Þjóðviljinn - 15.05.1952, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 15.05.1952, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 15. mai 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (3 SIÐAST LIÐNA páskadaga var haldin Alþjóðaráðstefna til verndar börnum í höfuðborg Austurrikis. Þangað höfðu full- trúar frá öO löndum heims mælt sér mót, til þess að hefja samstarf um mesta vandamál mannkynssins, líf og velferð uppvaxandi kynslóðar, framtíð mannkynsins. ÞESSI ráðstefna hefur þegar vakið heimsathygli, cnda til hennar hvatt af 90 mikilsmetnum mönnum, konum jafnt sem körlum, frá 39 löndum heims. Meðal þeirra margir ve'. þekktir uppeldisfræðingar, sálfræðingar, læknar, rithöfundar, prestar, listamenn og fjöldi annarra manna, sem áhuga hafa á velferð og uppeldi barna. Hefur undirbúningsstarfið eitt orðið til þess að vekja skilning og athyg’ i almennings i hin- um ýmsu löndum á því, hve hörmulegt ástandið er víða um heim meðal barna. í ávarpi undirbúningsnefndar ráðstefnunnar, segir m. a.: „Tilgangur ráðstefnunnar er að hefjast handa um raunhæfar og vísindalagar aðgerðir til að koma af stað vinsamlegum um- ræðum og leggja fram tillögur til samþykktar um, hvað hægt sé að gera til þess að leysa þýðingarmestu vandamál barna Markmið og hlutverk ráðstefn- unnar verður, að ræða nauð synlegar aðgerðir sem þessar: að vernda líf og heilsu barna sem ógnað er með nýrri heimsstyrjöld. að tryggja þeim það sem nauð- synlegt er til vænlégs þroska fæðu, húsnæði og heilsu vernd. að skapa hverju barni mögu- leika til skólanáms og tryggja þeim sérmenntun í ýmsum iðngreinum. að vernda börnin gegn óhollum áhrifum skaðlegra bóka, striðsáróðri í útvarpi og kvikmyndum og tryggja þeim heilbrigðar skemmt- anir. að taka upp baráttu gegn af brotahneigð meðal barna og vinna að því að ráða bót á málefnum vandræðabarna. að ala upp börn í anda lýð- ræðis og vináttu þjóða : milli. I ávarpi undirbúningsnefndar ráðstefnunnkr segir ennfremur: ,,I fjölda landa heims er heilsa barna og vaxandi dánar- tala svo ískyggileg, að uppvax- andi kynslóð er í hættu stödd. Meðan fjárframlög til bygginga íbúðarhúsa og skóla er skorin niður, líða börnin skort vegna stríðsundirbúningsins. Mikill fjöldi fjölskyldna getur ekki látið börnum sínum í té nægi- legan matarskammt til þess að tryggja heilsu þeirra og eðlileg- an vöxt. Iljá nýlenduþjóðunum er þegar svo mikill skortur á matvælum, að hungursneyð má kalla og fjöldi barna deyja úr hungri. Til þess að bjarga börn- unum, dýrasta fjársjóði mann- kynsins, skorum við á alla góða menn og konur, á öll félög og félagasamtö'r, sem áhuga hafa á málefnum barna, að taka þátt í Alþjóðaráðstefnu til verndar börnum.“ Útdráttur þessi úr ávarpi undirbúningsnefndar, gefur nokka hugmynd um hve um- fángsmikið og háleitt markmið Alþjóðaráðstefna þessi setur sér. Það hörmungarástand sem börnin eiga við að búa víðs- vegar um heim, hlýtur að vekja alla sem nokkuð kynna sér þau mál, til alvarlegrar umhugsun- ar um það, hvað hægt sé að géra til úrbóta. „Heilsusamlegt umhverfi skapar heilbrigt fólk. Hver imaður á kröfu til þess að njóta fullrar heilsu. „Heilsuvernd barna fyrir öllu.“ Fögur orð, töluð til vor nýlega gegnum íslenzka útvarpið, sem frétta- flutn. frá (UNESKO) Samein. þjóðanna. Ekki ýkja löngu síðar fengum við að skyggnast ofur- lítið inn í heim þeirrá manna, sem nú eru í meirihluta á þessu virðulega þingi. Sú sjón, sem þar blasti við okkur var ó- hugnanleg. Árið 1950 voru opinberlega birtar niðurstöður rannsókna, sem SÞ. létu fram- kvæma um ástand það sem ríkir í heiminum í málefnum barna. Þessar niðurstöður segja okkur, að í heiminum séu nú 600 millj- ónir barna, sem líða neyð. Hungurdauðinn bíður, að minnsta kosti, 230 milljóna þessara barna, en í Evrópu- löndunum einum segja þessar upplýsingar SÞ. okkur, að séu 13 milljónir munaðarlausra barna, sem svipt eru með öllu þeirri umhyggju sem hvert barn í heiminum á kröfu til að njóta.“ Þó við heyrum aðeins óminn hingað af þeim átökum sem nú eiga sér stað úti í hinum stóra heimi, má þó glöggt heyra inn- an um allt áróðursskvaldrið, að daglega er verið að limlesta og myrða saklaus börn. Við fáum jafnvel fréttir af því í einstaka málgögnum erlendra blaoa- kónga, að verið sé að murka lifið úr börnum í Indlandi, íran, á Spáni, Grikklandi o. v., með ómannúðlegustu barnaþrælkun, úr sulti og allskyns hryllilegum kvillum, sem alltaf eru tryggir fylginautar hins löngu úrelta arðránsskipulags. Slíkar fregnir af harmleik mannkynsins, hafa þó oft ekki svo varanleg áhrif á jafnvægi hugans, að þær raski að nokkru verulegu leyti áliti almennings á hinu marg „BlessaSur vorgróðurinn" rómaða vestræna lýðræði. I sæluríkjum Marshalls og Atlantshafsbandalags er óá- nægja almennings orðin svo al- menn og kröfurnar um frið og betri lífskjör svo háværar, ac hernaðarspekúlantarnir eru þeg ar orðnir óttaslegnir. I háborg vestræna lýðræðisins, brezkí heimsveldinu, þrengir nú sultar- ólin æ fastar að — og kemur það ekki sízt niður á börnunum. Fjárframlag til uppeldis- og menningarmála hafa verið slcor- in geigvænlega niður í Bret- landi, vegna síhækkandi fjár- framlags til hernaðarþarfa. Landssamband brezkra kénnslu kvenna hefur nýlega sent brezk- um þingmönnum bréf, þar sem þær láta í ljósi óánægju sína yfir þessari miklu skerðingu á fjárframlögum til uppeldismála árið 1952—53. 1 þessu bréfi sínu skýra brezku kennslukon- urnar frá þvi, hve aðlcallandi þörf sé fyrir fleiri barnaskóla í Bretlandi og að fjöldi barna- skóla, sem á árinu 1925 voru úrskurðaðir óhæfar vistarverur fyrir börnin, séu enn í notkun. 1 fjölda barnaskóla segja þær ástandið í hreinlætismálum svo slæmt, að það sé stórhættulegt heilsu barnanna. Ennfremur segja brezku kennslukonurnar frá því í bréfi sínu, að opin- berar skýrslur frá árinu 1951, sýni, að ' tugþúsundir skóla- bekkja í landinu séu allt of þétt setnir, eða yfir 40 börn í hverj- um bekk — og sé þetta aðferðin sem notuð sé til þess að spara kennaralaun. Að lokum kvarta þær sáran yfir tilfinnanlegri vöntun á ýmislegum kennslu- áhöldum, svo sem bókum, papp- ír o. fl. þessháttar. I Bretlandi vinna nú 10 millj- ónir kvenna utan heimilis og þörfin fyrir barnaheimili, leik- skóla og leikvelli því mjög að- kallandi. Brezkar mæður hafa í mörg ár farið fram á að þessurn stofnunum verði fjölgað, en þó að gert sé ráð fyrir fjölgun þeirra í brezku heilbrigðislög- gjöfinni, hefur þeim þvert á móti verið fækkað tilfinnanlega síðustu árin, þrátt fyrir vaxandi tölu þeirra mæðra sem vinna utan heimilisins. Það er ýmislegt fleira, sem ekki sýnir neinn fyrirmyndar- brag á uppeldismálum í heima- landi brezka heimsveldisins. T. d. segir brezka íhaldsblaðið „News Chronicle“ frá því, að í Bretlandi sé f jöldi barna tekinn úr skóla árlega, áður en þau ljúka fullnaðarprófi, „til þess að hjálpa til að sjá fjölskyld- unni farborða,“ eins og blaðið tekur til orða. Börnin eru aðal- lega sett í verksmiðjurnar, en þar eru þau eftirsóttur vinnu- kraftur vegna hins lága kaup- gjalds. Þessar upplýsingar um á- standið í uppeldis- og skóla- málum Stóra-Bretlands, eru lítið frábrugðnar þeim dæmum, sem nú á timum má nefna frá öðrum þeim löndum, sem lifa á náðarbrauði Marshalls og stynja undir þeim byrðum, sem Atl- antshafsbandalagið leggur þeim á herðar. Á síðastl. ári, var framlag til hernaðarþarfa í Danmörku tvö- faldað frá því árinu áður. En fjárframlög til heilbrigðis- og □ Börnin eru Uýrmætasti f jársjóður mr.nnkyns- ins. □ uppeldismála skorin mikið nið- ur. M. a. var ákveðið í fjárlög- um, að verja 150 milljónum króna til þess að byggja loft- varnarbyrgi — og hafa nú þegar verið reist eitt þúsund slík mannvirki í Kaupmanna- höfn einni. Þó að við íslendingar getum að ýmsu leyti verið okkur vold- ugri og stærri þjóðum til fyrir- myndar, eins og t. d. í skólamál- um okkar, getum við tæplega, að öðru leyti, stært okkur af þeim uppeldisskilyrðum sem æska landsins býr nú við. Árið 1946 var ástandið þann- ig í húsnæðismálum Reykjavík- ur, að fjórða hver kjallaraíbúð var dæmd heilsuspillandi, en í kjallaraíbúðum bæjarins bjuggu þá á sjöunda þúsund manns, þar af 1500 börn. Árið 1929 voru reyndar samþykkt lög á Alþingi, sem bönnuðu allar kjallaraíbúðir, en svo gjörsam- lega hefur Bæjarstjórn Reykja- víkur brugðizt skyldu sinni í húsnæðismálum, að hún hefur aldrei látið lög þessi koma til framkvæmda og flestar kjallara íbúðirnar, sem dæmdar voru heilsuspillandi árið 1946, eru ennþá í notkun. Eina ráðið sem bæjaryfirvöld- in virðast hafa séð, á síðustu árum, til útbóta í húsnæðis- vandræðum Reykvíkinga, var að hirða hermannabragga, sem hér voru skildir eftir upp um liolt og hæðir. En þrátt fyrir þann mikla kostnað, sem lagt var í að dubba upp á þessar vistarverur erlendra stríðs- manna, kom brátt að því, að bæjaryfirlæknirinn dæmdi meir en helming allra braggaibúð- anna heilsuspillandi. I lélegum hermannaskálum búa nú 2290 manns Iiér í Reykjavík, þar af eru rúm þúsund börn innan við 15 ára aldur, eða rúnilega finjmt ánda hvert barn í Reykjavík. Það liefur sýnt sig, að börn, sem verða fyrir því óláni að al- ast upp í þessum óvistlegu her- skálahverfum, lenda oft í alls- konar óknyttum og lögbrotum, börn, sem annars aldrei. áður höfðu Ient í neinu slíku. Má af þessu glöggt sjá, hve mikil á- hrif umhverfið hefur á börn og unglinga. Það er vitað mál, að leikskól- ar og dagheimili fyrir börn, sem félagið Sumargjöf rektu' hér í bænum, fullnægja engan veginn þeirri eftirspurn, sem er að þessum stofnunum, en auk þess er vistin á þessum sjálf- sögðu uppeldisheimilum enn- þá svo dýr, að öllum fjöldanum er ókleyft að hafa börn sín þar. Það hlýtur að vera krafa al- mennings, að þessum stofnun- um verði fjölgað svo, að .öll börn fá notið þess öryggis og þeirra góðu uppeldisáhrifa sent slíkar stofnanir geta veitt — og að ríkið taki allan rektur þeirra í sínar hendur. I þeim löndum, sem sósíal- isminn er i framkvæmd, er þetta þýðingarmikla vandamál, upp- eldi og framtíð barnanna, látið sitja fyrir öllu öðru. Þar er ekkert barn utangátta. I lönd- um sósíalismans eru öll börn. þjóðfélaginu jafn kær og ekkert þykir þar sjálfsagðara, en að þjóðfélagið sjái um uppeldi þeirra sem eiga að erfa landið. Sumardagurinn fyrsti er ný- liðinn. Þann dag er eins og allir vakni hér til meðvitundar um það, að við eigum mikinn og dýrmætan f jársjóð, sem við um- fram allt verðum að vernda og hlúa vel að. Þá er talað af andagift um „Blessaðan vor- gróðurinn“, sem vex upp meðal vor, þá eru ættjarðarsöngvar sungnir og fánum veifað. En hvenær heyrum við þessa sum- ardagsmenn minnast á, að fimmtánda hvert barn í Reykja- vík búi í lélegum hermanna- hreysum? Hvenær heyrum við þá láta vandlætingu sína í ljósi yfir því, að hér vanti ýmsar þær uppeldisstofnanir, sem nauðsyn- legar eru til þess að veita hverju íslenzku barni þá aðbúð og umhyggju sem þyrfti, svo sem heimili fyrir fötluð börn og blind, heimili fyrir fávita og lömuð börn og samastað fyrir þau ólánsömu börn, sem lenda út á glapstigu í þessu fyrír- myndarþjóðfélagi ? Þegar landið okkar var her- numið af Bandaríkjamönnum árið 1942, hækkaði afbrotatala unglinga hér í bænum mjög mikið, eða um 55% — og mi þegar við erum aftur hernumin. af sömu aðilum, endurtekur sagan sig. Það kemur ekki íslenzkum al- menningi á óvart þótt afbrot unglinga og lauslæti aukist svo mjög við komu erlends herliðs í landið. Og þeirn mönnum, sem. ábyrgir eru fyrir því, að selja. landið í hendur erlendu her- veldi, kemur það heldur ekki á. óvart. Þeir vissu fyrirfram um afleiðingar verka sinna og eng- inn undrast því algjört tóm- læti og þögn af þeirra hálfu, en þegar opinberir aðilar, sem ábyrgir eru fyrir barnavernd og uppeldismálum hér á landi, láta. sig litlu eða engu skipta, að erlendir hermenn leggi í rústir líf og framtíð barna okkar bg Framhald á 7. síðu. 1J I Ritstjóri: Þóra Vigfúsdóttir 1 V_ - . ^ _ _^iti _ • ^ . / N . t MESTA YANDAMÁL MANNKYNSINS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.