Þjóðviljinn - 31.08.1952, Síða 1
VEGNA skemmtiferðar
starfsfólksins kemur
næsta blað af Þjóð-
viijanum ekki út fyrr
en á miðvikudag.
ðsvífnl bandarfska sendiherrans í
sf jórnlnnl 1 klípu
Stfórnarblað hrefst að hann
verði hallaður heint
E. Peurifoy, sendiherra Bandaríkjanna í Grikklandi,
hefur aldrei farið dult með, aö hann álítur rikisstjórn
og stjórnmálamenn Grikklands bandaríska leppa, sem
hafi það eitt hlutverk að hlýða boði og banni Bandaríkj-
anna, og hafa þeir oft haft ástæðu til aö kvarta undan
bersögli hans.
Á þriðjudaginn lýsti hann yf-
ir, að „nú verðum við að kom-
ast að raun ura án tafar, hvern
gríska þjóðin vill láta ráða mál-
um sínum: Papagos marskálk
©ða Plastiras hershöfðingja.
Það svar fæst aðeins með nýj-
um kosningum við fyrsta tæki-
færi og í þeim kosningum verð-
ur meirhluti atkvæða að ráða
kjöri“.
Peurifoy hefur áður heimtað
kosningafyrirkomulaginu breytt
þannig að tekin verði upp ein-
menningskjördæmi í .stað hlut-
fallskosninga. Þá mótmælti rík-
isstjórn Plastiras þessari op-
inskáu íhlutun.
Peurifoy verði kallaður
heim.
Blað stjórnarinnar Helliniki
Imera krefst þess nú að Peuri-
foy verði 'kallaður heim. „Mr.
Peurifoy er ekki hingað sendur
til þess að gefa löglegri stjórn
okkar fyrirskipanir“, segir blað
ið. „Hann hefur algerlega mis-
skilið stöðu sína“.
Meinað málaliðs
Indverska stjórnin hefur til-
kynnt, að hún muni ekki fram-
ar leyfa Bretum að afla sér
málaliðs meðal Gúrkakynflokks
ins í Nepalriki, en þaðan hafa
Bretar fengið hermenn í ný-
lenduher sinn um margra ára
skeið.
En Peurifoy veit hvað hann
syngur, hann veit hver hefur
undirtökin á grísku þjóðinni.
Þegar sósíaldemokratar mót-
mæltu í þinginu þessari síðustu
íhlutun hins bandaríska sendi-
herra, sagði Venizelos varafor
sætisráðherra: „Við höfum
engan rctt til þess að fara með
slík ummæli um erlenda full-
trúa.“
Herinn minnkaður um
helming.
Ástæðan til þessarar íhlutun-
ar Peurifoys er sú, að stjórn
Plastiras hefur hótað að leggja
til kosninga með stefnuskrá,
þar sem lagt er til að herinn
verði minnkaður um helming,
sem svar við þeirri ákvörðun
Bandaríkjanna að skera efna-
hagsaðstoðina niður um helm-
ing.
3Malih hafnisr
áróðurstillögu
Malik hafnaði í gær á fundi
afvopnunarnefndar SÞ áróðurs-
tillögum Vesturveldanna um af-
vopnun.
Þessar tillögur voru lagðar
fram í maí og fólst í þeim, að
stórveldin þrjú Bandaríkin,
Sovótríkin og Kína takmörkuðu
heri sína við 1,5 millj. manns
hvert, en Bretland og Frakk-
land við 800 þús. Með þessu
móti fengju vesturveldin þrjú
sem hafa samtals um 250 millj.
íbúa, fjölmennari her en Sovét-
ríkin og Kína sem hafa um 650
millj. íbúa.
Malik lagið í sta&inn til, að
fækkað yrði í öllum herjum um
þriðjung sem fyrsta skref á
. leiðinni til algerrar afvopnun-
ar og algert bann yrði lagt við
kjarnorkuvopnum.
BANDARÍSKAR sprengjuflug-
vélar gerðu í gær loftárásir á
raforkuver í Norður-Kóreu.
Sagt var í Tokio, að útvarpið.
í Pyongyang hefði þagnað við
loftárásina miklu í fyrradag
og hefðí enn ekki heyrzt í
því.
Bandarískri kröfu um forréttindi í
Marokko hafnað af Haagdómstólnum
Vildu ekki hlíta lögum landsins, heimtuðti
tolla- og skattfríðindi
Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur kveðið upp úrskurð í deilu-
máli Frakklands og Bandaríkjanna um réttarstöðu bandarískra
þegna í frönsku Marokko, sem hafa þar aðsetur vegna banda-
rískra herstöðva.
Úrskurðurinn var í flestum
atriðum Frökkum i vil, Banda-
Kína semur um stórfefld við-
' skipti við Bretland
Samningar undirritaðir um kaup á vefnaðar-
vörum fyrir 1,5 millj. punda
Kína hefur samið við 60 vefnaðarframleiðendur í Yorks-
hire um kaup á ullarvörum, sem nema að verðmæti 568
þús. sterlingspund, eða um 26 millj. króna.
Samningar þessir eru gerðir
fyrir hönd kínversku stjórnar-
innar af umboðsfélagi í London.
Forstjóri fyrirtækisins London
Export Corporation, Jac'k Perry
sem tók þátt í efnahagsráð-
26 þús. farast í
umferðaslysum
Tuttugu þúsund manns hafa
farizt í umferðaslysum í Banda-
ríkjunum, og segja Bandaríkja-
menn það sjö sinnum meira
mannfall en þeir hafi orðið fyr-
jr í Kóreu
stefnunni í Moskva í apríl, seg-
ir að hann vonist til að hann
geti lagt fram pantanir fyrir
hönd Kínastjórnar á vefnaðar-
vörum fyrir 3,5 millj. sterlings-
pund, (rúmum 160 millj. kr.) á
þessu ári.
Bann dregur úr við-
skiptunum.
Nú þegar hefðu verið undir-
ritaðir samningár um viðskipti
fyrir 1,5 millj. sterlingspunda,
en bann brezku stjórnarinnar
við sölu annarra vara en vefn-
aðar til Kína mundi að líkindum
draga úr frekari viðskiptum.
Kínastjórn vill auk vefnaðar-
vara kaupa lyfjavörur og alls
'konar vélar og áhöld.
ríkin urðu ofaná í aðeins tveim
atriðum.
Dómstóllinn vildi ekki viður-
kenna kröfu Bandaríkjanna um
að bandariskir þegnar þyrftu
ek'ki að hlýta marokkönskum
lögum, nema því aðeins að þau
væru viðurkennd af Bandaríkja-
stjórn, nó heldur þá kröfu að
bandarískir þegnar ættu ekki
að greiða beina skatta í Mar-
okko eða neyzlutolla þá, sem
lagðir höfðu verið á árið 1948.
Bandaríkin hafa 'krafizt að
fá að greiða innflutningstolla
eftir ákvæðum sem þeir höfðu
sjálfir samið, en dómstóllinn
vildi heldur ekki fallast á það
og lagði áherzlu á, að ekki væri
hægt að gera upp á millj inn-
flytjenda.
MOSSADEGH ræddi í gær við
Iranskeisara í liálfa aðra
klukkustund. Brezka stjórnin
hefur fengið skýrslu frá Midd-
leton sendiherra hennar i Te-
heran um umræður hans við
Mossadegh. Bandaríski sendi-
herrann í London hefur átt
viðræður við Eden ^um olíu-
deiluna. Forstjóri bandariska
olíufélagsins NCity Service Cor-
poration er kominn aftur til
Teheran eftir 4 daga dvöl í
Abadan.
LEIÐTOGAR Wafdistaflokksins hafa mjög komið við sögu í
i'réttum frá Egyptalandi að undanförnu. Hér sjást þeir helztu,
Nahas fyrrv. forsætisráðherra er til vinstri (með fez á höfði) en
i'ormaður flokksins Furag Serag el Din er honum á hægri hlið..
í miðju uppreisnarhershöfðinginn Naguib.
Engisprettur herja i norS- í
vesturhéruBum Indlands '
Stærstu hóparnir 25 þús. lestir að þyngd
Versta engilsprettuplága, sem komið hefur í mörg ár, herjar
nú í norðvesturhéruðum Indlands.
Fréttaritari brezka útvarps-
ins segir að síðustu þrjá daga
hafi hver engisprettuhópurinn
eftir annan flogið yfir höfuð-
borgina, Nýju Delhi, og hann
segir þá vekja jafnmikinn ugg
meðal íbúanna og óvinasprengju
flugvélar hefðu gert.
Enn meiri ástæða er til að
óttast þessa plágu vegna þess
að upps'keruhorfur eru nú mjög
góðar í Indlandi. Engisprettan
getur étið tíu sinnum eigin
þunga á einum degi, og þegar
þess er gætt að stærstu hóparn
ir munu vega um 25 þús. lestir
er fljótséð hvílík landauðn þeir
geta skilið eftir sig.
Baráttan gegn plágunni og
varnarráðstafanir hafa þó geng
ið vel hingað til og vonir standa
Á NÆSTUNNI tekur til
starfa úraníumnáma í Suður-
Afrku, og er búizt vi'ð að þeg-
ar fullur skriður er kominn á
vinnsluna muni Suður-Afríka
verða stærsti framleiðandi úr-
aníums og sá námugröftur jafn
mikilvægur landinu og gull-
gröfturinn hefur verið.
Stjórnarkreppa
í Finnlandi
Stjórnarkt'eppa er nú í upp-
siglingu í Finniandi, þarsem
stjórnarflokkarnir eru sundur-
þykkir um verðlagningu á
kornvörum, og ekki lítur út
fyrir að þeir komist að sam-
komulagi.
Bændaflokkurinn vill hækkun
kornverðsins, en sósíaldemó-
kratar hafa ekki viljað fall-
ast 'á hækkunina. Þeir hafa
hótað því áð segja sig úr
stjórninni, ef hækkun korn-
verðsins verður samþykkt af
meirihluta ráðherra, en talið
I er sennilegt að svo verði.
til að komið verði í veg fyrir
stórfellda eyðileggingu.
Shinweil krefst
styttingar herskyldnnnar
Shinwell, sem var landvama-
ráðherra í stjórn Verkamanna-
flokksins, hefur 'krafizt að her-
skyldutíminn verði styttur í
Bretlandi.
Eitt ár væri feykinóg til hem
aðarþjálfunar, sagði hann.
Verkamannaflokkurinn hefði
tekið upp tveggja ára herþjón-
ustu, en það hefði aðeins verið
bráðabirgðaráðstöfun.
Shinwell lagði áherzlu á að
Verkamannaflokkurinn yrði að
ta'ka upp róttækari stefnuskrá,
ef hann vildkhalda velli.
'ji--------%—i-------------
andarískt jafn-
rétti!
Utanríkisráðuneyti Banda-
ríkjanna tilkynnti á miðviku-
daginn, að enn hefði engin á-
kvörðun verið te'kin um hvort
væntanlegir innflytjendur yrðu
skyldaðir til að upplýsa hvort
þeir væru af Gyðingaættum.
Lögfræðingar í utanríkis- og
dómsmálaráðuneytunum athuga
nú hvaða spurningum innflytj-
endum beri að svara samkvæmt
hinum nýju lögum um innflytj-
endur.
Olíufundur í íran
Bandarískir olíuleitarmenn
hafa fundið olíulindir um 150
km fyrir sunnan Teheran. segir
New York Journal of Comm-
erce. Það er álitið sennilegt,
að hér sé um jafnauðugar
lindir að ræ'ða og þær sem
Bretar höfðu ráð yfir við Aba-
dan, áður en. þær voru þ;óð-
nýttar.