Þjóðviljinn - 06.12.1952, Page 4
4) _ ÞJÖÐVILJÍNN — Laugardagur 6. desember 1952
Laugardagur 6. desember 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Jmóuvhljinn
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistafiokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Torfi Ólafsson,
Guðmundur Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg.
19. — Simi 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 18 á mánuði í Reykjavik og nágrenni; kr. 13
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
HundraS og þrjár milljénir
Hinn árlegi boðskapur íhaldsins um auknar drápsklyfjar á
Reykvíkinga var birtur á bœjarstjómarfundi í fyrradag þegar
ijárhagsáætlun bæjarins var lögð fram til fyrri umræðu. Frum
varpið gerir ráð fyrir að heildarálögur og gjöld bæjarsjóðs
nemi á næsta ári 103,4 milljónum króna og er það 9,3 millj. kr.
hærra en á yfirstandandi ári. Útsvörin eiga enn að hækka um
nærfellt fjórar milljónir, og eru nú áætluð 86,8 milljónir, en
samkvæmt reynslunni þýðir það að álögð útsvör verða vart
undir 95 milljónum þegar öll kurl koma til grafar. Jafnhliða
þessari hækkun útsvaranna ætlar svo íhaldið að hækka fast-
eignagjöldin um hvohki meira eða minna en 200% og á sú
hækkun einnig að ná til leigulóða bæjarins. Á með’ þessu að taka
af bæjarbúum í hækkuðum fasteigna- og lóðagjöldum 4,8 millj.
króna.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar fyrir árið 1953 er að því
leyti sögulegt plagg að heildarupphæð hennar kemst nú í fyrsta
skipti á annað hundrað millj. kr. Svo ör hefur iþróunin orðið á
siðustu fjómm árum fyrir tilverknað dýrtíðarstefnu afturhalds-
stjórnar Ihalds og Framsóknar og íhaldsóstjórnarinnar í bæjar-
málum Reykjavikur að álögurnar á Reykvíkinga hafa hækkað
úr 61,5 millj. 1949 í 103,4 millj. nú. Nemur íþessi hækkun 69%.
Sjálf útsvörin hafa hækkað úr 52 millj. í 86,8 imiilj. og er þá
miðað við áætluð útsvör en ekki endanlega niður3töðu þeirra
sem er allverulega hærri. Útsvörin hafa þannig hækkað um
hvorki meira eða minna en 67% á yfirstandandi kjörtímabili.
En álögumar á reykvískan almenning eru ekki allar taldar
þótt minnzt sé á útsvörin og aðrar tekjur sem ibæjarsjóði eru
ætlaðar. Til viðbótar koma iþær fjárfúlgur sem bærinn tekur í
gegnum stofnanir og fyrirtæki bæjarins. Öll þjónusta og neyzlu-
skattar hafa hækkað gífurlega á þessu kjörtímabili og em bæj-
arbúum áreiðanlega í fersku minni 30% og 58% hækkun á taxta
rafmagnsveitu og hitaveitu fyrir ári siðan. Lætur nærri sanni
að samkvæmt fjárhagsáætluninni fýrir 1953 sé gert ráð fyrir
að heildartekjur bæjaring og stofnana hans verði om 200
millj. króna á næsta ári.
Þessar gífurlegu fjárhæðir sem íhaldið leggur 7i bæjarbúa og
fara hækkandi frá ári til árs hverfa að langmestu leyti í botn-
lausa eyðsluhít bæjarstjómaríhaldsins og þeirrar gæðingahirð-
ar sem iþað elur á kostnað almennings. Það er t. d. athyglisvert
að enn á kostnaður við stjórn bæjarins og bæjarskrifstofurnar
að hækka um 720 þúsundir króna og hefur þá hækkað úr 4,2 í
8 millj. síðan 1949 eða um 90%, Árið 1949 nam kostnaðurinn
við stjórn bæjarins 6,8% af heildarútgjöldunum en er áætiaður
7,7% 1953. Svipaða sögu er að segja iun aðra liði bæjarút-
gjaldanna — með einni undantekningu þó.
Það em framlögin til verklegra framkvæmda. Áætlað fé til
gatnagerðar hefur einungis hækkað um 50% á kjörtímabilinu.
Sá er munurinn á viðhorfi íhaldsins til verklegra framkvæmda,
sem úkapa verkamönnum atvinnu og bæjarbúum aukin þægindi
og einkahagsmuna bitlingaliðsins sem hreiðrað ihefur um sig í
valdakerfi bæjarstjórnaríhaldsins. Þó tekur út yfir allt þegar
kemur að fjárframlögum til íbúðarhúsabygginga. Þrátt fyrir
húsnæðisneyðina sem lánsfjárkreppa og byggingabann ríkis-
stjórnarflokkanna að viðbættu afnámi húsaleigulaganna og sí-
hækkandi okurgreiðslum fyrir leiguhúsnæði, sem þúsundir al-
þýðufólks á við að búa, fyrirfinnst ekki í fjárhagsáætlun íhalds-
ins neitt sérstakt framlag til íbúðabygginga. Er það í fullu
samræmi við frammistöðu íhaldsins á yfirstandandi ári, en síðan
byggingu Bústaðavegshúsanna lauk hefur bœrinn gjörsamlega
haldið að sér höndum í þessu efni.
Fjárhagsáætlunin fyrir 1953 færir bæjarbúum einu sinni enn
'heim sanninn um hvert stefnir undir forustu bæjarstjórnar-
íhaldsins. Álögurnar eru auknar, skrifstofubáknið 'hanið út en
vei'klegar framkvæmdir skornar niður þegar mest þrengir að
aiþýðunni og þörfin er brýnust fyrir að gætt sá hófs í hækkuð-
um útgjöldum, óhófseyðslan skert en öll áherzla lögð á að bægja
atvinnuleysinu frá dyrum verkamanna. Þessi stefna leiðir til öng-
þveitis í fjármálum bæjarins, sligar gjaldgetu skattþegnanna og
færir alla alþýðu nær skortinum og fátæktinni. Iiún er í and-
stöðu við hagsmuni yfirgnæfandi meirihluta bæjarbúa. Sú spurn-
ing hlýtur því nú að knýja á með vaxandi þunga hvort ek;ki sé
nóg komið til þess að reykvískur almenniagur svifti fulltrúa
áhaldsins og auðstéttaraflanna forystu bæjarmálaana þegar tæki-
íærið gefst til þess að rösku áii liðnu. i
Harmsaga.
NIKOTÍNUS skrifar: Ég hætti lífi klu'kkan eitt, allt í lagi
nýlega að reykja. Langar mig með að reykja nokkrar enn
til þess að segja ágrip af því það var nú í seinasta sinn.
harmsögu minni öðrum tób-
akseitruðum sálum til viðvör-
unar. Svo bar við einn dag að
ég var staddur í veitingahúsi. HIN HÁTÍÐLEGA stund rann
Ég var ekki nema með 12.—• upp. Mig langaði í reyk eftir
13. sígarettuna og hóstaði lít-
ið eitt þegar kunningi minn
Ieit á mig með hrollkenndum
svip meðaumkunar. „Hann
'heldur víst að ég sé kominn
með tæringu“, hugsaði ég.
„Veiztu hvað þú eyðir í tóbak
yfir árið ?“ Síðan kom runa af
vísindalegum útreikningum,
húseign fyrir tóbakspening-
ana eftir 10 ár o. s. frv. á-
samt hroðalegum útlistunum
á lungnakrabba og nikotin-
sósuðum lungnablöðum. Ég
gapti dálítið en drap þó ósjálf-
rátt' í sigarettunni hálfreyktri.
Ég hafði séð nokkra kunn-
ingja frelsast þannig, en
aldrei rennt grun í að 2ja
pakka maðurinn aadspænis
mér færi sömu leiðina. Allan
þennan dag gat ég ekki að
mér gert að hugsa um hús-
eign og lungnakrabba hvert
skipti sem óg kveikti mér í
sígarettu. Þegar ég marði
seinasta sígarettustubbinn í
öskubakkanum um kvöldið á-
kvað ég að þetta skyldi verða
sú seinasta, húseignin og
krabbameinið höfðu sigrað,
inaður með nýtt líf fór að
sofa. Næsta morgun var ég
búinn að svæla 3 þegar ég
mundi eftir ákvörðuninni frá
kvöldinu áður. O fjárakornið,
það er eins hægt að byrja
eftir hádegi svo ég fékk mér
2 í viðbót í tilefhi af hinu nýja
ÞAÐ hefur orðið sprenging í
Alþýðuflokknum, einskonar
'kjamasprenging og svo víðtæk
að einsdæmi má telja í lífi
stjórnmálaflokka hér. á landi og
annars staðar. Allir iþeir menn
sem viðtækust völd ihafa haft
í flokknum pg mótað hafa
stefnu hans á undanfömum ár-
um og áratugum eru horfnir úr
stjóm hans í einu vetfangi. Á'B-
blaðið segir að Stefán Jóhaan
hafi orðið vel við dauða sínum,
en fullvíst er þó að hitt er
meira sannmæli að gamla klik-
an nisti tönnum í heift og
hyggi á hefndir. Hefur húa þá
góðu aðstöðu að ráða yflr ráns-
fengnum mikla, Alþýðuhúsinu,
Alþýðubrauðgerðinni, Iðnó o. s.
frv., og þar með ýmsum helztu
fjáraflamöguleikum fldkksins
og blaðsins. Verður sú aðstaða
eflaust hagnýtt til :htn,s ýtr-
asta.
HVER er ástæðan til þeis-
arar einstæðu sprengingar ?
Hún er ofur augijós. Árum
sarnan hefur forustu AB-flokkc
ins unnið hin auðmjúkustu
þjónustuverk í þágu auðmanna-
stéttarinnar og erlends valds
Árið 1947 tók Stefán Jóhann ai'
sér forustu í árás þeirri á lífs-
kjör almennings sem nú er a/
ná hámarki. I verkalýðshreyf-
ingunni hefur þessi klíka dreg-
ið lokur frá hurðum og verif
agentum stjórnarflokkannr
eina aðstöðu annarri betri oí
veikt að sama skapi styrk al
þýðunnar. Hún hefur í ýtrustv
auðmýkt greitt fyrir sívaxand
yfirráðum Bandaríkjanna yfh
•efnahagslifi þjóðerinnar, full-
veldi og menningarlífi. Það
hef’ur ekkert skilið Idíku Stef-
áns Jóhanns frá rlkisstjórainni
matinn en stóðst freistinguna
eins og nýjum og betri manni
sæmdi. Þetta var ótrúlega
auðvett, hélt ég. Þetta var
bara vani, ekki annað en
segja sér að mann langaði
ékkert í það og þá langaði
mann ekki neitt. Klukkan
varð 2, 3 og 4. Ég var farinn
að hlaupa upp frá verki, gá
út um gluggann, þvo mór um
hendurnar að nauðsynjalausu .
og einu sinni varð ég ofsareið- EG
ur án verulegrar ástæðu. Mig
langaði ekkert í tpbak, nei,
alls ek*ki neitt, bara vani. Ég
þóttist með sjálfum mér ekk-
ert taka eftir því, þegar ég
sprakk um 5 leytið og tók
við sígarettu er mér var boðin.
Það sém eftir var dagsins
reykti ég eins og vitlaus mað-
ur og reyndi að hugsa ekki
hefur byrjað nýtt líf“, án þe3S
þó að geta þess í hverju það
fælist. Ég þarf ekki að segja
frá hvernig fór. Ég fór að
finna nýjar og nýjar aðferðir
til þess að hætta. I fyrstu
trúði ég því að það væri betra
að hafa sígarettur og eldspýt-
ur í vasanum, sem prófraun á
karákterinn. Næst komst ég
yfir amerískt hefti „How to
stop“ 10 aðferðir, og ég fór
að fela fyrir mér allar eld-
spýtur. En ég var furðu fund-
vís. Þá faldi ég bæði eldspýt-
urnar og sígaretturnar, fann
hvorttveggja. Ég henti „How
to stop“ og fann ótal nýjar
aðferðir sjálfur. Loks greip
ég til þess örþrifaráðs að
segja konunni og kunningjun-
um að ég væri hættur og þá
fyrst byrjaði alvaran. Sóma
míns vegna varð ég að hætta
eða verða skotspónn allra og
til athlægis fyrir ístöðuleysi.
Oturgjöld vorsins
ÞOLDI vitiskvalir. Ég
kvartaði við konuna um að
það væri tóbakslykt af steik-
inni, vegna þess að hún reykti
í eldhúsinu. Hún sagðist aldrei
reykja og ég sagði að ihún
gerði það víst í laumi og okk-
ar fyrsta rifrildi hófst og
endaði með að hún grét, en
það var bara byrjunin. Sak-
lausir reýkháfar tóku á sig
um glæpinn, nýja lífið og á- myndir sígaretta og vindla-
kvörðuuina frá kvöldinu áð- stúfa og ollu hjá mér geð
ur. Ég svaf órólega um nótt-
ina og dreymdi að ég stæði
sjálfur við rúmgaflinn og
benti á 3jálfan mig: karakter-
laus aumingi. Ég vaknaði með
tóbaksþyngsli fyrir brjósti og
móralska timburmenn. Þetta
gekk ekki, nú var það alvara,
ég reykti aðeins einn njóla og
sagði síðan stopp, — þegjandi.
Konan spurði hvort eitthvað
væri að. Ég kyssti hana remb-
ingskoss og sagði: „ekkert
nema iþað, að ég er maður sem
annað en það að misimunandi
orðbragðí ar flíkað við al-
menning.
•
MEÐA'L óbreyttra kjósenda
Alþýðuflokksitis hefur uppreisn
mrc6^
in gega iþessari stefnu magnazt
ár frá ári. Fylgismenn flokksins
úr aiiþýðustétt skilja fullvel
hvert stefnir með hernámi
landsins og sivaxandi ágengni
vonzku. Á næturnar dreymdi
mig úlfaldann af Camel-pökk-
unum á iharða hlaupum með
klyfjar af La Corona, Raleigh
og Chesterfield. Ég varð
heimilisdjöfull svo að konan
fór að hóta því í alvöru að
skilja við mig. Kunningjar
minir fóru að sniðganga mig
þvi að ég var uppfullur af
hroðalegum lýsingum af
sorglegri endalykt tóbaks-
manna, gjaldþroti, sjóðþurrð,
Framhald á 7. síðu.
Bandaríkjanna og þeir finnp, á
sjálfum sér afleiðingar þeirrar
efnahagsstefnu sem Stefán Jó-
’hann og klíka hans hafa stutt
leynt og ljóst. Uppreisn kjós-
endanna birtist glöggt á Al-
þýðusambandsþinginu, þótt enn
sem fyrr tækist að tryggja
þann óvinafagnað að agentar
ri'kisstjórnarinnar væru kosnir
í stjórn heildarsamtakanna, Og
sprengingin á Alþýðuflokks-
þinginu var hámark þessarar
uppreisnar gegn hrunstefnu oog
leppmennsku forustunnar.
•
ER ALÞÝÐUFLOKKURINN
þá allt í einu endurfæddur? Því
miður ber hin nýja miðstjórn
Framhald á 7. síðu.
Þegar tekið er tillit til þess,
hversu illfengin sú glóð er,
sem undir eld'húsgögnum í-
haldsing kyndir, mun fæsta
furða, þó að matsveinar þess
geri eigi ávallt fyllstu grein
fyrir því, er þeir bera á dag-
verðarborð alþýðunnar. Svo
rnikil leynd hefur lagzt á fram-
reiðslu Morgunblaðsmanna, að
þeir eru nú hættir að gefa út
sparnaðarmatseðla, og er það
þó flestra mál, að aldrei áður
hafi þurft að gæta jafn mikill-
ar hagsýni í öllum matartil-
búnaði. Þess i stað þykir nú
meir við þurfa að 'kasta kenni-
(hnútum kapítalískra fræðisetn-
inga í matask alþýðunnar, enda
hefur eigi áður gætt eins mik-
illar vuðsjár í afkomuútliti auð-
manna. Verndun fornhelgra
vígréttinda fyrirmanna er því
kærast. Sígildi einstaklingseðl-
isins eru þær ófrávíkjanlegu
staðreyndir, sem ristar eru
djúpt inn í burðarstoðir bank-
anna með trés'kurðartólum hins
íhaldssama sagnaranda. And-
vari einfaldleikans í öllum
framförum líkar því bezt, ver*
aldlegar framfarir án sam-
ihjálpar andans, því að undir
ihaugþaki heildsalanna þrumar
ótti við öll ávinningsspor al-
mennings. I hvert sinn, er sam-
tök myndast meðal alþýðunnar,
reisir gerningarmaður íhaldsins
alþýðunni níðstöng á nástalli
sínum. Breytileiki í dagháttum
almennings er sízt af öllu við-
urkenndur í kennslubókum
iþess, því að öll framfaraspor
almennings í vestrænum lönd-
um verða að vera stigin yfir lík
þeirra, sem féllu fyrir sprengi-
Ikúlum síðustu styrjaldar. Um-
bætur og úrlausn eru bannlýst
orðtæki. Er háværar raddir
ilierast um það, að alþýðan
krefjist bættra kjara, .eru
prentsíður Morgunblaðsins út-
■fylltar af þeim tn'iarlegu kenn-
ingum, að úrlausn vandræða sé
kommúnískt glapræði erlendis
frá.
Núver-andi stjörnumerki í-
haldsins eru þau, að atvinnu-
rekendur eigi nú fullt í fangi
með að láta framleiðslutæki sin
s'kila gróða. Hins vegar er al-
þýðu kunnugt, að vogararmur
íhaldsins er bræddur úr léttari
málmi en vogararmur 'hennar,
þannig að réttarreizla þjóðar-
innar hallar á hana. Reiknings-
falsanir íhaldsing hafa gert þvi
■kleift að telja almenningi trú
um réttmæti fjarsannra stað-
rej'nda, því að aldrei hefur
þversdagsgróði heildsala, lit-
gerðarmanna og óbrotinna
bankamanna verið riflegri.
Aldrei ihefur grundvöllur fé-
hýggjustefnunnar reynzt jafn
traustur. Og aldrei hefur yfir
stéttargusturinn verið ítaks-
meiri á hrokahæðum íhaldsins.
Samfara þessari miklu hrynj-
andi í vaxtagróða þess, hafa
kjör almennings versnað svo,
að þau eru lítt sambærileg við
fyrri krepputíma. Andardrátts-
íþungi vinnandi manna hefur
magnazt svo á liðnum áriun, að
uppreist þeirra er nú ómælandi
nauðsyn, sprottin af mannlegri
hagsbótaþörf. Á lifibrauði al-
mennings hefur verið alin sið-
spillt gróðastétt, sem er snýkju
dýr á hagsældarmætti verka-
manna. Sú stétt telur daglaun-
in í sjóð sinn ekki í krónum,
heldur þúsundum og milljón-
um, Og þessi blóðsjúgandi yfir-
státt er fyllilega sambærileg við
blóðsugustéttir aimarra kapí-
talískra landa hvað viðkemur
kvalræði. Hún liefur strengt ör-
lagaþráð þjóðarinnar á milli
tveggja, klóa, Landsbankans og
Sís, og á hann er allur hvít-
flibbaþvottur íhaldsing hengd-
ur. Þó að blekkingarvefur þrí-
fylkingarinnar hafi verið þétt-
ofinn í klæðaverksmiðju Renja-
míng af mikilli kunnáttu, er
glöggskyggni almenningg meiri
en svo, að sá vefur geti dulið
dæmafáa ne’kt naglamenningar-
innar, sem menntamálaráðherra
hampar hvað ,mest. Það mun
eigi réttmætt að segja, að al-
menningur sé fátækur í dag, því
að sjaldan hefur hann verið
jafn ríkur af innri sannfæringu
og jafn taumlausri andúð í garð
þeirrar stjórnar, er nú situr
við völd.
Hingað til hafa heildsalarn-
ir og stórgróðamennirnir geymt
bankabækur sínar undir höfða-
lagi alþýðunnar. I nætursvefni
undanfarinna ára hefur alþýð-
an legið á daglaunum auð-
manna og ávaxtað þau svo, að
nú eru þau meiri en nokkru
sinni fyrr. Undanfarið hefur
alþýðan sveitzt undir áburðar-
hlassi amerískrar eymdar, dreg-
ið áfram velgengissieða íhalds-
ins af öllum mætti, troðið staf-
karls stíg að launum og orðið
að líða þá þolraun, sem einstök
má heita. Framtíð hennar hef-
ur verið tengd eriendum áform-
um. Fyrir hvert það gullpimd,
sem alþýðan hefur dregið úr
sjó og jörðu, hafa kjör hennar
fetazt aftur um spönn. Vísindi
þau, er vestræn hagfræði nefn-
ast, hafa snúizt íslenzkri al-
þýðu í óhag. En á þessu hausti
bar það til, að alþýðan vakn-
aði af löngum og örlagaríkum
svefni. Nú hefur hún strengt
þess heit að sameinast í eitt í
öflugri baráttu gegn afturfóta-
pólitík þrífylkingarklíkunnar.
Framhald á 7. síðu.
Kröfur okkar verða að ná fram að ganga
Ekki sjaldan heyrir maður
talað um það að nær sé að
lækka dýrtiðina11 en hækka
kaupið, þegar svo ber við að
við verkakarlarnir gerum okk-
ur liklega til að svara síhækk-
andi vöruverði með launahækk-
un. Þetta eru vitanlega kenn-
ingar, sem atvinnurekendur
láta dreifa út undir svona
kringumstæðum, í von um, að
þær nái hljómgrunni meðal
okkar, sem þurfum að standa
saman um kjarabótakröfur
okkar til að vega gegn dýrtið,
sem við eigum enga sök á og
eigum enga vörn við að jafnaði
nema kaupgjaldsbaráttuna.
Það er a-ð vísu jafn gott fyr-
ir okkur að fá lækkað vöru-
verð eða hækkaðan kaupmátt
launa okkar sem svarar kaup-
kröfunni. En staðreyndin er
sú, að aldrei í sögunni hefur
kröfu okkar íslenzkra verka-
manna um launabót verið full-
nægt á þennan hátt, hvað
mikið sem talað hefur verið
um „lækkaða dýrtíð“ i stað
hækkaðs kaups, enda ekki við
því áð búast, því allt þetta
kjaftæði hefur verið vísvitandi
blekking, til að slá ryki í augu
verkamanna og veikja sam-
heldni þeirra um raunhæfa
kjarabót. Þessu til sönnunar
höfum við óteljandi dæmi allt
í kringum okkur.
Sumarið 1947 svaraði verka-
lýðurinn hinni miklu verð-
hækkun af völdum tolla stef-
ánsjóhannssstjórnarinnar með
kauphæklcun og rak þannig af
höndum sér fyrsta áhlaup
þeirrar stjórnarstefnu sem nú
ríkir i landinu. Árið eftir náði
þessi stefna yfirtökum í Al-
þýíuSambandi Islands. Þess-
vegna var næstu árráa, visi-
tölubindingunni, ekki svarað á
sama hátt og hinni fyrri, en í
þess stað falslcenning atvinnu-
rekenda og auðstéttar um
..lækkaða dýrtíð“ í stað hækk-
aðs kaups“ gerð að kjörorðum
á efstu stöðum í heildarsam-
tökum verkalýðsins. — Og
hvað hefur svo þessi kenning
gefið verkamönnum í aðra hönd
síðast liðin fjögur ár sem hún
hefur rikt í þjóðarbúskapnum
með samúð og stuðningi þeirra
er leitt hafa heildarsamtök ísl.
alþýðu?
Hún hefur gefið þann ávöxt,
að nú þurfum við í ýmsum til-
fellum að vinna h%lmingi fleiri
vinnustundir heldur en fyrir
4—5 árum til að komast yfir
sama magn sömu nauðsynja-
vöru, og nú þurfum við 1/4
lengri tíma til að vinna fyrir
útsvarinu heldur en 1947 svo
lítið eitt sé nefnt, til að menn
geti áttað sig á því hvað nú-
verandi ríkisstjórn og meðhjálp
arar hennar í falskenningunni
um „lækkaða dýrtíð í stað
hækkaðs kaups“ eiga við á
máli staðreyndanna.
Það er fjarri mér að gera
lítið úr þeirri hugmynd að
spara fyrir atvinnuvegina, og
allir vita að ekki stendur á
verkalýðnum að veita sitt lið—
sinni ef hafist er handa á rétt-
an hátt í því efni. Hins vegar
verða atvinnurekendur að
skilja, að það er sú lágmarks-
krafa sem gera verður til at-
vinnuveganna, að vinnuaflið,
sem þeir byggjast á, geti dreg-
ið fram lífið skammlaust, en
langt er frá þvi að þessari lág-
markskröfu sé fullnægt nú. —
Það er því augljóst að verka-
fólk mun ekki láta ríkisstjórn-
ina blekkja sig með sömu að-
ferðinni sem beitt hefur verið
s. 1. 4—5 ár til að draga úr
baráttu verkalýðsins fyrir
frumstæðustu lífsnauðsynjum
hans. — Ríkisstjórnin getur
þegar í stað uppfyllt ýmsar
kröfur verkalýðsins ef hún vill
svo sem kröfuna um atvinnu-
leysistryggingar, þriggja vikna
orlof o. s. frv. Það er ekki
eftir neinu að bíða með það.
Auk þessa munu verkamenn
halda sér við aðrar kröfur sín-
ar á hendur atvinnurekendum
varðandi kaup og kjör og ekki
hvika frá marki fyrr en sigri
er náð.
Dagsbrúnarkarl.
Fjardróttur róðherra þuncjt
áfall fyrir finnska krata i
Mesta ríkisstjórnarhneyksli á Norðurlöndum
Oslo. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Fjársvik finnsku sósialdemókrataráðherranna eru rædd und.-
ir stórum fyrirsögnum í blöðum á Norðurlöndum.
Mesta ríkisstjórnarhneyksli
sem átt liefur sér stað á Norð-
urlöndum er fyrirsögnin á frétt
Oslóarblaðsins Verdens Gang
af málinu og fyrirsögnin í
Dagbladet er Mesta hneyksli í
sögu Finnlands. Enginn vafi
er á að mál þetta verður
finnskum sósíaldemokrötum
dýrt, Finnskir sósíaldemokrat-
ar bíða sáran álitshnekki er
fyrirsögnin á einni frétt Verd-
ens Gang af fjárdrættinum.
Fá tíu daga frest
Sósíaldemókrataráðherramir
fjórir, tveir úr fyrrverandi
stjórn og tveir bæði úr fyrr-
verandi og núverandi stjóm,
sem sakaðir eru um að hafa
rrnsnotað ajðstöðu sína sem
ráðherrar til að veita tveimur
og hálfri milljón marka af rík-
isfé til gjaldþrota fyrirtækis,
sem einn þeirra átti í, hafa
fengið tíu daga frest til að
semja vöm fyrir gerðir sínar.
Ef þingheimur tekur hana ekki
gilda er talið víst að fjórmenn-
ingarnir verði dregnir fyrir
landsdóm. Aðeins einu sinni i
þingsögu Finnlands hefur
landsdómur verið settur yfir
ráðherra.
Ritari gjaldeyris-
sjóðsins rekinn
Ritara Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins, sem er 'ein af sérgreina-
stofnunum SÞ, hefur verið vik-
ið frá störfum. Ritarinn hafði
neitað að svara spumingum
bandarískrar öldungadeildar-
nefndar um það, hvort hana
hefði starfað í njósnasamtök-
um fyrir Sovétríkin á stríðsár-
unum. Ritarinn er Bandaríkja-
maður.
• :• *#&*** latMVA'BfkíllUpi
. ... .
■ .
T'1.* ’ -4 ’i
273. dacrur.
Minningarorð um
Eiviil B. Magmisson
Ivairi Alí, sagði Hodsja Nasreddin, hvern-
ig get ég þakkað þór? — Það ætti að
vera auðvelt, sagði veitingamaðurinn.
Hocisja Nasreddín getur allt Og tölum svo
ekkj meira um þakklæti. Vi'.tu þiggja te-
sopa?
Hann fór og kom eftir andartak með
rjúkandi teskál í höndunum. Þeii settust
og röbbuðu saman. Veitingamaðurinn sýndi
honum lcarlmannsskikkju handa GuHsmnu
og störan vefjarhött til að ;hylja húr honn
ar.
Nokkiu síðar bjóst Hodsja Nasreddin til
brottfarar, en heyrði þá skyndilega röod
gegnum þilið. Hann opnaði dyragæt.tina
ofurlítið og lagði hlustir við. Þnð var iö<jd
bóiugrafna njósnarana:
Sá sem þykjst vera Hodsja Nasredjin or
ails enginn Hodsja Nasreddin, heldur svik-
ari og ekkert annað. Það er óg sem er sá
raunverulegi Hodsja Nasreddín, en óg hcf
gongið í endurnýjungu íífdaganna.
Ég vil biðja blaðið fyrir
nokkur kveðju- og minningar-
orð um Emil B. Magnússon,
bankagjaldkera, en bálför hans
er gerð í dag.
Emil var sonur" Magnúsar
Magnússoilar, kaupmanns á
Reyðarfirði og konu hans, Em-
ilíu Björnsdóttur. Að loknu
námi við Verzlunarskólann hóf
Emi! verzlunarrekstur á Eski-
firði, bæði einn og með öðr-
um. En árin fyrir og um 1930
voru ekki affarasæl fyrir byrj-
endur í verzlunarrekstri enda
lét Emil fljótlega af þeim störf-
um, og hvgg ég, að hann muni
aldrei hafa harmað þáð, þótt
kaupmennskan yrði næsta
skammvinn. Honum var sýnu
ljúfara að lána, á þeim minnis-
stæðu krepputímum, sem þá
dundu yfir almenning, on að
ganga fast eftir greiðslum, en
sJíkt þykir ekki kaupmanns-
lund.
Síðan gekk Emil í þjónustu
Landsbanka Isiands á Eski-
jfirði og starfaði þar um tvo
áratugi, cn var fluttur til
|Reykjivíkur ekki alls fyrir
löngu og var féhirðir í Lands-
bankanum hér, er hann anda'ö
ist í sjúlcrahúsi Hvítabandsins
þanrs 25. fyrra mánaðar, að
eins 46 ára að aldri. — Emil
var kvæntur Margrétu Áriia-
dóttur úr Reykjavik; þau eign-
uðust tvö börn, sem nú eru
upplcomjn.
Ævisöguna hef ég ekki
lengri. — Það er sái*t að sjá
á bak góðum vini og félaga á
miðjum aldri, en um það stoðar
ekki að tala. Efst í huganum
verða minningar um glaðvær-
ar ánægjustundir, því að Emtl
átti fáa sína líka í því að
lcoma mönnum í gott skap.
Engan mann amian hef ég
þekkt, sem hafði eins næmt
auga fyrir því broslega í mann-
lífinu og var gæddur jafnríkri
kímnigáfu, sem hann notaðd sér
og öðrum til skemmtunar, en
græslculaust var hans gaman,
og aldrei vissi ég hann særa
eða móðga menn, þótt hann
léti fyndni fjúka. Starfsmaður
var Emi] gó'ður og ánægju-
legt að vihna með -honum, Lít-
ið lét hann opinber mál til
sín taka, þótt hæfileika hefði
hann fyllilega á borð við
marga, sem við þau mál fást.
Ilann var hneigður fyrir söng
og tók nolckurn virlcan þátt í
'söngmálum eystra á yngri ár-
Um. Þótt Emil skipti sér Iítið
af stjórnmálum dró hann a'dr-
ei dul á það, að samúð hsms
var öll með þeim, sem þjóð-
félagið leikur harðast.
Ég færi ekkju Emils, börnum
hans og aldraðri móður 3a«i-
úðarkveðjur. E,E,