Þjóðviljinn - 08.01.1952, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 8. janúar 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (3
RlTSTJÓRl: FRÍMANN HELGASON
BB
BÆNDAGLÍMA" f HANDKNATTLEIK
Handknattleiksráð Reykja-
víkur hefur efnt til handknatt-
leiksmóts sem kalla mætti
bændaglímu i handknattleik.
Hefur bænum verið skipt nið-
ur í fjóra hluta, og einn ,bóndi‘
kjörinn til að velja sér sveit
til keppni úr sínum bæjarhluta.
Síðan keppa þessar f jórar sveit-
,Ernirnir' unnu
Í.R. 65:16
Flokkur handknattleiksmanna
úr háskóla einum í Washing-
!on, er nefnir sig „Ernina''
kom hingað til lands að til-
•hlutan manna úr setuliðinu i
Keflavík. ÍR fékk leyfi til að
keppa við lið þetta og fór sú
keppni fram s. 1. föstudag í
húsi ÍBR að Háiogalandi. Ben.
G. Waage ávarpaði gesti, en
Ingólfur Steinsson kynnti þá.
Byrjuðu stúdentarnir á því að
sýna ýmsar listir leiksins og
duldist engum a'ð leikni þeirra
var mikil. Gaf þjálfarinn, S.
Cassel, skýringar, sem hefði átt
að túlka»á íslenzku þrátt fyrir
margt enskumæiandi fólk.
Sýningar þessar gengu þó
ekki truflanalaust, þvi ljósin
slokknúðu hvað eftir ánnað þar
til loks að tókst að fá þau til
að loga og tók þetta 30—4-9
mín- Virtust stofnöryggi brenna
sundur hvað eftir annað. Dag-
inn áður varð áð fresta þess-
ari keppni vegna þess að frost
hafði rifið hitapipur hússins,
að því að sagt var, enda var
svo að ekkert bað var til fyrir
keppendur eftir leikinn. Þó
ýmsir kippi sér ekki upp við
lélegt bað að Hálogalandi, þá
vir'ðist að hér hafi verið um
mistök að ræða er pipurnar
sprungu og ekki virðist van-
þörf á að athuga rafkerfið
í húsinu einnig. Þrátt fyrir allt
þetta var leikur þeirra góð
skemmtun okkur óbreyttum á-
horfendum; leikni þeirra, hraði
og öryggi í ölium köstum,
hvort það var manna á milli
eða í körfu. Máttu iR-ingar
sín ekki mikils móti þeim. og
þó var bezti maður þeirra
Bandaríkjamaður og mun hann
hafa gefið helming þeirra stiga
er IR fékk. — IR hefur líka
áðeins æft leikinn í eitt ár,
svo ekki er rétt að krefjast
of mikils. Kennari félagsins
er E. Mikson. Endaði leikur-
inn méð því að stúdentarnir
fengu 65 stig, en IR 12. —
I.eikur þessi virðist vera að
ryðjá sér til rúms á Norður-
iöndum og víðar í Evrópu,
og er af mörgum talinn skæð-
ur keppinautur handknattieiks-
ins, sérstaklega eftir að hann
varð eins kyrrstæður og þving-
aður og hann er nú orðinn víð-
ast hvar. Annað atriði er það
líka sem gerir hann skemmti-
legri, bæði fyrir áhorfendur
og leikmenn, og það eru hmar
ströngu • reglur sem leiknum
eru settar, og a- m. k, þeir
tveir dómarár !sem dæmdr, og
báðir eru Bandaríkjamenn, virt-
ust þora að fylgja út í yztu
æsar. .
Eigi þessi leikur eftir að festa
rætur hér, sem mjög er lík-
legt, væri það mikils virði
ir, ein við allar og allar við
eina. Sigurvegararnir fá hver
um sig minnispening til minja
um þetta afmælismót HKRR.
Ákveðið er að fram fari tveir
leikir á kvöldi, sem eru 2x25
mín. og fara þeir fram í íþrótta
húsi IBR og hefjast leikirnir
kl. 8 öll kvöldin. Fyrsta kvöld-
ið ganga öll liðin fylktu liði
inn í salinn, en þar ávarpar
formaður HKRR keppendur og
áhorfendur.
„Bændur“ hafa nú valið lið
sin, og gera má ráð fyrir að
þeir hafi æft þau og kannað
í laumi.
Skipting bæjarins er þessi:
Vesturbær, jsem miðast við
Lækjargötu, þar er „bóndi“
Ó!i B. Jónsson; er lið hans
skipað þessum mönnum: Axei
Einarsson (Vík), Sigfús Ein-
arsson (Árm), Orri Gunnars-
son (Fram), Guðm. Georgsson.
Guðm. Árnason, Frímann Gunn-
laugsson, Magnús Georgsson,
Hörður Felixsson, Sigurður
Bergsson og Þórir Þorsteins-
son, allir úr KR.
Mið-austurbær frá Lækjar-
götu að Snorrabraut. „Bóndi“
er þar Sigur'ður Magnússon. og
teflir hann fram þessu liði:
Stefán Hallgrímsson (Val),
Eðlilegur veðrahamur!
„Þetta er nú ljóti veðraham-
urinn“, sagði ég við kunningja
minn á laugardaginn.
„Nú, hvað er þetta maður,
þetta er allt eðlilegt“.
„Nú. hvernig þá?“
„Veiztu ekki, a'ð það á að
verða brenna og álfadans á
íþróttavellinum á morgun, og
veiztu ekki að það er búið að
hreinsa svellið á Tjörninni".
Það rann upp fyrir mér ljós!
Gissur Gissurarson (Vík),
Bragi Jónsson (Val), Halldór
Halldórsson (Val), Kjartan
Magnússon (Árm), Snorri Ói-
afsson (Árm), Þórir Tryggva-
son (Vík), Ásgeir Magnússi.n
(Vík), Sigurður Norðdahl (A),
Haukur Bjarnason (Á).
Hlíðar, Teigar, Rauðarárholt
og Túnin. I þessum hluta er
Hafst. Guðmundsson ,,bóndi“,
og er lið hans þannig: Sól-
mundur Jónsson (Val), Jón Er-
lendsson (Á), Valur Bene-
diktsson (Val), Magnús Þór-
arinsson (Á), Reynir Þórðar-
son (Vík), Gunnar Torfason
(Á), Pálmi Gunnarsson (Vik).
Ríkharður Kristjánsson (Vík),
Sig. Jörgensson (Á).
Kleppsholt, Vogar og úthv.
„Bóndi“ þessara „dreifðu
byggða“ er Sveinn Heigason.
Lið hans er skipa'ð þessum
ungu mönnum: Helgi Hallgríms
son (IR), Halldór Lárusson
(Val), Rafn. Stefánsson (R).
Þórður B. Sigurðsson (KR).
Sigurhans Hjartarson (Val),
Þorleifur Einarsson (IR), Hi’rn
ar Magnússon (Val), Magnús
Sveinbjörnsson (Val), Tómas
Lárusson (Afturelding), Hreinn
Hjartarson (Val).
Þá er -áformað að kvenna-
sveitir úr Austur- og Vesturbæ
kepDÍ. Nöfn þeirra kvenna se.m
þar keppa hefur Iþróttasíðunni
ekki tekizt að fá uppgefia.
Mun þetta hreint herbragð og
á víst að vera hernaðarleyndar-
má] fram á siðustu stund.
Enda láta „bændur“ þessara
keppniskvenna ekki að sér
hæða. en þeir eru: Hannes
SiguTðsson fyrir Vesturbæ og
Valgeir Ársælsson fyrir Aust-
urbæ. Eins og fyrr hefur ver-
ið sagt hér í blaðinu fara
leikir þessir fram á fimmtudag,
föstudag og sunnudag n. k.
VerSur brun lagf niSur sem
keppnisgrein?
Þeir sem hafa fylgzt með
fréttum af erlendum skíða-
mönnum sem æfa mjög brun,
verða varir við tíð meiðsli og
slys. Eru þetta þó sérstaklega
þeir sem æfa í Ölpunum. A
stuttum tíma hafa borizt frétt-
ir af mörgum þekktum brun-
mönnum, sem hafa slasazt, og
einn lét lífið. Má í þessu sam-
bandi nefna Svíann Olle Dahl-
mann. Þrir Italir voru lagðir
á sjúkrahús, þ. á. m. einn sem
talinn var hafa sigurmöguleika,
Monte að nafni- Ameríkumað-
urinn Griffiths lét lífið eftir
fyrir íþróttina og framþróun
hennar að sjá bæði keppendur
og dómara í starfi og leik, sem
kunna leik og regrir. Til gam-
ans fyrir þá, seni eru ókunr.-
ugir leik þessuru eru tveir
dómarar í hverjum leik sem
geta stöðvað leik, þó er ann-
ar aðaldómari. Þeim til aðstoð-
ar skulu vera tveiv tímave'ðir
og tveir ritarár. Leikbrot eru
skrifuð n: ui og eftir ákveðri i
fjölcía L'ota ska. leikmaður
gerður b>-ottrækur úr leik. —
Anmrs c-ru reglurnar nákvæm-
ar og allf'cknar. Þær komu út
á í.'lenzku á s. 1. hausti hjá
Bókaútgáfv. Menningarsjóðs. að
tilhlutan ISl.
meiðsli í bruni. Svisslending-
ingurinn Othmar Schneider
hefur lika verið lagður á
Framhatd á 7. síðu.
Faxa og Eldborgu rak á land
í Borgarnesi
Borgarnesi. Frá fréttaritara Þjóðviljans
Eldborgin er nú kornin upp á land þar sem smábátarnir
voru settir áður fyrr.
Togarann Faxa ralc hér á land fyrir vestan Borgareyrar.
30 þús. lítrar mjólkur bíða flutnings liéðan.
Eldborgin liggur nú það hátt hafi fokið þak af hlöðu og
að gráfa þarf feiknarmikið til
þess að sjór falli undir hana.
Mönnum er ráðgáta hvernig
togarinn Faxi hefur flotið yfir
öll skerin véstan innsiglingar-
innar, þar sem hann bar að
landi. Hann liggur nú í fjör-
unni á Rauðanesi.
Fréttir hafa borizt af
skemmdum á húsum víðsvegar
um Mýrar og Borgarfjörð, en
eru enn noþkuð óljósar. Víst
má þó telja að á Álftárósi
fjósi og ennfremur fokið þök á
Álftártungu og Hofstöðum.
Ennfremur fauk liluti af þaki
á hlöðu á Hvanneyri og víðar
munu hafa orðið skemmdir.
Gróðurhús munu hafa skemmzt
mikið.
Mjólkurlaust í dag?
Framhald af 8. síðu.
lítrar sunnan með sjó og mjólk
frá iBlikastaðabúinu í Mosfell-
sveit, en engum stað öðrum í
Mosfellsrveit.
Engin mjólk hefur komið frá
Borgamesi í þrjá daga vegna
þess að ekki var talið fært að
komast sjóleiðis til Borgarness
---Hvalfjarðarvegurinn hefur
verið lokað síðan eftir jól.
Þrjár íkviknanir
Slökkviliðið var kvatt út
þrisvar sinnum í gær. Hvergi
var um alvarlegan bruna að
ræða, og skemmdir urðu ekki
miklar.
Fyrst kviknaði í íshúsi SlS
á Kirkjusandi. Hafði kviknað
í tróði útfrá raflögn. Varð að
rifa nokkuð af þaki og þiljum
til að komást fyrir eldinn.
Varð hann mjög fljótt slökkt-
ur, og urðu ekki teljandi
skemmdir að öðru leyti.
Næst var slökkviliðið kvatt
að Arnargötu 15, á Grímsstað-
holti. Stóð þar eldur upp úr
iþekjunni þegar að var komið.
Hafði kviknað frá útilulct er
brotnað hafði í óveðrinu. Eld-
urinn var fljótlega slökktur, cn
skemmdir urðu nokkrar bæði
af eldi og vatni. Eigandi húss-
ins er Kristján Kjartansson, og
munu tvær fjölskyldur búa í
húsinu.
I Sætúni 8 hafði allmikið af
hálmi verið út í porti, og síðan
kveikt í honum. Virtist þetta
allmikill eldur, en ekki vann
hann neitt tjón.
Símasambandið
Framhald af 8. síðu.
á suðurlandslínunni frá Seyð-
isfirði allt vestur til Víkur í
Mýrdal, og hefur bilunin á þess
ari línu því orðið undan Eyja-
fjöllum.
Vesturland.
Um tíma í gær varð sam-
bandslaust við Isafjörð, en svo
komst á samband milli Isa-
fjarðar og Hólmavíkur. Sam-
band var til Stykkishólms um
Hrútafjörð.
Hægt að koma skeytum.
Þó ekkj væri hægt að fá
talsamband við marga staði í
gær var þó mjög víða hægt að
koma áfram skeytum, sem sím-
stöðvarnar gátu selflutt áfram.
Aukið
orðaforðann
Ráðningar
funl: B) eldur, sbr. funheitur.
Funi merkir einnig íijótlynd-
ur maður.
hallur: D) steinn, sbr. hella
og höll, sem mun upphafl.
merkja hús úr steini.
búlki: A) vöruhlaði (á þilfari
skips).
keis* A) ístra, sbr. norskuna
keis = beygja.
unnur: C) alda.
gýgur: A) tröllkona.
lungur: C) hestur, frummerk-
ing, hinn létti.
! hjarl: D) land, sbr. „Oss lízt
illr at kyssa jarl, sás ræðr fyr
hjarli“.
þeli: A) klaki.
drösull: A) hestur, sbr. „Drott-
inn leiði drösulinn minn“.
ljóri: A) gluggi, skylt ljós.
ben: A) sár.
Frumvarp íyrir Alþingi um ráðstöíun 38 milljóna aí tekjuafganginum
Vextirnir af lánum til Ræktunarsjóðs-
og byggingarsj óðanna alltof háir
Frumvarp ríkisstjórnarinnar „um ráöstöfun á greiðslu-
afgangi ríkissjóðs áriö 1951“ var til 1. umr. í neðri deild
í gær, og uröu nokkurar umræöur.
Einar Olgeirsson boöaði breytingatillögur af hálfu
Sósíalistaflokksins og deildi fast á þá ráöstöfun ríkis-
istjórnarinnar að ætla aö hafa jafnháa vexti og til er
tekiö í frumvarpinu, 5 V2 %, á lánum til Ræktunarsjóös,
byggingarsjóða og til útrýmingar heilsuspillandi íbúöum,
en Eysteinn taldi á því hina mestu nauösyn.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
er þannig:
1. gr. Ríkisstjórninni er
heimilt að verja 38 millj. króna
áf tekjum ríkissjóðs árið 1951
sem hér segir:
1. Að lána Ræktunarsjóði og
Byggingarsjóði 15 millj. kr.;
2. Að lána byggingarsjóði
verkamanna 4 millj. kr.;
3. Að lána sveitarfólögum til
' útrýmingar heilSuspillandi
íbúða, skv. III. kafla -laga
nr. 44/1946 4 millj. kr.;
4. Að lána til byggingar smá-
íbúða 4 millj. kr.;
5. Að kaupa hlutabréf í Iðn-
banka Islands
millj. kr.;
h.f. fyrir 3
6. Að greiða upp í hlut ríkis-
sjóðs af stofnkostnaði við
skóla, sem þegar hafa verið
byggðir 5 millj. kr.;
7. Að greiða upp í hluta ríkis-
sjóðs af lcostnaði við hafn-
argerðir sem þegar hafa
verið fiamkvæmdar 2 millj.
kr.;
8. Að lána veðdeild Búnaðar-
banka Islands 1 millj. kr.;
Vextir af lánum, skv. 1., 2.,
3., 4. og 8. tölulið skulu vera
5V2% á ári og lánstími 20 ár.
2. gr. Ríkisstjórninni er
heimilt, ef hentara þykir, að
Framhald á 7. síðu.