Þjóðviljinn - 05.03.1950, Blaðsíða 4
•Sunnud&gur 5, marz ■ 1950.
ÞJÓÐ VIL J I NN
ÞlÓÐVlLIINN
Útgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósiallstaflokkurinn
Kitstjórar: Magnús Kjartansson, (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjórl: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Arl Kárason, Magnús Torfl Ólafsson, Jónas S-i'nason
Auglýslngastjórl: Jónstelnn Haraldsson
Rltstjórn, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
•tíg 19 — Simi 7500 (þrjár línur)
IXskriftarverð: kr. 12.00 á mán. — Lausasöluverð 50 aur. elnL
Prentsmiðja Þjóðvlljans hj.
Bóslallstaflokkurinn, Þórsgötu 1 — Siml 7510 (þrjár línnr)
- 1 ................................... ' ■
Árásin á iðnaðinn
Það verður ekki með sanni sagt að íslenzkur iðnaður
hafi notið þess skilnings hjá þjóðinni, sem vera ber.
Það er algengt að heyra fáfróða og grunnfæma
menn halda því fram á.strætum og gatnamótum að við
iþurfum að „drepa“ svo og svo mikið af iðnaðinum og
knýja iðnaðarverkafólkið með svipu atvinnuleysisins
til sjósóknar.
Þessi fávíslega og hættulega skoðun var nægilega
fávísleg til þess að hagfræðingar ihaldsins dr. Benjamin
og prófessor Ólafur teldu sjálfsagt að gera hana að
einum meginþætti „striksins“ þ.e. stefnu íhaldsins í at-
vinnu- og fjárhagsmálum þjóðarinar.
í 9. gr. frumvarpsins segir svo:
„Verö vöru sem framleidd er og seld innanlands,
má hækka sem nemur hærri erlendum kostnaðarliðum
og sem nemur innlendum kostnaðarliðum, öðrum en
launum. Tillit má þó taka til þeirra breytinga á laun-
um, sem verða í júlí 1950 og janúar og júlí 1951 sam-
kvæmt þessum lögum vegna breytts framfærslukostn-
aðar samkvæmt vísitölu.“
Þetta þýðir að iðnaðurinn má ekki fá hækkun á
verði framleiðslunnar, vegna grunnkaupshækkana né
vegna þeirra hækkana á launum, sem samkvæmt frum-
varpinu geta orðið 1. maí og 1. júní þessa árs.
Þáð ætti að vera öllum ljóst að engin þjóð getur
vænzt þess að vera efnahagslega sjálfstæð nema iðnaður
sé verulegur þáttur í framleiðslukerfi hennar. Sagan
sýnir og sannai’ að þær þjóðir, sem lengst hafa komizt
á sviði iðnaðarins hafa orðið forustuþjóðir á sviði efna-
hagsmála, en hinar, sem fyrst og fremst hafa lifað á
því að framleiða efnivöru (hrávöru) hafa dregizt aftur úr.
Engum er þetta ljósara en amerískum auðmönnum,
þeir líta svo á, að veigamesti þátturinn í að skapa
Ameríku yfirdrottnunaraðstöðu í heimi fjármálanna, sé
aö gera sem flestar auðvaldsþjóðir, utan Ameríku, að
hráefnaframleiðendum, svo ameríski iðnaðurinn geti
orðið drottnandi, og allar auðvaldsþjóðir veröi háðar
smerískum iðnaðarvöram.
Þetta er stefna Bandaríkjanna, rökrétt og eðlileg,
frá sjónarmiði einokunarhringanna, en þeina sjónarmið
er meiri gróði til handa amerískum auðmönnum.
Þáð var erindi Benjamíns að flytja íslendingum
þetta sjónarmið, vafið silki blekkinganna, og þaö var
hlutverk hins ámátlega Ólafs prófessors, að setja stimpil
á þessar umbúðir, stimpil „fræðimennsku“, sem vissu-
lega ætti fremur að heita fáfræði en hagfræði.
Því miður falla sjónarmið þeirra „fáfræðinganna“
.Benjamíns og Ólafs í furðu góðan jarðveg hvað iðnaðinn
snertir, vegna þess að grunnfæmir menn hafa látið það
villa sér sýn, að á síöari árum hefur risið hér upp ýmis
konar óþarfa iðnaður, við öðru er ekki að búast meöan
gróöasjónarmið ræöur framleiðslunni, en þetta breytir
ekki þeirri staðreynd að mest af iönaöi, sem hér hefur
vaxið upp, á fullan rétt á sér, og að efnáhagsleg fram-
tíð þjóðarinnar er mjög undir því komin að iðnaðurinn
geti vaxiö og blómgazt, svo þjóöin verði ekki eingöngu
Jbáð sjávarafla og stopulum fiskmörkuðum.
íslendingar höfðu hugsað sér á næstu árum að stíga
jstór spor til eflingar iðnaði með því að reisa stærri
orkuver en áður hafa þekkzt hér á landi við Sogið og
Laxá. Verði. gengislækkun ihaldsins framkvæmd, hækka
BÆJARP0ST||RINN
SK||jjjjjgyy|iɧ||
P
1‘áttnriim „Um daginn
og veginn.“
Skólapiltur skrifar: — „Einn
þeirra þátta, sem útvarpið hef-
ur lengi haft á dagskrá sinni
er þátturinn ,,um daginn og
veginn.“ — Flestir myndu ætla,
að heldur ætti að vera létt
• yfir þessum þætti, því hinn
grámyglulegi hversdagsleiki
setur samt nægilega mikinn
svip á dagskrána, en þó má
ef til vill segja, að þessi þáttur
fari öðrum fremur eftir því
hver talar. — Það er ólíkt
að rabba við skemmtilegan
mann um daginn og veginn og
leiðinlegan, alveg eins og það
er ólíkt að hlusta á t. d. Sig-
urð Þórarinsson og Árna Ey-
lands. — Annar er yfirlætis-
laus og skemmtilegur og laus
við allan menntunarhroka, þótt
hann sé allra manna fróðastur.
Hann er fulltrúi þeirrar mann-
tegundar, sem alltaf er gaman
að hitta á götu, þegar illa
liggur á manni.— Hinn, sem ég
nefndi síðar, hreykir sér í upp-
hafi máls síns í dómarasæti og
pundar þaðan á hlustendur tor
meltum spakmælum og fjósa-
hagfræði og skreytir mál sitt
með ,,vér“ og „oss.“ — Hann er
snillingur í einu, og það
er að koma manni í illt
skap. — Bjami fyrrverandi ráð
herra Ásgeirsson var líka alltaf
skemmtilegur í þessum þætti og
karlar eins og Áskell Löve
kunna ekki að vera leiðinlegir,
ekki heldur ýmsir rithöfundar
og leikarar (t. d. Halli Á.)
□
Eins og á hrossa-
sýningu.
„Undanfarið hefur borið
mest á tveim föllnum íhalds-
frambjóðendum í þessum þætti,
þeim Magnúsi Jónssyni frá Mel
og Árna Eylands, búfræðingi.
— Er nú keppzt við að kynna
landslýð, hve alvarlega þenkj-
andi þessir menn séu, sennilega
í von um að fall þeirra verði
ekki eins mikið við næstu kosn-
ingar. — Ekki skal því neitað,
að Magnús er skárri, enda
yngri og þar af leiðandi ekki
eins langþjálfaður í leiðinleg-
heitum og Ámi Eylands. —
Það er engu líkara en maður
sé kominn upp í sveit á hrossa
sýningu eða kúa —, þegar Árni
hefur upp raust sína. — Á
mánudaginn var keyrði þó
fyrst um þverbak, svo mér,
sem annars er lítt vanur rit-
mennsku, var nóg boðið. Það
var þegar Ámi fór að minnast
á frumvarp stjómarinnar í dýr
tíðarmálunum og fara um það
áróðursorðum, sem á engan
hátt samræmast hlutleysinu,
sem blessað útvarpsráðið lætur
sér svo annt um stundum. —
Ætti hér að vera komið gullið
tækifæri fyrir útvarpsráð til
að afskrifa Árna þennan fyrir
fullt og allt.
□
Ekkj peningavit, heldur
mannvit.
„En ef svo fer, sem ég vona,
þá á ég aðra bón, sem mig
langar að koma á framfæri við
útvarpsráð. 1 guðs bænum kom
ið þið ekki með gömlu plötum-
ar, sem nú er búið að spila
daglega í 20 ár og orðnar eru
útslitnar, voru enda aldrei góð-
ar,og á ég þar við menn eins
og t. d. Vilhjálm Þ. Gíslason.
Maður er í sífelldum ótta við
að heyra til þeirra, í hvert
skipti, sem maður skrúfar frá
tækinu sínu. — Þó em allir
þessir menn skárri en hinir póli
tísku páfagaukar, sem ég minnt
Framhald á 6. síðu.
H ö f n i n
Garðar Þorsteinsson kom frá
Englandi í fyrrinótt og var tek-
inn í slipp í gærmorgun. Geir
kom af veiðum í gærmorgun og
fór áleiðis til Englands.
E. Z o e g a
Foldin er í Rvík. Lingestroom
fermdi í Kaupmannahöfn í gær
og fermir í Álaborg á mánudag.
Bíkisskip
Hekla er í Rvik. Esja er á
Austfjörðum á norðurleið. Heröu-
breið var á Hexrnafirði i gær á
leið til Reykjavikur. Skjaldbreið
er væntanleg til Reykjavíkur seint
i gærkvöld. Ármann var i Vest-
mannaeyjum i gær.
E i m s k i p
Brúarfoss fór frá Kaupmanna-
höfn 1. þessa mánaðar til Rvíkur.
Dettifoss er í Grimsby, fer þaðan
i dag til Hamborgar. Fjallfoss
er í Reykjavík. Goðafoss fór frá
N. Y. 27. f. m. til Rvíkur. Lagar-
foss er á Isafirði. Selfoss er í
Menstad, fer þaðan til Rvikur.
þessar frarakvæmdir í veröi um 60 milljónir króna, að
minnsta kosti, og má öllum vera ljóst hvilíkt áfall það er
iðnaðinum.
Eitt er þaö í sambandi við þetta mál, sem ekki
má gleyma; með því að hækka dollariim tvisvar í veröi,
er málum nú svo komið að fyrir þá dollara, sem Ame-
ríkanar fengu áður 8 íslenzkar vinnustundir fá þeir nú
20, með þessu móti er dollaranum brotin brautin inn á
íslenzkan vinnumarkaö, og þaö er megintilgang-urinn
meö árásinni á íslenzka iðnaðinn. Amerískum þjónum er
hagstæðara að amerískir auðmenn -virki fossa íslands
og setji hér upp stóriðju, en að íslendingar fái að nytja
það land sem þeir einir eiga.
Tröllafoss hefur væntanlega farið
frá N. Y. 3. þ. m. til Halifax.
Vatnajökull er í Rvík.
Iðnneminn, mál-
gagn Iðnnema-
sambands Islands,
er nýkominn út
og er það 1.—2.
tölublað þessa ár-
gangs. 1 heftinu er þetta efni
m.a.: Segðu það þá stjörnunum—,
kvæði eftir Þorstein Valdimars-
son. Lög um iðnfræðslu. Launa-
mál iðnnema. Barátta iðnnema í
öðrum löndum. Alveg vafalaust,
smásaga. Menntun sérfræðinga í
Ráðstjórnarríkjunum á dögum 4
ára áætlunarinnar, eftir S. Kaft-
anov. Notkun Radars á friðar-
tímum, eftir A. C. Monahau. Inn-
brotsþjófurinn, smásaga. Kauptíð-
indi. Til lesenda o. fl.
Félag veggfóðrara heldur aðal-
fund sinn í dag kl. 2 e. h. í
Breiðfirðingabúð.
í gær opinberuðu
trúlofun sína ung-
frú Elsa Dagmar
Runólfsd., Bröttu-
götu 5 og Ásgeir
Halldór Ásgeirsson
Lindargötu 63 A.
Næturakstur
i nótt annast Hreyfili, sími 6633.
— Eftir kl. 2: 6636.
Næturvörður
er i Lyfjabúðinni Iðunn, sími 7911,
Næturlæknir
er í læknavarðstofunni, sími 5030.
1 gær voru gef-
in saman í
hjónaband af
sér Sigurbimi
Einarss. ung-
frú Guðrún
Guðmundsdóttir frá Sóibakka í
Hveragerði og Hjörtur Sturlaugs-
son, bóndi í Fagrahvammi í Skut-
ulsfirði. — 1 gær voru gefin sam-
an í hjónaband af séra Sigurði
Kristjánssyni á Isafirði, ungfrú
Sigrún Magnúsdóttir, bankamær
og Trausti Magnússon, veitinga-
þjónn, Hnífsdalaveg 3. — I gær
voru gefin saman í hjónaband af
séra Jakob Jónssyni, Brynhildur
Jensdóttir og Gísli Þórðarson, loft-
skeytamaður á togaranum Helga-
felli. Heimili þeirra verður í Auð-
arstræti 9.
11.00 Messa í Hall-
grímskirkju (sr.
Jakob Jónsson).
15.15 útvarp til Is-
lendinga erlendis:
Fréttir. — Erindi
(Helgi Hjörvar) 15.45 Útvarp frá
síðdegistónleikum í Sjálfstæðis-
húsinu (Carl Billich, Þorvaldur
Steingrímsson og Jóhannes Egg-
ertsson leika.) 18.30 Barnatími
(Þorsteinn Ö. Stephensen): a)
Hörn Harðardóttir (11 ára) les
sögu: „Berjaför“. b) Stefán Jóns-
son les framhald sögunnar:
„Margt getur skemmtilegt skeð";
— o. fl. 19.30 Tónleikar: Tilbrigði
eftir Arensky um stef eftir Tsc-
haikowsky (plötur). 20.20 Kvöld-
vaka Stúdentafélags Rvikur: 1)
Erindi: Hugleiðingar um heil-
brigðismál (Sigurður Sigurðsson
berklayfirlæknir). 2) Útvarp frá
kvöldvöku félagsins að Hótel
Borg 23. febr. (af stálþræði): a)
Guðni Jónsson skólastjóri lýsir ís-
lenzkum þjóðháttum. b) Sigurður
Friðþjófsson stud. oecon. les frum
samda smásögu. c) Guðmundur
Jónsson stud. phil. leikur á píanó.
d) Spurningaþáttur. Stjórnandi:
Einar Magnússon menntaskóla-
kennari. Spurningum svara: Bald-
ur Bjarnason sagnfræðingur, séra
Jakob Jónsson, Sigurður Grímsson
lögfræðingur og dr. Sigurður Þór-
arinsson. 22.15 Danslög (plötur).
23.30 Dagskrárlok.
S ö f n i n
Landsbókasafnið er opið kl. 10
—12, 1—7 og 8—10 alla virka
daga, nema laugardaga, þá kl.
10—12 og 1—7. — Þjóðskjalasafn-
ið kl. 2—7 alla virka daga. —
Þjóðminjasafnið kl. 1—3 þriðju-
daga, fimmtudaga og sunnudaga.
— Náttúrugripasafnið er opið
sunnudaga kl. 1,30—3 og þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 2—3. —
Listasafn Einars Jónssonar kl.
1.30—3.30 á sunnudögum. — Bæj-
arbókasafnið kl. 10—10 alla virka
daga nema laugardaga kl. 1—4.