Þjóðviljinn - 07.07.1950, Síða 4

Þjóðviljinn - 07.07.1950, Síða 4
I ÞJ'ÓÐVIL'JJSS Föstudagur 7. júlí 1950. SMÓÐVILIINH Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, áb. Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu- stíg 19. — Simi 7500 (þrjár línur). Áskriftarverð: kr. 14.00 á mán. — Lausasöluverð 60 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h. f. Það er gerfimennska stjórnarvaid- anna sem er aiþýðunni hættulegusf • Fagfélög byggingp.verkamanna hafa gert ráðstafanir vegna ,.gerfimanna“ í iöhaöinum. Þessar ráöstafanir eru skiljanlegar frá sjónarmiði þecsara félaga. En þaö leysir ekki vandræðin, sem alþýöan býr við aö einn hluti verkalýðsins reyni í neyð sinni að ýta ofur- iitlu af a.tvinnuleysinu af sér og yfir á annan hluta verka- lýðsins. Til þess aö bæta úr atvinnuleysinu þarf sameig- inlegar ráðstafanir verkalýösins alls og þær ráðstafanir verður aö gera gagnvart þeim yfirvöldum, sem leiða at- vinnuleysið og fátæktina yfir verkalýðinn. Þaö er aðeins byrjað að byggja eitt hús í Reykjavík, auk Bústaðavegshúsanna, af aðeins 60, sem leyfð voru. Hverjum er þetta að kenna? 1946 voru byggðar yfir 600 íbúöir í Reykjavík. Þá höfðu allir vinnu og vinnuafl og fjármagn var m. a. notað til þess að bæta úr húsnæðisleysinu. — Framsókn og annað afturhald kallaði þetta „eyðslu“. Nú ganga hundruð manna atvinnulausir, ágætis vélar, sem hægt væiý að nota til bygginga standa ónotaðar og þúsundir manna þjást af húsnæöisleysi. — Þetta er svfvirðilegasta eyðsla á vinnuafli, vélakrafti og fjármagni þjóðarinnar. En nú er afturhaldið ánægt. Þetta er þess pólitík. Þetta er sú pólitík að „draga úr fjárfestingu“, einmitt stefnan sem íhaldið, Framsókn og Alþýöuflokkurinn hömpuðu fyrir kosningar og nú er framkvæmd. Það er ríkisstjórnin og fjárhagsráð hennar, sem vís- vitandi draga úr innflutningi byggingarefnis, meðan ann- ar innflutningur er hlutfallslega aukinn, ssm í samræmi við viija stjórnarflokkanna, dregur úr lánsfjárveitingum, til þess að skapa kreppu á sviði atvinnulífsins og þar með atvinnuleysi. Ríkisstjórn, fjárhagsráð og Landsbankinn eru hand- bendi lítillar auðmannaklíku, sem vill skapa atvinnuleysi í landinu, til þess að fá betri aðstööu til kaupkúgunar gagnvart verkalýðnum. Þessi einokunarklíka bánnar fólk- inu svo jafnframt að selja út úr landinu þær vörur, sem einokunarherrarnir segja'aö ekki sé hægt að selja, og kaupa nauðsynjavöruc í staðinn. Það er gegn þessari .,gerfimennsku“, þessari óstjórn, sem verkalýðssamtökin þurfa að beita sér. Atvinnuleysið og fátæktin, sem nú dynur yfir, er b;in afleiðing af því að íhald og Framsókn fengu nóg fylgi hjá þjóðinni til þess að geta myndað þá aftúrhaldsstjórn, sem nú fer með völd. Sósíalistaflokkurinn var búinn að vara alþýðuna við þessu, en of mikill hluti kjósenda trúði fagurgala þessara Jeppflokka auðkýfinga og afturhaldsseggja. Verkalýðssamtökin geta ekki unnið sigur á atvinnu- leysinu, kaupkúguninni og fátæktinni, nema með því að heyja stéttarbaráttu sína bæði á sviöi stjórnmálanna og kaupgjaldsbaráttunnar. Alþýðan er meirihluti þjóðarinnar. Samtök hennar eiga vægðarlaust að segja yfirvöldunum til syndanna, fyr- ir óstjórn þeirra, hvort sem sviksemi, hæfileikaleysi eða auðvaldsþjónusta veldur þeirri hrapallega vitlausu póli- tík, sem valdhafamir nú reka. Get out quick. Kári skrifar: — ,,Af frétt- um frá Kóreu er Ijóst að Banda ríkin hyggjast fyrst og fremst að vinna bug á viðnámsþrótti Kóreumanna með hryðjuverk- um flugflotans gegn óbreyttum^ borgurum landsins, konum og börnum. Þátttaka landhersins bandaríska í stríðinu enn sem komið er virðist á þann veg að meira að segja auðvaldsbíöð víða um heim geta ekki annað en hent gaman að. Það þarf ekki mikla þekkingu á enskum blaðalesendum til að skilja háð- ið í fyrirsögn Daiiy Express, íhaldsblaðsins, sem Þjóðviljinn birti mynd af í gær. Blaðið seg- ir fyrst að blaðamaður sinn sé eini brezki hemaðarfrétta- ritarinn sem var þama við- staddur. En háðið í fyrirsögn- inni nýtur sín varla nema á frummálinu: The amazing story of the rout in Korea. — Who gave the order „Get out quick" to the American H. Q? — Gene ral in eharge did not know. rangur er með öðrum orðum það að þeim hafi tekizt vel hryðjuverkaiðja sín gegn ó- breyttum borgurum. Enn stórkostlegri hryðju- verka óskað. Og svo eru þó nokkrir menn sem þykir hryðjuverkastarf- semi mannanna í risaflugvirkj unum bandarísku ekki nóg, heldur heimta að kjamorku sprengju sé beitt. Meira að segja marsjallblöðin íslenzku eru nú búin að fá samstillta línu í því máli, og nú sjá Is- lendingar, sem þau blöð lesa, þann furðulega málflutning dag lega, að kjamorkusprengjan, hryllilegasta múgmorðstæki nú- tímans, sé í höndum Bandaríkja auðvaldsins bezta trygging frið ar í heiminum. Skyldi þetta ekki vera áð reyna fullmikið á þan- þol trúarinnar á göfgi Banda- ríkjaauðvaldsins ? Væri óhugs- andi t.d. að einhver lesenda Al- þýðublaðsins, hinna eldri, minnt ist þess er það blað fræddi les- werpen. Fjallfoss fór frá Leith 3. júlí til Halmstad í Svíþjóð. Goða- foss fór frá Revkjq.vík 5. júli til Hamborgar. Gullfoss kom til K- hafnar í gærmorgun, fer þaðan 8. j^úlí til Leith og Reykjavíkur. Lagarfoss fór frá Akranesi 29. júlí til New York. Selfoss er í Borg- arnesi. Tröllafoss fó rfrá New York 30. júlí til Reykjavíkur. Vatnajökull fór frá Keflavík í gærkvöld til New York. ' Fastir liðir eins og venjulega. KI. 19.30 Tónl.:* Har- monikulög (plöt- ur). 20.30 Útvarps- sagan: „Ketillinn" eftir William Heinesen; X. (Vil- hjálmur S. Vilhjálmsson rithöf.). 21.00 Tónleikar (plötur). 21.20 Aug lýst síðar. 22.20 Vinsæl lög (plöt- ur). 22.30 Dagskrárlok. Flugferðir Loft- leiða. — Innan- landsflug: 1 dag er áætlað að fljúga tfl Vestmannaeyja kl. 13.30, til Akur- eyrar kl. 15.30. Auk þess til ísa- fjarðar og Siglufjarðar. — Á morgun er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja, Akureyrar, Isa- fjarðar. Auk þess til Isafjarðar, Patreksfjarðar og Hólmavikur. — Utanlandsflug: „Geysir“ er í Græn andsflugi. I F IHirJrSllllinilB O Nylega voru '7 gefin saman í hjónaband af sr. Jakobi Jóns syni, ungfrú O 1 Guðný M. Péte ursdóttir frá Skagaströnd og Hjalti Elíasson rafvirki. Heimili brúðhjónanna verður í Kamp Knox D2. .w *" "" ' ' ' - Kapp en lítil forsjá. Sama brezka íhald3blaðið skýrir svo frá að fyrstu Banda ríkjamennimir sem særðust hafi orðið fyrir árás eldfiauga- skjótandi flugvéla. Nú sé vitað að norðurherinn eigi engum slíkum flugvélum á að skipa, þetta mtmi því hafa verið Ástr- alíumenn sem héldu að Banda- ríkjahermennirnir væru kóre- anskir kommúnistar. Daily Express segir einnig svo frá að Bandar.flugvélar hafi gert harða loftárás á stað sem þeir héldu að Suður-kóreuher- inn væri farinn úr, en hann var þar þá enn og varð fyrir tals- verðu tjóni. „Góður“ árangur af hryðjuverkum. Þar sem slíkt gerist virðist hemaður rekinn meira af kappi en forsjá, enda hefur MacArth- ur nú lagt svo fyrir að blaða- menn sendu ekki út fregnir sem orðið gætu til að skaða á- lit Bandaríkjahersins í Kóreu. Svo nú verður sennilega stöðv- aðar þess konar furðufréttir, en í þess stað lögð áherzla á hve „góður“ árangur hafi orðið af hryðjuverkaárásum hinna siðfáguðu, menningarflytjandi Bandaríkjamanna er þeir velta sprengjuförmum sínum yfir borgir Kóreu, en „góður“ á- ---------------------\ —r:.-:- ------------------ endur sína á annarskonar eigin- leikum heimsauðvaldsins og sér staklega Bandaríkjaauðvalds- ins? Dýrkun íslenzkra blaða á kjarnorkusprengju í höndum hins stríðsóða bandaríska auð- valds sem tákni friðarins er eitt Ijótasta fyrirbrigði sem sézt hefur í íslenzkri blaða- mennsku." Kári. Höfnin Hvalfell kom af veiðum í gær- morgun. Hallveig Fróðadóttir lcom gær af veiðum ÞHvítahafi. Hún var með fullfermi. Ríkissklp Hekla fór frá Reykjavík kl. 21 í gærkvöld til Glasgow. Esja lcom til Reykjavíkur í gærkvöld aö austan og norðan. Herðubreið er á Austfjörðum á norðurleiö. Skjald- breið er á Breiðafirði. Þyrill var á Siglufirði í gær. Ármann fer frá Reykjavík siðdegis í dag til Vestmannaeyja. Skipadelld S.Í.S. Arnarfell er í Sölvesborg. Hvassa fell er í Reykjavik. Elmsklp Brúarfoss er í Reykjavík. Detti- foss fór frá Reykjavík á hádegi í gær' til Hull, Rotterdam og Ant- q / N. Tímaritið Kjarnar, \ 14. hefti, er komið íw'Jr út og hefur bor- izt blaðinu. 1 heft- inu eru þessirsögu kjarnar: Kvenfólk hatar hvert annað, Tjalddyrnar, Týnda erfðaskráin. Milljónin í vestisvasanum, kjarni sögunnar The million note eftir Mark Twain. Frumskógasál, kjarni sög- unnar Souls in wilderness eftir Rudyard Kipling. Islendingurinn í Kaupmannahöfn, smásaga eftir Erik Bögh. Kjörsonurinn, smásaga eftir Guy de Maupassant, o. fl. Tímarltið Allt, júni-heftið er kom- ið út. Af efni þess má nefna sög- urnar: Ástin sigraði að lokum, Eftir 22 ár, Sakleysi, Ástarsaga frá miðöldum og framhaldssagan. Þá er tónlistarsíða, flugsíða, bridge síða og íþróttasíða auk ýmislegs annars til fróðleiks og skemmt- unar. Söfnin Landsbókasafnið er opið kl. 10 —12, 1—7 og 8—10 alla virka daga, nema laugardaga, þá kl. 10—12 og 1—7. — Þjóðskjalasafn- ið kl. 2—7 alla virka daga. — Þjóðminjasafnið kl. 1—3 þriðju- daga, fimmtudaga og sunnudaga. — Náttúrugripasafnið er opið sunnudaga kl. 1,30—3 og þriðju- daga og fimmtudaga kl. 2—3. — Listasafn Einars Jónssonar kl. 1.30—3.30 á sunnudögum. — Bæj- nrbókasafnið kl. 10—10 alla virka daga nema laugardaga kl. 1—4. Næturlæknlr er í læknavarðstof unni, Austurbæjarskólanum. — Sími 5030. — Bóiusetning gegn barnaveiki. Pöntunum veitt móttaka í síma 2781 kl. 10—12 f. h. fyrsta þriðju- dag hvers mánaðar. Fólk er á- minnt um að láta bólusetja börn sín. Ungbarnavernd I.íknar, Templara- sundi 3, verður opin í sumar á fimmtudögum kl. 1.30—2.30, en ekki á föstudögum eins og und- anfarið. Og þegar næst kemu; að því að verkalýðnum gefist tækifæri til þess að gera ráðstafanir gegn „gerfimennsk- unni“ í stjóm landsins, þá þurfa verkalýðssamtökin að gera þær ráðstafanir þannig að það dugi, — með því að sameinast í kosningum um flokk jalþýðunnar, Sósíalista- flokkinn. Minnlngarspjöid dvalarheimilis aldraðra sjómanna fást á eftir- töldum stööum í Reykjavík, á skrifstofu Fulltrúaráðs sjómanna- dagsins í Edduhúsinu við Skugga- sund, opið kl. 11—12 og 16—17, sími 80788, og í bókaverzlunum Helgafells í aðalstræti og Lauga- veg 100. I Hafnarfirði hjá V. Long.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.