Þjóðviljinn - 12.03.1950, Síða 8
verSa 1 vor haínar stœrri skógrœktarfram-
kvœrhdir en nokkru sinni hafa þekkzt hér
í vor og næsta sumar verður hafizt handa um skóg-
rækt í Heiðmörk og verður hún í stærri stíl en nokkru
sinni hefur þekkzt hér á landi.
Innan girðingar á Heiðmörk eru nú 1350 ha. en
ætlunin cr að hún nái síöar umhverfis 21 ferkilómetra
svæði, sem er 10 sinnum stærra en Rcykjavík innan
Hringbrautar.
Stjórn Skógræktarfélags
Reykjavíkur, en formaður þess
er Guðmundur Marteinsson,
skýrði blaðamönnum í gær frá
fyrirhuguðum framkvæmdum 5
Heiðmörk næsta sumar.
Eftir 10 ár.
1 vikunni sem leið undirritaði
borgarstjóri loks samning við
Skógræktarfélag Reykjavíkur
og reglugerð um landnám þar.
Friðun Heiðmerkur komst fyrst
opinberlega á dagskrá 1938, en
það var þó ekki fyrr en 1948
að landið val girt, en Skógrækt
arfélag Reykjavíkur hefur full-
an hug á að vinna upp hinn
glataða tíma.
50 þús. plöntur í vor.
Síðastliðið vor voru gróður-
settar í Heiðmörk 9 þús. plönt-
ur og sáð furufræi, en í vor er
ætlunin að planta 50 þús. plö'nt
um, en næsta vor verða senni-
lega til 100 þús. plöntur. Plöntu
uppeldi félagsins er í skógrækt
arstöðinni í Fossvogi, sem Ein-
ar Sæmundsson skógarvörður
stjórnar.
Undralandið sem Reykvíkingar
eiga — en þekkja fæstir
Þótt umræður um Heiðmörk
hafi staðið á annan áratug
þekkja tiltölulega fáir Reykvia
ingar þetta svæði. Ótrúlegt en
satt. Flestir vita þó að Heið-
mdrk er sunnan við Elliðavatn.
Girðingin nær að austan frá
grennd Silungapolls, alllangt
suður í hraunið, vestur hjá Kol
hól, um Vatnsendaborg og að
Elliðavatni. Aðalhliðið er
skammt frá Jaðri. Fyrirhugað
er að girðingin nái suður að
Búrfellsgjá og vestur þannig
að meginhluti V ifilstaðahlíðar-
innar verði innan hennar.
Mikill hluti þessa landsvæð-
is er vaxinn birkikjarri, en þar
eru einnig mosahraun, grasvell-
ir og melar. Svæðið er þó furðu
lega gróið miðað við hlífðar-
lausa beit undangengnar aldir.
Þjóðgarður Reykvíkinga.
Upphaflega var megináherzla
lögð á að gera Heiðmörk að
friðlandi, nokkurskonar þjóð-
garði Reykvíkinga. Nú hefur1
verið ákveðið að úthluta félög-
um og starfshópum landspild-
um til trjáræktar, til að byrja
með beggja megin 2l/o km. veg-
ar er lagður var s. 1. haust. ...
Spildurnar eru veittar gegn
skuldbindingu um gróðursetn-
ingu og græðslu .... Minnsta
stærð er 3 ha. mesta 20 ha.. .
Þær eru uppsegjanlegar með
ársfyrirvara. Þær má ekki
girða, en afmarka með vörðum.
Trjáplöntur og fræ leggur
Reykjavíkurbær félögunum til.
— Þegar hafa 7 átthaga. og I-
þróttafélög sótt um spiidur.
(Einstaklingar koma ekki til
greina). Félögum er heimilað
að koma upp skálum á land-
svæði sínu, veitir bæjarráð slík
leyfi.
Stolt Reykvíkinga.
Lítill efi er á því að Heið-
mörk á eftir að taka miklum
stakkaskiptum á næstu árum,
þótt skógrækt sé verk er tekur
langan tínia og búast megi við
ýmsum erfiðleikum. Aðalgalli
landsins er að þar er ekki vatn
nema á tveim stöðum, en ætl-
unin er að grafa brunna, hvern
ig sem það tekst. Að 7 félög
hafa þegar sótt um land, áður
en úthlutun hefur verið aug-
lýst, sýnir mikinn áhuga og
vafalítið er að Heiðmörk á eft-
ir að verða stolt Reykvíkinga
þegar tímar líða.
Brautryðjendurnir.
Skógræktarfélag íslands hóf
söfnun til framkvæmda í Heið-
mörk eftir að málið komst opin
berlega á dagskrá. Hafði það
safnað 12—15 þús. kr. þegar
Árni heitinn Björnsson gullsmio
ur tók söfnunina að sér, en
hann vann af miklum áhuga að
þessu máli og var alls safnað
yfir 30 þús. kr.
1940 keypti Hákon Bjarna-
son allmikið girðingarefn’i, en á
stríðsárunum var ekkert gert,
en 1946 var Reykjavíkurbæ af
hent girðingarefnið ásamt því
fé er safnazt hafði til að kaupa
girðingarefni fyrir. Girðingin
var svo sett 1948.
„Pennastrikið"
2. umr. tvífrestað
Tvisvar hefur verið boðað til
2. umræðu um ,,pennastrikið“
í neðri deild, í fyrra skiptið kl.
5 í fyrradag, seinna skiptið kl.
1,30 i gær, en í bæði skiptin
hefur umræðunni verið frestað
samkvæmt beiðni Framsóknar-
manna. — I gær lögðu 6 þing-
menn Framsóknar fram rkrif-
lega beiðni um frestun umræð-
unnar, og lýsti Ólafur Thors
því yíir fyrir hönd rkisstjórn-
arinnar, að hún féllist á hana.
•— 1 gær var úthlutað 2. minni-
hlutaáliti fjárhagsnefndar um
frumvarpið, áliti Einars Olgeirs
sonar.
Ráðstefna verkalýðsfélaganna
hefst í dag
Ráðstefna verkalýðsfélaganna innan Alþýðusam-
bands íslands hefst í dag kl. 2 í Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu.
Allmörg verkalýðsfélög skoruðu á stjóm A. S. í. að
kalla saman slíka ráðstefnu til þess að ræða sameigin-
lega afstöðu félaganna gagnvart dýrtíðarráðstöfunum
stjórnarvaldanna, er hafa stórfellda kjararýrnun í för með
sér fyrir alla laUnþega í landinu.
Fulltrúaráð verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík og ýmis félag
anna hafa hvatt fulltrúa á ráð-
stefnu þessari til einingar þar
sem stéttarleg eining sé það
sem mest veltur á fyrir verka-
lýðinn nú. Á fjölmennum fundi
er Hlíf í Hafnarfirði hélt 6. þ.
m. var t. d. samþykkt eftirfar-
andi:
„Fundurinn samþykkir að
skora á ráðstefnu þá er Al-
þýðusambandið hefur boðað til
12. marz 1950, til að ræða kaup
gjalds. og dýrtíðarmálin, að
haga s'’o störfum sínum að
megináwerzla verði lögð á sam-
vinnu og niðurstöður er fæst
eining um.“
Málfundur
annað kvöld
kl. 8.30 að Þórsgötu 1.
Æ.V
Ekið á dreng
I gærmorgun uni ld. 10.30
var bifreiðinni G-213, sem er
fimm manna fólksbifreið, ekið
á dreng á reiðhjóli á gatnamót-
um Kalkofnsvegar og Hverfis
götu. Drengurinn slapp ómeidd
ur en reiðhjólið varð fyrir
skemmcTum.
Bifreiðarstjórinn ólc burt eft-
ir áreksturinn, en stuttu síðar
tókst lögreglunni að finna bæði
bíletjórann og bifreiðina, og
reyndist bifreiðin þá vera
bremsulaus.
Þar eð málsaðilum ber ekki
saman um hvernig árekstur
þennan bar að höndum, vill
rannsóknariögreglan skora á þá
sem kynnu að hafa verið sjón-
arvottar að honum að gefa sig
'•’am við hana sem fyrst.
frumvarpi íhaldsins
Á fundi þvottakvennafélagsins Freyju í fyrrakvöld .
var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma:
„Fundur í þvottakvennafélaginu Freyju,
haldinn 10. marz 1950, lítur svo á að í
frumvarpi ríkisstjórnarinnar um gengis-
skráningu, launabreytingar, stóreignaskatt,
framleiðslugjöld o.fl. sem lagt hefur verið
fyrir Alþingi felist svo stórfelld lífskjara-
skerðing fyrir launþega og þvingandi ráð-
stafanir gagnvart verkalýðssamtökunum að
algerlega óviðunnandi sé og mótmælir því
frumvarpinu harðlega og skorar á Alþingi
að fella það ”
Þjóðviljasöinunin:
Barónsdeild heldur enn 1. sæti
Allsæmilegur árangur hefur
náðst fram að þessu í söfnun-
inni, en of fáir eru komnir af
stað ennþá. Barónsdeild stend-
'ur sig ennþá bezt og er alllangt
á undan lnnum. Mun ekki langt
að bíða að liún nái 100% ef
dæma á eftir byrjuninni. Lang
holtsdeild er einnig komin vel
af stað. Þrjár deildir eru ekki
enn komnar með og þurfa þær
nú þegar að gera ráðstafanir
til að komast á blað.
Röð deildanna er þannig nú:
1. Barónsdeild i57%
2. Langlioltsdeild 37—
3. Skóladeild 22—
4. Kleppslioltsdeild 21—
5. Njarðardeild 20—
6. Túnadeild 20—
7. Vesturdeild 15—
8. Nesdeild 15—
9. Bolladeild 12—
10. Laugarnesdeild 12—
11. Vogadeild 11—
12. Sunnuhvolsdeild 9—
13. Valladeild 8—
14. Þingholtadeild 8—
15. Hlíðardeild 5—
1C. Meladeild 4—
Tekiff er daglega á móti nýj
um áskrifendum í skrifstofu
Þjóðviljans Skólavörðnstíg 19
sími 7500 og í skrifstofu Sósíal-
istafélags Reykjavíkur að Þórs
götu 1 sími 7511.
ÞJÓÐVILJINN INN Á
HVERT HEIMILI OG VINNU
STAÐ!
Síðustu sýningar
á Bláu kápunni
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
hina vinsælu óperettu sína,
Bláu kápuna, tvisvar í dag og
er fyrri sýningin barnasýning.
Hefur félagið viljað verða við
fjölmörgum tilmælum að hafa
barnasýningu á þessum
skemmtilega söngleik. Til þess
að þetta mætti verða hafa leik
endur, hljómsveit og aðrír
starfsmenn fallist á að gefa
helming launa sinna, en sýning
arkostnaður er svö mikill, að
án þe'sa vinarbragðs við börn-
in í bænum, hefði ekki verið
hægt að lækka verð aðgöngum.
Fer nú hver að verða síðast-
ur að sjá Bláu kápuna, því að
nónsýningin á morgun er hin
síðasta og kvöldsýningin næst
síðasta sýning á óperettunni.
Almennur kvennafundur á Akureyri
skorar á þing og stjórn að segja upp
Keflavíkursamningnum
Akureyri í gær. Frá fréttaritara Þjóöviljans.
Þann 8. þ. m. var haldinn almennur kvennafundur
að Hótel Noröurlandi í tilefni þetss að dagurinn er al-
þjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði gegn stríði.
Á fundinum fluttu þær Elísa-
bet Eiríksdóttir, Guðrún Guð-
varðardóttir og Rannveig
Ágústsdóttir ræður, kvennakór
söng og Freyja Antonsdóttir
las upp.
Fundurinn samþykkti ein-
róma cftirfarandi tillögu:
Kvennafunduv haldinn á
Akureyri 8. marz 1950, skor-
ar á Alþingi Islendinga og
ríkisstjórn að segja upp
Keflavíkursamningnum' strax
og ákvæCi hans leyfa.