Þjóðviljinn - 28.12.1950, Síða 5

Þjóðviljinn - 28.12.1950, Síða 5
Fimmtudagur 28. des. 1950. ÞJÓÐVILJINN 5 Ég hafði unnið lengi fram eftir nóttu— klukkan var orð- :in tvö, þegar ég gat farið að íbúast í bólið. Ég háttaði mig himinglaður yfir vel unnu dags- verki og hlakka'ði vægast sagt akaflega mikið til að leggjast til hvíldar í drifhvítu rúminu jvið htið. ... Já, ég opnaði Svefnherbergisdyrnar undur- hægt, læddist á tánum inn gólf- ið og hélt niðri í mér andanum, en en en •— allt kom fyrir ekki; þegar ég ætlaði að fara að smeygja mér undir sængina, iheyrðist heldur en eigi hljóð úr horni — hominu þar sem rúm stráksins míns stóð. í>ið þekkið ekki strákinn minn, en ykkur nægir að vita, að hann er á öðru ári, því að flestir gemsar á þeim aldri eru ámóta snauðir að virðingu fyrir •svefnró foreldranna og hann. Hvað átti ég að gera? — Já, svarið þið, ungu feður, sem einnig iðkið næturgauf í hófi. — — Vekja konuna og segja: Drenguriun er vaknaður, elskan mín? — Nei, aldrei að eilífu — við erum þó riddarar, is- lenzkir eiginmenn, í það minnsta ifyrstu h júskaparárin. Ergo: Þessu ræð ég fram úr einn og óstuddur. Ég fikaði mig lúshægt að rúminu, stakk þelanum upp í jstrákinn og sagði: Sussusussu j— sussususs — — Og viti imenn, snáðinn tók við glasinu feginshugar og tottaði af á- fergju. Seigur er ég alltaf, hugsaði 'ég og brosti glaður við sjálf- um mér í speglinum ofan við rúmið — og spegilmyndin brosti á móti allt að því eins sjálfumglöð og ég, og mér fannst sem hún segði: Þetta verður ekkert vandamál — ihann sofnar út frá pelanum, og i fyrramálið kyssir konan þig á vangann, segir að svona eigi góðir eiginmenn að vera, hepp- 'in hafi hún verið þegar hún Ináoi í þig ogsoframvegis, og- soframvegis... . En svo bregðast krosstré sem önmir tré: Ég var ekki kominn alla leið að rúmstokknum í annað sinn, þegar ormurinn rak upp annað hljóð miklu ámát- legra en hitt. Ó, þessi börn, þessi börn taut aði ég, meðan ég var að staulast yfir gólfið. . Ég tróð í hann pel anum á nýjan leik og endur- tók hið alda gamla sussususs — en nú gekk allt á afturfótun- úm: Pelann vildi liann ekki ísjá, og hann var ekki til við- r.æðu um svefn — núna, þegar hann var svo upplagður að vaka, það vantaði nú bara.... Hann smaug úr höndum mér (eins og ánamaðkur og hótaði mér með háaöskrum, ef ég 'gerði tilraun til að leggja hann ;niður. Jesús minn, sagði ég í fyrsta sinn á ævinni. Það var svo sem auðséð, að hann myndi inn- án skamms vekja mommu sína -j— engan koss fengi maður á yangann í .fyrramálið, ekki orð imi það, að svona ættu góðir þiginmenn að vera, heppin hefði hún vérið, þegar hún náði í mig ogsoframvegis. . . . Nei íhann sá fyrir því, þótt 'hann yæri ekki stór. í algerri örvinlnan þreif ég pottormimi, vafði um hann sænginni, skreið upp í rúmið Hrafnaspark á helgidegi; Hér er HeSgi á Klaustri... mitt, lagöi hann niður við hlið mér og beið árangursins með eftirvæntingu. Fyrstu viðbrögð haus kveiktu hjá mér ofur- litla von: Hann lá kyrr, lygndi augunum og virtist blunda. Þá lagði ég einnig aftur augun, og í einu vetfangi var ég kom- inn hálfa léið inn í óminnis- heima — en lengra komst ég ekki, því að þá var klipið óþyrmilega í nefið á mér. Ég hrökk upp með andfælum og snerist til varnar: Uss-ss! Þetta má ekki! sagði ég höst- iim rómi — sofa, sofa, sussus- uss! En það var eins og að skvetta vatni á gæs. Hann bætti að- éins gráu ofan á svart og fór að hlæja að mér, og fyrr en mig varði hóf hann öfluga at- rennu með vísifingur beggja handa. að vopni og hótaði að krækja úr mér augun. Ég þreif um hendur hans og hélt þeim rígföstum, því að — í trúnaði talað — hefur hann ekki hálfa ■krafta á við mig. En þið vitið kannski, hvernig barnkríli fara að því að gersigra margfalt af lmeiri andstæðinga: Þau skríkja svo ásakandi, a'ð manni finnst maður vera að fremja ægilegasta ódæði og gefst upp. Þegay þannig stendur auk þess á, að maður vill um fr.am alla muni kopiast hjá að vekja kon- una sína elskulegu, er í raun- inni ekkert gagnráð til við þessu fólskulega herbragði. Honum brást heldur ekki þessi bogalist, og án þess nokkurt hlé yrði á, hóf hann næstu atlögu, sem var í því fólgin að rífa af alefli í hár mér. Þá lá við, að é g færi að hrína, því áð ég hefi alltaf verið ákaflega hársár. Dreng- urinn skemmti sér konunglega, og alltaf sótti hann í sig veðrið. Hann smaug úr örmum mér, settist ofan á höfuðið á mér og reiö þar klofvega eins og Glám- ur á mæninum forðum. Ég var orðinn syf jaður, þreytt ur og gramur. Allar varnartil- raunir mínar höfðu orðið sér til háðungar, og slíkt mótlæti fer tíðum með bardagamóðinn til fjandans. Þó lagði ég heilann enn einu sinni í bleyti til að reyna að finna einhver- gagn- brögð. En rétt þegar örlítið var að byrja að birta inni fyrir, svipti andstæðingurinn sundur allri víglínunni eins og hún lagði sig með ómannúðlegri skyndiárás. Hún byrjaði með ofurhægum volgum straum, sem seytlaði niðnr hnakkann á mér, smájókst síöan og bleytti allan hálsinn og fossaði að lok- um niður eftir bakinu. Þá varð mér ljóst, að ég hafði algeran ósigur. : Ég spratt upp skelfingu þin og æfur af bræ'ði, hvessti sjónir á þessum endurvakta Glámi og spurði sjálfan mig, hvað væri hægt að ,gera viö svona börn. Já, hvað — hvað? Svariði! Ö, því miður — ekkert, alls e k k e r t. Ég snaraðist fram úr, stakk stráknum undir handarkrikann, skálmaði fram í baðherbergið, vatt mér úr nátttreyjunni, þvoði mér og þurrkaði hátt og lágt og lét uppreisnarsegginn sitja 4 koppnum á meðan. öðru hverju gaut ég til hans horn- auga og lagði við hlustir — en hann þurfti ekki meira. Hann hafði varið öllu til að vökv'a akur föður síns. Sonur minn gaf mér líka auga í laumi, og þegar ég leit á hann, brosti hann og smá- tísti við mér. Ég skildi vel, að þetta voru sáttaumleitanir á byrjunarstigi — en ég var ekki taglinu tækur eftir, þessa síð- ustu smánarmeðferð. Ég lézt ekki taka eftir honum og hélt áfram að nugga mig allan langt- um lengur en nokkurt vit var í. En hann var svo ljómandi hamingjusamur og smitandi glaður sem hann sat þama á pottinum í ljósri sumamótt- ínni, að mér rann að lokum öll reiði, og fyrr en ég vissi, var ég farinn aö skellihlæja. Og aðeins þegar geðillskan var gengin úr vistinni, flugn mér fleiri ráð í fang en fyrirfinnast í öllum þessum alvizku-bókum um uppeldið og sálina. Nú söðlaði ég alveg um: 1 stað fjandsamlegrar baráttu hóf ég við hann v vinsamlega samvinnu. Ég fór með hann fram í stofu, leyfði honum að stríplast um gólfið og velta sér í legubekknum, kastaði mér á bakið og leyföi honum að liossa sér á maganum á mér, lét hann ríða á háhesti — og það féll svo skínandi vel á með okkur. Árangurinn lét heldur ekki á sér standa: Eft- að fá nóg og fór nánast að mælast til þess við mig að fá að leggja sig. (Ég tók þvi auð- vitað heldur dræmt, en hægði þó heldur á leikaraskapnum, og innan tíðar var hann stein- sofnaður). Ég lagðist glaður til hvíld- ar, og heilinn hafði aðeins tíma til að forma eina hugsun, áð- ur en sumamóttin söng mig í svefn: Þetta er mér skylt að segja Helga. ★ Nú er sagan á enda, eins og állir mega sjá. Aðeins á ég eftir að gefa skýringu á, hvers vegna ég fór að rita niður þessa raunasögu mína, sem í engu er frábrugðin næturrejmslu ó- talmargra ungra feðra fýrr og síðar. Og þá er fyrst að svara spurningu ykkar: Hvaða Helga? — Auðvitað Helga Lár- ussyni frá Klaustri. Já, svona gengur það semsé til í lífinu, herrá Helgi Láras- son. Þetta fólk, sem þér kallið einu nafni kommúnista, er að vissu leyti börn mannfélagsins: ;— Það krefst þess að fá að lifa mannsæmandi lífi og njóta sín heilbrigðu eðii sínu sam- kvæmt, hvort sem yður eða öðr- um líkar betur eða verr — hvort sem þið viljið, a'ð það sofi eða ekki. Ef þið reynið að beygja ]>að undir vilja ykkar, þá getur komið fyrir — í lík- ingu talað — að það klípi í nefið á ylckur, hóti að krækja úr ykkur augun, rífi í hárið á ykkur og láti volga lind seytla niður eftir bakinu á ýkkur. Og þá verðið þið geðillir og rjúkið til og skrifið heimskulegar ir nokkra stund var hann búinn greinar og heimtið, að fólkið verði bannað! En sannarlega, herra Helgi Lár. (hafið þér verið é síld í ár?), mættuð þér læra af mínu dæmi margt, sem ýður dável kæmi: Aiþýðan hefur nefnilega þennan hæfileika barns og ánu- maðks — að smjúga úr hönd- um fjanda síns. og það er eins og hana bíti engin vopn. Hins vegar er henni gefið að vinna með berum höndum þá sigra sem jafnvel kjarnorkusprengj- an getur ekki með nokkru móti veitt handhöfum sinum--- svo að þetta er ekki gaman við að eiga. Annað er sameig- iniegt alþýðu og börnum: Þau eru einmitt það, sem verður — þið eruð hitt, sem var. Sjálf- sagt er, að kröfur alþýðufólks- ins um að fá að ‘lifa mannsæm- andi lífi hljóta að stangast á við gróna venju héildsala og amiarra. sérgæðinga að maka krókinn á kostnað fjöldans, sem vinnur. En sjáið þér ekki, hve tilgangslaust og ósköp aulalegt er, að ala sér í brjósti frómar óskir um að banna alþýðuna af þeim sökum? Þvi hvaðan kæmi yður auður, þegar búið væri að banna fólkið, sem skap- ar hann? Þér vitið kannski, hvernig fór fyrir síldarútvegs- manninum, sein missti alla há- setana af togaranum sínum — og þá skiljið þar, hváð ég meina. Þér bendið réttilega á, að í ýmsum löndum — þar á meðal Bandaríkjunum — hafi sú leið, sem þér viljið fara, þegar ver- ið valin. Þér teljið þetta skemmstan veg og greiðfær- astan inn á hið fyrirheitna land („vestræns lýðræðis“. Raunar voru það hvorki þér né Truman, sem fyrstir tróðu þennan stíg. Það voru snáðar tveir að nafni Adólf og Benító. Kannski hafa þeir lent í þeirri vör, sem „vest- rænt Jýðræði" hefur nii fyrir stafni, og una þar glaðir við Framhald á 6. síðu. Þessi mynd er af þingi Sósialistiska einingarflokksiiis í Berlín í sumar. ÞLngsalurinn er geysistór, ný íþróttahöll, heltin eftir glímnkappanum Werner Seelenbinder, sem nazistar myrtu. Það tók húsasmiði í Þýzka lýðveldinu aðeins fjóra mán'uði að reisa þetta stórhýsi.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.