Þjóðviljinn - 29.10.1950, Side 2
ÞJÖÐVILJINN
Tjarnarbíó
Ungur á nýjan leik
Bráðskemmtileg þýzk
gamanmynd.
Aðalhlutverk leikur:
Emil Jannings.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 11 f.h.
....Gamla Bíó..........
Dansmeyjar í
Hollywood
Amerísk söngva- og dans-
mynd kvikmynduð á leik-
sviði frægasta Burlesque
leikhúsi Ameríku. „Foll-
ies of Los Angeles."
1 aðalhlutverkinu:
Allene Dupree.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Walt Disney
teiknimyndimar:
Það skeður margt skrítið
Mickey Mouse og bauna-
grasið.
Sýndar kl. 3.
.... Austurbæjarbíó ...
Ræningjarnir
Mjög spennandi ný ame-
í’isk cowboymynd 1 litum.
Kod Cameron
Ilona Massey.
Bönnuð yngri en 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Draugahúsið
Sýnd kl. 3.
Sala hefst kl. 11 f.h.
Trípolibíó
Sími 1182.
Intermezzo
Aðalhlutverk:
Ingrid Bergmann,
Leslie Howard.
Sýnd kl. 7 og 9.
Tumi litli
Bráðskemmtileg amerísk
kvikmynd, gerð eftir sam
nefndri skáldsögu eftir
Mark Twain, sem komið
hefur út á íslenzku.
Sýnd kl. 3 og 5.
.... Nýja BÍÓ ........
Þingmaður
í kosningasnatti
(„The Senator Was
Indiscreet“)
Bráðskemmtileg ný
„brandara' ‘mynd
Aðalhlutverkin leika:
William Powell og
Ella Raines.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Merfci Zorros
Hetjumyndin fræga með:
Tyrone Power
Sýnd kl. 3.
Hafnarbíó
Ný sænsk-frönsk stór-
mynd, gerð eftir skáld-
sögu Viktor Rydbergs.
Sýnd kl. 9.
Heiguliinn
Spennandi og f jörug ame-
rísk cowboymynd.
Aðalhlutverk:
Johnny MacBrown
AUKAMYND:
„Chaplin semveggfóðrari“
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
Sala hefst kl. 11 f.h.
Þjóðleikhúsið .
Sunnudag kl. 20
Islandsklukkan
Mánudag kl. 20
ÍSLANDSKLUKKAN
Þriðjudag kl. 20
PABBI
Aðgöngumiðar seldir frá
kl. 13.15—20.00 daginn
fyrir sýningardag og sýn
ingardag.
Tekið á móti pöntunum.
Sími 80000.
6 í BÍL
1 Iðnó
Brúin til mánans
þriðjudag kl. 8,30.
Aðgm. mánudag kl. 4—7.
Verð kr. 20 og 25.
Sími 3191.
Leikflokkurinn „6 í bíi“:
Brúin !il mánans
Yerkamannafélagið
Dagsbrún
♦j
Félagsfundur
verður haldinn í Iðnó mánudaginn 30. þ.m.
kl. 8,30 síðdegis.
DAGSKRÁ:
1. Félagsmál.
2. Viðhorfin í verkalýðsmálunum.
3. Atvinnumálin
Félagsmenn eru beðnir að fjölmenna.
STJÖRNIN.
1. 0. G, T. Tækifærisgjafir
Barnastúkan Jólagjöf nr. 107: Listmunabúð KRON,
Fundi frestað um viku. Garðastræti 2.
Gæzlumenn. Kassakvitti.n fyrir
hverri sölu.
—
Pappírsskortur
Viðskiptamenn eru beðnir
að koma með notaða,
óskemmda pappírspoka
undir vörur sem þeir
kaupa.
Stjömubíó
Strawberry Roau
Skemmtileg ný amerisk
cowboy-mynd í eðlilegum
litum.
Gene Autry
Gloria Henry
Jack Holt
og undrahesturinn
Champion
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
RAGNAR ÓLAFSSON
hæstaréttarlögmaður og
löggiltur endurskoðandi.
Lögfræðistörf, endurskoð-
un og fasteignasala. Von-
arstræti 12. — Sími 5999.
Það var árið 1935 að ungur
og lítt þekktur leikari í Vest-
urheimi, Clifford Odets að
nafni, gat sér alþjóðarfrægð
fyrir leikrit sín, en þá voru
þrjú þeirra frumsýnd í ein-
um og sama mánuði; sumir
gagnrýnendur jöfnuðu honum
við Eugene O’Neill eða Max-
well Anderson. Clifford Od-
ets hefur ekki i öllu efnt þær
vonir sem til hans stóðu,
enda dvalið vestur í Holly-
wood um langt skeið, en víst
má telja að ekki hafi jafn-
snjöll leikskáld amerísk kom-
ið fram síðan, önnur en
Tennessee Williams og Arth-
ur Miller.
Skáldskapur Odets mótað-
ist af kreppunni miklu, þá
er augu fjölmargra höfunda
beindust að öngþveiti auð-
skipulagsins og skáldin beittu
list sinni í þágu hins undirok-
aða og snauða lýðs, snerust
til félagshyggju og virkrar
baráttu. Clifford Odets stóð
í fylkingarbrjósti hinna rót-
tæku skálda, ttutti hvassa á-
deilu í sumum leikritum sín-
um, hvatti alla alþýðu til
framsóknar og dáða. „Brú-
in til mánans" fjallar öðru
fremur um leit manna að
ást og hamingju, þar er eng-
inn áróður fluttur og öllum
óhætt að sjá leikritið þess
vegna. Skáldið bregður skýru
ljósí yfir vandkvæði hins
venjulega nútímamanns og lýs
ir persónum sínum með
djúpri samúð og næmum
skilningi, en hér er ekki unnt
að rekja efni þessa táknræna,
raunsæja leiks. Öryggisleysi
og alger óvissa ríkir í þjóð-
félagi nútímans, ástarinnár
fá menn ekki notið, lokaðar
virðast allar leiðir til sannrar
farsældar. „I æsku söfnum
víð efni til þess að byggja úr
brú til mánans, og reisum úr
því hreysi á gamals aldri",
segir Stark tannlæknir, maður
sem býr í gæfusnauðu hjóna-
bandi, en er bundinn í báða
skó og megnar ekki að slíta
síg lausan; og Cooper starfs-
bróðir hans er lifandi mynd
Wf>
eftir Cllfford Odets
Leikstj.: Gunnar H. Eyjólfss.
af öngþveiti og upplausn milli-
stéttarinnar. En þó að hart
sé í heimi láta mennirnir
ekki bugast, þeir munu halda
áfram að krefjast frelsis og
hamingju á hverju sem geng-
ur. Tákn þess er Cleo Singer,
unga stúlkan sem vill ekki
sætta sig við neitt hálft eða
skert, og hverfur af sviðinu
í leikslok í leit að ástinni, í
leit að sannri hamingju. Clif-
ford Odets lítur á lífið rauni-
sæjum, skyggnum augum, en
hann trúir á framtíð mann-
kynsins, vonleysi það og
svartsýni sem gagnsýrir vest-
rænar bókmenntir er ekki að
finna í verkum hans.
Starfsemi leikflokksins „6
í bíl“ er öllum kunn, hann
hefur áður flutt „Candidu"
Bernards Shaw og á þakkir
skildar fyrir ágætt leikrita-
val, dugnað og markvissa list-
ræna viðleitni. Leikstjórn
Gunnars H. Eyjólfssonar er
nákvæm og fáguð í hvívetna,
og vart verður honum um
kennt þó að einstakar setn-
ingar eða atriði njóti sín
ekki til fulls vegna óskýrrar
framsagnar, enda er þýðing-
in ekki nógu vel unnin á
köflum, en tilsvör Cliffords
Odets eru vandmeðfarin, þar
liggur oft fiskur undir steini.
Gunnar er nýkominn heim
frá leikstjórnarnámi og spáir
sýningin góðu um framtíð
hans.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir
er Cleo, alþýðustúlkan unga
sem er þungamiðja leiksins,
hún leikur af fágætu fjöri
og lífi — lýsir ágæta vel ung-
æðishætti, tilgerð, ósannsögli
og innri óvissu þessarar fá-
vísu, en saklausu og geð-
þekku stúlku, sem þráir að
elska og að vera elskuð, og
hlaut að launum óspart og
óskipt lof áheyrenda; eftir
þennan sigur má hiklaust
telja Guðbjörgu í fremstu röð
íslenzkra leikkvenna. Jón Sig-
urbjörnsson leikur Stark tann
lækni á einlægan og viðfelld-
inn hátt, og nýtur sín betur
Nýju og gömlu
DANSARNIR
í G.T.-húsinu í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6,30. — Sími 3355.
Hin vinsæla hljómsveit Jan Moravek leikur m.a.
verðlaunalögin úr danslagakeppninni.
'Sigrún Jónsdóttir syngur með hljómsveitinni.
Munnhörpuleikarinn umtalaði skemmtir fólkinu.
Menningartengsl Íslands og
Ráðstjórnarríkjanna
MlR heldur fund í dag, sunnud. 29. okt. í Stjörnu-
bíó og hefst hann stundvíslega tkl. 2 e. h.
FUNDAREFNI: Sverrir Kristjánsson sagn-
fræðingur flytur erindi: Stjórnskipulag og
ríkisvald í Ráðstjórnarríkjunum.
KVIKMYND um æfi frægasta vísindamanns
þessarar aldar, Ivans Pavlovs.
Félagsmenn fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Stjórn MlR.
BLÓMASALAN
Kirkjuteig 19. Sími 5574.
Daglega ný afskorin blóm
og pottaplöntur.
NYJA sendibílastöðiii
Aðalstræti 16. Sími 1395.
SENDIBlLASTÖÐIN h.f.
Ingólfsstræti 11. Sími 5113
en í öðrum hlutverkum fram
að þessu; hið sama má raun-
ar segja um Baldvin Hall-
dórsson, sem fer með hlut-
verk tengdaföðursins, hins
sextuga, gáfaða og lífsreynda
manns; gerfið er ágætt, leik-
urinn skýr en einfaldur í
sniðum. Eftirsjá er að Hildi
Kalman, sem áður lék frú
Stark; Inga Laxness virðist
hafa tekið við hlutverkinu
með mjög stuttum fyrirvara,
en leikur hennar er talsvert
yfirborðslegur enn sem komið
er og óþægilegur á stundum.
Lárus Ingólfsson lýsir Cooper
tannlækni af skilningi, hann
er hæfilega dáðlaus og von-
leysislegur; skemmtilegur er
dansmeistari Þorgríms Ein-
arssonar, en varla nógu ör-
uggur heimsmaður. Loks er
Pranzi Jensen, maður sem
segir ýms skynsamleg alvöru-
orð, en veldur engu um gang
leiksins; Gunnari H. Eyjólfs-
syni tókst að gera úr honum
lifandi og eftirminnilega per-
sónu, og túlkaði ágætlega
drengskap hans og hrein-
skilni. A. Hj.
Rivers of íceland
Bók hir.s kuniia laxveiðimanns, Major General
R. N. Stewart, um veiðiár íslands, er komin út.
Bókin, sem er prýdd f jölmörgum myndum, hefur
að geyma gagnmerkar upplýsingar um veiðiár
Islands, svo og skemmtilegar frásagnir af landi
og þjóð.
Tilvalin bók til að senda vinum og kunningjum
erlendis.
FERÐASKRIFSTOFA RÍKISINS.
Útvarpið: Pastir liðir eins og
venjulega. 19.30 Tónleikar
(plötur). 19.45 Auglýsingar.
20.20 Erindi: Störfin á alls-
herjarþingl sameinuðu þjóð-
anna (Thor Thors sendih.).
20.35 Tónleikar: Thomanerkór
inn í Leipzig syngur; Carl
Straube stjórnar (plötur).
20.55 Erindi: Um dr. Carl
Straube (Páll Isólfsson)., 21.15
Tónleikar: Píanókonsert nr.
3 í Cdúr op. 26- eftir Prokoi-
eff (plötur). 21.45 Upplestur:
„Leiðin lá til Vesturheims",
bd farkafli eftir Svein Auðunn
Sveinsson (höf. les). 22.05
Danslög (plötur) til 23.30. —
Útvarpið á morgun: 20.20 Út-
varpshijómsveitin (Þórarinn
Guðmundsson stjórnar). 20.45
LC.
Eldri dansarnir
I Alþýðuhúsinu í kvöld Ikl. 9.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8. —- Sími 2826.
Um daginn og veginn (séra
Helgi Konráðsson á Sauðár-
króki). 21.05 Einsöngur: Guð-
munda Elíasdóttir syngur
(plötur). 20.20 Erindi: I leit
að heilbrigðinni (Baldur John
sen læknir). 20.40 Tónleikar:
Konsert fyrir harmoniku og
hljómsv. eftir Roy Harris;
Andy Rizzo leikur á harmon-
iku (plötur). 22.10 Létt lög
Franska sendiráðið hefur flutt
skrifstofur sínar af Skálholts-
stíg 2 í Vonarstræti 4.
I.O.G.T. Díönufundur í dag
kl. 10.15. — Pyrsti flokkur
skemmtir. Br. Sigurður Guð
mundsson sýnir kvikmynd. —
MÆLAVIÐGERÐIR
I kjallaranum á Hverfis-
götu 94 er gert við alls-
konar rafmagnsmælitæki.
Sími 6064.
IIUSGAGNAVIÐGERÐIR
Viðgerðir á allskonar
stoppuðum húsgögnum.
Húsgagnaverksmiðjan,
Bergþórug. 11, sími 81830
KAUPUM
húsgögn, heimilisvélar,
karlmannaföt; útvarps-
tæki, sjónauka, myndavél-
ar, veiðistangir o.m.fl.
Vöruveltan,
Hverfisgötu 59. Sími 6922
MUNIÐ KAFFISÖLUNA
í Hafnarstræti 16.
FASTEIGNASÖLU-
MIÐSTÖÐIN
Lækjargötu 10 B, sími
6530, annast sölu fast-
eigna, skipa, bifreiða o.fl.
Ennfremur allskonar
tryggingar í umboði Jóns
Finnbogasonar fyrir Sjó-
vátryggingarfélag Islands
h.f. Viðtalstími alla virka
daga kl. 10—5, á öðrum
tímum eftir samkomulagi.
LÖGFRÆÐISTÖRF
Áki Jakobsson og Kristján
Eiríksson, Laugaveg 27,
1. hæð. -— Síími 1453.
SAUMAVÉLAVIÐGERÐ-
IR — SKRIFSTOFU-
VÉLAVIÐGERÐIR
SYLGJA, Laufásveg 19,
sími 2656.
VÉLhreingerningar
Flýtir. Vandvirkni. Sími
4013. Skúli Helgason o.fl.
HEITT OG KALT
PERMANENT
Hárgreiðslustofan Marcí,
Skólavörðustíg 1.
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.