múlasýslu og bæjarfógeti á Seyðisfirði og hafði það em- bætti á hendj í 21 ár. 1918 var jhonum veitt bæjarfógetaem- bættið í Reykjavík, og því em- bætti gegndi hann þar til það var lagt niður frá árslokum Ernest Bevin 4.500«000 atvf nnuleys - ingjar í USA Tvöfalt fleiri en á sama tíma i fyrra Bandarí$ka verkalýðsmála ráðuneytið hefur tilkynnt að atvinnuleysingjum í Bandaríkjunum hafi fjölgað um tæpa milljón í janúar og hafi í lok mánaðarins ver ið yfir 4.500.000 talsins. Er þetta helmingi hærri at- vinnuleysingjatala en var í jan. í fyrra í Bandaríkjun- um. Auk þessarar hálfrar fimmtu milljónar, sem eru gjörsamlega atvinnulausir, eru langtum fíeiri, sem ekkl hafa nema fárra stunda vinnu á viku. Bevin leitaði lœkninga á Ceylon hjá tönn Búdda! Þegar Ernest Bevin, utanríkísráðherra sósíaldemo- kratastiórnar Bretlands, var á samveldisráðstefnunni á Ceylon í fyrra mánuði, leitaði hann sér lækninga hjá tönn Búdda, sem geymd er í musteri þar á eynni. Bevin hefur lengi verið hjartabilaður, og fékk sérstak- lega slæmt kast rétt áður enn hann fór til Ceylon. Bevin var boriian um í burðarstól. Senanayake forsætisráðherra á Ceylon lét smíða burðarstól handa Bevin og báru þjónar hann upp og niður stiga og tröppur til ráðstefnusalarins í Colombo svo að hann þyrfti sem minnst að reyna á sig. Vakti þetta mikið umtal og barzt til eyrna prestum „Musteris hinn- ar helgu tannar,“ sem buðu Bevin þegar að leita sér lækn- inga með því að líta á tönn- ina. Er slíkt boð algert eins- dæmi, því að tönnin er ekki af- hjúpuð nema sjöunda hvert ár. Sjö gullskrín hulin gimsteinumo. Bevin þáði þegar boð Búdda- prestanna og fór til musterisins með fríðu föruneyti ráðherra annarra samveldisl. E- i tann- armusterið kom féllu gestirn- ir í stafi yfir fjársjóðum eðal- steina og dýrra málma, sem þar var að sjá. 1 hinu allra helgasta gat að líta gimsteina- hrúgu mikla. Var það hver eðal steinafestin við aðra. Lyftu prestarnir þeim og kom þá í ljós gullskrín og innan i því annað gullskrín og svo koll af kolli og var tönnin helga í sjö unda skríninu. Var hún nú sett í kristalsumgjörð og sjúklingn um Bevin leyft að skoða hana. sér til heilsubótar. Blaðamenn í förinni segja, að tönnin sé tveggja þumlunga löng og lík- ust gömlum gulnuðum fílabeins bút. Prestarnir skýra stærð hennar með því, að Búdda hafi verið af ættum risa frá Nepal. Bevin gaf í London í gær brezku stjórninni skýrslu um Colomboráðstefnuna. Ekki var þess getið í fréttum hvort hann hefði látið nokkuð uppi um á- Lögreglustjórinn í Vestur rangur tannarlækningarinnar. Berlín dró í gær dár að móður * sýkistali sósíaldemókratafor- ingjans Sehumacher, um að skriðdrekar Vesturveldanna gætu einir hindrað, að hálf milljón þýzkra æskumanna sem búizt er við að sæki mót æskulýðssambandsins í Austur- Þýzkalandi á hvítasunnu, taki V.-Berlín á sitt vald. Lögreglu- stjórinn kvaðst alls óhræddur þótt svo fari að hernámsyfir- v-Öld Vesturveldanna leyfi æsku fólkinu að fara hópgöngu um Vestur-Berlín. Híegíð aS r r B n 1928. Hann átti sæti á Alþingi sem þingmaður Norðmýlinga 1901—1913 og sem þingmaður Seyðfirðinga 1916—1931 og var forseti sameinaðs Alþingis 1918 1921 og 1924—1926. Auk þess hafði hann á hendi fjölmörg trúnaðarstörf. i . Brezka stjórnin tilkynnti í gær, að hún hefði ákveðið að veita stjórn Bao Dai, lepps Frakka í Indó Kína fulla viður kenningu. Bao Dai og Frakkar ráða einungis yfir tíunda hluta landsins en yfir níu tíundu Indó Kína ræður stjórn sjálf- stæðishreyfingarinnar Vi.et Minh undir forystu Hó Sji Min. Útvarp Viet Minh sagði í gær, að gagnsókn sjálfstæðishreyf- ingarinnar væri hinn mesti styrkur að viðurkenningu Kína og Sovétríkjanná á stjórn Hó.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.