Þjóðviljinn - 28.04.1955, Side 1

Þjóðviljinn - 28.04.1955, Side 1
 Timmtudagur 28. apríl 1955 — 20. árgangur — 94. tölublað Tókust samningar í nótt? Samningafundir stóðu til kl. langt gengin fimm í gærmorgun. Þegar eftir hádegið hóf sáttanefndin viðræður við fulltrúa einstakra félaga sem standa að verkföllunum og kl. 9 hófst almennur fundur sáttanefndar og deilu- aðila á nýjan leik. Þegar blaðið fór í prentun úpp úr miðnætt- inu hafði talsvert miðað í samkomulagsátt og voru taldar nokkrar líkur á því að sam- komulag gæti tekizt í nótt. Samninganefnd- imar og sáttanefnd lögðu hinsvegar bann við því að blöðin skýrðu frá því í hverju það sam- komulag væri fólgið. Hafi samkomulag tekizt má telja líklegt að verklýðsfélögin verði kvödd til funda í dag til þess að ræða niðurstöðurnar og taka af- stöðu til þeirra. Bjarni Ben. sigaði lögreglunni á verk- fallsverði og lét handtaka þrjá Verkfallsverðir voru strax látnir lausir aftur að kröfu verkfallsstjórnar og samninganefndar Bjarni Ben. og klíka hans í Sjálfstæðisflokknum og lögreglunni hafa lengi beðið eftir tækifæri til að egna verkfallsmenn ti! slagsmála Bjarni Ben. dómsmálaráðherra sigaði í gær sveit lögreglumanna með kylíur á verkfallsverði uppi við Smálöndum. Lét hann handtaka þrjá verkfallsverði og flytja niður í bæ. Þegar samninganefnd og verkfallsstjóm bámst þessi tíðindi kröfðust þær þess að mennirnir væru tafarlaust látnir lausir og var það gert. Bjami Ben. sigar lögreglunni í þessa barsmíða- árás í samráði við æstustu einræðisklíku atvinnu- rekendanna í Sjálfstæðisflokknum í því augnamiði að reyna að koma í veg fyrir samninga. Bjami Ben. og klíka hans í Sjálfstæðisflokknum og innan lögreglunnar hafa lengi beðið tækifæris til þess að egna verkamenn til slagsmála, en ekki lekizt og grípa því til grímulausrar lögregluárásar. ið látnir liggja á gólfinu í bíln- um svo að þeir sæjust ekki, — tU þess að freista þess að verk- fallsverðimir legðu til átaka við lögregluþjónana, ef þeir héldu að þeir væru ekki fjölmennir. Hlupu þeir þá niður úr bíln- um með kylfur á lofti, og voru þeir alls 15 að tölu. Börðu aftan á hálsinn. Létu lögregluþjónarnir kylf- urnar ríða á verkfallsvörðunum þar sem þeir lágu yfir slánni og lömdu þá aðallega aftan á hálsinn, og axlir og handleggi. Stórsér á nokkrum mannanna. Þeir sem bezt gengu fram í Framhald á 8. síðu. Um kl. hálfellfu í gær f. h. kom bifreiðin G 779 að hliði verkfallsvarðanna í Smálöndum og neitaði bifreiðarstjórinn, sem mun heita Sigurjón Gests- son, að verkfallsverðir stöðvuðu bifreiðina. Tjáðu verðirnir hon- um þá að hann yrði að bíða. Skipulagt fyrirfram. Bílstjórinn snéri þá bílnum við og ók að húsi í Smálöndum og hefur sennilega hringt það- an til lögreglunnar. Er augljóst að þetta hefur verið skipulagt fyrirfram, því eftir svo sem 10 mínútur komu 3 lögreglubílar, einn jeppi og tveir stórir lög- reglubílar. Ólafur fulltrúi, Stefán vaktstjóri. Fyrirliði lögregluþjónanna var Stefán Jóhannsson („Stebbi í ruslinu“) varðstjóri og höfðu þeir með sér Ólaf Jónsson full- trúa lögreglustjóra. Ólafur sneri sér að fyrirliða verkfalls- varða, en þeir voru á þessum tíma sjö talsins, og átti einhver orðaskipti við hann, en sneri sér síðan að bifreiðarstjóran- um á G 779 og sagði honum að hann skyldi fara óskoðaður í gegn. Verkfallsverðir mótmæltu Verkfallsverðir mótmæltu þessu og töldu sig vera að gæta réttinda sinna og bifreið- in færi ekki óskoðuð í gegn. Röðuðu þeir sér síðan í hliðið og lögðust yfir slána sem var í hliðinu. Stefán fyrirskipar kylfuárás. Hljóp þá Stefán til og hvatti lið sitt til að berja hraustlega á verkfallsvörðum og gripu lög- regluþjónarnir þá til kylfanna. (Einn þeirra hljóp að lögreglu- bílnunum (kvað sá hafa verið starfandi hjá Sameinuðu þjóð- unum) og kallaði á lögreglu- þjónana sem voru í bílnum. Einkenni Bjarna Ben: lúmskan og lubba- mennskan. Höfðu lögregluþjónarnir ver- Verkfallssjóðurinn 530 þusund krónur í gær bættust 20 þúsund krónur í verkfallssjóö- inn og er hann þá orðinn 530 þúsund krónur. Þessi framlög bárust: Samband barnakennara, framlög og söfnun, kr. 2510,00. Félag ísl. loftskeyta- manna kr. 3000,00. Starfsmannafélag ríkisstofn- ana kr. 5000,00. Starfsmannafélag Hafnarfjarðar kr. 1250,00. Verkalýðsfélag Skagastrandar kr. 1465,00. Samband matrei&slu- og framreiðslu- manna kr. 5000,00. Auk þess skiluðu ýmsir af söfn- uriarlistum. Eisenhower og Snkoff skrifast á Eisenhower Bandaríkjafor— seti skýrði blaðamönnum frá því í gær að hann hefði undan- farnar vikur átt bréfaskipti við Súkoff markskálk, landvariía- ráðherra Sovétríkjanna. Minnti hann á, að þeim hefði verið vel til vina þegar báðir voru her- námsstjórar í Þýzkalandi fyrstu mánuðina eftir stríðslokin. Kvaðst Eisenhower þá hafa komizt á þá skoðun, að Sú- koff sé mjög umhugað um að góð sambúð takist með Sovét- ríkjunum og Bandaríkjunum. Hann kvaðst ekki vilja gera neitt uppskátt um það, sem þeim hefði farið á milli bréf- lega upp á síðkastið, þar sem birting bréfanna kynni að gera að engu þá möguleika sem væru á því að gott hlytist af bréfaskiptunum. Eisenhower sagði blaðamönn- unum einnig, að ef yrði af viðræðufundi með fulltrúum Bandaríkjanna og Kína væri ástæðulaust að einskorða hann við vopnahlé á Taivansundi. Þar ætti einnig vel við að ræða ráðstafanir til að draga úr viðsjám á öðrum stöðum í Austur-Asíu og mál bandarísku flugmannanna sem sitja í fang- elsi í Kína dæmdir fyrir njósn- Sjö íslenzkum blaðamönnum boðið til Noregs Oslóborg býður 6 íslenzkum blaðamönnum til vikudvalar í Noregi í sambandi við för for- seta íslands til Noregs í maí. Auk þess hefur norska utanríkis- ráðuneytið boðið einum íslenzk- um blaðamanni mánaðardvöl í Noregi, svo alls verða það 7 ís- lenzkir blaðamenn sem Norð- menn bjóða heim á þessu ári. Sendu verkfalls- br jót í L maí nefnd Þau furðulegu tíðindi hafa gerzt að bílstjórafélagið Hreyfill hefur sent uppvísan verkfallsbrjót, Guðjón Hans- son, sem fulltrúa sinn í 1. maí nefnd verkalýðsfélaganna. Af þessu tilefni gerði nefndin eft- irfarandi samþykkt á fundi sínum í gær: „Fundurinn telur ekki fært að veita fulltrúa Hreyfils, Guð- jóni Hanssyni, sæti í nefnd- inni, vegna framkomu hans í yfirstandandi verkfalli. Hins vegar er fundurinn fús að ræða fulltrúaskipti við stjórn Hreyfils, ef hún æskir þess.“ Þelr sem lent haia í okraraklóm beðnir að gefa sig fram Nefnd sú sem Alþingi kaus til rannsóknar á okri birtir á öðrum stað í blaðinu auglýs- ingu þar sem hún skorar á alla þá sem tekið hafa fé að láni með okurkjörum að veita nefndiimi upplýsingar um þau viðskipti bréflega eða munnlega, en rannsóknarnefndin verður til viðtals í Alþingishúsinu á föstu- dögum kl. 6—7. Vekur nefndin athygli á því að í okurlögunum segir svo um ólöglega fjármálastarfsemi: ,,Ef samið er um vexti eða annað endurgjald fyrir lánveit- ingu eða. umlíðim skuldar eða dráttarvexti framyfir það, sem leyfilegt er samkvæmt lögum þessum, eru þeir samningar ó- gildir, og hafi slíkt verið greitt, ber skuldareiganda að endur- greiða skuldara þá fjárliæð, sem liann liefur þannig rang- lega af honum liaft.“ Þeim sem tekið hafa fé að Iáni með okurkjörum skal á það bent, að slík Iántaka er ekki saknæm. Rétt er fyrir þá sem okri eru beittir að gefa rannsóknarnefndinni upplýsing- ar um þau viðskipti, þótt skjai- legar sannanir séu ekki fyrir liendi. Reykvíkingar! Leggið allir fram fé iil aðstoðar rerkfaUsmönnum!

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.