Þjóðviljinn - 15.08.1952, Side 8
| Fundur sildarsaltenda og útvegsmanna
skoraði á síldarútvegsnefnd að ilvta
samningum um sölu Faxasíldar
svo söltun geti þegar hafizt
Ríkissijórain styrki áfram rannsóknir dr. Hermanns Einarssonar og láti gera
tilraunir með veiði síldar í flotvörpu
Á fundi útvegsmanna og síldarsaltenda sunnanlands sem liald-
inn var með Síldarútvegsnefnd síðastliðinn þriðjudag var eftir-
farandi ályktun flutt af Margeiri Jónssyni og Birni Péturssyni,
Keflavík, samþykkt með samhljóða atkvæðum:
„Fundur útvegsmanna og síldarsalteiula, haldjnn í Reykjavjk
12. ágúst 1952, samþykkir eftirfarandi ályktun:
Þar sem mikill f jöldi þeirra sáldveiðibáta, sem veiðar stunduð’u
íyrir Norðurlandi, hafa þegar hætt veiðum sökum algers afla-
hrests og bíða þess nú að geta hafið síldveiðar með reknetum
hér sunnanlands, þá skorar fundurnin á S.Ú.N. að ílýta samniag-
um um sölu Faxaflóasíldar, svo að söltun geti hafizt nú þegar
cða svo fljótt sem síldarmatið telur síldina söltunarhæfa“.
Af liálfu Síldarútvegsnefnd-
ar sátu fundinn Ólafur Jóns-
son, Björn Knistjánsson og
CBrlendur Þorsteinsson. — For-
maður nefndayinnar Jón L.
Þórðarson gat ek'ki mætt vegna
starfa í þágu nefndarinnar á
Norðurlandi og einn nefndar-
manna Björn Jóhannesson,
Hafnarfirði gat ekki mætt
vegna veikinda.
Fundinn sátu um 70 síldar-
saltendur og útvegsmenn sunn-
anlands.
Fundarstjóri var Ingvar Vil-
hjálmsson og fundarritarar
íngimar Einarsson og Huxley
Ólafsson.
Ólafur Jónsson varaformaður
nefndarinnar setti fundinn og
gerði grein fyrir tilefni hans.
Upplýst var á fundinum að
Síldarútvegsnefnd ynni að sölu
síldar til Finnlands, Póllands,
Svíþjóðar, Danmerkur og víð-
ar, og að kapp mundi á það
lagt, að verka einungis beztu
síldina, þannig að hún yrði
sambærileg áð gæðum við þá
síld, sem söltuð væri á veiði-
svæðinu í nánd við Færeyjar
Miklar umræður urðu um
málið og kom það Ijóst fram,
að kostnaðarsamara væri, að
öðru jöfnu, að veiða síldina
hér syðra en fyrir norðan og
hefði það aukna erfiðleika í fö.r
með sér við að selja síldina á
erlendum mörkuðum.
Fundarmenn voru sammála
um, að sjálfsagt væri að.vanda
til hins ýtrasta verkun Faxa-
síldar, svo að hún gæti stað-
izt samkeppni við þá síld áðra,
sem á boðstólum væri á sömu
mörkuðum.
Síldarútvegsnefnd óskaði eft-
ir að hafa samráð við fulltrúa
saltenda og útvegsmanna, varð-
andi ákvörðun verðs og flokk-
un síldarinnar, þegar til sölt-
unar kæmi.
Messum utvarpað
Eins og skýrt hefur verið
frá í útvarpi, auglýsti biskup
íslands nýlega þrjú prestaköll
í Reykjavík: Langholtspresta-
káll, Háteigsprestakall og Bú-
staðaprestakall, með umsóknar-
fresti til 1. september. Sam-
komulag hefur orðið á miili
biskupsskrifstofunnar og ríkis-
útvarpsins um það að útvarp-
að skuli einni messu frá hverj-
um umsækjanda. En þar sem
umsækjendur um þessi presta-
köll eru þegar orðnir svo marg-
ir, áð eigi mun reynast unnt
að útvarpa messum frá þeim
öllum á þeim stutta tíma, sem
líður á milli þess að umsóknar-
frestur er úti og þar til kosn-
ing fer fram, þá hefur verið á-
kveðið að hefja útvarp á þess-
um guðsþjónustum sunnudag-
inn 17. ágúst. Verður síðan ,út-
varpað tveim messum á _hverj-
um suimudegi kl, 11 og kl. ,2
fyrst um sinn, éða }:ar til um-
sækjendum hefur gefizt kostur
á ao láta til sín heyra.
(Frá biskupsskrifstofunni).
Á fundinum mættu dr. Her-
mann Einarsson fiskifræðingur,
dr. Þórður Þorbjarnarson og
Leó Jónsson síldarmatsstjóri.
Dr. Hermann Einarsson skýrði
frá rannsóknum sínum undan-
farin ár. Dr. Þórður Þorbjarn-
arson skýrði frá rannsóknum
sínum og Fiskifélags Islands
á fitu- og stærðannælingu síld-
ar.
Á fundinum var samþykkt
tillaga þess efnis, að skora á
ríkisstjómina að styrkja áfram
rannsóknir dr. Hermanns Ein-
arssonar Og ennfremur að láta
gera tilraunir nú í sumar og
haust með veiði síldar í flot-
vörpu (síldartroll).
DJÓÐVIUINN
Föstudagur 15. ágúst 1952 — 17. árgangur — 180. tölublað
Harðstjórn og fjármálaspilling
Bandaríska tímaritið ,,Business Week“ lýsir
stjórnarfari í Suður-Kóreu
í Banclaríkjunum er sunium fariö að skiljast að stjórn
Syngmans Rnees sé ekki heppileg fyrir áróður Banda-
ríkjanna fyrir stríði þeirra í Kóreu. Fjármálatímaritið
Busines’s Week, sem er málgagn voldugra auðmanna,
hefur nýlega gefið ýtarlega lýsingu á stjórnarfarinu í
Suður-Kóreu og niöurstaðan er þessi: Fjármálaspilling
SUBJOlySQ.Tmi .TIUIA ‘UIUU3i(UI9QnjOt[ U.T9 U.TOflSQ.Tep 9o
maka krókinn rneðan fólkið sveltur.
að
/ •
UícmferS meS elgm hsl
Félag íslenzkra hifre'ðaeig-
enda hefur gert samning við
Orlof h.f. um ýmiskonai' fyrir-
greiðslu fyrir J:á félagsmenn
sem ferðast utan með bifreið-
ar sínar.
Hér er um að ræða ýmsar
upplýsingar, aðstoð við samn-
ingu ferðaáætlunar, teikning
leiða á kort. Orlof hefur bíl-
vegakort yfir allar venjulegar
leiðir í Evrópu. Einnig upplýs-
ingar um verð á benzíni í ýms-
um löndum, ferjugjöld o. s. frv.
Öll er fyrirgreiðsla þessi ó-
keypis.
Stjórn F. I. B. gat þess í
viðtali við blaðamenn í gær, að
þeir sem hefðu í huga að ferð-
ast erlendis á eigin bílum,
Heiilaóskir
Forseti Islands sendi hans
hátign Hákoni Noregskonungi
'heillaskeyti á áttræðisafmæli
hans og hefur nú borizt þakk-
arskeyti frá konungi. — Frá
forsetaritara).
þyrftu að athuga margt í sam-
bandi við það, með nægum fyr-
irvara, helzt ekki minna en hálf
um mánuði, því að það tekur
nokkuð langan tíma að ganga
frá sérstökum ferðaskírteinum,
sem þarf vegna bílanna, annars
þarf að setja tryggingu, sem
nemur 70%'andvirðis bílsins við
landamæri, sem yfir er farið,
í gjaldeyri viðkomandi lands, og
getur það orðið ærið fé, ef
víða er farið. 1 sumar hafa um
50 manns ferðast utan með eig-
in ibíla, en 80 um sama leyti í
fyrra, en þá ferðuðust 104 sam-
tals til útlanda með bíla sína.
— M. a. þarf að útvega alþjóð-
leg ökuskírteini, og annast Or-
lof það einnig. Öll fyrirgreiðsla,
sem F. 1. B. sér um fyrir fé-
lagsmenn kostar nú 250—300
krónur í sambandi við utanferð
með bíl.
Fólagsmenn í F. I. B. eru nú
um 500, en 5000 einkabílaeig-
endur eru hér í bænum. Árs-
gjald er 50 krónur.
Síðastliðinn sunnudag var að
tilhlutan fjögurra kaupfélaga
haldin að Núpi í Dýrafirði sam-
vinnuhátíð ti| minningar um
50 ára afmæli Sambands ís-
lenzkra samvinnuféiaga.
Fór hátíðin fram í blíðskap-
arveðri og var fjölmennasta
samkoma sem haldin hefur ver-
ið að Núpi, sótt af 5—600
manns. Félögin, sem stóðu að
hátíðinni voru kaupfélög Is-
firðinga, Súgfirðinga, Önfirð-
inga og Dýrfirðinga.
Sfr. |Eiríkur Ef.ríksson iað
Núpi setti samkomuna og
stjórnaði henni, en ræður fluttu
eftirtaldir fulltrúar félaganna:
Birgir Finnsson fyrir Kaupfélag
Isfirðinga, Hermann Guðmunds-
son fyrir Kaupfélag Súgfirð-
inga, Eiríkur Þorsteinsson fyrir
Kaupfélag Dýrfirðinga og Hall-
dór Kristjánsson fyrir Kaup-
félag Önfirðinga. 'Ennfnemhr
fiutti ræðu Baldvin Þ. Krist-
jánsson, erindreki SÍS, en á
milli ræðanna söng kvartett frá
Isafirði undir stjórn Jónasar
Tómassonar og almenningur
söng, einnig undir stjórn Jón-
asar.
Þá flutti Halldór Kristjáns-
son bpndi frumsamin kvæði, og
var eitt þeirra ort til sam-
vinnuhreyfingarinnar. Var því
útbýtt á hátíðinni fjölrituðu
og sungið af öllum viðstöddum.
Þá sendi Guðmundur Ingi
Kristjánss. samkomunni kvæði,
en í forföllum hans las það
bróðir hans, Ólafur Þ. Krist-
jánsson, formaður Kaupfélags
Hafnfirðinga, og flutti hann
einnig kvéðju þess félags.
Að lokum var kvikmyndasýn-
ing og dans.
20 milijarðar dollarar til
stuðnings við Syngman Rhee.
„Það eru ekki aðeins árás-
irnar á orkuverin við Yalúfljót,
og hinar kvalræðislegu vopna-
hlésumræður í Panmunjom. sem
ráða öriögum Suður-Kóreu. —
Þannig hefst grein tímaritsins,
„duttlungar gamals manns
ráða líka miklu þar um . . . .“
Síðan segir tímaritið frá því
hvernig Syngman Rhee tróð
stjórnarskrána fótum og kom
á einræði sínu. Ástandið er
óhugnanlegt „og hætta er á
því a'ð þeim 20 milljörðum doll-
ara sem Sameinuðu þjóðirnar
ar hafa varið á sex árum til
stofnunar, og síðan 1950 til
varnar frjálsri Kóreu hafi ver-
ið kastað á glæ“. Business
Week segir, að þeir sem þekkja
til stjórn- og hermála landsins
séu hræddir um, að takist ekki
að breyta stjórnarfarinu og
og koma fjármálum stjórnar-
innar á réttan kjöl „muni land-
SiisniEi lokað
'Aðstoðarlæknar á finnskum
sjúkrahúsum hafa nú hafið bar
áttu fyrir liærri launum. 50 af
200 læknum sem krefjast hærri
lauha háfa nú sagt upp starfi
sínu og hætta er á að mörg
ríkissjúkrahús verði að loka
eftir nokkra daga, ef læknarn-
ir lialda fast við uppsagnirnar.
Treg síSdweiði
r átx ■
i'ð á fáum árum komast í hend-
ur kommúnista vegna van-
rækslu“. Þjóðir sem fyrir
nokkrum vikum voru fúsar að
leggja fram fé til hemaðar
Bandaríkjanna í Kóreu eru nú
orðnar varar um sig vegna
stjórnmálaástandsins, segir
tímaritið. Og í Kóreu efast
menn æ meir um að -það takist
að koma efnahagi Suður-Kór-
eu í hei'lbrigt horf.
Allir Jiekkja hæfileikaleysið,
skæruliðum fjölgar.
Tímaritið ver nokkrum síðum
til þess að lýsa stjórn- og fjár-
málaspillingunni, og hún hlýt-
ur að vera meira en lítil fyrst
hún þykir umtalsverð á landi,
þar sem menn eru ýmsu vanir
af því tagi.
Buisness Week segir að hæfi
leikaleysi ráðhei'ra Syngmans
Rhees sé öllum kunnugt, Qg
það kvartar yfir þyí, að ungir
og framsæknir menn fái ekki
tækifæri til þess að hjálpa til
við uppbyggingu landsins.
Mönnum finnst jafnvel að bar-
átta síðustu tveggja ára hafi
verið unnin fyrir gýg.
Lögreglan í Suður-Kóreu á
ekki sízt sök á spillingunni.
Lögreglustjóri einn í Púsanliér-
aði hefur á sér það orð, að
liann geri tíu menu að skæru-
liðum fyrir hvern einn sem
hann handtekur.
Grindavík
Grindavík í gær.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
I dag var treg síldveiði, en
þó fe.ngu nokkrir bátar 50—70
tunnur. Um 30 bátar lönduðu.
Eins og áður er síldin frysti til
beitu. Sum er flutt til Reykja-
víkur og fryst hjá Hraðfrysti-
stöð Reykjavíkur, en sumt er
flutt í bræðslu til Keflavíkur
og Njarðvíkur.
Siglufirði.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
I fyrradag veiddist nokkur
síld út af Digranesflaki og
Kjölvogsbanka. Voru allmörg
skip á þessum slóðum, og var'ð
mesta veiðin hjá bát 180 tunn-
ur, og var það Guðmundur
Þoriákur sem þá veiði fekk.
Nokkrir bátar fengu um 100
tunnur. Veiðiveður var gott.
Mörg skip eru nú hætt veið-
um. en að undanförnu hefur að-
allega verið um ufsavei’ði að
ræða.
ísrael fær 11.441
eniSijén krésia
Sú frétt hefur borizt frá
Haag, að ísrael hafi tekið v.-
þýzku tilboði um 715 millj.
dollaYa skaðabætur vegna eigna
ráhs þýzkra stjórnarvalda frá
Gyðingum á árahilinu 1933-’45.
Auk þess mun Vestur-Þýzka-
land greiða alþjóðasamtökum
Gyðinga 107 millj. dollara.
Skaðabætur til Israel verða
greiddar í vörum.
Inn ti! landsin um hslgina
Eiiis og fyrri daginn efnir Ferðaskrifstofaa enn til margra
ferða um uæstu lieigi. Hér er yfirlit yfir heiztu reis'urnar:
Þórsmörk
Á laugardag kl. 13:30 verður
farið austur í Þórsmörk og
dvalizt þar í tjöldum fram á
mánudag. Þeir sem vilja, geta
fengið tjöld frá Feröaskrif-
stofunni. Fararstjóri er Sigur-
jón Danivalsson.
Kaldiilalur-Borgarfjörður
Á sunnudaginn kl. 9 verður
lagt af stað og ekið um Þing-
völl og Kaldadal að Húsafelli.
Þar verður snætt nesti og þeir
sem vilja geta fengið þar keypt
mjólk og smurt. Þaðan verður
svo haldið að Reykholti og að
Hvanneyri, ef tími vinnst til.
Þjórsárilalur
Á sunnudag kl. 9 verður far-
ið 1 Þjórsárdal upp að Stöng,
Brú og Gjá. Þátttakendur þurfa
að hafa með sér nesti, en hægt
mun að fá mjólk og smurt
brauð áð Skriðufelli.
Ílullfoss-Geysir
Kl. 9 á sunnudag verður far-
jð að Gullfossi og Geysi. Stuðl-
að verður að gosi.
Hringferð
á suimudag kl. 13:30 vevð-
ur farin hringferð um Krýsu-
vík, Strandakirkju, Hverager'ði,
Sogsfossa og Þingvöll,