Þjóðviljinn - 20.03.1952, Blaðsíða 8
Aijéðleg lögfræðinganefnd sá sönn
unargögn um sýklahernað í Kóreu
Sigfúsar Sipr-
hjartarsonar
Alþjóðleg lögfræðinganefnd kveðst hafa seð sönnun-
argögn um sýklahernað Bandaríkjamanna í Kóreu.
Lögfræðingarnir, sem eru
frá \Tiisum löndum í Evrópu og
Asíu, :hafa ferðazt um Norður-
Kóreu og rætt við Kim Ir Sen,
forsætisráðherra alþýðustjórn-
arinnar þar.
Þeir segjast hafa séð með
eigin augum gögn sem sanni,
að sýklahernaður hafi verið
rekinn gegn norðanmönnum og
að á heri þeirra hafi verið varp-
að gassprengjum.
Á fundi afvopnunarnefndar
SÞ í New York var enn rætt í
gær um sýklahernaðinn í Kóreu,
Cohen, fulltrúi Bandaríkja-
stjórnar, kallaði lögfræðingana
Ieppa og kvað Bandaríkjastjóm
enga rannsókn taka gilda nema
Rauði krossinn framkvæmdi
hana.
Póstmenn telja
lög og reglur brotnar
Aðalfundur Póstmannafélags
íslands var haldinn í Reykja-
vík 16. marz síðastliðinn. For-
maður minntist Sigurðar Bald-
vinssonar, póstmeistara. For-
maður og varaformaður gáfu
greinargóða skýrslu um störf
félagsins á liðnu starfsári og
gjaldkeri las reikninga félags-
ins. Fundurinn gerði ýmsar á-
lyktanir varðandi hagsmunamál
stéttarinnar. Meðal annars eft-
farandi samþykktir.
„Aðalfundur Póstmannafé-
lags íslands haldinn í Reykja-
vík 16, marz 1952 mótmælir
harðlega veitingu póstaf-
greiðslumannsstarfsins í Borg-
arnesi. Telur fundurinn að
póst- og símamálastjórnin hafi
þarna á mjög alvarlegan hátt
sniðgengið Iög og reglur, er
Framhald á 7. síðu.
v
Handknattleiks-
mótið
Handknattleiksmótið hélt á-
fram i gærkvöld að Háloga-
landi.
í meistaraflokki kvenna sigr-
aði Ármann KR, 7:2. 1 öðrum
flokki kvenna sigraði FH Fram
méð 2:1. I 1. flokki karla-'sigr-
aði Fram SFR með 11:8. I öðr-
um flokki karla sigraði Fram
Víking með 7:5 og Ármann
FH með 9:4.
Eisenhower
fylgisdrjúgur
minnzt i bæjar
ráði
I upphafi bæjarráðsfundar í
fyrradag minntist Gunnar Thor
oddsen borgarstjóri Sigfúsar
Sigurhjartarsonar bæjarráðs-
manns, er lézt 15. þ.m. Risu
bæjarráðsmenn úr sætum í
virðingarskyni við hinn látna.
þjónyiutNN
Fimmtudagur 20. marz 1952 — 17. árgangur — 66. tölublað
Kröfur Félags íslenzkra rafvirkja
fbúðarbyggingar verði gefnar frjáls-
ar og tryggð lán fil stöðvaðra húsa
Á aðalfundi Félags íslenzkra
rafvirkja, 28. febrúar 1952, var
samþykkt eftirfarandi tillaga:
„Vegna mikils atvinnuleysis
meðal rafvirkja, sem m.a. á rót
sína að rekja til stöðvunar hús-
bygginga, skorar aðalfundur
Félags íslenzkra rafvirkja,
haldinn 28. febrúar 1952, á rík-
isstjórnina að hlutast til um, að
þeim mönnum, sem sökum
fjárskorts hafa ekki getað lok-
ið við byggingu húsa sinna-
verði útvegað fjármagn sem
Dwight Eisenhower
Innanfíokkakosningar um
fulltrúa á flokksþing og um
forsetaefni fóru fram í Minne-
sotaríki í Bandaríkjunum í gær.
Ríki þetta er helzta vigi Stass-
ens og það kom því á óvart er
Eisenhower hershöfðingi fékk
næstum jafnmörg atkvæði og
hann. Þetta þykir þeim mun
meira merki um vinsældir Eis-
Framhald á 6. síðu.
Skaftfellingar hefjast handa um
kvikmyndun Skaftafellssýslna
Á aðalfundi Skaftfellingafélagsins í Reykjavík 1949 var kos-
in nefnd til þess að athuga og gera tillögur um kvikmyndun af
Skaftafellssýslum. Var þetta mál síðan athugað og rætt allræki-
lega. Kom þegar í ljós, að kostnaður yrði svo mikill, að félagið
sjálft gæti ekki tekið rnálið að sér eins fljótt og skyldi.
Þess vegna var ákveðið á síðasta aðalfundi að efna til sam-
taka með Skaftfellingum í Reykjavík og annars staðar um fram-
gang þessa menningarmáls.
Var boðað til stofnfundar
þessara samtaka sunnudaginn
Stjórnir Frakfclands og V.-
Þýzkalancls deila út af Saar
Deila stjórna Frakklands
Saarhéraöið fer harðnandi.
Schuman, utanríkisráðherra
Frakklands, og Adenauer, for-
sætisráðherra Vestur-Þýzka-
lands, mistókst í gær að jafna
deiluna og líklegt er að ræða,
Tónleikar
Páls ísólíssonar
Páll ísólfsson heldur organ-
tónleika í Dómkirkjunni á morg
un (föstudag) kl. 6.15. Leikur
hann verk eftir Sweelinck,
Frescobaldi, Purcell, Ciéram-
bault, Hándel og Bach. Aðgang
ur er ókeypis.
og Vestur-Þýzkalands um
Hvalfjarðarvegurinn ófær í gær —
opnaðist aftur undir kvöEdið
Verulegar skemmdir urðu á Hvalfjarðarveginum. Mun haía
fallið hluti af öðrum brúarvængnum við Laxá í Kjós og var urn-
ferð um veginn stöðvuð í gær unz bráðabirgðaviðgerð var lokið
síðdegis.
Skemmdirnar eru hjá Laxá í
Kjós og í grennd við Bláskeggsá
Hjá Laxá sprengdist frá steypt-
Æ. F. R.
Málfundahópurinn heldur
fund í kvöld kl. 20.30. —
Umræðuefni: Afstaðan til
austurs og vesturs.
SKÁLINN
Skálaferð á Iaugardag kl.
18 frá Þórsgötu 1 — Listinn
er kominn upp í skrifstof-
unnL Sími 7510. — Muniði viðgerð svo vegurinn opnaðist
eftir happdrættinu. — | aftur.
ur veggur utan á vegarupp-
fyllingunni, sem er við annan
brúarstöpulinn, en ókunnugt er
hvaða skemmdir hafa orðið við
Bláskeggsá.
Ekki er fullkunnugt áf hvaða
orsökum skemmdirnar á vegin-
um hafa orðið en miklar líkur
til að þær séu af völdum
vatnavaxta þar sem mjög mik-
ið ringdi á þessum slóðum í
fyrrinótt.
Vegagerðin sendi flo'kk við-
gerðarmanna á vettvang
snemma í gær og seint í gær
hafði verið lokið hráðabirgða-
sem Graneval, sendiherra
Frakklands í Saar, hélt í París
í gær, verði olía á eldinn.
Graneval komst svo að orði,
að ef Saar jurði tengt Vestur-
Þýzkalandj myndi Schumaná-
ætlunin um sameiningu stál- og
kolaiðnaðar Vestur-rEvrópu
fara út um þúfur því að jafn-
vægið, sem hún væri reist á,
myndi raskast.
Schuman tókst ekki í gær að
fá Adenauer til að hætta við að
leggja fyrir ráðherrafund
Evrópuráðsins kæru út af því
að í Saar sé beitt pólitískri kúg-
un undir verndarvæng Frakka.
Graneval sagði í ræðu sinni, að
fyrir Adenauer vekti að koma
upp í Saar stjórnmálaflokkum,
sem væri stjórnað frá Vestur-
Þýzkalandi og séð fyrir fé það-
an. Engin þörf væri fyrir nýja
stjórnmálaílokka í Saar.
16. marz s.l. og einnig leitað
til Skaftfellinga um fjárfram-
lög. Á þessum fundi var síðan
stofnaður Kvikmyndasjóður
Skaftfellinga, sem er deild inn-
an Skaftfellingafélagsins.
Stjórn hans var kjörin til næsta
aðalfundar, og eiga þessir sæti
í henni: Haukur Þorleifsson,
formaður Skaftfellingafélags-
ins, Benedikt Stefánsson, gjald-
keri Skaftfellingafélagsins, Ól-
afur Pálsson frá Heiði, Björn
Magnússon prófessor og Jón
Aðalsteinn Jónsson cand mag.
Skaftfellingar hafa þegar
, sýnt mikinn áhuga á þessu máli
því að rúmlega 20 þús. krónur
söfnuðust á fundinum. Má segja
að þetta hafi farið fram úr því,
sem menn þorðu að vona í upp-
hafi, því að enn eiga margir ó-
lagt fé af mörkum. Væntir
stjórn sjóðsins þess,, að menn
svari fljótlega beiðni hennar um
fjárstyrk, því að ætlunin er að
hraða málinu eftir föngum.
Ætlazt er til, að kvikmynd
þessi sýni í sem skýrustum
dráttum landslag og sérkenni,
atvinnulíf, húsakost og húsbún-
Framhald á 7. siðu.
I
Verulega munaði í áttina í
samningunum í Panmunjom í
gær að samkomulagi um eftir-
lit með vopnahléi i Kóreu.
Kváðust samningamenn norð-
anmanna a’ð mestu geta fallizt
á málamiðlunartillögu Banda-
ríkjamanna um þá staði, þar
sem hafa skal eftirlit með liðs-
flutningum beggja aðila. Norð-
anmenn kváðust þó þurfa að
athuga tillöguna nánar. Ekkert
gekk í nefnd þeirri, sem fjall-
ar um skipti á stríðsföngum.
Þrír sjónleikir
á sækviku SkagfirSinge
Sæluvika Skagfirðinga hefst
n.k. sunnudag 23. þ.m. og verð-
ur þar mikið um dýrðir eins
og að venju.
Meðal skemmtiatriða verða
þrír sjónleikir. Leikfélag Sauð-
árkróks hefur frumsýningu á
Þremur skálkum, undir leikstj.
Eyþórs Stefánssonar, gagn-
fræ’ðaskólanemendur sýná Frá
Kaupmannahöfn til Árósa og
templarar Fallna engla. — Mál-
fundir verða á föstudag og
laugardagskvöld. Einnig verða
sýndar kvikmyndir.
Sæluvika Skagfirðinga er
jafnan haldin í sambandi við
sýslufundinn og hefst hann að
þessu sinni 26. marz. Vegir
eru greiðfærir um héraðið og
er búizt við fjölmenni til Sauð-
árkróks.
nægi til þess að hahla bygging-
unum áfram og Ijúka þeim.
Ennfremur skorar fundurinn
á ríkisstjórnina að aflétta þeim
takmörkunum, sem verið hafa
á húsbyggingum, nú um fangt
skeið, og eru orsök hins mikla
samdráttar, sem orðið heí’ur í
byggingaiðnaðinum.“
5 ára drengur
verSur fyrir bíl
1 gærdag varð lítill drengur
fyrir bíl hér í bænuni, og meidd
ist nokkuð á höfði.
Hann heitir Guðmundur Sig-
þórsson, Drápuhlíð 48, og er
aðeins fimm ára gamall. Var
hann staddur niðri á Klappar-
stig. Framan við húsið nr. 26
stóðu tveir bílar skáhallt út í
götuna. Hljóp drengurinn fram
á milli þeirra, en í sama bili
bar að jeppa er kom neðan af
Hverfisgötu og var á leið upp
á. Laugaveg. Hemlaði bílstjór-
inn mjög skarplega er hann sá
drenginn. Varð liann fyrir bíln-
um í því hann stöðvaðist og
féll í götuna. Var honum þeg-
ar ekið á Landsspítalann, og
kom í Ijós að hann hafði feng-
ið skurð á höfuðið. Var gert
að sárinu og drengnum siðan
ekið heim til sín.
Telur lögreglan það eingöngu
snarræði bílstjórans að þakka
að ekki hlauzt af alvarlegra.
slys.
Ók drukkinn
utan í bíl og meiddist
í gærdag ók drukkinn bíl-
stjóri utan í annan bíl, stöðv-
aðist þar og slasaðist ásamt
farþega sínum.
Þetta gerðist móts við húsið
135 á Laugavegi. Kom fólksbif-
reið akandi vestur Laugaveg,
og ók utan í mannlausan vöru-
bíl er stó’ð þar á brautarkant-
inum. Kom lögreglan fljótlega
á staðinn og sátu þá tveir
menn í fólksbílnum: bílstjórinn
og farþegi hans, báðir ölvaðir
og mciddir. Voru þeir fluttir á
Læknavarðstofuna og þar gert
að sárum þeirra. Síðan var
þeim ekið heim.
Málið er í rannsókn, og virð-
ist þó raunar liggja ljóst fyrir!
Atvinnuleysingj-
ar í Höfn hófa
hörðu
Þúsundir atvinnuleysingja
fóru í gær hópgöngu til Krist-
jánsborgarliallar, þinghússins í
Kaupmannahöfn, og fulltrúar
þeirra ræddu við fulltrúa þing-
flokkanna. Sögðu þeir, að ef
ekki yrði þegar bætt úr at-
vinnuleysinu myndu atvinnu-
leysingjarnir grípa til sinna
ráða. Þegar fulltrúar stjórnar-
flokkanna sögðust engu geta
lofað lýstu atvinnuleysingjarn-
ir yfir, að stjórr. og þing bæru
þá ábyrgð á því, sem þeir kynnu
að taka sér fyrir hendur og
fóru með það.