Þjóðviljinn - 25.07.1953, Page 12
Forystugrem Pnvda atóniiræfaíffli leiisilafaosL
Bsezkn Mððin: já, fhndw sliémarleiðtoganna hefði verlð æski-
legri, — haidaiíslu biöðÍL'- tilraun tii að kljúía Vesturveidm
|MóÐmimN
l-augardagur 25. júlí 1953 — 18. árgangur — 165. tölublað
Foiystugrein Pravda í fyrradag um þríveldafundinn í
Washington er helzta umræðuefni heimsblaöanna í gær.
Sýnist sitt hverjam. Segja ;um, að forystugreinin bendi
til þess, að Ráðstjórnarríkin hyggist hafna boðinu um
fund utanríkisráðherranna, en önnur segja, að hún bendi
til þess, áð boðiö veröi þegið.
Brezku blöð'n eru þeirrar
skoðunar, að forystugrein
Pravda sé enn ein bending þess
að Vesturvpldin, og Bretland
sérstaklega, standi nú á vega-
mótum. Anna'ð hvort verði að
hrökkva eða stökkva, þ.e. að
Vesturveidin verði að ganga til
móts við Ráðstjórnarríkin í
sáttavið’.eitni þe'rra eða búast
megi við því að kalda striðið
falli brátt aftur í sinn gamla
farveg.
Daily líerald aðalmálgagn
Verkamannaflokksins segir, að
gæta verði þess, að atburða-
rás síðustu fjögurra mánaða
verði ekki snú'ö við. Segir
blaðið að Butler og Salisbury
verði ekki treyst til að fylgja
fram stefnu stjómarinnar, eins
og skyldi. Ef Ráðstjórnarrikin
hafna boðd Þríveldanna, sé ekki
annars kostur en að hverfa aft-
ur til h'nna upphaflegu tilmæla
FjárSiagsáæíl-
un SameSnuðu
þjéáaniia
Framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, Hammarskjöld, heíur
lagt fram fjárhagsáætlun Sam-
einuðu þjóðanna tfyrir næsta
fjárhagsár. Samkvæmt fjárhags-
áætlun þeirri verða útgjöld Sam-
eipuðu þjóðanna þá heldur minni
en á þessu fjárhagsári.
Niðurstöðutala fjárhagsáætlr
unarinnar er 48 milljónir dollara.
Af þessu fé .afla Sameinuðu þjóð-
irnar sér með ýmsu móti 6y2
milljón dollara, en um 41 milljón
verða þær að fá sem fjárframlög
frá sambandsþjóðunum.
Eni fellar fsarsa
if Ér híl
1 fyrrakvöld datt fimrn ára
gamall drengur út úr bíl á
ferð inxíi á Laugarnesvegi. Var
hann fluttur í Landspítalann,
en meif'sli hans voru ekki tal-
in liætluleg.
Samskonar slys varð uppi
hjá Kolviðarhóli sl. sunnudag
og verður það víst ekki of oft
brýnt fyrir fólki að hafa að-
gæzlu á því að slík s!ys hendi
ekki.
Gullfaxi tapar bát
og eot
Neskaupstað. Frá
fréttar. Þjóðviljans.
Vélbáturinn Gullfaxi er
stundaði síldveiðar með hring-
nót kom til Neskaupstaðar í
fyrrinótt. Hafði báturira orðið
fyrir því óhappi að nótabátur
hans sökk með nótinni innan-
borðs og tapaðist hvorttveggja.
Nót og bátur mun liafa ver-
ið tryggt fyrir 90 þús. kr.
Gullfaxi hefur þegar fengið nót
og bát og ínun fara á síldveið-
ar bráðlega aftur.
Ohúrchills um fund leiðtoga
fjórveldanna. Þau tilmæli yrðu
að koma frá brezku stjórninni,
því að vitað væri, að þeirri hug-
mynd væri fálega tekið í Banda
ríkjunum.
Yorkshire Post telur -að eng-
an veg'nn verði litið á þessa
forustugrein Pravda sem bend-
ingu um afsvar af hálfu Ráð-
stjórnarríkjaima. Heldur blaði'ð
því fram, að það sé aðeins á
fundi stjórnarleiðtoganna, sem
hægt sé að gera nokkrar meiri
háttar tilslakanir og faliast á
þær. Sameining Þýzkalands er
aðeins kleif ef hún or tek;n til
meðferðar í sambardi við önn-
ur deilumál, því áö lausn þess
vanda fáist vart á annan hátt
en sem liður í alls herjar lausn
deilumálanna.
Frönsku blöðin líta svo á, að
ekki beri ýkjamikið á milli sjón
armiða Sir Winston Churehills
og Pravda.
Bandarísku blöðin telja for-
ýstugrein Pravda tilraun til
þess að reka fleyg milli Vest-
veldanna. Friðarsókn Rússa sé
einungis áróðursbragð. Vestur-
veld^n þurfi nú að þjappa sér
fastar saman eo. áður.
Niésnamál í ¥est-
ur-Þýzkalandi
Brezkur herréttur fjaltar nú
um mál sex Þjóðverja, sem eru
sakaðir um að hafa sent sovét-
hernámsyfirvöldunum upplýs-
ingar um styrkleika brezka
hersins í Þýzlíaliandi.
Mál'ð Fesrn einum sakboi’n-
inganna hefur verið látið falla
niður, þar eð hann hefur feng-
izt til að bera vitni gegn ein-
um félaga s;nna. Meðal hinna
f jögurra er ein feona, sem starf-
aði viö símgæzlu í aðalbæki-
stöðvum brezka hersins.
iýr bátur til Bol-
ungavíkur
Nýr bátur kom til Bolunga-
víkur í gær. Er hann 50 lestir,
smíðaður í Danmörku.
Þessi nýi bátur heitir Einar
Hálfdáns og skipstjóri á honum
er Hálfdán Einarsson. Eigandi
er Völusteinn h.f., en fram-
kvæmdastjóri þess er Guðfinnur
Einarsson. 6 bátar frá Bolunga-
vík eru á síldveiðum og Einar
Hálfdáns mun bráðlega fara á
síldveiðar.
ÖEyggismáíaráðunevtið í
Austur-Þýskátandi iagf
niður
Tilkynnt var í Berlín í gær,
að Kaiser, ráðherra sá, sem
fer með öryggismál, hefði ver-
ið leystur frá störfum. Jafn-
framt var tilkynnt, að ráðu-
nsyti þetta yrði Iagt n:ður, en
öryggismálin fengin í hendur
sérstakri- stjómardeild innan-
ríkisrá'ðuneytisins.
Heil byggðarlög flutt
búferlum í Kenya
BreÉar tafea upp sönra har-
aéferéir ©g í Malaya
Brezki herinn í Kenya er nú aö undirbúa enn eina
herferð gegu Mau Mau-leynifélagsskapnum að fréttir frá
Nairobi herma.
Bruni í Melasveit
í gær brunnú útihús og nokk-
uð af heyi að Höfn í Melasveit.
Lítil stúlka varð eldsins fyrst
vör, sá hún rjúka úr geymslu-
skúr er áfastur var heyhlöðunni
og gerði bóndanum aðvart, en
hann var að heyvinnu úti á túni.
Þegar hann kom var skúrinn al-
elda og milliþil milli hans og
heyhlöðunnar byrjað að brenna.
Bóndinn gerði slökkviliðinu á
Akranesi aðvart og kom það á
staðinn eftir klst. Einnig kom
margt af nágrönnum og fólki er
um veginn fór, ennfremur vinnu-
flokkur er var að vinna við
sláturhúsbyggingu, til hjálpar
við slökkvistarfið. Tókst að
slökkva eldinn, en skúrinn
brann og nokkuð af heyi, einnig
skemmdist mikið hey af vatni.
Þá brann og hesthús og ýmislegt
af básáhöldum. Tjónið er tilfinn-
anlegt.
Herferðir þessar beinast
fyrst og fremst gegn lands-
svæðum þeim, sem Kíkújú-ætt-
flokkurinn byggir, en hann er
fjölmennasti ættflokkur frum-
byggja Kenya og telur rösklega
eina milljón innaei vébanda
sinna. Mau Mau-leynlfélagið er
sagt upprunnið meðal hans.
Brezki herinn hefur nú gef-
izt upp við að gera gréinar-
mun á fylgismönnum Mau Mau
innan ættflokksins og þeim,
sem eru honum fráhverfir eða
taka ekki afstöðu. Hefur hann
nú boða'ð sömu baráttuaðferðir
í Kenya og hann beitir í Mal-
aya. Verður nú gripið til þess
ráðs að flytja heil byggðarlög
búferlum í því augnamiði að tor
velda skæruliðum öflun mat-
fanga.
Nýlendustjórnin vinnur nú að
því a'ð bæta njósnakerfi sitt.
Sendir hafa verið frá Malaya
til Kenya l'ðsforingjar, sem
hafa annazt s'kipulagningu
þeirra mála.
Unnið á 160 sföðum við vega-
og brúargerðir í sumar
Framkvæmdir við vega- og brúargerðir ganga vel nú í sum-
ar, enda væri annað óeðlilegt í þeirri eindæma veðnrblíðu, scm
x erið hefur.
Þjóðviljinn átti í gær tal við
skrifstofu vegamálastjóra og
spurðist fyrir um framkvæmdir
á hennar vegum. Kvaðst hún
litlar upplýsingar geta gefið á
þessum tíma árs. Unnið væri í
öllum hérúðum landsins, bæði
að viðgerð eldri vega og fram-
lengingu akbrautanna. Verið
væri að vinna á 160 stöðum, en
ekki væri um sérstaklega um-
talsverðar vegagerðir að ræða.
Helztu brýr, sem unnið er að,
eru brúin á Hvítá, hjá Iðu í
B'skupstungum, og Skjálfanda-
fljótsbrúin í Bárðardal, sem
báðar eru stórbrýr. Auk þess
væri um áð ræða brúanir á
ýmsum smærri ám.
Urniið verður fyrir álíka mik-
ið fé nú á þessu sumri og í
fyrra. Framkvæmdir ganga að
óskum.
SlökkvilxðiS kvaií á tvo
staSi í gærkvöld
1 gærkvöld var slökkviliðið
kvatt á tvo staði með stuttu
millibili.
Kl. rúml. 7 var það kvatt
að húsinu Njálsgötu 50B.
Hafði þar kviknað út frá gati
á gömlum reykháf. Hafði ýms-
um ónýtum fötum verið troðið
í gatið, sem ekki var notað
heldur veggfóðrað yfir. Búið
var að slökkva eldinn þegar
slökkviliðið kom á vettvang.
Hið síðara var rétt fyrir kl.
8. Hafði kviknað í íbúðarskúr
á bak við húsið Hverfisgötu
80. Var slökkviliðið nokkra
stund að slökkva eldinn og eyði
lagðist skúrinn. Álitið er að
börn hafi kveikt í af óvitaskap.
Útsvör Norðfirðinga eru
1 inillj. 450 þús.
Meðaltekjur hækka um S,5 þús. á 5
manna fjölskyldu
Neskaupstað. Frá fréttaritara Þjóðviljans
Skatta- og útsvarsskrá Neskaupstaðar hefur nú verið lögð
fram. Alls var jafnað niður 1 millj. 450 þús. kr. á 490 gjald-
endur og er það svipuð upphæð og árið áður.
Hæstu útsvör bera eftirtald-'
ir: Kr. þús.
Kaupfélagið Fram 59
Goðanes h.f. 57
Samvinnufél. útvegsm. 53
Ðráttarbrautin h.f. 35
Verzl. Björns Björnss. h.f. 15
Olíuverzlun Islands 15
Olíusamlag útvegsmanna '15
Shell 15
Birgir Einarson, lyfsali 11.5
Netagerðin 10
Pöntunarf. alþýðu, Neskst. 10
Hinrik Hjaltason, vélstj. 10
Karl Karlsson kaupm. 10
Verzl. Sigf. Sveinssonar 10
Þorsteinn Árnas., héraðsl. 10
Til hliðsjónar við álagning-
una voru hafðar sömu reglur
og í Reykjavík.
Meðaltekjur hækka um
5,5 þús.
Nettótekjur einstaklinga ár-
ið 1952 reyndust 14,1 millj. kr.
en það er um 1 millj. 375 þús.
kr. hærra en árið áður. Fimm
manna fjölskylda hafði til jafn-
aðar sl. ár 53,5 þús. kr. árið
1952 en 48 þús. árið 1951.
Akjósanlefasta heyskapartíð
— og vcl notuð
Selfossi. Frá
fréttaritara Þjóðviijans.
Heyskiapur hefur gengið af-
burðavel undanfarið og munu
sumir hafa lokið að hirða fyrri-
sláttinn, en ýmsir sem eiga stór
tún eiga Þó mikið eftir af fyrri-
siættinum enn. Heyskapartíð
getur ekki Þetri verið svo þrátt
fyrir miklar annir munu menn
almennt léttir í skapi.
samir í fyrrinótt
I fyrrinótt stálu tveir drukkn-
ir menn bíl hér í bænum og
reyndu að stela tveim öðrum.
Fyrst reyndu þeir við bíl,
sem stóð við veitingastofuna
Florida á Hverfisgötu, en urðu
áð hlaupa frá er sást til þeirra.
Þá héldu þeir upp á Laugaveg
og í porti Alþýíubrauðagerðar-
innar stálu þeir send’ferðabíl
fyrirtækisins. Óku þeir rakleitt
út fyrir bæinn að Rauðavatni,
en þar fór bíllinn út af vegin-
um og hvolfdi. Skemmdist bíll-
inn mikið en mennirnir sluppu
ómeiddir. Lögreglati leitaði að
þeim um nóttina en fann ekki
Hins vegar fór starfsmaður Al-
þýðubrauðgerðarinnar ásamt
öðrum að Rauðavatni til að
athuga skemmdir á bílnum og
fréttu þeir þá að tveir menn
hefðu reynt að stela bíl vi'ð
Baldurshaga en elcki tekizt. Var
hér um sömu mennina að ræða,
og handtók lögreglan þá, þar
sem þeir höfðu búið um sig til
svefns við túngirðinguna.
I fyrrinótt var e'.nnig stolið
bíl við Melhaga hér í bæ. Eig-
andinn sá til ferða þjófsins,
elti hann uppi á öðrum bíl og
handsamaði. Maður þessi var
einnig með áhrifum áfengis.