Þjóðviljinn - 12.01.1952, Blaðsíða 8
Bezto sctlo íslenzks togora
seldi 2982 kit fyrir 16019 sterlhigspimd
Laugardagur 12. janúar 1952 — 17. árgangur — 9. tölublað
í fyrradag seldi Elliði frá Sigluíirði afla sinn í
Grimsby, 2982 kit fyrir 16019 sterlingspund. Er
þetta metsala, bezta sala miðað við aflamagn.
Neptúnus átti metsöluna á s.l. ári. Seldi í. febr.
í fyrra 3861 kit fyrir 16479 sterlingspund, eða 460
pundum meira en Elliði seldi nú, en afli Neptúnus-
ar var líka 879 kittum meiri.
Geir seldi í dag 2662 kit
fyrir 9413 sterlingspund. Marz
átti að selja í dag, en í gær
kom óstaðfest frétt um að
hann hefði selt helming aflans,
um 1500 kit fyrir 5 þús. pund
og myndi selja hinn helminginn
í dag.
Fylkir fór út á ísfiskveiðar
í gærmorgun. Karlsefni kom
inn af veiðum í gærmorgun og
sigldi. Hallveig Fróðadóttir
kom úr siglingu.
Ráðstafanir sem miða að því að
þyngja skatta- og gjaldabyrðina
Áki Jakobsson leggur til að frumvarpinu um endur-
skoðun fasteignamatsins verði vísað frá
Eysteinn Jónsson o. fl. hafa lagt mikið kapp á að keyra
gegnum Alþingi frumvarp um endurskoðun fasteignamatsins,
en allmiklar umræður hafa orðið um málið og eru skoðanir
skiptar.
Áki Jakobsson og Einar Olgeirsson vöruðu við því að sam-
þykkja frumvarpið þar sem það hefði mikla hækkun á opin-
berum gjöldum í för með sér.
Flytur Áki svohljóðandl rök-
studda dagskrá í málinu:
„Með því að frv. það, sem
hér liggur fyrir, hefur all-
verulega hækkun á opinber-
um gjöldum í för með sér,
ef að lögum verður, ofan á
skatía- og gjaldabyrði, sem
er orðin það þung að allur
þorri manna rís ekki undir
henni, og með því að frv.
leysir ekki fjárhagsvanda-
mál bæjar- og sveitarfélaga,
tekur deifdin fyrir næsta
mál á dagskrá“.
Það spaugilega atvik gerðist
í ' gær að Jóhann Hafstein
flutti aðra „rökstudda" dag-
skrá um frávísun frumvarps-
ins, með þeim rökstuðningi, að
hann sjálfur hafi flutt þings-
ályktunartillögu um allsherj-
arendurskoðun skattalaga og
fleira!
Áki benti honum á að um þá
tillögu væri ekki einu sinni
komin umsögn nefndar og væri
heimskulegt að vitna í flutning
hennar sem rökstuðning að
frávísun málsins.
Jóhann Hafstein er búinn að
tala oft í málinu, með þeim
ömurlega hætti er hann sjálfur
lýsti fyrir nokkrum dögum, er
hann kvartaði sáran undan því
hvað ræður sinar væru léleg-
ar í þingtíðindunum.
Umræðu um málið var frest-
að.
Fulltrúaráðs- og trúnaðarmanna-
fundur verður á mánudaginn
Fulltrúaráð og trúnaðarmannaráð Sósíalistafélags
Reykjavíkur heldur sameiginlegan fund að Þórsgötu 1
mánudaginn 14. jan. bl. 8,30 síðdegis.
Fundarefni:
1. VERKALÝÐSMÁL.
2. ATVINNUMÁL.
3. NÆSTU VERKEFNI FLOKKSINS.
Nauðsynlegt er að fulltrúaráðsmenn og trúnaðarmenn
1
215 atvinnislausir á Siglufirði
j! Atvinnuleysisskráning hefur farið fram á Siglufirði á j!
;! vegum atvinnumálanefndar kaupstaðarins. ;!
215 mættu til skráningar, þar af 131 fjölskyldumaður
I; með 394 á framfæri sínu. !;
!; 18 hafa von um viimu í þessum mánuði. 62 eru farn- !;
;; ir eða á förum suður á land í atvinnuleit. j;
^Þióðleikhúsið:
Amia Cfaristie næsti leikur
Ánna Christie, eftir Eugene O’Neill, verður frumsýnd í Þjóð-
leikhúsinu 15. þ.m. Áðalhlutverkin leika Herdís Þorvaldsdóttir,
Valur Gíslason og Rúrik Haraldsson. Jafnframt verður það af-
mælissýning í tilefni af 25 ára leikafmælj Vals Gíslasonar og
þennan sama dag á hann einnig fimmtugsafmæli.
Anna Christie er fyrsti leikurinn sem Þjóðleikhúsið sýnir
eftir E. O’NeilI, en Leikfélagið sýndi fyrir nokkrum árum gam-
anleik hans: Ég man þá tíð.
Handknattleiks-
keppnin
,,Bændaglíman“ liófst að
Hálogalandi í fyrrakvöld. Leik-
ar fóru þannig að Austurbær
vann Vesturbæ með 12:11, eft-
ir jafnan og harð'an leik. En
Hlíðarnar unnu Vogana með
10:9. — 1 gærkvöldi fóru leik-
ar þannig að Austurbær vann
Hlíðarnar með 141:11, og það
óvænta skeði að Vesturbær
tapaði fyrir Vogunum með
11:9. — Á sunnudag keppa
Hlíðarnar og Vesturbær, og
Austurbær og Vogar.
Skíéaferðir
skiðafél.
EINS og getið var um í blað-
inu s.l. laugardag, hafa skíða-
félögin hafið sameiginlegar skíða-
ferðir að skálum sínum og að
Lækjarbotnum, en afgreiðslustað-
ur í miðbænum var þá ékki á-
kveðinn.
NÚ hefur þáð orðið að sami-
komulagi við stjórn Iþróttasam-
bands íslands, að sambandið veit-
ir félögunum aðgang að skrifstofu
sinni að Amtmannstíg 1 og verð-
ur afgreiðslustaður þar, sxmi ISI
nr. 4955.
BIFREIÐARNAR munu þá
leggja af stað frá Amtmannsstíg
eða Lækjargötu.
EINS og áður er getið, eru aðr-
ir afgreiðslustaðir í Félagsheimili
K.R. við Kaplaskjólsveg _ og í
Skátaheimilinu við Snorrabraut,
en upplýsingasími Guðmundar
Jónassonar er nr. 1515.
Krýsuvíkurvegurinn var þung-
fær frá Krýsuvík að Eldborg
og meðfram Geitahlíðinni og
hjá Vindheimum í Ölvesi, og
lengra austar í Ölvesinu var
vegurinn slæmur, en allir þess-
ir kaflar voru ruddir í gær.
Þá var í gær unnið við
Grímsnesveginn undir Ingólfs-
fjalli, ruddur vegurinn til
Eyrarbakka, sem lokaðist í
skafrenningnum í fyrradag.
Leikurinn fjallar um örlög
sænsks sjómanns og dóttur
hans, Önuu Christie, sem leikin
er af Herdísi Þorvaldsdótt-
ur. —- Leikur þessi hef-
ur hlotið mikia viðurkenningu
erlendis. Var hann eitt sinn
kvíkmyndaður og lék Greta
Garbo þá aðalhlutverkiö, °g
mun það hafa verið í henn-
ar fyrstu talmynd.
Leikstjóri Indriði Waage og
m. leikenda í minni hlutverkum
eru: Baldvin Halldórsson, Inga
Þórðardóttir, Róbert Arnfinns-
Ruðningsflokkurinn á veginum
austur var í gær kominn á
vegamótin upp á land, en unniö
hefur verið þar í 3 daga.
Kl. 5 síðdegis í gær var ruðn-
ingsflokkurinn á Hvalfjarðar-
veginum kominn inn að Fossá
og flokkurinn er vann hinu-
megin komin inn í olíustöð.
Þá er nú bílfært orðið upp að
Lögbergi, en þangað hefur
Guðmundur Jónasson haldið
uppi ferðum í snjóbíl sínum.
son, Valdimar Lárusson og
Klemens Jónsson. Leiktjöld
hefur Lárus Ingólfsson gert.
Frjáls sala á frumsýningar.
Þjóðleikhússtjóri, Guðlaugur
Rósinkranz skýrði blaðamönn-
um frá þessu í 'gaer, og jafn-
framt skýrði hann frá þeirri
nýbreytni að frá áramótum
siðustu eru miðar á frumsýn-
ingu ekki seldir föstum frum-
sýningargestum, heldur geta
hverjir sem vilja fengið miða
á frumsýningu, en þurfa að
panta þá tíman'ega og vitja
þeirra innan tilskilins. tíma. Þá
hefur jafnframt verið ákveðið
að verð á frumsýningar skuli
eftirleiðis ekki vera hærra en
á aðrar sýningar leikhússins.
Forsetinn verður eftirleiðis á
neðri svölum — samkvæmt
eigin ósk.
Þá má það og til tíðinda telj-
ást að forsetinn hgfur ósltað
eftir því að sér sé ætlaður
staður á fremsta bekk á neðri
svölum, vegna þess að hann
heyri illa í forbetastúkunni,
og þaðan sést heldur' ékki rétt
vel yfir sviðið. Ráðherrarnir
hafa einnig beðizt undan að
vera í stúkunni er þeim var
æt'uð hægramegin í húsinu. og
verða þeir eftirleiðis á fremsta
bekk neðri svala. Þjóðíeikhús-
stjóri hefur forsetastúkuna því
eftirleiðis til umráöa, en selt
verður í ráíherrastúkuna.
Ágæt fsi; mtílningartcgund
Greiðfært aostur yfir fjall
' Hvalliarðarvegurinn að opnast
Allvel gengur nú að ryðja vegina og er sæmilega greiðfært
austur að Selfossi enda var unnið að ruðningi á Krýsuvíkur-
veginum í gær. — Hvalfjarðarvegurinn mun opnast á þessum
morgni, hafi ekki verið lokið við hann í gærkvöldi.
flokksins fjölmenni á fundinn. — STJÓRNIN
Ný viðreisnarráðstöíun:
iskverð hækkar um 20 tif 65 aura
Nýjasta viðreisnarráðstöfun ríkisstjórnarinnar, er hækk-
un fiskverðsins frá 20 til 65 aura á kíló.
Frá og með deginum í dag hækkar verð á þorski, slægð-
um með haus úr kr. 1,65 í kr. 1,85, eða um 20 aura kg.
Þorskur slægður og hausaður úr kr. 2,10 I 2,35, hækkar
um 25 aura. Ýsa með haus úr 1,85 í 2,05, hækkar um
20 aura. Ýsa hausuð úr kr. 2,30 í 2,60, hækkun 30 aur-
ar. Flök með þunnildum úr kr. 3,25 í kr. 3,65, hækkim
40 aurar. Flök án þunnilda úr kr. 4,40 í 4,95, hækkun
55 aurar. Flök roðflett og beinlaus úr kr. 5,25 í 5,90,
hækkun 65 aurar.
Af hækkun þessari eiga fisksalarnir ekki að fá nema
5 aura til jafnaðar.
Fyrir heimsendingu er fisksala heimilt að taka 75 aura
og 20 áura á hvert kg. sem er umfram 5 kg. Fisk sem
cr frystur sem varaforði má fisksali sefja 50 aurum dýr-
ara kg. Hinsvegar má ekki hækka verðlð þótt fiskur sé
ugga- og þunnildaskorinn.
Egill. Vilhjálmsson hefur fengið umboð fyrir nýja tegund
málningar sem framleidd er í Pittsburgh í Bandaríkjunum og
talin er taka öllum öðrum málningartegundum fram.
Málning þessi, sem kölluð er
Wallliide, hefur þann eigin-
leika að hún verður fullþurr
á einni klst. Þannig var t. d.
máluð skrifstofa Egils án þess
að vinna þyrfti að' falla ni£ur
á meðan. Málning þessi þekur
meiri veggflöt en sama magn
venjulegrar málningar, en hún
er þunn og líkist að nokkru
gúmmíi og er borin á með valt-
ara eða bursta, eftir ástæðum.
Málning þessi fæst í 12 stand-
ardlitum, en með því að blanda
þeim saman má fá fjölda lita-
afbrigða. Gallondunkur, rösk-
lega 5 kg., þekur 50—60 fer-
metra flöt. Verð slíks dunks
er 110 kr. og eru allir litirnir
jafndýrir, nema 2 þeir sterk-
ustu eru 7 kr. dýrari gallonið.
Erfiðleikar munu liafa verið
á að fá málningu þessa flutta
inn.
Þjóðviljanum hefur borizt myndarleg nýársgjöf. Eru það
kr. 5000,00, sem stjórn Æskulýðsfylkingariimar hefur afhent
Þjóðviljanum í tilefni hins glæsilega happdrættis hennar í des-
ember síðastliðnum.
Um Ieið og Þjóðviljina þakkar Æskijlýðsfyíkingunni þessa
rausnarlegu nýársgjöf, óskar hann henni gengis og gæfu á
hinu nýbyrjaða ári.
94,5 þús. gestir 1951.
Þá skýrði Þjóð'eikhússtjóri
frá því að almanaksárið 1951
hefðu gestir Þjóðleikhússins
verið 94,5 þús. og 470 manns
verið að meðaltali á sýningu.
Dramaten í Stoldrhólmi hefur
420—440 manns . að meðaltali
á sýningu, en það tekur 960 í
sæti, en Þjóðleilthúsið ekki
nema 660. — Á sl. voru seldir
aðgöngumiðar fyrir 2,6 millj.
kr.
Bezt aðsókn var að Rigólettó,
18600 gestir, ímyndunarveik-
inrii: 16500 og Heilagri Jó-
hönnu: 10500..
Næstu Ieikir.
Sölumaður deyr veröur tekið
upp aftur í þessum mánúði.
Seint í þessum mánuði verður
frumsýning á Sem yður þókn-
ast, eftir Shakespaere, leikstj.
Lárus Pálsson og næsti leikur
þar á eftir verður Þess vegna
skiljum við, eftir Guðmund
Kamban.