Þjóðviljinn - 09.05.1952, Side 8

Þjóðviljinn - 09.05.1952, Side 8
Pálmi settur aí - sjóliðsíormgi íhaldsins tekur við stjórn landhelgisgæzlunnar Hvað ec að gerast í landhelgismálumim? Pálmi Loftsson liefur látið af stjóm landhelgisgæzlunnar og Bjarni Ben. sett sjóliðsforingja íhaldsins, Pétur Sigurðsson í það starf. Eftirfarandi barst frá dómsmálaráðuneytinu í gær: Svo sem kunnugt er gengur reglugerð nr. 21 19. marz 1952, um vérndun fiskimiða umhverf- is ísland í gildi 15. þ. m. Er þá höfuðnauðsyn, að landhelg- isgæzlan verði svo örugg og vel skipulögð sem kostur er á. Þegar svo er komið er það of- ætlun einum manni að hafa yfirstjórn landhelgisgæzlunnar sem aukastarf með svo um- fangsmiklu og ábyrgðarriku aðalstarfi sem útgerðarstjórn Skipaútgerðar ríkisins, en að undanförnu hefur Pálmi Lofts- son, forstjóri Skipaútgerðar ríkisins farið með yfirstjórn iandhelgisgæzlunnar. Dómsmála ráðuneytið hefur því talið ó- hjákvæmilegt að fela yfirstjórn Flotadeila Breta og USA óleyst Fechteler aðmíráll, yfirmaður Bandaríkjaflota, fór heimleiðis frá London í gær. Skýrði hann tolaðamönnum frá því að engin niðurstaða hefði or'ðið af við- ræðum hans og brezkra ráða- manna um yfirstjórn flota A- bandalagsríkjanna á Miðjarðar- hafi. Vilja bæði Bretar og Bandarikjamenn fá yfirflotafor- ingjann . Útlegð í Alsír Franska nýlendustjórnin Alsír hefur gert þjóðernissinna- foringjann Missali Hach út- lægan úr fæðingarhérði sínu Constantine og sett hann í stofufangelsi í Alsírborg. Hon- um er gefið að sök að hafa unnið að því að koma á sam- starfi Túnisbúa og Alsírmanna í baráttu þeirra gegn nýlendu- kúgun Frakka. Montessori láfiin ítalski kvenlæknirinn og up'p- eldisfrömuðurinn Maria Mont- essori lézt í fyrradag í Hol- landi áttatiu ára að aldri. Að- ferðir hennar um smábarna- kennslu eru fyrir löngu breidd- ar út um allan heim. landhelgis- og fiskveiðigæzl- unnar manni, sem hafi hana að aðalstarfi. . Hefur ráðuneytið þvi í dag skipað Pétur Sigurðsson, skip- stjóra, til þess að vera for- stjóri hinnar íslenzku land- helgis- og fiskveiðigæzlu og jafnframt leyst Pálma Lofts- son frá þeim starfa. En ætlazt er til að útborganir og bókhald varðskipanna sé áfram hjá Skipaútgerð ríkisins. I verkamenn slas- asi við höfnina I gærmoi'gun slösuðust tveir menn við höfnina. Annar þeirra Jóhann Sæmundsson, slasaðist Vlð útskipun á saltfiski úr Laura Dan, og brotnaði annað herðablað hans. — Hinn mað- urinn, Karl Hafberg, féll af palli vörubifreiðar, og fékk lieilahristing. Voru þeir báðir fluttir á sjúkrahús Hvítabands- ins, og liggja þeir þar. Jóhann varð milli „heisins“ og skipshliðarinnar og svipuð ástæða mun hafa valdið slysi Karls Hafbergs. Kynnir sér matvælaframleiðsln hér Norris E. Dodd, aðalforstjóri matvæla- og landbúnaðarstofn- unar Sameinuðu þjóðanna (FAO), kom hingað til landsins í gærmorgun, ásamt einkaritara sínum ungfrú Pruit, til þess, af eigin raun að kynna sér matvæiaframleiðslu hér í landi og skilyrði til aukningar hennar, bæði á iand- og sjávarafurðxun. ÞIÓÐVILIINN Föstudagur 9. maí 1952 — 17. árgangur •— 102. tölublað ....----. ■ , ... ..-..... , , ... Þá unnu konur á eyrinni fyrir krénu á dag, og hvergi seid mjólk í hænum Sigríður Sæland ljósmóðir í Haínadirði á 40 ára starfsafmæli í dag Hver gæti í dag hugsað sér Hafnarfjörð þannig að þar væri hvergi seid mjólk — en mjólik handa ungbörnum væri sótt tvisvar í viku á næstu býli fyrir utan bæinn? Að konur fengju eina krónu á dag í kaup, sem væri greitt í úttekt hjá ein- hverjum kaupmanni? — Og þó er alveg lýgilega stutt síðan þetta var. N. E. Dodd, sem var aðstoð- arlandbúnaðarráðherra Banda- ríkjanna 1946—1948, en hefur síðan verið aðalforstjóri mat- væla- og landbúnaðarstofnunar SÞ, átti tal við blaðamenn að Hótel Borg í gær og skýrði frá ýmsu um stofnun þá, sem hann veitir forstöðu. Aðalstöðvar FAO eru nú í Rómaborg, og eru 68 þjóðir aðiljar að henni en það er 16 þjóðum fleira en í SÞ. Starfsmenn stofnunar- innár eru samtals 700. Aðal- starfsemi stofnunarinnar er að reyna að skipuleggja fram- leiðslu og dreifingu matvæla í heiminum og veita aðsto'ð á 1 ýmsan hátt þeim þjóðum, sem þess þurfa. Þess má geta, að Árni Friðriksson, fiskifræðing- ur, er fyrir skömmu kominn heim úr för til Brazilíu á veg- um þessarar stofnunar, til þess að veita Brazilíumönnum tækni- lega aðstoð í sjávarútvegsmál- um, og einn Islendingur, Hi3m- ar Kristjónsson, fiskifræðinsrur. er starfsmaður við FAO í Róm. N. E Dodd bý~t v'ð að dveijast hé- um viku tíma. Erindið kvað hann einkum vera að kynna sér framleiðslu og framleiðslumöguleika okkar, bæíi í landbúnaði og sjávarút- vegi. Árni G. Eylands, fulltrúi, gat þess, að Island hefði nú, fyrir skömmu, í fyrsta skipti, snú- ið sér til FAO um aðstoð. Far- ið hefði verið fram á hjálp stofnunarinnar til að reyna að ráða niðurlögum sauðfjársjúk- dóma þeirra, sem hefðu leiki'ð okkur svo grátt á undanförnum árum. Áður en forstjórinn fer héð- an af landi brott aftur, gerir hann ráð fyrir að skýra frá árangri af dvöl sinni hér. Fádæma aðsókn að Pi-Pa-Ki I kvöid hefur Leikfélagið síðustu sýningu á hinum at- hyglisverða kínverska sjónleik Pi-Pa-Ki og er þetta 38. sýn- ing leiksins. Svo mikil eftir- spurn var eftir aðgöngumiðum að þessari sýningu í gær að allir miðar seldust á 45 mín- útum. Eins og nærri má geta urðu fjölmargir frá að hverfa. Sigríður Sæland ljósmóðir í Hafnarfirði á 40 ára starfsaf- mæli í dag og ég bað hana að líta augnablik aftur í tímann og rifja upp viðhorfin á fyrri árum. Hún tók próf 30. marz 1912, byrjaði starf sitt í Hafn- arfirði og hefur frá því 9. maí 1912 haft það að starfi að hjálpa nýjum borgurum til að sjá dagsins ljós. —- Hvers vegna valdirðu þér þetta starf? — Ég held það hafi eigin- lega verið af því að mér fannst hjálparleysið, eymdin og fá- tæktin svo mikil, þegar undan eru skildar 3—4 fjölskyldur í bænum. Kjör kvenna þá voru óglæsi- leg. Þær unnu á eyrinni fyrir krónu á dag. Það var engin mjólk seld í bænum, hún var seld frá nágrannabýlunum, Set- bergi, Hraunsholti og Ási. Ég vissi dæmi *þess a<ð mjólk handa ungbörnum var sótt tvisvar í viku. Og þótt það hefði feng- izt mjólk í bænum gat fólkið Sigríður Sæland. ekki keypt hana. Konurnar sem unnu á eyrinni fyrir krónu á dag gátu elíki keypt mjólk fyrir það kaup, því þær fengu það gi'eitt í úttekt! Bömin í Hafnarfirði þá liðu mikið fyrir mjólkurleysi. Framhald á 7. síðu. LÁ VIÐ STÚRSLVSM I fyrrinótt ók fólksbifreið út af veginum við Fossá íi Hval- firði. Fór hún tvær veltur, en stöðvaðist á blábrún 20—30 metra gljúfurs. Þetta ger'ðist um tvöleytið í fyrrinótt. Var bifreiðin á leið UmferSadagur Slysavarnafélagsins Umferðadagur Slysavarnafélags Isiands er í dag og er enn einu sinni iögð áherzia á fræðslu til að koma í veg fyrir um- ferðaslys, en einkum er áherzla lögð á börnin. I hádegisútvarpinu flytur Erlingur Pálsson yfirlögreglu- þjónn erindi um umferðareglur. Ennfremur er sýning í glugga Éina dauðaslysið, sem orðið hefur í umferðinni í Reykjavík síðan um áramót varð á barni, sem hljóp skyndilega út á götuna. — BÖRN OG FORELDRI! Takiff höndum saman við Slysavaraa- félagið til að gera allt, sem í ykkar valdi stendur til að hindra hin hryBiiegu banaslys Loftleiða í Lækjargötu og ættu allir sem þar eiga leið um að staldra við og athuga sýn- inguna. Á morgun kl. 1,30 verða sýndar umferðamjTidir í Tjarnarbíói. Hægtabtosið í írara- kvæmd: Framsókn út- íhaldiS inn! Neskaupstað. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Kaupfélagið Fram hélt aðal- fund sinn um síðustu helgi. Velta félagsins á sl. ári var tæpar 5 milljónir króna . Framsóknarmenn ráða þessu kaupfélagi og gerðust þau tíð- indi á aðalfundinum a'ð Niels Ingvarsson bæjarfullarúi Fram- sóknar, er vaf form. félagsins um mörg ár, var settur út úr stjórninni og í stað hans tekinn Jón Sigfússon bæjarfulltrúi Iha'dsins. Fuiltrúar á aðalfund S.I.S. voru kosnir Guðröður Jónsson kaupfélagsstjóri og AB-maður- inn Eyþór Þórðarson. hingað til Reykjavíkur. Eins og mönnum er kunnugt eru krappar beygjur á veginum báðum megin Fossár, og bratt- ar brekkur niður á brúna. Af einhverjum ástæðum náði bíl- stjórinn, Gústaf Kristjánsson, ekki beygjunni austan árinnar, og valt því bifreiðin út af veg- inum sem fyrr greinir. Má heita mikil mildi að ekki skyldi hljótast af alvarlegt slys. — Hefði bíllinn hrapað fram af gljúfurbarminum hefði enginn þurft um sár að binda. Tveir farþegar voru í bíln- Framhaid á 7. siðu. Hallgcíæui fec á Olym- píuíeikana Bæjarstjórn Reykjavíkur hef- ur borizt bréf frá Helsingfors- borg þar sem boðið er að senda sérstakan fulltrúa til að vera gestur borgarinnar á Ólympíu- leikunum í sumar. Bæjarráð hefur samþykkt að Hallgrímur Benediktsson verði fulltrúi Reykjavíkurbæjar á Ólympíu- leikunum. Bacnaskóla NeskaupstaS- ac sagt upp Neskaupstað. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Barnaskólanum hér var slit- ið 3. maí. I skólanum voru. 154 börn í 8 deildum. Hæstu einkunn í skólanum hlaut Pálmar Magnússon, 6. bekk B, 10, e'ða ágætiseinkunn. — Við skólann störfuðu ,að meðtöld- i<m stóóiastjóranum, Gunnarii Ólafssyni, 5 kennarar. ,

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.