Þjóðviljinn - 13.06.1950, Page 1
Archongclil) •)
Krorvslodl
Murmamk(
'RITISH
ISLES
tondon
,'CtlAND
Of((NLAN0
lABRADOfi
ln£'VÍOUNOl/
Qucbec
Montrcc
Otlowa *N
Detroit
Pitt»burgh
Woihinqton •
Danskí kjarnorkuvísindamað
urinn Niels Bohr rauf í gær
margra ára reglu um að gefa
engar opinberar yfirlýsingar.
Birti hann opið bréf til SÞ þar
sem hann heitir á allar þjóðir
að leggja sig allar fram að ná
einingu um kjarnorkumálin.
Kjarnorkuvopn ógna nú tilveru
mannkynsins, segir þessi danski
Nóbelsverðlaunamaður. Bohr
leggur áherzlu á hvílíka nauð-
syn beri til að allri leynd verði
svift af vísindalegum uppgötv-
unum og segir það myndi leiða
til gagnkvæms trausts.
Stúdentar
fangelsaSir í
Japan
Lögregla japönsku afturhalds-
stjórnarinnar hefur fangelsað
níu stúdenta við háskóla í
Tokyo eftir að bæklingar með
mótmælum gegn þeirri kúgun,
sem japanskir kommúnistar eru
beittir, fundust í skrifstofu
stúdentasambandsins. Húsrann
sóknir halda áfram í skrifstof-
um japanskra. kommúnista. Sósí
aldemókratar í Japan hafa lýst
sig andvíga banni á Kommún-
istaflokki Japans.
Deilur í Araba-
bandalaginu
Egyptalandsstjóm lagði til á
fundi stjómar bandalags Araba
ríkjanna í gær, að Jordan yrði
rekið úr bandalaginu fyrir að
innlima arabahémð Palestinu.
Irak greiddi atkvæði gegn til-
lögunni og náði hún því ekki
fram að ganga því að sam-
hljóða atkvæði þarf til brott-
rekstrar úr bandalaginu.
15. árgangur.
Þriðjudagur 13. júní 1950
126. tölublað.
•andarfskf bíað sýnir Isl and í fremsfu
rískra radar- og or ustuffugvéla
i «
Eru það kröfur um slíkar stö 3var sem valda
Bjarna um stríðsbandalagsfundinn í
Eins og skýrt var frá hér í blaöinu á sunnudaginn
munu Bandaríkjamenn hafa krafizt þess af Bjarna Bene
diktssyni á stríösbandalagsfundinum sem hann sat í
London fyrir mánuöi, að komiö yrði upp miklu leitar-
kerfi hér á íslandi til aö finna flugvélar á Norður-Atlanz-
hafssvæðinu og sömuleiöis komið hér upp ,,vernd“ fyrir
þetta kerfi og Keflavíkurflugvöll. Aö slíkar ráðageröir
eru ofarlega á baugi hjá bandarísku herstjóminni má
sjá af korti því sem hér er birt eftir „Life“ útbreiddasta
tímariti Bandaríkjanna.
Þai ei Islaitd sýnt sem stöð fyrir bandarískar
orustafluqvélar og radarstöð á Norðausturlandi er
hlekkur í fremstu lírtu Ieitarkerfis, aðrar stöðvar
í henni sýndar á Grænlandi, í Færeyjum og Orkn-
eyjum.
nu banda-
va j
bogmœlsku
Kortið í ,,Life“ er hluti af
fjórtán blaðsíðna áróðri fyrir
aukinni bandarískri hervæð-
ingu. Er það venja bandarísku
herstjórnarinnar að koma
greinum um fyrirætlanir sínar
í útbreidd rit og búa með því
almenningsálitið í Bandaríkjun
um undir að þær séu bornar
fram formlega. Þvi er óbeint
lýst yfir af „Life“ sjálfu, að
skrif blaðsins eru í samráði við
bandarísku yfirherstjórnina.
Það segir:
„Hér metum við krafta-
hlutföllin á hernaðarsvið-
inu og hættuna á raun-
verulegrj styrjöld að svo miklu
leyti sem hægt er að mæla
þetta án þess að ljós'tra upp
hernaðarleyndarmálum“ (Let-
urbreyting Þjóðviljans).
Hvers vegna þegir Bjarnl?
Morgunblaðið birtir I gær
mjög vanstilltan leiðara um
þögn Bjarna Benediktssonar.
Segir þar að Þjóðviljinn hafi
farið með gaspur, leyndar-
dómsstagl, kviksögur, fífla-
læti, fals, skepnuskap, flúgu-
fregnir, stóriygar, glefs,
lygafregnir, óskammfeilni,
þvætting, söguburð, slefsög-
ur, svik og fláræði með því
að krefja Bjarna Bcnedikts-
son sagna um það sem ekk-
ert sé!
Hvað á þessi æsingur að
þýða? Ef ekkert er á seyði,
er þá ekki einsætt og sér-
LÚaklega áhrifamikið að
Bjarni Benediktsson gefi yfir
lýsingu þess efnis? Gctur
hann kveðið niður söguburð-
inn og alit bitt á nokkurh
eftirminnilegri hátt en þann,
að birta opihberlega skýrslu
um för síha á stríðsráðstefn
una og iýsa þar yfir því að
engar frekari kröfur hafi ver
ið gerðar á hendur íslending
um og engar nýjar aðgerðir
séu fyrirhugáðar hér á iandi
I sambandi við fyriraílanir
stríðsbandalagsins? Augsjá-
anlega væri Bjarnj Bcnedikts
son fyrir löngu búinn að því
ef hann gætj. — En Bjarni
Benediktsson þegir.
Bjarni Benediktsson hefur
sem kunnugt er misst málið síð
an hann kom af stríðsbanda-
lagsfundinum í London. En is-
lenzka þjóðin á kröfu á að fá
að vita hvaða ldiLverk Islandi
er ætlað í þeirri hernaðaráætl-
un, sem þar var endanlega
samþykkt. Hún kann ekki við
að bandarískir blaðasnápar séu
fróðari um mál, er geta varð-
að líf hennar og tilveru, en
hún sjáif.
Sovéto rðsend i n g
um Suðurskauts-
landið
Sovétstjórnin birti s.l. laugar
dag orðsendingu um Suður-
skautslandið, þar sem hún lýs-
ir yfir, að hún viðurkenni ekki
neina samninga um Suður^
skautslandið, sem gerðir séu
án sinnar þáttöku. Bendir
hún á, að rússneskir menn hafi
átt mikinn þátt í landafund-
um í Suðuríshafinu og tekur
fram, að Sovétríkin séu orðinn
fastur þátttakandi í hvalveið-
um þar. Orðsendingin hefur
verið send st jómum Banda-
ríkjanna, Bretlands, Frakk-
lands, Noregs, Argentínu,
Ástralíu og Nýja Sjálands og
þær beðnar, að láta í ljós álit
á, hvort ekki sé ráð að kalia
saman alþjóðaráðstefnu um
Suðurskautslandið.
Frarn Valur 4:1
í gærkvöld kepptu Fram og
Valur. Fram varvn með 4 :1.
u s. s. r.
KAS( AKEA
PORWARD FIGHTCR M.ANE 8ASES
POSSIBLE GUIDED MISSILE
ATTACK FROM RED SUBS
Hér á kortinu eru sýndar fyrirætlanir Bandaríkjaherstjórnar,
um tvermskonar herstöðvar, radarleitarstöðvar (dökkir hálf-
hringir) og orustuflugvélastöðvar (stórlr hringir). Stöðvum af
báðum tegUndum er ætlaður staður á Isiandi. Kort þetta birt-
ist í ,<Life InternationaI“ 13. marz í vetur. Eins og vant er í
bandarískum stríðsæsingaáróðri reynir „Life“ að láta lita svoi
út, sem hér sé um að ræða varuarstöðvar gegn sovétárás, eis
sjálft kortið afsannar það. Eins og hver maður getur séð eru
fremstu stöðvarnar helmingi næt Sovétríkjunum en Banda-
ríkjunum og því ekki varnar- heldur árásarstöðvar. Radarstöð-
in á íslardi er staðsett á Norðausturlandi og kemur þoð heimt
við það sem heyrzt hefur um að meðal þeirra bandarísku krafa»
sem Bjarni Beaediktsson kom með af stríðsbandaiagsfundin-
um í London hafi verið bygging slíkrar stöðvar á Melrakkasléttxs
Bohr hvetur til
elningar urm
kjaruorkitmálta