Þjóðviljinn - 15.05.1952, Side 7
Fimmtudagur 15. maí 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (7
m
JA
V
Klæðaskápur
^tvísettur úr mahóní, mjögí
^vandaður. — Tækifærisverð./
- Upplýsingar í síma 80494.,/
Vandaðir dívanar
itil sölu. Telt einnig viðgerðir.)
(Húsgagnabólstrunin Mið-(
(stræti 5, sími 5581.
dómar Hæstaréttar
Samúðarkort
} Slysavarnafélags Isl. kaupa^
)flestir. Fást hjá slysavarna-
)deildum um allfc land. 1]
jlReykjavík afgreidd í síma^
»4897.
Gull- og silíurmunir
(Trúlofunarhringar, stein-1
(hringar, hálsmen, armbönd (
(o. fl. Sendum gegn póstkröfu. j
5 GULLSMIÐIR
Steinþór og Jóhannes,
Laugaveg 47.
Daglega ný egg,
)Soðin og hrá. Kaffisalan (
„ Hafnarstræti 16.
Stofuskápar
ilæðaskápar, kommóður',
1 ivallt fyrirliggjandi. — Hús-
;agnaverzlunin Þórsgötu 1. [
Ragnar ölafsson
h hæstaréttarlögmaður og lög-
. giltur endurskoðandi: Lög-
ffræðistörf, endurskoðun og(
(fasteignasala. Vonarstræti,
12. — Sími 5999
Munið kaf.fisöluna
í Hafnarstræti 16.
Svefnsófar,
nýjar gerðír. |
Borðstofustólar (
og borðstofuborð,
úr eik og birki.
Sófaborð, arm- (
stólar o. fl. Mjög lágt verð.,
Allskonar húsgögn og inn-
1 réttingar eftir pöntun. Axe’'
> Eyjólfsson, Skipholti 7, sími1
i 80117. •
ICLAOSU
U. M. F. R.
Æfingar verða fyrst um)
(sinn fyrir pilta og stúlkur)
(inn á hinu nýja íþróttasvæði*-
(félagsins, sem hér scgir: ■>
fMánudag kl. 7 fyrir pilta ogí
"stúlkur, miðvikudaga kl. 7(7
ffyrir pilta og stúlkur og á)
íföstudögum kl. 8 fyrir piltaj
)og stúlkur. Frjálsíþrótta-/
ífólik athugið: íþróttasvæðiðj
(er á túninu fyrir neðan)
('Holts-apótek. - Frjálsí'prótta-f
, st jórnin.
Viðgerðir
á húsldukkum,
f’vekjurum, nipsúrum o. fl.í
í)Ursmiðastofa Skúla K. Ei-í
írikssonar, Blönduhlíð 10. —//
}Sími 81976.
Útvarpsviðgerðir
(í A D 1 Ö, Veltusundi 1,(
fjími 80300.
Saumavélaviðgerðir
Skrifstofuvéla-
viðgerðir.
S y L 6 I A
Laufásveg 19. Simi 2656
Framhald af 6. síðu.
17. Ákærði Ólafur
Jensson.
Ákærði var á útifundi við
Miðbæjarbarnaskólann og fór
þaðan að Alþingishúsinu. Var
hann þar, þangað til beitt hafði
verið táragasi, Hann kveðst
hafa farið á brott, er gasað-
gerðir hófust, en kom fljótt
aftur á vettvang. Er lögreglu-
menn ráku hann og annað fólk
frá Alþingishúsinu, greip hann
á flóttanum táragássprengju,
sem varþáð hafði verið fram
fyrir hann, og kastaði henni
aftur fyrir sig í áttina að lög-
reglumanni, sem hann hörfaði
undan. Tveir varaliðsmenn
Mesta vandamálið
Framhald af 3. síðu-
unglinga, er sannarlega kominn
tími til þess, að íslenzkar mæð-
ur rísi upp og ákæri í heyranda
hljóði þá nienn, sem svo sam-
vizkulaust hafa leitt það böl
yfir íslenzka æsku, að vera
tröðkuð í svaðið undir járn-
bentum hælum erlendra stríðs-
mánna.
Það virðist vera skipulögð
sámtök fulltrúa og aðdáenda
hins vestræna ,,lýðræðis“ að
þegja í hel ráðstefnuna sem
haldih var í Vínarborg um
páskaleytið — eða jafnvel reýna
á ýmsan hátt að gera hana tor-
tryggilega. Og er þeim nokkur
vorkunn, því að markmið og
hlutverk þessarar merku ráð-
stefnu var, að ræða og reyna
að ráða fram úr þeim stórkost-
legu vandamálum, sem vestræna
,,lýðræðið“ einmitt leiðir af sér
—• og getur gert jarðlífið að
sannkölluðum kvalarstað fyrir
lítil 'börn.
ísland átti aðeins 2 fulltrúa
á þessari ráostefnu, tvær ungar
menntakonur, sem báðar eru
við nám erlendis, en þær mættu
sem fulltrúar fyrir hin nýstofn-
Menningar- og friðarsamtök ís-
lenzkra ikvenna. Má með sanni
segja, að þær hafi að þessu
sinni bjargað heiðri okkar Is-
lendinga. En hvað veldur, að
uppeldisfræðingar okkar og aðr-
ir sem áhuga hafa á velferðar-
málum barna hér á landi, nota
ekki svo einstakt tækifæri til
þess að kynnast þeim mörgu og
aðkallandi vandamálum barna,
sem ráðstefnan í Vín fjallaði
um?
Þó að við íslendingar eigum
ekiki við jafn stórfengleg vanda-
mál að stríða og margar stór-
þjóðanna, sem enn eru flakandi
í sárum eftir hamfarir síðustu
heimsstyrjaldar, er okkur lítil
sæmd að og sízt í anda þeirra
hugsjóna frelsis og friðar, sem
um aldaraðir liafa verið aðals-
merki íslenzku þjóðarinnar, að
Islendingar skuli láta afskipta-
laust, þegar mannúðar- og frið-
armál eru á dagskrá alþjóða-
vettvangsins, meðan við liggj-
um undir þeirri smán, að Is-
lendingar sitji hernaðarráðstefn
ur oft á ári.
Ásthildur Jósepsdóttir.
Nýja
sendibílastöðin h.í.
)Aðalstræti 16. — Sími 1395.)
Lögfræðingar:
!*Áki Jakobsson og Kristjár (
) Eiríksson, Laugaveg 27, 1 (
)hæð. Simi 1453.
Sendibílastöðin h.f.,
) tngólfsstræti 11. Sími 5113.,
Sendibílastöðin Þór
StMI 81148.
hafa borið, að ákærði hafi
ráðizt á lögreglumann, og sjálf-
ur hefur hann sagt, að vel
geti verið, að hann kunni að
hafa stjakað við lögreglumann-
inum. — Með framangreindu
framferði hefur ákærði tekið
þátt í upphlaupinu, og varðar
það við 1. mgr. 100. gr. sbr.
2. mgr. 22. gr. laga nr. 19/1940
og 107. gr. sömu laga sam-
kvæmt lögjöfnun. Þykir refs-
ing hans hæfilega ákveðin
fangelsi 4 mánuði.
(Að þessum stúdent snýr
Hæstiréttur brandi sínum.
Hann hendir tárágassprengju
frá sér en síðan ekki meir.
Hann fær 4 mánaða fangelsi
(3 áður) og éinn stúdentanna
fær hann óskilorðsbundinn dóm.
Hver er ástæðan fyrir því að
taka hann einan út úr stúd-
entahópnum og neita honum
um skilorðsbundinn dóm? Er
það munurinn á gassprengju og
éggi sem veldur því? Eða er
það af því þessi piltur hefur
staðið framanlega í hagsmuna-
baráttu stúdenta undir merkj-
um Félags róttækra stúdenta
og var á sínum tíma einn bezti
talsmaður gegn erlendum her-
stöðvum á Islandi inr.an háskól-
ans?).
18. Ákærði Hálfdán
Bjarnason.
Ákærði hefur játað, að kl.
að ganga sex síðdegis umrædd-
an dag hafi hann farið niður
að Alþingishúsi. Voru þingmenn
þá farnir úr þinghúsinu og
upphlaupinu lokið. Er hann
var þangað kominn, þreif hann
reiðhjól, sem stóð við austur-
hlið hússins, henti því í glugga
í húsinu og braut rúðu. Hélt
hann síðan brott. Þegar ákærði
ijramdi (verknað þenna, var
margmenni enn á vettvangi og
lögreglumenn til varnar Al-
þingishúsinu. Verður að telja,
að atferli ákærða hafi falið í
sér liótun um ofbeldi gegn
vörnum Alþúngis. Varðar brot
ákær’ða við 106. gr. laga nr.
19/1940.
Þykir refsing hans hæfilega
ákveðin varðhald 30 daga.
Þegar litið er til þess, að
ákærði játaði ótilkvaddur brot
sitt, þykir rétt að ákveða, að
í’efsingu hans skuli fresta og
hún falla niður eftir 5 ár frá
uppsögu dóms þessa, ef skil-
orð VI. kafla laga nr. 19/1940
verða haldin.
(Þetta er beinlínis hlægilegur
dómur).
19. Ákærði Jón Múli
Árnason.
Með eiðfestum framburði
tveggja varaliðsmanna er sann-
að, að ákærði kastaði steini
að varaliðsmönnum lögreglunn-
ar, meðan upphlaupið stóð sem
hæöt, en ekki virðist sá steinn
hafa hæft neinn þeirra. Með
þessu atferli hefur akærði
gerzt þátttakandi í upphlaup-
inu, og varðar það brot hans
við 1. mgr. 100. gr. sbr. 2.
mgr. 22. gr. laga nr. 19/1940
og 107. gr. laga samkvæmt
lögjöfnun. Þykir refsing hans
hæfilega ákveðin fangelsi 6
mánuði.
Samkvæmt 3. mgr. 68. gr.
laga nr. 19/1940 ber að svipta
ákærða kosningarrétti og kjör-
gengi til opinberra starfa og
annarra almennra kosninga frá
birtingu dóms þessa.
(Þessi furðulégi dómur hef-
ur vákið almenna reiði. Jón
Múli Árnason hefur staðfast-
lega neitað því, að hann liafi
kastað grjóti. Clausenbræður
báðir taka sig hins vegar til og
sverja upp á hann, að hann hafi
kastað steini og framburður
þeirra er ekki um samtímaat-
burð, þar að auki csamhljóða
og ónákvæmur eins og Eg'Ill
Sigurgeirsson hrl. rakti ýtar-
lega. Enginn annar ber vitni
um að Jón hafi tekið þátt í ó-
spektunum. Jón er friðsemdar-
maður mesti. Hæstiréttur bygg-
ir á framburði Clausenbræðra
6 mánaða fangelsisdóm og ræn-
ir Jón Múlá mannrettihdum
ævílangt. Hvílíkt réttarfar!).
20. Ákærði Sigurður
Jónsson.
Með skírskotun til þess, sem
greinlir í húraðsdómí, 'þykir
varhugavert að telja nægilega
sannað, að ákærði hafi gerzt
sekur um refsivert atferli, enda
eru vitni þau óeiðfest, sem um
hegðun hans hafa horið. Ber
því að sýkna hann af ákæru
í máli þessu.
(Sigurður Jónsson Þingeying-
ur er sýknaður. Sigurður sagð-
ist hafa verið að „syngja“ á
Austurvelli).
21. Ákærði Magnús Jóel
Jóhannsson.
Ákærði var staddur við Al-
þinghúsið frá því kl. rúm-
lega 1 e. h., þar til táragas-
sprengjum var kastað, en þá
hvarf, hann af vettvangi. Vitni
hafa borið, að liann hafi verið
þarna í hópi manna, sem köst-
uðu grjóti að Alþingishúsinu,
og að hann hafi látið ófriðlega,
en ekkert vitni hefur séð hann
kasta grjóti eða öðru, og sjálf-
ur hefur hann neitað því stað-
fastlega. Eitt vitni hefur bor-
ið, að ákærði hafi eggjað inenn
til að kasta grjóti. Annað vitni
segir, að hann hafi hvatt menn
til þess að sækja barefli, og
þriðja vitnið, að hann hafi
eggjað menn til þess að ráð-
ast inn í Alþingishúsið. Með
framurði þessara þriggja vitna
þykir leitt í ljós, að ákærði
hafi látið ófriðlega, meðar á
upphlaupinu stóð, og æst menn
upp. Með þessu framferði hef-
ur ákærði gerzt þiátttakandi í
upphlaupinu, og varðar b-.’ot
hans við 1. mgr. 100. gr. sbr.
2. mgr. 22. gr. laga nr. 19/1940
og 107. gr. sömu laga sam-
kvæmt lögjöfnun. Þykir refs-
ing hans hæfilega ákveðin
fangelsi 7 mánuði. ‘
Staðfesta ber ákvæði liér-
aðsdóms um gæz’uvarðhaids-
tíma ákærða og sviptingu rétt-
inda hans.
(Egill Sigurgeirsson hrl. lief-
ur sýnt fram á, að vitnin í máli
Mkgnúsar eru óáreiðanleg
og sum rauiiar „skáldsagúárböf
undar“. Magnús hefur mótmælt
því að hafa æst menn upp eða
látið ófriðlega og um það hera
einníg ábyggileg viíiii. Hæsti-
réttur kýs þó að byggja ósvíf-
inn fangélsisdóm á vætti
þriggja mótsagnakenndra
vitna. Magnús fær 7 mánaða
fangelsi og er sviptur kosninga-
rétti og kjörgengi).
22. Ákærði Hreggviður
Steíánsson.
Tveir lögreglumenn gáfu
skýrslu um, að þeir hefðu séð
hóp ungmenna kasta eggjum
að Alþingishúsinu. teir þekktu
ekki þessa menn, en einn
þeirra, ákærði \Guðmundu(r
Helgason, sagði öðrum lög-
reglumanninum til nafns síns,
en siðan hafa lögreglumexmirn-
ir lýst því fyrir dómi, að þeir
hafi síðar þekkt ákærða Hregg-
við Stefánsson sem einn þess-
ara manna. Ákærði hefur stöð-
ugt neitað því, að hann hafi
tekið þátt í eggjakasti. Lög-
reglumennirnir voru ekki látn-
ir benda á ákærða í hópi
manna. Að svo vöxnu máli
þykir varhugajvert að fuib
treysta skynjan þeirra um, að
ákærði hafi verið þarna að
verki, og þykir því bera að
sýkna hann af ákæru í máli
þessu.
(I máli Hreggviðs hefur þó
Hæstiréttur ekki séð sér annað
fært en byggja sýknudóm á
framburði ákærís sjálfs gegn
framburði tvéggja lögréglu-
manna).
23. Ákærði Guðmundur
Jónsson.
Ákærði kom á Austurvöll kl.
að ganga sex umræddan dag.
Voru þingmenn þá farnir úr
þinghúsinu og upphlaupið um
garð gengið. Marg manna var
þá enn á vellinum og götunni
fyrir framan Alþingishúsið.
Kveður ábærði, að nokkrir
piltar hafi verið þar með grjót,
sem þeir vörpuðu að Áiþingis-
húsinu. Hafi einn þeirra féngið
sér stein í liönd og hvatt sig
til þess að kasta honum að
þinghúsinu. V arð ha.nn við
þeim tilmælum, og kveður Hann
steininn hafa lent í húsveggn-
um. — Þegar ákærði framdi
verknað þenna, voru lögregiu-
menn enn til varnar Alþingis-
húsinu, og verður áð telja,
að falizt hafi í steinkastinu
hótun um ofbeldi gegn vórn-
um Alþingis. Varðar brot á-
kærða við 106. gr. laga nr.
19/1940. Ákærði var á 17. ári
er þetta gerðizt, og þykir
refsing hans með hliðsjón af
2. tölulið 74. gr. sömu laga og
lögum nr. 14/1948 hæfilega
ákveðin kr. 1500.00 sekt í
ríkissjóð. Fresta skal framkv.
refsingar og niður skal hún
falla eftir 5 ár frá uppsögu
dóms þessa, ef skilorð VI.
kafla laga nr. 19/1940 verða
haldin. Ef skilorð nefndra laga
verða ekki haldin, sæti ákærði
12 daga varðhaldi, ef hann
greiðir ekki sektina innan 4
vikna frá því að honum er
tilkynnt, að refsingin verði
framkvæmd.
(Guðmundur Jónsson var
yngstur hirna ákærðu, aðe’ns
16 ára að aldri. Ilann játaði að
hafa kastað sfeihi í þinghúsið
kl. að ganga 6 þegar allir þing-
mennirnir voru farnir út. Þó
var hann í undirrétti dæmdur í
þurgan fangelsisdóm fýrir á-
rás á Alþingi. Ekki vili Hæsíi-
réttur þyrma barninu og sekt-
ar það um 1500 kr. fyrir að
hafa ráðist með ofbeldí að
„vörnum Alþingis”!).
24. Ákærði Kristófer
Sturlnson.
Með skírskotun til raka
þeirra, sem í héraði greinir,
ber að staðfesta ákvæði hans
um sýknu ákærða.
(Kristófer Sturluson var
sýkna.ður, en ekkert getur
Hæstiréttur um kröíu hans til
bóta fyrir gæzíuvarS'hald að á-
stæðulausu. Morgunblaðið ætti
rú að hafa nægt tilefni til að
skammast sín og biðja Krlstó-
fer opinberlega afsokunar á
hinum ógeðslegu aðdróttunum
sínum, sem enn eru í fersku
mhmi).
Gerizt áskrit
endur aS
ÞjóSviJjanum