Þjóðviljinn - 22.11.1952, Qupperneq 8
SfiórnarSiSIð, þer á meðal Rvíkurþingmenn,
felia Eónsheimild fil þriógu virkjunar Sogsins
Stjórnarliðið, þar á, meðal Reykjavíkurþingmenn (Björn
Ólafsson o. fl.) fel’du í gær tillögu Einars Olgeirssonar um
héimild handa ríkisstjóxninni til lántöku er tryggi að þriðja
virkjun Sogsins verði hafin þegar að írafossvirkjuninni lokinni.
Benti Einar enn á, að samn-
ingur sá um ódýrt rafmagn til
Átourðarverksmiðjunnar, sem
ríkisstjórnin knúði fram yrði
óframkvæmanlegur að þrem-
fjórum árum liðnum nema að
tryggt væri áð þriðja virkjun
Sogsins yrði þá komin til notk-
uftar.
Yrði það ekki, væri ekki
nema um tvennt að gera, að
stórkostleg vandræði hlytust
íramtal til skatts streyma að.
Áður hefur verið skýrt frá
áskorunum skipsmanna á Geir
og Jóni forS'eta. Síðan hafa
borizt áskoran.ir fráj skips-
mönnum á ísólfi, Marz, Sval-
baki, Elliða, Hallveigu Fróða-
dóttur og Agli Skallagríms-
syni. Samtals eru þessar á-
skoranir undirritaðar af 160
togarasjómönnum, í langflest-
um tilfellum öllum hásetum
viðkomandi skips.
Sjómenn! Haldið áfram þess-
ari sókn, svo að Alþingi megi
af rafmagnsskorti í Reykjavík
og á Suðurlandi yfirleitt og
framleiða ýrði dag og nótt
dýrt rafmagn með Elliðaár-
stöðinni, — eða að Áburðar-
verksmiðjan stöðvaðist.
Að breytingartiilögu Einars
felldri var frumvarpið um láns-
heimild vegna áburðarverk-
smiðjunnar (^taðfesting á
bráðabirgðalögum) samþykkt
einróma úr neðri deild.
sem gleggst vita vilja ykkar
málinu.
Fulltrúaráðs-
fundur sveita-
stjórnarmálá
hófst í gær
Fulltrúaráðsfundur Sambandg
íslenzkra svéitarfélaga hófst í
gær kl. 2 e.h. í Kaupþings-
salnum. Formaður sambandsins
Jónas Guðmundsson setti fund-
inn og bauð fulltrúaráðsmenn
velkomna til starfa.
Á fundinum í gær var kosið
í nefndir. Eiríkur Pálsson,
framkvæmda,rstjóri sambands-
ins, flutti skýrslu um störf
stjórnarinnar frá því þing sam-
bandsins var háð sUmarið 1950.
Síðan hófust umræður um
tekjustofna sveitarfélaganna
og var Jónas Guðmundsson
framsögumaður. Einnig átti að
taka fyrir í gær stækkun sveit-
arfélaganna og framkvæmda-
stjóm þeirra, en tillögur í báð-
um þessum málum liggja fýrir
fuhdinum frá sambandsstjórn.
í I dag kl. 11 verður fundum
Framhald á 7. síðu .
13. hindið í Landnámuutgáfu Gunnars
Gunnarssonar kemur tít í dag
Gunnar Gunnarsson rithöfundur er nýkoniinn heim úr
ferðalagi um Austurríki og Vestutr-Þýzklanda.
Þrettánda bindið í Landnániuútgáfunni, ný bók er nefnist
Sálumessa, kemur út í dag.
S/ómenn /y/g/a fast eftir
vinnufatafrumvarpinu
Skipshafnii á níu togurum hafa sent áskoranir
Áskoranir sjómanna um að Alþingi ‘ samþykki fmmvarp
Jónasar Árnasonar og Áka Jakobssonar um að vinnufatakostn-
aður sjómanna og annars verkafólks verði dreginn frá við tekju-
Bæjarstjérn fsa-
fjarðar:
Skorar á Alþingi að sam-
þykkja frumvarp Lúðvíks
Xsafirði.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Bæjarstjórn Isafjarðar sam-
þykkti eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn ísafjarðar skor-
ar á Alþingi að samþykkja
framkomið frumvarp Lúðvíks
Jósepssonar á þingskjali 176
um stuðning við bæjar- og
sveitarfélög til atvinnufram-
kvæmda“.
Nýr hafnarhluti á
Isafirði
Isafirði.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Nýlega var tekinn í notkun
nokkur hluti af nýja hafnar-
kantinum á ísafirði. Er það
90 metra kantur, sem þar er
fuílgerður að öðru leyti en
því, að ekki hefur verið geng-
i'ð frá vatnsleiðslu, en verið er
að vinna að því verki.
Hafnarframkvæmdir þessar
eru búnar að standa í mörg
ár. Ekki hefur enn verið geng-
ið frá öllum hafnarkantinum,
þar sem járnþil syðri hlutans
hefur sigið nokkuð, en það er
nyrðri hlutinn, sem nú er full-
gerður.
Bæjarstjórn ísafjarðar hef-
nr samþykkt að veita Togara-
félagi Isfirðinga h.f. lóð til
hyggingar móttökuhúss á þinni
nýju hafnaruppfyllingu. Er á-
fomiað áð framkvæmdir við
þessa byggingu hefjist næsta
vor.
Blaðamenn ræddu við Gunn-
ar Gunnarsson í gær. Á ferð
sinni las hann upp í fjölda
Júrsó
og páfuglinn
Síðasta sýning á þessum
gagnmerka sjónleik írska
skáldsins Sean 0‘Casey, verður
í kvöld. Ber öllum gagnrýnend-
um saman um að þetta sé einn
af athyglisverðustu sjónleikj-
um erlendum sem Þjóðleikhús-
ið hcfur tekið til meðfer'ðar. —
Ættu leiklistarunnendur því
ekki að láta ganga sér úr greip-
um þetta síðasta tækifæri.
Myudin er af Arndísi Björns-
dóttur og Baldvin Halldórssyni
í hlutverkum.
bórga í Vestur-Þýzkalandi og
Austurríki, aðallega las hann
úr Sögu Borgarættarinnar,
Skipum heiðríkjunnar og smá-
sögum. I sumum borganna las
hann upp fjórum sinnum. Var
liann um mánuð í npplestra-
ferðalaginu, en alls hefur hann
verið erlendis í 5 mánuði lengst
í austurísku Ölpunum.
Sálumessu, hina nýju bók
sína, lauk Gunnar við á sl.
vetri. Er hún framhald af
Heiðaharmi og þó sjálfstæð
skáldsaga, þótt persónur og
umhverfi sé að mestu sama.
Er ætlún hans að halda áfram
og skrifa heilan sagnabálk. •—-
Þessi nýja bók hans og enn-
fremur Kirkjan á fjallinu, er
seld á frjálsum markaði, ann-
ars hafa útgáfubækur Land-
námu aðeins verið fyrir áskrif-
endur. Bækur Gunnars hafa
verið þýddar á mörg mál, á
hann t.d. Sögu Borgarættarinn-
ar á 14 málum. Verið er að
gefa Kirkjuna á fjallinu út i
Svíþjóð, skreytta myndum
Gunnars Gunnarssonar yngra.
Bandsríkjamenn
hefja kauplækk-
anir - Lækka kaup
sfarfssfúlkna um
5%
IIM síðústu Tnáhaðamót hófú
Ilan d aríkjani eu n á Kefla-
víkurflugvelli lsáuplækk'unar-
aðgerðir. Réðust þeir á garð-
inn þar sem þeir töldu hann
auðveldastan: lækkuðu kaup
starfsstúikna íslenzkra um
5 prósent.
Laugardagur 22. nóvember 1952 — 17. árgangur — 265. tölublað
Skulu bræður berjast?
Ný bók um friðarsamtökin, eftir Kristin
E. Andrésson
Út er komin ný bók eftir Kristin E. Andrésson, Skulu
bræður berjast, en það er frásögn af fundi heimsfriðarráðsins í
Berlín 1.—6. júlí 1952, uleinkuð friðarþingi þjóðanna sem kem-
saman í Vínarborg 12. des. n. k.
Eins og lesendum Þjóðviljans
er kunnugt sat Kristinn fund
heimSfriðarþingsins sem full-
trúi íslands og tók þátt í störf.
um þess. Fjallar bókin um
þingið, hina víðtæku alþjóð-
legu friðarbaráttu, sigra henn-
ar og næstu verkefni. Jafn-
framt kynnir Kristinn ýmsa
helztu forustumenn friðarhreyf-
ingarinnar en meðal þeirra erú
ýmsir kunnustu menn sem nú
eru uppi. Fylgja bókinni fjöl-
margar myndir af fulltrúum
á friðarfundinum. —- X bókar-
lok er prentað Bréf til allra
friðarnefnda og friðarvina frá
Frédéric Joliot-Curie, forseta
heimsfriðarráðsins.
Bók Kristins er 83 síður í
allstóru broti, og hana verða
allir að lesa sem vilja kynn-
ast víðtækustu og voldugustu
samtökum sem nú eru uppi.
Bullsmiðir stofna
stéttarféiag
I fyrrakvöld var haldinn í
Breiðfirðingabúð stofnfundur
Sveinafélags gullsmiða. Stofn-
endur voru 14 gullsmíðasvein-
ar. í stjórn voru kosnir: Þor-
steinn Finnbjarnarson, formað-
ur, Ásmundur Jónsson, ritari,
Ásdís S. Thoroddsen, gjald-
keri. Varastjónn skipa: Jói-
Framhald á 2. síðu.
Rök Framsóknarráðb.erra gegn laga-
breytingartilöqu:
Kæmi kynlega fyrir sjónir banda-
rískrim iánveitendum!
Eysteinn Jónsson spratt upp
(aldrei þessu vant) á fundi
neðri deildar Aiþingis í gær
og mælti harðlega á móti þeirri
breytingartillögu Stefáns Jóh.
Stefánssonar vð ábúrðarverk-
smiðjufrumvarpið að endur-
skoða skyldi lögin um Áburð-
arverksmiðjuna fyrir næsta
þing.
Flýtti Stefán sér að taka
tillögu sína aftur, vildi sízt
verða til þess áð Eysteinn
kæmi bandarískum lánveitend-
um kynduglega fyrir sjónir!
Einar Olgeirsson benti á hve
óviðkurtnanlegt það væri að
löggjafarstarfsemi Alþingis ís-
lendinga væri af ráðherrum
landsins talin háð því hvort
þetta atriði eða hitt kæmi er-
lendum mönnum kyndijglega
fyrir sjónir.
Kaffikvöldið
veiður að Hlégaiði en ekki í Þjóðleikhús-
kjailaramim.
Fyrir leiðan misskilning getur kafíikvöld Æskulýðs-
fylkingarinnar ekiri orðið í Þjóðleikhúskjallaranum’
eins og auglýst hafði verið. Ekkert samkomuhús í bænum
fékkst í kvöld með svona stuttum fyrirvara. Var
því úr ráði að íara upp að Hlégarði í Mosfellssveit, en
þar eru mjög glæsileg salarkynni.
Dagskráin verður hin sama: Eftirliermur — Kynnt
frumsamið sönglag — Upplestur — Verðlaunaafhending
— Strengjakvartett leikur — Nýstárleg samkeppni —
Fnrðuleg tilraun — Rímiiakveðskapur o. fl. — DANSAÐ
TIL KLUKKAN 2.
Farið verður frá Þórsgötu 1 klukkan 8 stund-
vislega. Aukabni kl. 9.
Fólagar hafið samband við skrifst.ofuna í dag.
Munið að f jölmenna að
HlégarSi
Sósialistar! MuniS daglega effir happdrœffi ÞióSvHjans!