Þjóðviljinn - 02.08.1951, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 02.08.1951, Blaðsíða 5
— Fimmtudagui- 2. ágúst 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Raforka Laxárvirkjunarinnar nýju 12 þús. kö. Stöðin væntanlega tekin í notkun haustið 1952 I SUMAR er unnið að nýrri stórvirkjun Laxár í S.-Þingeyjar- sýslu hjá Brúum í Aðaidal. Er gert ráð fyrir að orkuver þetta verði tilbúið haustið 1952, en þaðan fá Akureyri, Húsavík, Hjalt- cyri, Dalvík og sveitirnar frá Laxá til Akureyrar raforku. Með hinni nýju virkjun mun raforkan frá Laxá aukast um 12 þúsund hestöfl eða %, þvi stöðin sem þar er nú framleiðir aðeins 6 þús- und liestöfl. Á síðustu árum hefur rafmagnsskorturinn staðið þróun iðnaðar á Akm-eyri mjög- lyrir þrifum og valdið margháttuðum erfiðleikum. Viðbótai-vh'kjun Laxár var því orðin aðkallandi. Rétt er að það komi fram í þessu sambandi, að á Alþingi 1947 fluttu þeir Steingrímm* Aðalsteinsson og Einar OIgeii*son þingsályktunai-tillögu um að vélar og efni til Laxárvirkjunarinnar yrði tafarlaust keypt og virkjuninni lokið eigi síðar en haustið 1949. AÖ ekki var farið að ráðmn sósíalista þá hefur valdið þjóðhmi gifnr- legu tjóni, því sýnt er að kostnaður \ið virkjunarfram- Frá virkjimarframkvæmdunum við Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu. — Til hægri sést bráðabirgða kvæmdirnar fer langt fram úr áætJun. ' stíflan í ánni. Óháð eldri virkjun Laxár. Hér verður um sjálfstæða virkjun að ræða, óháða þeirri sem reist var á sama stað ár- in 1938—’39, vatnsmagn Laxár verður í annað sinn liagnýtt sem orkugjafi, og betur en áð- ur. Ný stífla verður sett í ána., spölkom neðan við gamla stöðv arhúsið, ný þrýstivatnspípa lögð og nýtt stöðvarhús byggt í gljúfrinu neðan \ið brýrnar á ánni. Dálítil uppistaða myndast við stífluna og verður því að færa veginn, sem áður lá óhultur fram gljúfrið, nokkuð upp í gljúfurbarminn að austan. Er það mikið verk því sprengja þarf drjúgum úr barminum os hlaða háa vegarbrún. Er það verk komið nokkuð áleiðis. Krapstíflur — víti sem varast skal. I stórhríðum og frosthörkum hefur reynzt hið versta verk að verjast krapstíflum við inntak þrýstivatnspípu Laxárstöðvar- innar. Stundum hefur vatn þrot ið svo af þeim sökum, að straum laust hefur orðið um stundar- sakir. Til að reyna að fjTÍr- byggja áð svo geti einnig farið um nýju virkjunina, verður nýja stíflan nokkuð frábrugðin þeirri eldri, og eru breytingarn- ar gerðar með hliðsjón af þeim rejmslu sem fengizt hef- ur \úð Laxá. Ein stærsta þrýstivatns- leiðsla í heimi. Frá stíflunni austanverðri verður lögð 350 metra löng þrýstivatnspípa úr timbri niður gljúfrið að vatnsjöfnunarturni, sem reisa skal á gljúfurbarmin- um ofan við stöðvarhúsið nýja. Leiðsla þessi verður e. t. v. stærsta þrýstivatnsleiðsla heims ins eða a. m. k. í tölu þeirra stærstu. Hún verður 4 metrar í þvermál. Úr. vatnsjöfnunartuminum rennur vatnið um 40 m langa stálpípu að stöðvarhúsinu, en þar verður sett niður ein véla- samstæða, sem framleiðir 12 þús. hestafla orku. Verkið hafið áður en voraði Vinna við Laxárvirkjunina nýju hófst í vetur um mánaða- mótin marz-apríl. Vetrarríki var þá enn mikið í Þingeyjarsýslu og olli það töfum við ýmsar undirbúningsframkvæmdir. Mik- ill snjór var enn á vegum, og dráttarvélar og sleðar aðaltækin til aðdrátta. Voru verkamenn frá Brúum tvo daga að komast til Húsavíkur með ökutæki sín, leið sem venjulega er farin í bif reið á skemmri tíma en einni klukkustund sé vegurinn góður. Á kvöldin fóru verkamennirn- ir í skíðaferðir, enda var sam- felld skíðabrekka frá heiðar- brún og ofan að skálunum við ána. 70—80 manns vinim að framkvæmdunum. I fyrsta vinnuflokknum voru aðeins 15 meim. Byrjuðu þeir á vegagerð og að sprengja og grafa fyrir stíflunni. Vinna var aðallega unnið að því að sprengja fyrir stíflunni, þrýsti vatnspípunni og stöðvarhúsinu. Bráðabirgðastífla úr grjóti og timbri hefur verið sett í ána til að veita henni frá austur- bakkanum þar sem unnið er að hinni varanlegu stíflu. Byrjað var að steypa undirstöður kring um 10. júlí og 18. s.m. var búið að slá upp mótum fyrir stífl- unni í gljúfurbarminum aö aust anverðu við ána. Hér á mjTidinni sjást skálar fólksins, sem vinnur að virkjunar- framkvæmdunum. Svefnskálinn er til hægri, hófst þó ekki í stórum stíl fyrr en í byrjun maí. Hefur starfs- mönnum verið að smáf jölga síð an og nú munu 70—80 manns vinna hjá Brúum vegna þessara framkvæmda. Aðallega unnið að sprengingum. Fram um miðjan júlímánuð Annar vatnsvarnargarður hef- ur verið byggður neðar í gljúfr inu, þar sem reisa á stcðvar- hús. Hann hefur þó ek’ki komið að fullum notum því mikið vatn hefur komið upp í húsgrunnin- um, seytlað gegnum grýttan og sendinn árbakkann. Veldur það skiljanlega miklum erfiðleikum við húsbygginguna. Stoð h.f. annast fram- kvæmdirnar. Byggingafélagið Stoð h. f. Reykjavík hefur tekið að sér þessar framkvæmdir. Verkfræð- ingur félagsins á staðnum er Eyvindur Valdimarsson, yfir- verkstjóri Gísli Þorleifsson og yfirsmiður Guðleifur Guðmunds son. Að hálfu Rafmagnsveitna ríkisins hafa verkfræðingarnir Eiríkur Briem og Sigurður Thór oddser. yfirstjórn verksins með höndum, en Rögnvaldur Þorláks son, byggingaverkfræðingur, annast daglegt eftirlit með fram kvæmdunum. Skálabyggingar hjá Brúum. Vistarverur verkamanna, og annars starfandi fólks við fram kvæmdir þessar, eni tveir all- stórir skálar byggðir úr timbri. Annar er svefnskáli, hólfaður sundur í 4 manna klefa, en í hinum skálanum er borðsalui'. eldhús. herbergi starfsstúlkmi. og skrifstofa. KÞ stofnar útibú hjá virkjuninni. Þá hefur Kaupfélag Þingey- inga á Húsavik nýlega reisf timburhús hjá Brúum, og opn- aði þa.r verzlunarútibú um miðj an júlí í sumar. Otibússtjóri er Egill Jónasson frá Húsavík. Raforkan frá Laxá aukin mn y3. Eins og fyrr segir verður orka hinnar nýju virkjunar 12 þúsund hestöfl og eykst þá raf- orkan frá Laxá um % því raf- veitan, sem þar er fyrir, hefur aðeins 6 þús. hestafla orkp. Reyndist það vera allsendis ó- nóg raforka fyrir Akureyrarbæ hvað þá næstu sveitir og kaup- tún. Vinna er hafin við lagningu háspeimulínunnar frá Laxá ti! Akureyrar og hafa straurar verið reistir frá Skjálfanda- fljóti og upp á Vaðlaheiði. Verð ur því verki væntanlega lokið í sumar, en vír og einangrun- um komið fyrir næsta sumar. I sumar verður byrjað að leggja raflínur heim á bæi i Aðaldal, en gert er ráð fyrir að sveitirnar frá Laxá vestur að Eyjafirði fái rafmagn frá hinu nýja orkuveri, og auk þess Húsavík, Hjalteyii og Dal- vík. Gert er ráð fyrir að nýja virkjum'n verði tilbúin til notk- unar haustið 1952, én þó því aðeifls að framkvæmdir tefjist ekki vegna slæmrar veðráttu, vélar til stöðvarinnar verði af- hentar í tæka tíð o. s. frv. Um kostnaðarhlið þessara framkværnda er það helzt að segja, að þegar ákveðið var að hef ja þiær var kostnaðurinn áætl aður ca. 44 milljónir króna. Síð an hefur dýrtíð aukizt gífur- lega og því óhætt að fullyrða að kostnaðurinn fer langt fram úr þeirri áætlun, sem upphaf- lega var gerð. A. K. Stöðvarhús og þrýstivatnsleiðsla Laxárvirlíjunarinnai, sem byggð var á árunum 1938—1939.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.