Þjóðviljinn - 20.06.1951, Blaðsíða 4
4) _ ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 20. júní 1951
ÞlÓÐVlLIINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Óláfsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (þrjár linur).
ÁskriftarVerð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Brúna höndin
Gunnar Thoroddsen minntist á ,;brúnu höndina" í ræðu
sinni 17. júní, og Morgunblaðið tekur þau ummæli upp í
gær á tveim stoðum með mikilli veíþóknun. Nú á auðsjáan-
lega að halda því að almenningi að aldrei-hafi brúna hönd-
in átt aðra eins andstæðinga og Gunnar Thoroddsen og
Morgunblaðið.
Árið 1936 skrifaði þessí sami Gunnar Thoroddsen
grein í Stefni, tímarit íhaldsmanna, þar sem hann lýsti yfir
því að fslendingar yrðu að inóta stefnu sína í utanríkis-
málum í samræmi við vilja valdhafanna í Bretlandi og
Þýzkalandi, þ. e. Chamberlains og Hitlers. Þessi yfirlýsing
Gunnars Thoroddsens var stefna íhaldsflokksins, og þyrfti
einhvemtíma að rekja þá sögu ýtarlega.
Þegar Chamberlain sveik Tékkóslóvakíu í hendur
þýzku nazistanna og gekk þannig lokaskrefið að annarri
heimsstyrjöldinni, ætluðu íhaldið og Morgunblaðið vitlaus
að verða af fögnuði. Morgunblaðið' sagði 30. sept. 1938
að Munchen-glæpurinn væri einhvér allra merkasti við-
burður sem sagan þekkir“, Chamberlain sé „hin mikla þjóð-
hetja brezka heimsveldisins“ og orð hans vísdómur „sem
sagan á vafalaust eftir að varðveita sem dýrmætan gim-
stein.“ Ennfremur komst blaðið þannig að orði sema dag:
„Allur heimurinn hefur með aðdáun og lotningu horft
á aðgerðir Chamberlains, forsætisráðherra Breta, undan-
farið í þágu friðarins. Engum hefur dulizt að þar liefur
mikilmenni að verki verið, mikilmenni, sem á fáa eða engan
sinn líka uppi nú á dögum. Allt starf lians hefur mótazt
af vitsmunum, hyggindum og festu, en það eru eiginleilíar
sem — því miður — gætir ekki að jafnaði í fari þeirra
stjórnmálamanna, sem mest ber á í heiminum nú á dög-
um . . .
Með starfi sínu undanfarið í þágu friðarins hefur
Chamberlain forsætisráðherra getið sér ódauðlegt nafn
í veraldarsögunni. Hann verður þjóðbetja, eldii aðeins í
sínu landi, heldur eimiig í öllum löndum heims.“
5. okt. 1938 birti Morgunblaðið mynd af Hitler og
Chamberlain í faðmlögum og yfirskriftin er: „Þeir ætla að
friða Evrópu.“
6. okt. 1938 segir Morgunblaðið:
„í nútímasögunni verður vafalaust ekki bent á neitt
einstakt afrek, sem jafn óskoraða viðurkenningu hefur
lilotið og afrek hins afdraða forsætisráðherra Breta, Mr.
Neville Chamberlain. Allur heimurinn dáði þrautseigju lians
í baráttunnni fyrir lieinásfriðnum.“
7. okt. 1938. segir Morgunblaðið:
„Það scm gerðist í Miinchen var í raun og veru ekki
annað, en að óréttur sem framinn var fyrir 20 árum með
friðarsamningunum eftir heimsstj rjöldina var gerður góð-
ur aftur . . . Ekki getum við Islendingar sagt, að hér hafi
verið ar.nað gert én það seni rétt var.“
Og þannig mætti lengi telja. Eitt verstá glæpaverk
brúnu handarinnar og einn mesti sigur hennar varð Morg-
unblaðinu tilefni til taumlausi;a gleðiskrifa vikum saman.
Á sama hátt mætti taka einn atburðinn af öðrum. Morgun-
blaðið hefur verið málgagn hinnar brúnu handar kúgunar,
afturhalds og fasisma alla sína tíð, og íhaldsflokkurinn
hefur verið flokkur liinnar brúnu handar. Morgunblaðið
var upphaflega stofnað sem danskt máigagn á íslandi, en
síðan hefur það verið málgagn Francofasistanna á Spáni,
málgagn ítölsku fasistanna og þýzku nazistanna. Ýmsir •
nánustu aðstandendur blaðsins urðu að vera handfljótir að
festa mynd af Bretakóngi upp á vegg hjá sér í stað Hitlers,
þegar landið var hernumið 1940.
Og brúna höndin er ekki aðeins fortíð, hún er lifandi
nútíð. Ráðamenn Bandaríkjanna hafa lyft á ný því merki
kúgunar og afturhaids sem féll um skeið með Hitler í Berlín
andspænis hinni sigursælu alþýðu Sovétríkjanna. Hin brúna
hönd læsir sig nú um ísland og íslenzku þjóðina og málgagn
hennar er enn ' sefti fyrr Morgunblaðið, flokkur hennar
Ihaidsflokkurinn. Það er viðbjpðslegt að Morgunblaðið skuli
yfirleitt leyfa sér að koma út 17. júní og að Gunnar Thor-
oddsen skuli yfirleitt leyfa sér að koma fram fyrir almenn-
inssjónir þann dag, en út yfir tekur þó að láta sér um munn
fara þaummmæli sem hér hefur verið vikið að.
rffl .
Hvérsvegna kepptu Clausen-
bræður ekkl?
Þjóðviljinn birti í gær fyrir-
spurn frá „íþróttaunnanda? út
af fjarveru Clausenbræðra á
17. júni-mótinu, en þeir höfðu
verið tilkynntir þar sem þátt-
takendur. Síðan hafa margir
hringt til blaðsins og spurst
fyrir um ástæður fyrir þessu.
Það fer ekki hjá því að slíkt
vekji athygli almennings og þó
einkum áhugamanna um íþrótt-
ir, þegar jafn þekktir og snjall-
ir íþróttamenn eiga í hlut. Bæj-
arpósturinn hefur ekki getað
leyst úr spurningum þeirra er
snúið hafa sér til hans út af
þessu en er hinsvegar ljúft að
koma fyrirspurnunum á fram-
færi við forráðamenn mótsins,
sem . væntanlega geta gpfið
skýringar á þessu. ,
•
Þorskur og ýsa.
,.Húsmóðir“ skrifar: Vilt þú
ekki póstur góður vekja athygli
á því vandamáli okkar hús-
mæðranna að illmögulegt er nú
að fá nýja ýsu og þorsk í sog-
ið. Það er sama í hvaða fisk-
búð er leitað, það er hrein
undantekning ef til eru þessar
algengustu og ódýrustu fisk-
tegundir. Hinsvegar er enginn
skortur á lúðu, karfa, hrog-
kelsum, kola og öðrum dýrari
fisktegundum. Ég skal játa að
gott er að eiga kost á þessum
dýrari og Ijúffengari fiskteg-
undum öðru hverju ekki sízt
nú þegar útilokað er orðið að
fá kjöt til tilbreytingar um
helgar. En allur almenningur
óskar þess að geta keypt þorsk
og ýsu til daglegrar neyzlu,
og ,við konurnar kunnum því
bezt að fá fiskinn í heilu lagi.
En þá sjaldan það kemur fyrir
að þorskurinn er á boðstólum
er hann yfirleitt flaliaður og
því miklum mun dýrari.
•
Skilaboð til fisksalanna.
„Nú eru stjórnarvöldin búin
að sprengja svo upp allt verð-
lag að illmögulegt er fvrir al-
þýðu manna að láta tekjurnar
hrokkva fýrir brýnustu lífs-
nauðsynjum, hvað þá að unnt
sé að veita sér og sínum nokkuð
þar fram yfir. En mér finnst
taka út yfir allt þegar mánni
er gert ófært að afla sér al-
gengustu innlendra fæðuteg-
unda, eins og fisksins, sem oft-
ar er á borði almennings en
nokkur önnur matartegunj,
Mér þætti fróðlegt að fá upp-
lýst hvernig á þessu stendur,
og berðu fisksölunum þau boð,
að þeir gefi okkur kost á
þorskinum óflökuðum, þá sjald-
an hann er í búðunum. —
Húsmóðir".
•
Sjór og sólböð.
„Gamall sundmaður“ hefur
næstur orðið. Hann segir m. a.:
„Eg er einn þeirra sem fagna
því að sjóbaðstaðurinn í Naut-
hóisvík hefur nú verið opnað-
ur að nýju. Þótt gott sé að
koma í sundlaugarnar og Sund
höllina þá jafnast ekkert á við
að synda í sjónum sjálfum. Á
því er enginn vafi að þeir sem
aldrei synda í sjó fara mikils á
mis og þarna í víkinni er upp-
lagt að taka sér sólböð jafn-
hliða sundinu en það er hin
mesta. iheilsulynd. og öllum
liauðsynlegt. Eg vil skora á
alla, og þá ekki sízt unga fólk-
ið, að nota sjóinn og sólböðin
í Nauthólsvík í sumar eftir því
sem hver og einn hefur tíma
og tækifæri til. — Gamall sund-
maður.“
Hvatt til þátttöku í
norrænu sundkeppninni.
Þá hefur annar áhugamað-
ur um sund og þá ekki sízt fyr
ir norrænu sundkeppninni ósk-
að eftir því að á hana væri enn
éinu sinni minnt. Hvetur hann
alla þá sem syndir eru, konur
og karla, að láta ekki drag-
ast lengur að taka þátt í
keppninni og ljúka siniun 200
metrum. Segir hann, sem satt
er, að það eigi að vera þjóð-
armetnaður hvers íslendings að
leggja sitt lóð á vogarskálina í
keppninni og stuðla þannig að
því að hlutur Islands verði sem
beztur og helzt að það gangi
með sigur af hólmi. Undir þetta
skal tekið og allur almenning-
ur eindregið hvattur til þátt-
töku í norrænu sundkeppninni,
en nú fer að síga á seinni hlut-
ann óg því ástæðulaust að
draga lengur að ljúka 200
metrunum.
I.oftlplSir ----- - - .
1 dag er áætlað að fljúga kil
Vestmannaeyja, Isafjarðar, Akur-
eyrar, Patreksfjarðar og Sauðár-
króks. — Á morgun er ráðgert
að fljúga- til Akureyrar, Vest-
mannaeyja og lsafjarðar.
13.30 Setning syno-
dus: Guðsþjónust.l
í Dómkirkjtmni
(sr. Gunnar Árna-'
• son á Æsustöðum
prédikaa'; séra Frið
rik Rafnar vígslubiskup á Ákur-
eyri þjónar fyrir altarib-16.00 Út-
varp frá hátíðasal Hásköians: —
Biskup Islands setur prestastéfn- ;
una og flytur ársskýrslú siiia. 19.30
Tónleikar. Óperulög (pi.) 20.30 •
Synoduserindi í Dómkirkjunni: ,
Spámenn Gamlatestamentisins (sr.
Guðmundúr-^Sveinsson ■. á Hva.nn- .
eyri). 21.00' Útvarpskórinn syngur;
Róbert A. Ottóssoín stjórnar (pl.) -
21.20 UppleStur: Saga Gústafs Vasa
eftir Jacob RIis, í þýðingu séra
Rögnvalds Péturssoúar; síðari lest
ur (Einar Guðmundsson kennari
les). 21:40 Tónleikar (plötur). 21.45
Frásaga: Hvítasunnudagur 1935
(Magnús Magnússon frá Ólafs-
firði). 22.10 Danslög (pl.) til 22.30. •
Iþróttablaöið, júní-
heftið 1951, _er kom .
ið út. Efni:. Af-
reksmenn.' Fyrsta
lándsmót i hjól-
reiðum. Landsþjálf
arinn varaf við of mikilii -bjart- -
sýni í landskeppninni Island-Dan-
mörk-Noregur. Vormót 1R og EÓP
mótið. Stangarstökicið. Alþjóða-Ól-
ympiuþingið. Blindur og einhentur
synti hann 200 metrana. Myndir,
sem lesendur veija. Þýzkalandsför .
Fram-Víkings. Innlent og erlent.
íslandsglíman 1951. Fréttir frá
ISI o. fl.
Hinn 17. júni
voru.gefin sam-
an í hjónaband
af sr. Jakob
J ónssyni, ung-
frú Sigurfljóð
Jónsdóttir og Ögmundur Sigurðs-
son. Heimili þeirra er að Eiríks-
götu 23. —
SkemmtiferS
til Stykkishólms, Flateyjar og
inn um Breiðafjarðareyjar er fyr- •
irhuguð hjá Breiðfirðingafélaginu
um næstu helgi og kvikmyndun
framkvæmd ef veður leyfir. Áætl-
að er að leggja áf stað úr Rvílc
kl. 13.30 á laugardag n. k. og
koma aftur eftir miðnætti á sunnu
dag. Á þessum tíma er ætlast til
að farið verði um Stykkishólm,
vestur í Breiðafjarðareyjar með
aðalviðkomu í Flatey. Einnig mun
verða farið um fleiri eyjar með
flóabátnurh Baldri. Loks verður
svo gengið á Helgafell. — Allar
nánari upplýsingar nm ferðina
fást í síma 5593 og 3837.
Nýlega opinberuðu
trúlofun sina ung-
frú Auður Böðv-
arsdóttir frá Bildu-
_ dal og Héðinn
*'• Finnbogáson, cand,
jur. — 17. júní opinberuðu trú-
lofun sína Kristín Snorradóttir Ási
Ytri-Njarðvík og Eyjólfur Vil-
mundarson, hílstjóri, Keflavík. —■
Næturlæknlr er í læknavarð-
stofunni, simi 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki. —- Sími Í760.
Fundur kl. 8,30 í'kvöld
á venjul. stað. Stundvísi.
Ríkisskip
Hekla er í Rvík; fer þaðan ann-
að kvöld til Glasgow. Esja er á
Austfjörðum á suðurleið. Herðu-
breið fer frá Rvik í kvöld austur
um land til Siglufjarðar. Skjald-
breið er I Rvik; fer þaðan annað
kvöld til Skagafjarðar og Eyja-
fjarðarhafna. Þyrill er á leið til
Vestmannaeyja.. Ármann fór frá
Rvík í gærkvöld til Vestmanna-
eyja.
Eimskip ,
Brúa.rfoss er í Hamborg. Detti-
fóss fór frá Flateyri um hádegi i
gær til Þingéyrar og Patreksfjarð-
ar. Gcrðafoss fór frá Rvík 16. þm.
til Hamborgar. Gullfoss fór frá
Leith 18. þm. til Rvikur. Lagarfoss
fór frá Hull 16. þm.; væntan-
legur til Rvíkur í gærkvöld. Sel-
foss og Kabla eru í Rvík. Trölla-
foss kom til Rvíkur í gær frá Hali-
fax. Vollen lestar í hull um þessar
mundir.
Slvipadeild SIS
Hvassafell fer frá Ibiza í kvöld
áleiðis til Islands. Arnarfell fer
væntanlega frá Cartagena í dag
áleiðis tii Islands. Jökulfell kem-
ur til New Orleans í dag frá Gua-
yaquil í Ecuador.
Flugfélag Islands.
1 dag eru ráðgerðar flugferðir Munið sýninguna „lsland í aug-
til Akureyrar (2 ferðir), Vest- um barna“ I Listvinasalnum við
mannaeyja, Sauðárkróks, Helli- Freyjugötu.
sands, Siglufjarðar, isáfjarðar og V'- 1
Hólmavíkur. Á morgun eru áætl- _______________________________,
aðar flugferðir til Akureyrar, Vest
mannaeyja, Reyðarfjarðar, Fá-
skrúðsfjarðar, Sauðárkróks, Kópa-
te-r%- kom U1 Djúpuvíkur í gætmorg- í
Pra Siglufirði Vérður flogið til Ól-
afsfjarðar. - Gullfáxi kom frá un með 400 tonn af karfa tn:
London í gærkvöldi, bræðslu.
i«INM
Jón forseti