Þjóðviljinn - 13.01.1953, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 13.01.1953, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 13. janúar 1953 Þriðjudagur 13. janúar 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (5 lllÓOyiUINN Otgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Torfl Ólafsson, Guðmundur Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg. 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 18 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 18 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Morgunblaðið hefur átt næsta erfitt síðan Bjarni Benedikts- son lýsti í áramótahugleiðingu sinni yfir því, að valdaklíka stjórnarflokkanna hefði nú í undirbúmingi stofnun og starf- rækslu íslenzks hers til þess að berjast við Rússa og íslenzka verkalýðshreyfingu. Það hefur vitanlega ekki farið framhjá ritstjóra blaðsins að þessi hernaðarhugsjón utanríkisráðherrans mætti takmörkuðum skilningi hjá almenningi og eru þá fylgj- endur Sjálfstæðisflokksins ekki umdanskildir. Það var iþá sem Valtýr Stefánsson mundi loks eftir Jóni Sigurðssyni. Ritstjórinn gróf upp 110 ára gömul ummæli for- setans og birti þau til stuðnings hervæðingarhugsjón Bjarna Benediktssonar. Þjóðviljinn leyfði sér þá ónærgætni við Morg- umblaðið að benda á, að það sem fyrir Jóni Sigurðssyni vakti var hvorki hemaður á hendur landsmönnum sjálfum eða öðr- um þjóðum sem ekkert höfðu á hluta Islendinga gert í nókk- urri grein. Hugmynd forsetans var þvert á móti sú að Is- lendingar gætu varizt yfirgangi þáverandi herraþjóðar og kúg- ara Islendinga, Dana. Benti Þjóðviljinn á að hliðstætt þessari hugmymd Jóns Sigurðssonar fyrir 110 árum væri helzt það að Islendingar stofnuðu her til þess að hrekja hið ameríska her- námslið burt af Islandi nú. Þegar bent er á þessa staðreynd og hugsjórv, Bjarna Bene- diktssonar þar með svipt þeim stuðningi sem Morgunblaðið ætlaði henni í orðum Jóns Sigurðssonar verður Valtýr Stef- ánsson gripimn venjulegri vanstillingu. Kemst hann að þeirri niðurstöðu í Reykjavíkurbréfi sínu á sunnudaginn að af þess- ari ábendingu verði ,,ekki annað ráðið en að kommúnistar vilji eftir allt saman stofna íslenzkan her“. En skilyrði þess sé að hann verði motaður til að berjast við Bandaríkjamenn. Segir Valtýr að lokum að aldrei hafi„annar eins regin fíflskapur sézt á prenti í íslenzku blaði“. Þjóðviljinn hefur aldrei borið fram tillögu um að stofnaður yrði her á íslandi. Þvert á móti hefur hér ,í blaðinu verið lagzt fast gegn því að hugsjón Hermanns Jónassonar Og ’Bjama Benediktssonar um stofnun „þjóðvarnarliðs“ eða íslenzks hers yrði fram'kvæmd. Og sú afstaða hefur hlotið öflugan hljóm- grunn í hugum allra óspilltra Islendinga, sem hvorki æskja þess að tekin verði að nýjú upp mannvíg á Islandi né lands- menn eigi þátt í hervirkjum eða nokkurs konar áreitni á hend- ur öðrum þjóðum. Það var vegna þessara undirtekta fólksims í landinu sem Morgunblaðið skákaði fram ummælum Jóns Sig- urðssonar fyrir 110 árum og sem urðu Þjóðviljanum tilefni til að hressa upp á söguskilning Valtýs Stefánssonar. Það er athyglisvert í þessu sambandi, þótt það þurfi engum að koma á óvart, að eins og Valtýr og blað hans er því ein- dregið fylgjandi að komið verði upp yfirstéttarher til þess að berja á íslenzkum verkalýð og beita hann hverskonar ofbeldi, og sömuleiðis til þess að fara með ófriði á hendur þjóðum, sem aldrei hafa sýnt íslendingxun nema velvild,; telur hann það mestu fjarstæðu og „fíflskap“ kæmi einhveifum Islend- ingi til hugar að blaka við því bandaríska herliðj sem -sezt hefur að á Islandi og treður undir fótum allt það sem þjóðinni er helgast. Þá er koinið við kvikuna í sál Valtýs Stefánssonar og þeirra sem stýra penna hans. Þá er allur áhugi fyrir því að vopna Islendinga rokinn út í veður og vind. Þetta lýsir vel þeirri auðmjúku þjónustu við kúgara Islands sem Morgunblað- ið og Sjálfstæðisflokkurinn hefur gengizt undir, en sér fram á að erfiðlega muni veitast að gegna í framtíðinni. með árangri nema með tilstilli vopna og ofbeldis. Þannig hefur sú tilsögn í sögu sem Þjóðviljinn veitti Valtý og blaði hans orðið til þess að fletta einu sinni enn ofan af því landráðadóti sem ikennir sig við sjálfstæði landsins en veitir bandarísku auðvaldi alla þá þjónustu er það má gegu Islendingum. Eftir áramótagrein Bjarna Benediktssonar og skrif Morgunblaðsins um málið þarf enginn að vera í efa um hvað fyrir valdaklíkunnj vakir. Öll þrá hennar stendur til þess að koma upp íslenzkri herdeild til aðstoðar þeim sem níðzt hafa á Islandi og Islendingum en þó umfram allt til þess að veita yfirstétt landsins fulltingi í átökum hennar við íslenzka alþýðu. En iþað er þjóðarinnar að sjá svo um að sá draumur auð- sitéttarinnar og flokka hennar verði aldrei að veruleika. Til þess hefur hún valdið og það ber henni að nota þegar gengið verður að kjörborðinu á næsta vori. , **B*,WH*Ér_.■ WX' 0g loks um Henry — Eldspýtur — Ballett áramót. — Mér vegna hvers er spurn, var aumingja maðurinn að stoppa í öilu POPPY-eldspýtur, ÉG GET EKKi látið hjá líða að svara lítið eitt grein, er birtist í Bæjarpósti Þjóðvilj- ans 6. janúar. Það er fyrst og fremst hverjum manni augljóst er les þessa grein, að hún er beinlínis skrifuð af manni, er persónulega vill sýna fjandskap á einhvern hátt, við Henry Hálfdánar- son. — Og finnst greinarhöf- undi, að nú sé ágætt tækifæri, til ímyndaðrar árásar á Henry Hálfdánarson, til að sverta hann í augurn almenn- * ings. Ekki nóg með það, held- * ur ætlar greinarhöfundur, að T rT_,_T^TT.T __ <• i J, OLL GREININ ER ekkert reyna að draga frjalsar flug- Ég held að sómi sér betur að þakka Henry Hálfdánarsyni fyrir bæði vel og dyggilega unnin störf í þágu slysavarna og þeim málefnum öllum, heldur en troða niður skóinn af honum, og nota jafn æfin- týralegar dylgjur og greinar- höfundur hefur gert. Læf ég svo þetta mál útrætt. — B. H. S. ★ Tabalks- þessu hættulega flugeldaflóði, er kom úr öllum áttum, er hann var á hröðum flótta úr sömu plágunni. Ef til vill hef- ur greinarhöfundur séð rautt, er hann sá Henry Hálfdánar- son á þessu flugeldakvöldi. Mér er fyllilega kunnugt um að Henry Hálfdánarson skaut ekki einum einasta flugeldi. eldasýningar um allt Lauga- neshverfið, inn í slysavarna- málin úr því að svo bar vel í veiði að Henry Hálfdánar- son skyldi vera staddui* þar sem gestur. Mjög svo vork- unnsamur hugsunarháttur hjá greinarhöfundi. Þessum manni virðist ekki vera það kunnugt, að það er leyfilegt að skjóta flugeldum á gaml- árskvöld, borgurum til hátíð- arbrigða og augnayndis um VINDHANINN í fonnanns- sæti Framsóknarflokksins rykkist nú til á standinum. Honum líður eitthvað 01a í nýj- ustu vindáttinni og er að reyna að sveigja ofurlitið í annað horf. En það tekst báglega, því formaðurinn reynir að laga sig eftir tveimur áttum í senn, og þá er ekki vcu að vel fari. í grein í Tímanum í fyrradag reynir hann að halda því- fram að hann vilji ekki stofna her til að berja niður löglegar að- gerðir verkalýðsfélaganna í 'kjarabaráttu þeirra heldur aðeins til að tryggja lög og rétt! Og í annan stað reynir hann að gera almenningi her- stofnunina ofurlítið geðfelldari með því að tala utan að ,því að íslenzkur her gæti leyst bandaríska hernámsliðið alger- lega af hólmi. Hvort tveggja er fölsun. I hinni frœgu áramótagrein taldi Hermann Jónasson upp flestar aðgerðir vérkfallsmanna til að hindra verkfallsbrot þau sem slkipulögð voru af stjórnar- völdunum og stimplaði þær all- ar óhæfuverk og lögbrot. Hann ikvað brýna nauðsyn þess að stofna her til þess að koma í veg fyrir slíkar aðgerðir al- þýðusamtakanna; meginverk- efni hersins átti með öðrum orðum að vera það að tryggja með valdi og vopnum framgang verkfallsbrota. Hermann tók sem sérstaka fyrirmynd að r'.:- isstjórnin hefði fyrirskipað allri lögreglunni að vera til taks að kvöldi 18. desember, þegar verkfall átti að hefjast í frystihúsunum. Verkefni lög- reglunnar þá átti að vera að hindra að til verkfalls' kæmi með því að vernda verkfalls- brjóta og berja niður með kylf- um og gasi löglegar athafnir: Dagsbrúnar. Ummæli Her- manns í áramótagreininni voru vissulega ekki tvíræð, þótt vindhaninn reyni nú að halda því fram að hann hafi aðeins viljað tryggja loglega frám kvæmd venkfaUa! Eins er tim hina hlið máls- ins, „landvarnirnar". Hermanu reynir nú að gefa í skyn að annað en ádeila á bráðsak- lausan mann. Ekki nóg með það, heldur ber eftirmáli greinarinnar með sér ósann- girni og vanþroska höfundar. Þar sem greinarhöfundur get- ur ekki séð Henry Hálfdán- arson sem gest í húsi einu í Laugarneshverfi, horfandi á flugeldasýningu er borgarar vorir skjóta í loft upp á gleð- innar stund, um áramót, án þess að vanvirða starf Henrys á mjög svo lítilfjörlegan hátt. innlendi herinn eigi að koma í stað hins illræmda hemáms- liðs. En í áramótagreininni var hann miklu hreinskilnari. Þar komst hann þannig að orði: „Vald þjóðarinnar þarf að u<jlríWn$6f tryggja gegn ofbeldismönnurn með sérstöku þjóðvarnarliði. Hvernig þessu liði verður hátt- að er enn athugunarefni. En sennilega væri hagkvæmast að láta það einnig taka í sínar hendur þá varðgæzlu að mestu sem erlent lið aunast nú hér á landi“. Hemámið átti sem sé að standa óhaggað; hér átti bæði að vera erlendur og inn- lendur her. Formaðurinn var afdráttarlaus um áramót, en — vindhaninn- snýst. Hermann Jónasscn kallar grein .sína í fyrradag: „Við hvað urðu kommúnistar hrædd- ir ?“, og í upphafi verður hon- einkasala ríkisins stendur nú skrifað á eidspýtustokka okk- ar. Það er orðið nóg verkefni fyrir heila ákademíu að þýða allt það á íslenzku sem skrif- að er á ísleozkar umbúðir. ÞAÐ virðist sem einhver skrið- ur sé nú að komast á hina göfugu listgrein ballettinn í • leikhúslífi íslendinga. I haust fór Leikfélagið á stað með Ólaf Liljurós, nú hyggst Þjóð- leikhúsið að sýna annan bail- ett byggðan á kvæði Jónasar „Ég bið að heilsa“. Við er að búast að ballett eigi langt í land með íslenzkum starfs- kröftum, en einlivern tíma verður að byrja. Æskilegt væri að fœgnir væru ballett- floikkar erlendis frá til þess að kynna þessa listgrein eins og hún er bezt. — Nú er bara eftir að komast gegnum ritskoðun útvarpsins, hvernig á að auglýsa þennan dans? um mjög tíðrætt um „hræðslu kommúnista". Hann líkist þá einna mest yfirlætisfullum glímumanni, sem heldur því fram að enginn standi sér snúning. En eitt er yfirlæti, annað karlmennska. Hafi nokk- ur orðið verulega hræddur í sambandi við hermálið er það einmitt Hermann Jónasson. Á hverjum degi síðan formað- urinn birti áramótahugleiðingu sína hefur Tíminn reynt að breiða yfir hin raunverulegu ummæli, og nú hefur Her- mann sjálfur neyðzt fram á ritvöllinn og hámar ofan í sig fyri'i orð frammi fyrir undrandi lesendum. Siðan er honum vorkunn þótt hann grípi til fagurra fordæma og hrópi eft- ir niðurlægingu sína: „Sáuð þið hvemig óg tók hann, pilt- _ v. f U ar: 533EEE Samferðamennirnir, sem hófu þátttöku sína í verkalýðs- hreyfingu Islands á þriðja ára- tugi aldarinnar, komast nú hver á fætur öðrum yfir á síðari aldarhelming ævi sinn- ar. Og það er alltaf hollt við þau tímamót að líta til baka og láta söguna og reynsluna gefa oss nýjan kraft í fram- tíðarstarfið. Þegar Steingrimur Aðal- steinsson alþingismaður í dag er fimmtugur, hvarflar hugur- inn til baka til ungs þöguls sveins úr fátæku býli í Glerár- iþorpi. Hann hafði misst föður sinn ungur, snemma Stundað vinnumennsku á ýmsum sveita- bæjum, en þráði menntun fyrir sig og mátt fyrir stétt sína. Leiðin frá Lyngholti i Glerár- þorpi inn til Gagnfræðaskólans á Akureyri geymir mörg spor ungs sveins, sem lét enga fá- tækt aftra sér frá því að afla sér þeirrar þekkingar sem þá virtist helzt viðráðanleg ung- um daglaunamanni, sem aðeins hafði á sjálfan sig að treysta. 1924 lauk hann gagnfræða- ixrófi á Akureyri og þá beið hans harður skóli lífsins og verkalýðssamtakanna. Þegar Verkalýðsfélag Gler- árþorps var stofnað féll það brátt í hlut Steingríms að verða formaður þess og stjóroa þvi í einni hörðustu og lær- dómsrikustu deilu, sem háð hefur verið á Islandi, Krossa- nesverkfallinu 1930. Verkalýð- urinn bar frægan sigur af hólmi, íslenzkir verkamenn hrundu ekki aðeins okinu af eigin herðum ,heldur losuðu og hina norsku stéttarbræður sína undan því. Og hinn imgi, dug- andi formaður Verkalýðsfélags ins i Glerárþorpi varð nú að taka að sér hvert forustu- starfið á fætur öðru fyrir verkalýð Akureyrar og verka- lýðshreyfinguna norðanlands. Hann var í framboði til Al- þingis fyrir Kommúnistaflokk- inn 1931 og 1933 í Eyjafirði. 1937 á Akureyri. Hann varð formáður Verkamannafélags- ins á Akureyri og einn helzti forustumaður Verkalýðssam- bands Norðurlands, einmitt í þeim hörðu átökum, sem nú eru orðin hetiusaga norð- íenzkrar verkalýðshreyfinga.r: Nóvuverkfallinu og öðrum sögulegum árekstrum verka- lýðsins við yfirstétt íslands. I öllum þeim átökum sýndi hann sömu^ festuna og það er í minnum haft á Akureyri, að jafn lítt brygði Steingrími, er bardaginn hófst á Torfunefs- bryggju, sem stýrði hann fundi úti í Verkalýðshúsi. Steingrímur varð bæjarfull- trúi Sósíalistaflokksins á Ak- ureyri og þegar nýsköpunar- FIMMTVGUR Steingrímur Aðalsteinsson tímabilð hófst, var hann einn helzti forvígismaður togaraút- gerðar þar. Slikt þótti aftur- lialdi Akureyrar þá hin mesta fjarstæða, en hugmynd Stein- gríms og annara sósíalista um stórútgerð á A'kureyri sigraði — og Akureyri væri í dag illa stödd, ef hún ætti ekki togar- ana, hvernig svo sem drottn- andi afturhald Islands kann að reyna að hindra starfræk3lu .þeirra. Þegar Sameiningarflokkur alþýðu —- Sósíalistaflokkurinn var stofnaður, varð Steingrím- ur forustumaður hans á Akur- eyri. Og 1942 þegar verkalýðs- hreyfing íslands vann sína stærstu kosningasigra varð hann fulltrúi verkalýðs Akur- eyrar á Alþingi. Það var næstum því tákh- rænt fyrir vaxandi áhrif verka- lýðsins í landinu að haustið 1942, þegar Sósíalistaflokkur- inn réð forseta Efrideildar, sez.t verkamaður í fyrsta sinn í sögu landsins í þann forseta- stól, sem biskupar, landshöfð- ingjar, landfógetar og amt- menn löngum höfðu skipað áð- ur. Það var ekki laust við að sumum fyndist fulldjarft farið af „óbreyttum verkamanni“, að setjast í svo „háan sess“ og taka að sér að stjórna þing- fundum, hafandi aðeins verið einn sumartíma á þingi áður, en þann vitnisburð fékk Stein- grímur frá andstæðingum sín- um að forsetastörfin hefðu far- ið honum ágæta vel úr hendi. Hin óhagganlega rökfesta og samvizkusemi, sem hafði' á- imnið honum traust samstarfs- mannanna á Akureyri, veitti honum nú einnig virðingu and- stæðinganna á Alþingi. og mun alltaf vinna honum álit hvar sem hann fer og hvað sem hann starfar. Sósíalistaflokkurinn sendir þér sínar beztu óskir í dag, Steingrímur, með þökkum fyr- ir langt og mikið starf í þjón- ustu verkalýðshreyfingarinnar Við, sem starfað höfum með þér á hinum ýmsu athafna- sviðum íslenzkrar verkalýðs- hreyfingar í aldarf jórðung, þökkum þér drengilegt sam- starf, sem geymir endurminn- ingar um árangursríka baráttu og óskum þér allra heilla í j^g framtíðinni. ° Steingrímur Aðalsteinsson Einar Olgeirsson. I sameiginlegri þrptlausri baráttu fyrir daglegu brauði á vinnustöðvum og í verkalýðs- félögunum bindast menn traustum vináttuböndum, sem jafnframt eru sá meginþáttur í menningarframþróun samtak- anna, sem mest hefur þolið þegar á reynir. I dag er einn af sonum al- þýðunnar og forustumönnum hennar, Steingrímur Aðal- steinsson, fimmtugur. Með þessum línum sendi ég honum hugheilar hamingjuóskir og þakkir fyrir vel unnin störf í þágu okkar sem vinnum erfið- ust verkin á íslandi og höfum jafnframt lægst launin. I 20 ár ber hæst nafn Stein- gríms Aðalsteinssonar í bar- áttusögu verkalýðsins á Akur- eyri. Þar stóð hann í fylkingar- brjósti, traustur og óhaggan- legur. Hann varð á unga aldri form. Verkalýðsfélags Glerár- þorps og svo um margra ára skeið form. Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar. Af al- voru störf hans unnin innan verkalýðshrevfingarinn ar og minnst ég hans sem eins 298. dagur. XMUCUár storvesu' tuKynnú tiadiúiegá: Btt- ix að vor mikli emír hefur athugað þau afbrot sem 60 þegnar hans hafa framið með því að leyna guðlastaranum og óróar Pottarinn Nijas, þar sem Hodsja Nasredd n hefur dvalizt lengst, skal hálshöggyinn. Hinir glæpamennirnir, skulu fyrst vera við aftöku hans, sér til -uppbyggingar. Siðan seggnum Hodsja Nasreddín, hefur hann •• • eaun i hverjum einum birtur r sinn -dómur. ákveðlð í nafni AUas: Það rikti slik þögn á torginu að orö Bakti- ars heyrðust hvarvetna greinilega. .— Það sé öllum gert vitanlegt, héit hann áfram, að hver sem í framtiðinni leynir Hodsja Nasreddín mun hljóta sönvu öriög. Eng- inn umflýr böðuiinn. En hver hinna dæmuu sem skýrir frá dvalarstað Hodsja Nasreddins mun eklti aðeins verða náðaður, heldur mun hann einnig öðlast vináttu emírsins og blessun himinsins — en hinir verða einnig náðað- ir. Níjas, hvar er Hodsja Nasreddín? öruggasta og ábyggilegasta manns sem ég hef ikynnzt. Af festu og trúmennsku tók hann á hverju máli og leiddi þau fram til sigurs. Alþýðan á Ak- ureyri fól Steingrími hvert trúnaðarstarfið af öðru, í verkalýðshreyfingunni, í pönt- unarfélagsstarfseminni og í öllum þeim málum og samtök- um sem verkafólkið átti. Hann var sjálfkjörinn formaður sósíalista Akureyrar og efsti maður sameiningarmanna í bæjarstjórn meðan hann bjó á Akureyri, og hefí ég ekki vitað annan mann njóta almennari virðingar og trausts innan bæj- arstjórnar en hann, sem og kom fram þegar Steingrímur fyrst var kosinn á þing, þar sem hann var forseti Efri- deildar sem kunnugt er. I öllum þeim hörðu vinnu- deilum sem háðar voru á Ak- ureyri frá 1930 hefur Stein- grímur staðið í fylkingarbrjósti og minnist ég hans allstaðar þar sem verkalýðnum reið mest á að ekki væri h'úkað frá málstað okkar.. Ég kvnnt- ist Steingrimi fyrst 1930 en það ár var Krossanesdeilan háð. Fram til 1940 voru næst- um árlega harðar vinnudeilur á Akureyri, verkföll á verkföll ofan ,til þess að knýja fram þau sjálfsögðu réttlætismál verkalýðssamtakanna sem nú háfa öðlazt gildi, en sem með höroum átökum voru knúin fram. Verkföll til þess að fá viöurkenndan samningsrétt samtakanna, verkföll til þess að' fá fyilra öryggi á vinnu- stöovum, svo sem reimhlífar á vélar í verksmiðju, eftir að tveir verkamenn höfðu beðið bana cg rðrir slasazt vegna vöntunar á reimh’ífum. Ilör'ð verkföll til þess að viðhaldá umsömdum taxta verkalýðsfé- laganna eins og í Nóvudei'unni þar sem kaup átti að falla úr kr. 1,25 í kr. 0,70., Það verk- fa’l stóð' á annan mánuð og voru verkamenn þá, þrátt fyrir mikla fátækt, aldrei þreyttir til uppgjafar. Verkföll voru háð og sum mjög hörð til þess að fá viðurkennd vericalýðsfélög út á landi, svo sem Borðeyrar- og Hríseyjardeilur. Kröfugöngur voru farnar á þessum árum til þess að knýja fram atvinnu. Baráttusaga verkalýðsins á Akureyri var mjög hörð og er óslitin; ég var með í öllum þessum átök- um verkalýðshreyfingarinnar þessi árin og allstaðar minnist ég forustumannsins sem allir báru óskorað traust til. Stein- grímur er fimmtugur í dag, saga hans er samtvinnuð bar- áttusögu alþýðunnar fýrir bætt um kjörum og eins og hann stendur nú í eldlínunni hiklaus og öruggur um sigur í þeirri miklu baráttu mun hann standa þar til sá sigur hefur unnizt að fullu og sem nú rof- ar fyrir. Lifðu heill Steingrímur og hittumst ætíð þar, sem fátæku fólki á íslandi liggur mest á. Tryggvi Emilsson. Þegar mér var sagt að Steingrímur Aðalsteinsson yrði 50 ára 13. þ. m., iþá kom mér það á óvart. Ég hélt hann væri mikið yngri. En svona er tím- inn fljótur að renna áfram, maður áttar sig e&ki á því. Það kom mér á óvart sjálfum . þegar ég allt í einu hafði fyllt fimmta tuginn. En fyrst svo er, að vinur minn Steingrímur á fimmtugs- afmæli í dag, þá vil ég nota tækifærið og senda honum kveðju mína. Það er nú liðicin all langur tími síðan fundum okkar Stein- gríms bar saman í verkalýðs- hreyfingunni á Akureyri. Þáð kom fljótt í ljós, að þar fór traustur maður, sem var mörg- um góðum kostum búinn og til forustu fallinn. Enda varð Steingrímur fljótt hlaðinn störfum í þágu verkalýðshreyf- ingarinnar á Akureyri. Hann var um margra ára skeið for- maður í Verkamannafélagi Ak- ureyrar, bæjarfulltrúi verka- lýðsins þar, og situr nú á Al- þingi, ög hefur setið að undan- förnu sem uppbótarþingmaður Sósíalistaflokksins fyrir alþýðu Akureyrar. Steingrímur var um skeið forseti Efrideildar Alþingis og munu menn minnast hinnar traustu stjórnar hans og sannr- ar fyrirmennsku í því sæti. Steingrímur Aðalsteinsson er kominn af góðum og traustum stofni norður í Eyjafirði. Móð- ir hans missti mann sinn frá mörgum óuppkomnum börnum. En ekkjan í Lyngholti tók upp baráttuna og lcom öllum börn- um sínum til manns. Þessarar hæglátu, einstæðu konu getur Guðmundur Eggerz fyrrverandi sýslumaður i ævi- minningum sínum og segist aídrei á lífsleiðjnni hafa kynnzt annarri eins ágætisikcnu. Nú, þegar Steingrímur fyllir fimmta tuginn, þá á hann að baki langt og gifturikt starf í jþágu íslenzkrar alþýðu, í verka- lýðshreyfingunni, í bæjarstjórn Akureyrar og á Alþingi. -Ég ætla mér ekki að telja hér upp þau mörgu mannúðar- og þjóðþrifamál sem Stein- grímur hefur barizt - fyrir, þó get óg ekki stjllt mig um að minna á hina þrautseigu bar- áttu hans á Albingi fyrir av.knu öryggi á sjónurn. Þe"s mun verða getið að máúiegleikum síðar. Ég óska þér til ham- ingju með tímamót’n, Stein- grímur, og þakka góða kyhn- ingu á ' undangengnum áriim. Og um leið óska ég þess. að íslenzk alþýða megi lengi, njóta starfskrafta þinna. Lifðu heill. •lóhaaa J. E. IviiJ.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.