Þjóðviljinn - 26.10.1951, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 26. október 1951
Útgefandi: Sameiningarfloklcur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
FréttEritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Þegar hið ósvífna milljónaokur nokkurra heildsala
varð opinbert bar Þjóðviljinn þegar fram kröfuna um að
nöfn okraranna yrðu birt. Krafa þessi hefur hlotið mjög
almsnnar undirtektir, Tíminn hefur lýst fullum stuðn-
ingi við hana, á síðasta Varðarfundi munaði aðeins einu
atkvæði aö tillaga um nafnabirtingu væri samþykkt —
on hins vegar hefur Alþýöublaöið látiö sér fátt um kröf-
una finnast af einhverjum ástæðum. Minnir sú afstaða
blaðsins á þá staðreynd ao þegar upp hefur komizt fyr-
ir tilverknað Þjóðviljans um ljótustu okurhneyksli í sögu
landsins — saltfiskmálið og olíumálið — skipuðu Alþýðu-
fiokksbroddarnir sér við hlið okraranna!
Þegar heildsalaráðherrann Björn Ólafsson flutti
skýrslu sína um okurmálin var svo að heyra sem kröf-
unni um nafnabirtingu hefði bætzt nýr liðsmaður, því
hann komst þannig að crði í ræöu sinni:
..Dæmin um óhóflega álagningu . . . sýna að innan
vcrzlunarstéttarinnar eru nokkrir aðilar, sem gera stétt
smn: lítinn sóma og eru þess óverðugir að þeim sé sýnt
það traust að trúa þeim fyrir gjaldeyri til vörukaupa.“
Eftir þessa yfirlýsingu gerði almenningur ráð fyrir
að ekki aðeins yrðu nöfn okraranna birt, heldur yrðu
þeir einnig sviptir verzlunarleyfi, þar sem sjálfur Björn
Ólafsson hafði lýst yfir þvf að þeir væru þess ,,óverðugir“
aö þeim væri trúað fyrir gjaldeyri til vörukaupa. En
ekkert slíkt hefur gerzt, og hinir „óverðugu" munu
aldrei hafa haft greiðari aðgang að gjaldeyri en einmitt
nú. eftir að þeir hafa sýnt á ótvíræðan liátt hæfileika sína
á fésýslusviðinu og hafa auk þess ærið fé handa á milli.
Orö Björns Ólafssonar voru aöeins hræsni til þess að
lægja reiði almennings, en honum hefur aldrei til hugar
komið að hrófla á minnsta hátt við ýmsum helztu stuðn-
ingsmönnum íhaldsflokksins, frambjóðendum hans og
eigendum.
En svo einstæð sem hræsni heildsaiaráöherrans er. er
Framsóknarhræsnin ekki síðri. Tíminn heimtar dag eftir
dag að nöfnin séu birt. en hvað gera ráðherrar Fram-
.sóknarflokksins? Þeir hafa nöfnin í fórum sínum. oghvers
vegna birta þeir þau ekki? Hvers vegna tók Eysteinn
.. ónsson ekki þátt í umræðunum á þriðjudaginn var og
las upp nafnalistann? Hvernig hafa fallið atkvæði í ríkis-
ttjórninni um afstöðuna til hinna uppvísu okrara?
Stsfna Framsóknar
Tíminn segir í gær aö það 'sé rétt að afkoma manna
hafi batnað að mun á árunum 1941—47, meðan einingar-
menn höfðu forustu í alþýðusamtökunum og sósíalistar
mótuðu landsstjómina á löngu tímabili. En, bætir Tím-
inn við, þótt vinnandi fólk fengi aukinn hlut af þjóðar-
tekjunum, rann þó bróðurparturinn til auðmannastéttar-
innar. — Þao er vissulega rétt hjá Tímanum að hlutur
alþýðunnar var ekki nægilega ríflegur á þessu tímabili,
þótt hann væri langtum betri en hann hefur nokkru
siimi veriö fyrr og síðar hér á landi, og raunar í flestum
ef ekki öllum öðrum londum heims. Sósíalistaflokkurinn
hafþi ekki næg völd á þessu tímabili og varð m.a. að
berjast við tryltan fjandskap Framsóknarflokksins. Og
hvernig hefði þróunin orðið á þessu tímabili ef Fram-
.sókn h:.fði fengið að ráða?
Árið 1942 gaf Framsóknarflokkurinn út bráðabirgða-
lög sem bönnuðu allar kauphækkanir almennings. Hans
stefna var sem sé sú að launafólk fengi engan hlut af hin-
um stóraúknu þjóðartekjum; þær áttu allar að renna til
auðmannastéttarinnar.
Og flokkurinn vitkaðist ekki. Árið 1944 lagði hann
til opinberlega að allt kaup yrði lækkað með valdboði
og afuröir bænda sömuleiðis. Þá nægöi sem sagt ekki að
auðmannastéttin fengi allan vöxt þjóðarauðsins í sinn
hlut, það átti að skerða stórlega kjör launafólks og bænda
í ofanálag!
Slík var stefna Framsóknar bá og slí'k er hún enn.
Og hvernig halda menn að íslenzkt atvinnulíf og Iífs-
kjör fólksins væru nú ef fjándskapur Framsóknar við ný-
rköpunarstefnuna og umsköpun atvinnulífsins hefði orð-
ið ofan á?
mt n •
„Með svörtum saum“.
Galdra-Leifi skrifar:
„Sæll vertu, Bæjarpóstur!
,,meo svörtum saum“ heyri ég
einhvern segja í strætisvagnin-
um. Við búðarglugga standa
tvær konur. ,,Já, dýrir! En al-
máttugur minn, með svörtum
saum“! —• „Halló! Hvað seg-
irðu? Með svörtum saum“!
kallar heimasætan í símann.
— Hvert í logandi! hugsa ég
með mér, nýkominn i bæinn.
Um hvað er fólkið að tala ? Von
bráðar sé ég að blöðin mora
af aug!ýsingum um rándýra
nylonsokkd „með svörtum
saum“.
★
Stælbind:! Stælbindi!
Hversvegna er það svona ó-
stjórnlega eftirsóknarvert, að
hafa þessa biksvörtu rák aft-
an á káifanum ? Svarti saum-
urinn er þegar farinn að setja
svip á bæinn. Kvenfólk virðist
alveg berfætt, þegar það mætir
manni, en ef það snýr sér við,
sézt svört rák á kálfanum, svip-
uð svörtu röndinni á ýsunni.
— Ekki er ein báran stök hérna
á íslandi: Seint á allsleysisár-
unum komu upp úr kafinu háls-
bindi, prýdd eldrauðum hálf-
mánum, kattarhausum og
kynjamyndum allskonar. Sjald-
an fengust þau í sölubúíum.
En menn gleymdu bæ&i efna-
hag og landslögum og keyptu
þau tolisvikin og á svörtum
markaði fyrir fimmfalt verð.
Einhver æsing og ókyrrð greip
menn þúsundum saman, svo að
þeir gátu ekki án þess verið
að spóka sig með þessar skrípa-
myndir á brjóstinu. Peningarnir
og sóminn urðu þá að fara sína
leið. Stælbindi! Stælbindi! Það
var eins og töfrar fylgdu orð-
inu.
★
Viðskiptasálarfræði.
,,Stælbindin“ hafa glatað til
muna aSdráttarafli sínu síðan
losnaði um innflutningshöftin.
En nú er það „svarti saumur-
inn“ sem töfrar kvenfólkið á
svipaðan hátt og „stælbindin"
æstu karlmenn. Verzlunarstétt-
in (hin bersynduga stétt, eins
og sumir kalla hana) hlýtur'að
beita okkur gjörningum. Hún
getur látið hvaða menn, sem
er, þjóta suður á Keflavíkur-
flugvöll, eða hvert sem er. til
að kaupa hálsbindi með kattar-
haus í trássi við landslög fyrir
fimmfalt verð. Hún getur rugl-
að hverja konu svo í ríminu,
að hún hafi engan sálarfrið,
fyrr en hún hefur fengið þetta
svarta strik aftan á hverja
löpp, fyrir of fjár. — Mér er
sagt, að til sé fræðigrein, sem
nefnist viðskiptasálarfræði, til
að kenna káupsýslumönnum
slægð. En æðið í sambandi við
skrípamynclabindin og svarta
sauminn hiýtur að vera.gjörn-
ingar. — Galdra-Leifi“.
★
Góður fyrirboði.
Á þriðjudaginn var ger’ðist
merkilegur aíburður í skóla-
málum bæjarins, er gagnfræða-
skóli verknámsdeildar tók til
starfa í fyrsta skipti. Skipting
gagnfræðanámsins milli verk-
náms og bóknáms er eitt af
merkilegustu nýmælum skóla-
löggjafarinnar frá 1946. Með
því er pnglingunum veittur
greiðari aðgangur en áður að
afla sér menntunar í samræmi
við eigin þrár og hæfileika
og búa sig á sem gagnlegast-
an hátt undir lífsstarfið. Kenn-
ari, sem mættur var við skóla-
setninguna og hafði áður kennt
undir unglingapróf mörgum
nemendanna er þarna voru áö
hefja nám í gagnfræðaskóla
verknámsdeildar, tjáði mér að
meðal þeirra væru mörg dug-
mestu og gáfuðstu börnin úr
sínum skóla. Þetta er góður fyr-
irboci og virðist sízt benda til
þess að þau börn velji öðrum
fremur verknámið, sem ver eru
fallin til bóknáms, enda væri
slík skipting á engan hátt æski-
leg fyrir þjóðfélagið.
Kíkissklp
Hek'a er á Austfjörðum á norð-
urleið. Esja er í Reykjavík. Herðu
breið er í Reykjavík. Skjaidbreið
fór frá Reykjavik i gærkvöld til
Vestfjarða og Húnaflóa. Þyrill var
í Stykkishó'mi siðdegis í gær á
vesturleið. Ármann á aö fara frá
Reykjavík í dag tii Vestmanna-
eyja.
Skipadeild SíS
Hvassafell fór frá Gdansk 24.10.,
áleiðis til Islands. Arnarfell fer
væntanlega frá Malaga í dag á-
leiðis til Reykjavíkur. Jöku’fell
fer væntanlega frá New Orleans
í dag áleiðis til Cardenas á Cúbu.
Elmskip
Brúarfoss fór frá Rotterdam í
gær til Gautaborgar og Reykja-
víkur. Dettifoss fór frá Hrísey í
gærmorgun til Dalvíkur, væntan-
legur til Akureyrar í gærkvöld.
Goðafoss fór frá N.Y. 19. þm. til
Reykjavlkur. Gullfoss kom til
Leith í gærmorgun 25. þm. fer
þaðan síðdegis í dag 26.10. til R-
víkur. Lagarfoss var • á Þórshöfn
í fyrradag 24. þm., fer þaðan ti!
Borgarfjarðar, Seyðisfjarðar, Reyð
arfjarðar og Reykjavíkur. Reykja-
foss er í Hamborg. Selfoss var
væntanlegur til Ólafsfjarðar síð-
degis í gær, fer þaðan til Húsa-
víkur. Tröilafoss fór frá Halifax
18.10. til Rej'kjavikur. Bravo fór
frá Huli 23.10. tii Reykjavíkur.
Vatnajökul! kom til Reykjavíkur
23.10. frá Antverpen.
Flugfélag Islands:
Innanlandsfiug: í dag er ráð-
gert að fljúga ti! Akureyrar, Vest-
mannaej’ja, Kirkjubæjarklausturs,
Fagurhólsmýrar og Hornafjarðar.
Á morgun er ráðgert að fjúga
til Akurej'rar, Vestmannaej-ja,
Blönduóss, Sauðárkróks og Isa-
fjarðar.
Loftieiðir h. f.:
1 dag verður flogið til Akur-
eyrar, Sauðárkróke, Siglufjarðar
og Vestmannaoyja. Á morgun verð
ur flogið til Akureyrar, Isafjarð-
ar og Vestmannaeyja.
’’ , 8.00—0.00 Morgun-
útvarp. — 10.10
' Veðurfr. 12.10-13.15
y 'V Hádegisútvárp. —
1 ’ \ \ 15.30 Miðdegisút-
varp. — 16.25 Veð-
fregnir. 19,30 Þingfréttir. — Tón-
leikar, 20.30 Útvarpssagan: „Epla-
tréð“ eftir John Galsworthy; IV.
(Þórarinn Guönson læknir), 21.00
Tónleikar: Sónata fyrir trompet
og píanó eftir Armin Kaufmann
(Paul Pampichler og dr. Victor”
Urbancic leika). 21.20 Ávarp
(Jakob Kristinsson fyrrv. fræðslu-
málastj.). 21.45 Útvarpsþáttur:
Formaður útvarpsráðs, Ólafur Jó-
hannesson prófessor, ræðir um
vetrardagskrána. 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 Vinsæl !ög. —
23.30 Dagskrárlok.
Sjötíu og fimm ára er í dag Þór-
unn Káradóttir, Hverfisgötu 83,
sem margir e’dri og yngl-i Rej’k-
víkingar munu kannast við sem
mikinn dýravin og hve sporlétt
hún er, bó aldur færist yfir.
Ný!ega hafa
opinberað trúlofun
sína ungfrú Bára
Vilbergs Bankastr.
14 og Bjarni Is-
leifsson, Túng. 41.
Vörubílstjórafélagið Þróttur
heldur fund í húsi félagsins við
Rauðarárstíg í kvöld kl. 8.30. Rætt
verður um trj'ggingamál o. fl.
Imyndunarveikin verður sýnd í
Þjóðieikhúsinu í kvöld fyrir með-
limi Iðju, fólags verksmiðjufólks.
mmsmam Nýlega voru
gefin saman í
llf'liðÍASx.iIi hjónaband af
séra Garðari
Svavarssyni
ungfrú Jj’tte
Lund Andersen og Björge Vilhelm
Helgason, járnsmiður. — Heimili
þeirra er í Skipasundi 51. —
100 ára. Guðrún Törfadóttir, Skipa-
sundi 18, varð 100 ára í gær.
I ... - .. »•,
Trygging rit gefið
út af Samvir.nu-
tryggingum, er ný-
komið út og var
nokkuð sagt frá
því í blaðinu í
fyrrad., aðallega þeim upplýsingum
að s. 1. 5 ár hafa verið greiddar
5 milljónir króna í bætur fyrir
tjón á bifreiðum, og að talið er
að hægt hefði verið að komast
hjá þremur af hverjum fjórum á-
rekstrum með meiri gætni við
akstur. 1 ritinu er fyrst grein um
stofnun og starf Samvinnutrygg-
inga, en féiagið varð fimm ára
á þessu hausti, og er það nú þeg-
ar orðið annað stærsta trygginga-
félag landsins, en jafnframt hið
eina, sem starfar á samvinnu-
grundve’li. Hafa Samvinnutrygg-
ingar greitt 532 905 krónur í arð
til hinna trj'ggðu undanfarin
tvö ár. Þá ef í ritinu greinin um
orsök bifreiðaárekstra og eru i
henni margar fróðlegar upplýs-
ingar, er byggjast á rej’nslu bif-
reiðadeildar félagsins, sem nú
trj'ggir 3500 bifreiðar, eða þriðju
hverja bifreið i landinu. Enn má
nefna greinina „Hvers vegna
skyldi ég líftryggja mig?“ þar
sem rætt er um helztu kosti og
galla. líftrygginga. og sýnt fram
á þýðingu þeirra fyrir éinstak'ing-
inn. Þá er skýrt frá athygiisverðu
máii vegna bifreiðaáreksturs, sem
kom fyrir dómstóla hér, og er
lesandinn beðinn að dæma í mál-
inu eftir kunnáttu sinni á um-
ferðareglunum, en aftar i ritinu
er skýrt frá niðurstöðu dómstól-
anna. Þá er grein um endurtrygg-
ingar og skju-t frá gildi þeirra
en þess má geta sem dæmis, að
einn nýsköpunartogari er endur-
tryggður hjá 70—80 endurtryggj-
éndum og eru þessar tryggingar
flókið og alþjóðlegt öryggiskerfi
tryggingarfélaga. Að lokum er
grein um dýrtið- og. brunatrygg-
ingar, og er þar rætt um þörfina
á því að tryggingarupphæð á inn-
búi standi i eö’ilegu sambandi við
raunverulegt verð innbúsins á
hverjum tíma, ef tryggingin á að
nægja til að bæta tjón á því. Rit
þetta er prenað í Eddu í þrem
litum og hið snotrasta að ölium
frágangi. Samvinnutrj’ggingar
hafa áður gefið út bókina „Ör-
uggur akstur“ fyrir bifreiða-
stjóra og bifreiðaeigendur.
I f Iljómmum Sig-
f ríði Jónsdóttur og
Gísla Einarssyni,
Bergstaðastræti 12,
fæddist 14 marka
sonur í gær.
Saumanámslceið sem hefst 6. nóv.
á vegum þvottakvennaféiagsins
Freyju er jafnt fyrir utanfé ags-
lconur. — Ágætt tækifæri til að
sauma fyrir jólin.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskó'anum. —
Simx 5030.
Næturvörður er i Ingó’fsapóteki.
— Simi 1330.
Þeir sem fengið hafa
muni á sýningú MÍR
geta vitjað þeirra á lesstofu fé-
lagsins, Þingholtsstræti 27, lcl. 5—7
fram að helgi. Ekki verður hægt
að hafa iesstofuna opna á öðrum
tímurrt fyrst um sinn.
Húsmæður í MÍR.
Framhaldsstofnfundurinn verð-
ur í ’ dag kl. 5 e. h. á Þórsgötu 1,