Þjóðviljinn - 31.10.1952, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 31.10.1952, Blaðsíða 1
Vostmlagur 31. október 1952 — 17. árgaiigur — 246. tölublaó boðar iyrirætlanir um að bizida allt kaup með nýjum þrælalögum Tillaga sósíaíista um mánaðarlegar vísitiiiugreiðslnr samkvæmt framlærsluvisitölu lelld I elrideild .rt'.-" Stjórnarliðið' í efrkleild felldi í gær tillögu frá Magnúsi Kjartanssyni þess efnis að frá 1. nóv. n.k. skyldu allir iaunþegar fá greiddar mánaðarlegar vísitöluuppbætur •samkvæmt framfærsluvísitölu — en hún er nú 162 stig. Urðu miklar tunræður um þessa tillögu, og m.a. lýstu þrír þingmenn stjórnarinnar því yfir aö þeir væru fylgjandi nýrri lögbindingu á kaup, þótt sú leið væri c-kki framkvæmanleg alveg strax — þ.e. ekki fyrr en eítir næstu lcosningar. Magnús flutti tillögu sína sem breytingartill. við frumv. i íkisstjórnarinnar um fram- lengingu á ársfjórðusigslegum vísitölugreiðslum til opinberra starfsmanna. Rakti Magnús í framsöguræðu sinni fyrir til- lögunni hversu ofboðslega dýr- tíð hefði vaxið undanfarin ár, og hversu stórlega laun verka- manna hefðu dregizt aftur úr. Framfærsluvísitalan er nú 162 stig, en gamla visitalan er kom- in upp í um 640 stig og hefur þannig meira en tvöfaldazt á fimm árum. Væri kaup greitt samkvæmt gömlu vísitölunni — eins og gert var til 1947 þegar AB-menn afnámu þau réttindi — ætti Dagsbrúnar- maður nú að hafa tæpar 20 kr. um tímann, en það sam- svarar því að árslaun hans ættu að vera um 14.000 kr. hærri miðað við 300 fulia vinnudaga. Það er því sú upp- hæð sem á skortir að Dagsbrún- arkaup hafi fylgzt með hinni skipulögðu dýrtíð. í þokkabót er atvinnuleysið nú orðið mjög víðtækt og alvarlegt og liefur skert lifskjör allra verkamanna á geigvænlegan hátt. f þessu sambandi minntist Magnús sérstaklega á það að verkalýðssamtökin eru nú að -búa sig til stórsóknar til að vega að einhverju gegn þess- ari þróun. Þetta eru þær stað- reyndir sem nú blasa við Al- þingi, og hjá því verður ekki komizt að Alþingi taki þessi stórmál til skjótrar og rögg- samlegrar meðferðar. Kvað hann tillögu sína hugsaða sem lið í sjálfsögðum viðbrögðum Alþingis við kröfum verkalýðs- samtakanna. Miklar umræður spunnust um málið og töluðu auk Magn- úsar Haraldur Guðmundsson, Bemharð Stefánsson, Eysteinn Jónsson, Páll Zóphóníasscn, og Gísli Jónsson. Mælti Haraldur fast með tillögu Magnúsar, en hinir snérust gegn lienni. Og í sainbandi við ræður þeirra gerðust þau tíðindi sem að of- an greinir að jiingnieim stjórn- arflokkanna Iýstu yfir ein- dregnum vilja sínum til að binda kaup og' afurðaverð bæuda með nýjum Jirælaltígum. Ekki væri að visu tímabært að gera Jiær ráðstafanir nú — (fyrir kosningar!) — en til beirra yrði að grípa mjtíg fljót- lega. Þessa yfirlýsingu ber ef- laust að skoða sem svar stiór- arliðsins til verkalýðssamtak- anna, og er ekki að efa að næsta þing Alþýðusambandsins hljóti að taka þau til alvar- legrar meðferðar og haga störf um sínum í samræmi við þau. Ættu þau ekki sízt að vera lærd.ómsrík fyrir Alþýðuflokks- fulltrúana á þinginu. Tillaga Magnúsar var felld með 8 atkv. *gegn 5. Fangamorðin í S.- Kóreu baia valcið viðbjóð maniia um heim allan og meira að segja inn an liandaríska hersins hafu mcim íátið l*á tilfinningu í ljós. Á myndinni sést bandaríski liðþjálfinn Dean Chase, 24 ára gam afl, sem liefur haft aðsetur í herbúð- um við Fort Orr í ICaliforníu. Hann heldur á afriti af bréfi, , sem hann skrifaði Mark Qlark, yfirhers- liöfðingja Banda- ríkjaliers í Kóreu, þar sem' hann komst svo að orði aö aðfarirnar við fangana væru „við urstyjigilefíur og siðiausar". •Yfirboðarar þessa hugprúða hermanns stefndu lionum strax fyrir herrétt og kröfðust þess að lionum yrði stranglega refsað. Matthías Þórðarson fyrrver- andi þjóðminjavörður var 75 ára í gær. Forseti íslands sæmdi hann stóikrossi á af- mælisdaginn í viðurkenningar- skyni fyrir þjóðnýt störf. Fyrirspurnir á Alþingi: Hverjir íengu bilana? Steingrímur Aðalsteinsson flytur á þingi eftirfarandi fyr- irspurn til viðskiptamálaráð- herra um innflutning fólksbif- reiða: ,,a) Hvcrsu margar fólksbif- reiðar 6—7 manna hafa vcrirt fluttar inn á árinu 1952? b) Hverjir liaí'a fengið inn- flutningsleyfi fyrir slík- um bifreiðum? c) Hversu mikinn erlendan gjahleyri kosta þær fólks- bifreiðar, sem liér urn ræðir ?“ Fangar skotn- ir í FLóreu Bandaríska herstjórnin í Kóreu tilkynnti í gær, að enn hefðu verðir við stríðsfanga- búðir hennar skotið til bana og sært fjölda stríðsfanga frá Norður-Kóreu og Kína. Sagði hún að verðirnir hefðu skotið á fangana er þeir liefðu reynt að strjúka úr íangabúðunum á næturþeli og liefðu margir fangar fallið og særzt. Ekki voru neinar tölur ne.fndar. Frygðarlyfianofkun banda- rískra hermanna í Bretlandi Frygðarlyfjabyrlun bandarísks hermanns við brezka slúlku var þáttur í hjónaskilnaðarmáli í Bretlandi nýl. Carey Evans, dómari í hjóna- skilnaðarréttinum í Norwich, veitti að sögn brezka blaðsins News of the VVorld 12. okt, sl. Monica Gladys Niohols skilnað komið nt Nýja stúdentablaöiö, málgagn Félags rótttækra stúd- enta, er komiö út og er helgað stúdentaráöskosningun- unum sem fram fara á morgun og öðrum bugöarefnum scúdenta. Þessar greinar eru í blaðinu: Stúdentar hafa ætíð staðið gegn erlendri áþján. Einar Kiljan Laxness stud. mag. skrif ar greinina Sameinizt um sig- ur róttækra. Gerð tilraun til að afnema akaderaískt frelsi stúdenta og Efling lánasjóðsins er eitt mesta hagsmunamál há- skólastúdenta, báðar eftir Inga R. Helgasou stud jur. Hernám- ið og háskólastúdentar, eftir Boga. Guðmundsson, stud oeeon. Valið er auðvelt, eftir Friðrik Sveinsson, stud med. Búksorg- ir, eftir Ólaf Jensson, stud med. Tvær sígildar setningar, eftir Guðgeir Magnússon, stud phil. Ennfremur Háskólapistill o.fl. Blaðið er hið vandaðasta. Rit- stjórn þess hafa annazt Guð- geir Magnússon, Ólafur Jens- son og Einar K. Laxness. frá manni hennar, Bernhard Frank Nichols. Dómarinn kvað það sannað að hann hefði komið grimmd- arlega fram við konu sína. Setti lyfið í vín. Dómarinn kvað það eitt af dæmunum um grimmúðgi Franks að hann hefði sífellt núið Monicu því um nasir að hún hafði átt barn með banda- rískum hermanni áður en þau giftust. Dómarinn sagði að slík framkoma eiginmannsins hefði verið óverjandi eins og málum var háttað. Sautján ára gömul hefði Monica farið út að skemmta sér með bandarískum hermanni, og þegið af honum það sem hún áleit vera mein- laust vínglas. En hermaðurinn lét í glasið eitthvað það, sem varð þess valdandi að hún missti alla stjórn á sjálfri sér. Bandaríkjamaðurinn átti við hana kynferðileg mök og gat við henni barn, sem dó fimm daga gamalt. Nefnd hlutaðeigenda leiti fvrir sér um frið í Kóreu tillaga Vishinski á þingi SÞ í New York Á fundi stjómmálanefndar þings SÞ í New York í fyrrakvöld flutt-i Andrei Vishinski, utanríkisráöherra Sovétrílcjanna tillögu um aö nýjar leiðir yröu reyndar til aö koma á friöi í Kóreu. I þriggja klukkutíma og fjörutíu mínútna harðskeyttri ræðu svaraði Vishinski ræðu þeirri um Kóreustríðið, sem De- an Acheson, utanrí'kisráðherra Bandarikjanna, hélt í síðustu viku. Brot á aljijéðalögum. Vishinski sagði að ekkert stæði nú í vegi fyrir vopnahléi í Kóreu annað en sú krafa Bandaríkjamanna, að fá að halda þeim stríðsföngum, sem þeir halda fram að neiti að snúa heim til sín. Kvað hann þessa kröfu brot á skýlausum ákvæðum alþjóðalaga, Genfar- sáttmálans um meðferð stríðs- fanga, sem Bandaríkin sjálf eru aðili að. Nýr vettvangur. Það er ljóst, sagði Vishinski, að afstaða bandarísku samn- ingamannanna hefur girt fyrir það að samningar um vopna- hlé takizt. Hann kvaðst því vilja leggja til að umleitanir um frið í Kóreu yrðu teknir upp á nýjum vettvangi. Myndi vænlegast til árangurs að það yrði nefnd, skipuð fulltrúum allra þeirra aðila, sem hlút eiga að máli. Þúsundir handteknar Brezku nýlenduyfirvöldin i Kenya skýrðu frá því í gær að herlið þeirra og lögregla hefðu þann eina dag handtekið um 700 Afríkumenn. Þá er tala: handtekinna þá 10 daga, sem liðnir eru síðan nýlendustjórn- in lýsti neyðarástandi í Kenya, komin upp í 3600. enHnr métmæla „Fundur , hsldiun í Framt:ð- inni, málfundafélagi mennta- skólanemenda í Reykjavík 30. okt 1952 lýsir yfir fullum stuftningi sínum við mótmæli Háskólastúdenta gegn frum- \arpi því, sem menntainálaráð- herra flutti nýlega að beiðiii háskólaráðs. Þar eð nemendur Menntaskólans álíta, að mál þetta skipti |iá miklu, telur fundurinn, að með samhvkkt frumvarps Jiessa, yrði aðstaða févana námsmanna þyngd að muii og gæti ýaínvel uevtt þá tii að liverfa algjör’.ega frá nárni. Fundurinn krei’st •'l,,ers akademisks frelsis í Iiás’-éla, bæði i íþróttum og tíð’ iim i'árns greinnm. Fyrir J»ví skorar haim á hið liáa alþingi að vi«a fr"m- varpi Jiessu frá og þakkar jafn- framt þeim þingmönnum, sem vilja varðveita hið akademiska frelsi í sinni réttu mynd.“

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.