Þjóðviljinn - 28.12.1950, Síða 8
Bókhneigö íslendmga fer ckki hrakandi og eru það
ánægjuieg- tíðindi. Samkvæmt upplýsingum bóksala var
bckasalan fyrir jólin sízt minni, eða jafnvel öllu meiri
en s.I. ár.
A3 minnsta kosti íjórar bækur seldust gersamlega
upp fyrir jól: Öldin okkar og Á Kon-Tiki yfir Kyrrahaf,
sem báðar voru uppssldar nokkrum dögum fyrir jól, og
barnabækurnar Mamma skilur allt, eftir Stefán Jónsson
cg Biössi á Tréstöðum eftir Guðmund L. Friðfinnsson.
Fiiðþjófssaga, í þýðingu Matthíasar mun einnig hafa
selzt upp.
Ekki er þó unnt að segja Iiver hefur verið metsölu-
fcókin, vegna þess að engar tölur um fjölda eintaka hverr
ar bókar er unnt að ía. Eftirspurn eftir Öldinni okkar
mim þó hafa verið langmest og myndabók Kjarvals
rnun mjög koma til álita þegar rætt er um metsölubókina.
Uppseldar eða því sem næst. | son, sem Norðri gaf úr, seldist
Hamingjudagar eftir Björn einnig mjög vel.
Blöndal seldist upp að því ert
margir bóksalar telja. Fljótið Sveitarómantík o. fl.
helga eftir Tómas Guðmunds-
son seldist upp hjá forlaginu.
Að ævilokum eftir Þórberg Þórö
arson seldist einnig að mestu.
Afdalabörn eftir Guðrúnu frá
Lundi seldist upp í fjölda bóka
búða. Hrakningar og heiðavegir,
JJ. bindi, seldist einnig upp hjá
útgeíanda. Litli dýravinurinn
eftir Þorstein Erlingsson seld-
ist einnig upp í morgum stöð-
um.
Þýddir rómanar.
Af þýddum skáldsögum seldu
cumir allt sem þeir fengu af
Grýtt er gæfuleiðin. Þegar ham
ingjan vill, Skipstjóri á Girl
Pat og Lars í Marzhlið.
Auk Hrakninga og heiðavega.er
seldust upp hjá forl., seldust
mikið bækur um sveitalífið er
Noröri gaf út, eins og Islenzki
bóndinn eftir Benedikt frá Hof
teigi, Maður og mold eftir Sól-
eyju í hlíð, I faðmi sveitanna,
eftir Elinborgu Lárusdóttur,
Skammdegisgestir eftir Magn-
ús F. Jónsson og Bóndinn á
heiðinni eftir Guðlaug Jónsson.
Jón biskup Arason eftir Torf-
hildi Hólm seldist einnig all-
mikið.
Eina fáanlega
sjúkrabífreiðin
I Iösig og erfið ferðalög
Fyrir nokkru fór sjúkrabif-
reið Slysavarnafélagsins tvfr
langferðir til að sækja sjúkl-
inga, aðra vestur á Snæfellsnes
til að sækja veika konu, en hina
austur í Skaptafellssýslu til að
sækja slasaðan mann. Vegna
hlákunnar og hálkunnar var
hið versta færi á þessum veg-
um. Er þessi bifreið Slysavarna
félagsins nú eina sjúkrabifreið-
in, sem fáanleg er í svona löng
og erfið ferðalög.
Gefa til radíó-
miðunarstöðva
Kvennadeild Slysavarnafé-
lags íslands hefur gefið 12 þús.
kr. til radíómiðunarstöðvarinn-
ar sem verið er að reisa á Garð
skaga og ennfremur 7.200.00
kr. til radíómiðunarstöðvarinn-
ar sem Slysavarnafélagið hefur
látið reisa á Stórhöfða í Vest-
mannaeyjum. Er það tilgangur
kvennadeildarfcinar að framlög
þessi gangi til -að greiða leigu
fyrir tæki stöðvanna næstu 10
ár, og hafa framlög deildarinn-
ar verið ákveðin í samráði við
stjórn Slysavarnafélagsins.
Neðansjávarleiðsla í Skerjafirði
Ævtsögur.
Hjá Máii og menningu seldist
Hjá vandalausum, II bindið af
ævisögu Maxims Gorkis, lang-
mest. Endurminningar frá Is-
landi, eftir Valdimar Erlends-
Róleg jól
Óvenjurólegt var hjá lögregl
uimi um jólin. Voru ölvunarkær
ur á annan ekki nema fjórar
og.er það miklu minna en venju
lega um helgar.
Eftir fréttum útvarpsins var
þessu öðruvísi farið á Akureyri;
voru 13 kærðir fyrir ölvun. Ak-
ureyringar munu telja jólin hjá
sér hin friðsömustu og hafi
menn yfirleitt ekki haft af
öðru en friði og spekt að segja
um jólin, því allir hinir 13 hafi
verið kærðir í sambandi við á-
ílog er urðu á einum dansleik.
Ie:M þúsnnd.
131 þúsund tunnur af síld
höfðu verið saltaðar í verstöðv
um hér á Suðurlandi þann 16.
■þ.m., að því er Þjóðviljanum
var tjáð í gær hjá Fiskifélaginu.
Síðan hefur síldveiði verið
líti) sem engin, en sjómenn
töidu þó næga síld þótt þeir
næðu henni ekki vegna þess hve
djúpt hún var. Nokkrir bátar
munu þó reyna að veiða milli
jó)a. og nýárs, en fleetir munu
hættir sildveiðum og farnir að
búa eig.undir vetrarvertíðina.
Rétt fyrir jólin lá 9000 smálesta tankskip á Skerjafirði og
losaði olíu til h. f. Shell á Islandi. Um sama leyti voru 23 ár
liðin síðan Shell fékk fyrsta farminn- þangað. I þetta skipti fór
affermingin fram með nokkuð öðrum hætti en tíðkazt hefur til
þessa.
Að því tilefni bauð Shell
fréttamönnum suður í Skerja-
f jörð á Þorláksmessu, og sýndi
Hallgrímur Hallgrímsson, fram
kvæmdastjóri það sem sýnilegt
er af hinum nýju tækjum, sem
notuð eru við losunina. Skip
þetta „Sepia“ sem nú lá á
Skerjafirði, er hið þriöja sem
losáö er með hinu nýja fyrir-
komulagi, en það gefst vel og
er nú hægt að dæla á land um
300 tonnum á klst. í stað rúml.
100 tonna áður.
Aðferð §ú, sem notuð var
áður eða síðan Skerjafjarðar-
stöðin var byggð og þar til nú,
hefur verið sú, að lögð hefur
verið flotleiðsla frá olíu-
bryggju félagsins og út í skip
þau, sem komið hafa með olíu-
farm hverju sinni. Leiðsla þessi,
sem var um 220 m löng var
sett saman úr 6” gúmmíslöng-
um, sem voru skrúfaðar sam-
an. Var leiðslunni haldið á
floti með tunnum og þurfti að
draga hana að landi og upp í
fjöru, þegar dælingu var lokió
hverju sinni. Var það mikil
vinna og erfið, ekki sízt á vet-
urna, þegar íshröngl myndaðist
á firðinum. Auk þess var leiðsl
unni oft hætta búin í vondum
veðrum og fyrir kom að hún
slitnaði frá skipinu. Hin nýja
leiðsla, sem er um 260 m á
lengd og- 8” víð, kom til lands-
ins full tilbúin að öðru leyti
en því. að hún var ósamansett,
en það verk annaðist Lands-
smiðjan. Var leiðslan rafsoðin
saman á þurru landi við Skerja
fjörð, en síðan var henni fleytt
á tunnum i heilu lagi á þann
stað sem henni skyldi sökkt, en
það var gert á þann hátt, að
hún var fyllt af sjó. Tókst fram
kvæmd þessa verks, sem var
undir yfirstjórn Ólafs Sigurðs-
sonar forstjóra Landssmiðjunn
ar, mjög vel..
Leiðslan sjálf og samskeyti
öll eru vandlega einangruð á
þann hátt, að einangrunarefnið
er steypt utan um. Á ytri enda
leiðslunnar eru fimm 8” gúmmí
slöngur tengdar saman, og eru
þær ætlaðar til þess að taka
um borð í skipin og tengja við
leiðslur þeirra. Þegar dælingu
er lokið er lokað fyrir enda
slöngunnar og henni síðan
sökkt, þar til hún skyldi notuð
næst, en vír, sem festur er við
enda hennar, er festur við
bauju þannig, að auðvelt er að
ná henni upp úr sjónum.
Olíugeymar Shell i Skerja-
firði taka samtals um 10 þús-
und tonn, en auk þess á félag-
ið geyma sem taka um 3500
tonn í Öskjuhlíð.
Etólegt hjá slökkviliðinu
Slökkviliðið átti óvenjurólega
daga um þessi jól. Var það að-
eins einu sinni kvatt út alla
jóladagana. ag var það að Ból
staðahlíð 16. En þar var evk-
ert alvarlegt á ferðum, heldur
hafði slegið ofaní olíumiðstöð.
HlÓÐVlUIN
Togárasjémaður fersí vlð
veiéar á Haiamiðum
Á aðfangadag jóla varð það slys á togaranum Bjarna ridd
ara, að ungan sjómann, Guðmund Danivalsson, tók út. Náðist
hann aftur, en iíí’gunartilraunir reyndust árangurslausar.
Togarinn var að veiðum á
Halamiðum þegar slysið vildi
til. Var kastað tveim bjarg-
hringum til Guðmundar, en
hann virtist ekki geta halaið
sér á floti. Var þá bundin lína
um einn skipverja og stökk
hann fyrir borð til að ná Guð-
mundi. Náðust báðir mennirn-
ir, en lífgunartilraunir á Guð-
mundi reyndust árangurslaus-
ar. Var þegar haldið til Vest-
fjarða og læknir fenginn til "að
koma á bát á móti togaranum,
en þegar hann kom var Guðm.
látinn. Guðmundur Danivals-
son var ókvæntur og barnlaus.
Togararnír
Fylkir kom af veiðum í gær-
morgun með 3100 kit og fór
hann til Englands, mun selja
í Grimsby. Skúli Magnússon fór
á veiðar í gær, var nýkominn
frá Englandi. Goðanesið kom
til Hafnarfjarðar í gær. Akur-
ey kom af veiðum á aðfanga-
dag. Isólfur er enn í slipp. Jón
Þorláksson mun selja afla sinn
í Grimsby í dag. Er hann eini
ísl. togarinn sem mun landa
afla sínum í Englandi milli
jóla og nýárs.
Vetrarhjáipin
lithlutaði mat-
vælom til 557
heimila og
einstahlinga
Vetrarhjálpinni bárust alls
kr. 93 403,82 í peningum fyrir
þessi jól, að því er skrifstofa
hennar tjáði blaðinu í gær.
Skátar söfnuðu tæpum 50 þús.
kr. af þeirri upphæð. Ér þetta
hæsta fjárupphæð, sem safn-
ast liefur hjá Vetrarhjálpinni
eða um 20 þús. kr. meira en
s.l. ár, er var hæsta söfnunar-
ár til þelsa.
557 heimilum og einstakling-
um var úthlutað mjólk og öðr-
um matvælum, að verðmæti um
125 þús. kr., en auk þess var
úthlutað talsverðu a.f fatnaði.
Skrifstofa Vetrarlijálparinn-
innar í IJafnarstræti 20 ,Heklu.
verður opin daglega fram yfir
áramót, kl. 10—12 f. h. og 2—
5 e. h. Hefur Vetrarhjálpia
beðið blaðið að flytja þakkir
sínar öllum þeim er styrktu
liana nú fjuir jólin, bæði hin-
um mörgu gefendum og eins
skátunum er gengu um meðal
bæjarbúa og söfnuðu gjöíunum.
Stálu
strætisvagni
Annan jóladag, Iaust fyrir
kl. 18, var strætisvágni stolið
af Lækjartorgi, en seinna um
kvöldið fannst hann manniaus
fyrir innan Mógilsá á Kjalar-
nesi.
Strætisvagn þessi var hafður
til vara á torginu, ef einhver
þeirra sem vcru í notkun skyldi
bila. En er minnst varði sáu
menn að vagninum var ekið
upp Hverfisgötu og hvarf hann
brátt. Lögreglan hóf þegar leit
að ökuþórnum og stóð hún
fram eftir kvöldi. Kl. 8.30
fréttist svo að mannlaus stræt
isvagn stæði hjá Mógilsá á
Kjalarnesi og reyndist það
vera hinn týndi vagn. Við rann
sókn máls þessa kom í Ijós að
tveir 15 ára piltar höfðu verið
þarna að verki. Vagninum var
ekið hingað til bæjarins í fyrra.
kvöld og reyndist hann vera.
óskemmdur.
Margir Mfreiðaáreksfrar
Engin umferðaslys urðu hér
í bænum um jólin, en bifreiða-
árekstrar þó allmargir. Munu
20—30 bifreiðir hafa lent í á-
rekstri.
Bruni á Akranesi
Um kl. 1 á annan dag jóla
kviknaði í húsinu Mánabraut 17
á Akranesi. Tjón varð miki'ö af
eldi og vatni áður en slökkt
var í húsinu.
Húsið er ein hæð úr timbri
og ris. Eigandi hússins er
Karl Auðunsson og bjó hann í
húsinu.
Eidurinn kviknaði út frá
peru er notuð var til að lýsa
lítið hús úr pappa og baðmull.
Mæðrastyrks-
nefnd safnaði 80
þiís. krónum
Mæðrastyrksnefnd safnaði
að þcssu sinni 80 þús. kr. fyrir
jólin, og er það með langmesta
móti. I fyrra söfnuðust 60 þús.
kr. og var það einnig meira en
nokkrn sinni áður. Auk pen-
inga safnaðist mikið af fatnaði.
Uthlutað var um G0 þús. kr.
til um 370 ba.rnaheimila og ein-
stæðingsmæðra, en énn liggja
f.vrir margar beiðnir um að-
stoð.