Þjóðviljinn - 09.07.1954, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 09.07.1954, Qupperneq 12
afnarfir Skattskrá Hafnarfjarðar er komin út. Gjaldendur eru 1697 og var jafnað niður nokkuð á níundu millj. króna. Er þó um töluverða lækkun á útsvörum einstaklinga að ræða, því þegar lagt hafði verið á eftir sama skattstiga og í fyrra voru útsvör af tekjum lækkuð um 16,5%. Ennfremur var felldur niður fasteignaskattur af íbúðar- húsum. Hinsvegar voru veltuútsvör fyrirtækja hækkuð. Veltuútsvar var lagt. á alla er atvinnurekstur hafa, en það er misjafnt eftir tegund atvinnu- rekstrar og aðstöðu. Felidur var niður fasteigna- skattur af öllum húsum þar sem ekki er rekin verzlun eða atvinnurekstur. Var niðurfell- ing slíks skatts af íbúðarhús- um eitt af samningsatriðum Sósíalistaflokksins við Alþýðu- flokkinn eftir kosningarnar s.l. vetur. Útsvarslækkunin hjá ein- staklingum er raunverulega meiri, en þau 16,5% er frá var sagt hér að framan, því auk þeirrar lækkunar var tekið til- lit til ýmislegs annars, t.d. hjá þeim er stunda vinnu fjarri heimilum sínum og ennfremur frádráttur hjá sjómönnum vegna hlifðarfataslits. Þótt niðurfelling fasteigna- skatts af íbúðarhúsum þýddi á 5 hundrað þús. kr. tekjulækk- un hjá bæjarsjóði var þessi út- svarslækkun hjá launafólki möguleg vegna þess að tekjur manna voru almennt hærri en árið áður og vegna hærri út- svara á fyrirtæki nú. Þessir greiða 20 þús. kr. eða þar yfir: Bátafélag Hafnarfjarðar 24 þús 980 Dröfn h.f. 54 þús. 195 Dvergur h.f. 56 þús. 420 Einar Þorgilsson & Co 55 þús. 045 Fiskur h.f. 38 þús. 475 Frost h.f. 45 þús. 350 Ishús Hafnarfj. 63 þús. 885 Jón Gíslason 77 þús 460 Kaupfél. Hafnarfj. 30 þús. Lýsi og Mjöl h.f. 86 þús. 335 Malir h.f. 35 þús. 220 Mathilde Hansen 22 þús. 100 Málningarstofan s.f. 21 þús 025 Raftækjaverksmiðjan h.f. 144 þús. 295 Sverrir Magnússon lyfsali 35 þús. 500 Venus 58 þús. 050 Verzlun Einars Þorgilssonar & Co 28 þús. 800 ' e Vélsmiðja Hafnarfj. 42 þús. 555 Vélsmiðjan Klettur 38 þús. 110 Þór h.f. 46 þús. 480. Afstöðu Eisenhowers til Kína og SÞ tekið illa í Bretlandi Dulles hótar að beita neitunarvaldi í Öryggisráðinu Hin skilyröislausa andstaða við aðild Alþýðu-Kína að SÞ, sem Esenhower lét í ljós á blaðamannafundi í fyrra- dag, hefur mælzt mjög illa fyrir í brezkum blöðum. Manchester Guardian komst þannig að orði í gær, að Bretar hefðu rn-jög veigamikií rök fyr- ir því, að þessi afstaða Banda- ríkjastjórnar til aðildar Al- þýðu-Kína að SÞ væri röng Bretar álitu, að aðild kínversku alþýðustjórnarinnar að SÞ mundi verða til að draga úr viðsjám á alþjóðavettvangi. Þjoðaratkvæiagreiðsla í Frakklandi um E-her? ' Tíu franskir íhaldsmenn hafa lagt fram tillögu um, aö efnt verði til þjóöaratkvæðagreiöslu í Frakklandi um Evrópuherssamningana. I greinargerð fyrir þessari tillögu segja þeir, að samning- I Þórsmörk og Landmannalaugar Guðmundur Jónasson og ferða- skrifstofan Orlof efna til ferða í Þórsmörk og Landmannalaugar um helgina, og verður Jagt af stað í báðar kl. 2 á morgun og komið aftur á sunnudagskvöld. Þórsmerkurbíllinn mun freista þess að aka inn að Stórasandi sem er inni undir jökli, en tjald- að verður í Langadal sem flest- ir þekkja. arnir um Evrópuherinn séu að kljúfa frönsku stjórnmálaflokk- ana í tvennt og gera ókleift að mynda stjórn með stöðugan meirihluta þingsins að baki sér. Slík þjóðaratkvæðagreiðsla myndi krefjast breytingar á frönsku stjórnarskránni, en til- lögumenn segja, að það sé betra að breyta stjórnarskránni, ef með því móti mætti skapa ör- uggan grundvöll fyrir afstöðu þingmanna til þessa mikia deilu máls, en að láta það ógert og glundroðann halda áfram. Parísarblaðið L’Express, sem talið er standa nærri Mendés- Framhalcf á 11. siðu. Hvenær hefjast áæliunarferðir til Patreksfjarðar og Bildudals I sambandi við það að einn bezti áætlunarbíll lands- ins hefur nú verið tekinn í notkun á áætlunarieiðinni til Vestfjarða (Isafjarðardjúps) spurðu blaðamenn Guð- brand Jörundsson sérleyfishafa hvenær hann ætlaði að byrja áætlunarferðir til Patreksfjarðar. Guðbrandur kvað ekki standa á sér, en cnn væri veg- urinn í Kollafirði slíkur að ekki væri gerlegt að hefja áætlunarferðir. Hinsvegar vita allir að Barðstrendingar, Patreksfirð- ingar og Bílddælingar vænta þess fastlega að vegamála- st.jóri láti gera veginn bílfæran svo vegurinn opnist sem fyrst nú sumar. 4>. -4 News Chronicle sagði, að þessi afstaða Bandaríkjastjórn- ar gæti orðið til að loka öllum samkomulagsleiðum og Tlie Scotsman komst þannig að orði, að „yfirlýsingar sem þessi legðu mjög erfiða tálma í veg fyrir samvinnu Bretlands og Bandaríkjanna.“ Einnig í Bandaríkjunum. Hin tvístígandi afstaða Eis- enhowers til kröfunnar um að Bandaríkin segðu sig úr SÞ, ef Kína fengi upptöku, var einnig gagnrýnd í áhrifamikl- um bandarískum blöðum. Wash- ington Post-Times-Herald sagði í gær, að forsetinn héfði átt að taka af öll tvímæli um það að Bandarikin mundu ekki Framhald é 8. síöu. Föstudagur 9. júlí 1954 — 19. árgangur 150. tölublað Reiknar Jén Sxal börnunum vinn una til skuidar? Hjá Bæjarútgerð Reykja- víkur hafa verið börn í vinnu við skreiðina. Hafa börnin sem eru undir 11 ára aldri fengið sarna kaup og 12 ára börnin, eða kr. 7,80. í gær fengu yngri börnin hinsvegar enga peninga, heldur miða sem á stóð að þau hefðu fengið þetta og þetta ofgreitt í kaup og væri þeim talið þetta eða þetta mikið til skuldar. Mun t.d. einum drengnum hafa verið reiknaðar yfir 600 kr. til skuldar. Vakti þetta mikla óánægju og reiði í gær. Ekki vegna þess að menn krefjist að börn innan 12 ára fái sama lcaup og eldri börn, heldur sætta menn sig ekki við svona kauplækkunaraðferð, né heldur það að börnin séu krafin um sem skuld það kaup er þeim hefur óumbeð- ið verið greitt. Vígbúnaðurinn er að ríða efnahag Dana að fullu Hervæðingarbyrðarnar, sem þátttakan í Atlanzbanda- laginu hefur lagt á dönsku þjóðina, eru nú algerlega að sliga hana Gjaldeyrisforði danska Þjóð- bankans hefur minnkað mjög í- skyggilega að undanförnu og var þegar síðast fréttist aðeins 23 millj. d. kr. Sósíaldemokrata- stjórnin, sem nú situr við völd í landinu, hefur gert ýmsar ráð- stafanir, sem að hennar áliti eru til þess fallnar að bæta úr þess- ari gjaldeyrisþröng. Vextir hafa m. a. verið hækkaðir verulega. Hríðarveður og hellirigningar Mikið óveður hefur geisað suður í álfu undanfarinn sólar- hring. 1 Ölpunum liefa verið hríðarveður og fjallaskörð milli Austurríkis, Sviss og Italíu teppzt. I dölum hafa verið úr- hellisrigningar, víða flætt, og skriðuföll orðið. Sömu sögu er að segja frá Suður-Þýzkalandi. Samkór Reykjavíkur gergi góSa ferð usn Norðurðend Samkór Reykjavíkur fór til Finnlands 12. júlí aö taka þátt í söngmóti er Finnar efndu til. Kórinn söng einnig i finnska útvarpið og það sænska og tók þátt í samnor- rænu söngmóti í Ósló á heimleiöinni. Fékk kórinn hvar- vetna hina beztu dóma. og var söng íslendinganna tek- ið hið bezta. Frá mótinu var haldið til Abo og sungið þar, þaðan til Stokkhólms og sungið í sænska útvarpið. Ekki mun þe;m söng hafa verið útvarpað enn, en það mun þá verða gert á næstunni. Á samnorræna söngmótinu x Ósló voru kórar frá öðrum Norðurlöndunura. Stóð mótið dagana 25.-27. júní. En sem fyrr báru gagnrýnendur mikið lof á söng kórsins. Kórinn söng e:ngöngu ís- lenzk lög, og vöktu t. d. tví- söngslögin fornu mikla athygli. Undirleikari var Gisli Magnús- son, og lék hann einnig einleilc, Meðal þeirra verka sem hann flutti voru Glettur Páls ísólfs- sonar og sónata eftir Jón Þór- arinsson. Söngstjóri var Róbert Abra- ham Ottósson, en fararstjóri Gísli Guðmundsson. Þátttakend ur voru 49, og láta allir mjög vel yfir förinni. Komu flestir heim í gærmorgun, en nokkrir staldra lengur við í útlandinu. Um 3 ferðir aS velja hjá Ferða- Þjóðviljinn hafði í gær tal af Jónasi Eggertssyni, er var í fararstjórn, og innti hann frétta af förinni. Hann sagði að kórinn hefði fyrst sungið í tónlistarskólanum í Helsing- fprs við ágætar viðtökur. Hins- vegar var söngurinn ekki fjöl- sóttur, enda lék fiðlusnilling- urinn mikli David Oistrak í borginni sama kvöld, og bar sigur úr býtum í samkeppn- inni um áheyrendur. Næst söng kórinn inni í landi, í borginni Lahti; en 17. júní var haldið vatnaleiðina svo- nefndu til Jyváskyla, þar sem söngmótið var haldið. Þar var, auk finnskra kóra, norskur kvennakór, sænskur kór og þýzkur. Stóð mótið þrjá daga, Þessar ráðstafanir hafa komið fyrir ekki, en krafan um, að dregið yrði úr hervæðingarkostn- aðinum hefur sífellt orðið há- værari, jafnvel innan stjórnar- flokksins. í gær barst frétt frá Kaup- mannahöfn um að stjórnin hefði loks ákveðið að stytta herskyldu- tímann úr 18 í 16 mánuði, en reiknað hef- ur verið út, að slík stytting myndi spara „ ,.y,ríkinu hundr- uð milljóna kr. , útgiold árlega. m H. C. Hansen, H. C. Hansen utanríkisráðh., hefur kvatt sendih. Dana í helztu löndum Ailanzbandalags- ins heim til viðræðna, og er á- litið, að hann vilji kanna undir- tektir stjóma A-bandalagsríkj- anna við slíka ráðstöfun. félaginu Um þessa helgi geta menn valið milli þrigja ferða með Ferðafélagi íslands. Ein ferðin er austur í Þórs- mörk. Tekur hún 2 Vz dag, kom- ið aftur á mánudag. Önnur ferð- in er í Landmannalaugar. Verð- ur gist þar í skála Ferðafélags- ins. Umhverfi þar er fagurt og sérkennilegt. Sú ferð tekur hálf- an annan dag. Verður lagt af stað í báðar ferðirnar kl. 2 e. h. á laugardag. Þriðja ferðin er 6 daga sumarleyíisferð inn á Kjöl. Verður gist í sæluhúsum Ferða- félagsins í Hvítárnesi, Kerling- arfjöllum, Þjófadölum og Hvera- völlum. Þeir sem vilja geta haft með sér skíði og dvalið í Kerl- ingarfjöllum meðan aðrir fara um Önnur svæði.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.