Þjóðviljinn - 28.04.1955, Page 4

Þjóðviljinn - 28.04.1955, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. apríl 1955 V , þióoyiuiNN I Útgefandl: Sameinlngarflokkur alþýCu — Sósíalistaflokkurinn. Rltstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)' Fréttastjórl: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarnl Benediktsson, Guð- mundur Vlgfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfl Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 1». — Síml 7600 (3 línur). Aakrlftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrennl; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviijans h-f. I Hugsjén suðurameríku-fasistanna •' Það hefur verið mjög athyglisverður þáttur verkfallanna rmiklu að suðuramerikufasistamir í Sjálfstæðisflokknum hafa frá upphafi reynt að egna til stórátaka; það hefur verið hugsjón þeirra að það kæmi til blóðugra bardaga og hægt væri að finna átyllu til þess að beita lögreglu og jafnvel bandarískum her til þess að berja niður verkfallsmenn. Tilgangur þeirra hefur verið og er sá að ekki verði samið um réttlætiskröfur verkafólks, heldur verði öllu til kostað að svelta verkafólk þar til yfir ljúki og berja Diður alþýðusamtökin með ofbeldi. Vonir þessarar fasistadeildar Sjálfstæðisflokksins hafa greini- íegast birzt í Vísi. Frá upphafi hefur það blað á hverjum einasta degí reynt að egna til árása á verkfallsverði, það hefur birt eina lygafréttina á fætur annarri og skorað á menn að neita að sætta sig við löglegt eftirlit verkfallsvarða. Visismenn hafa samið daglega hólgreinar um margdæmda glæpamenn og óþokka, sem farið hafa eftir vísbendingum biaðsins og reynt að beita verkfallsverði ofbeldi. Þessar tilraunir íhaldsins til þess að breyta verkföllunum í borgarastyrjöld hafa þó mistekizt algerlega til þessa. Samúð almennings hefur öll verið með verkamönnum og það hafa ekki verið aðrir en illræmdustu sorpmenni þjóðfélagsins sem hafa hlýtt ákalli Vísis. Verkfallsverðir hafa einnig glöggt skilið til- gang fasistadeildarinnar og sýnt frábæra stillingu og festu í öll- nm átökum. Tilræðismennirnir hafa ýmist glúpnað fyrir verk- fallsvörðum eða farið háðulegustu hrakfarir. Hin einstæða og fúlmannlega árás lögreglunnar í gær á verk- fallsverði sýnir hins vegar Ijóslega að suðurameriku-deildin er ekki af baki dottin og er nú örvæntíngarfyllri en nokkru sinni fyrr, er hún sér fram á ósigur sinn. Það hefur því aldrei verið brýnna en nú að verkfallsmenn hafi alla yfirburði í átökunum við tilræðismenn, innan lögreglunnar sem utan, og brjóti á bak aftur hverskonar ofbeldistilraunir með sömu festu og einurð og undanfarnar vikur. ] r Dæmdir til að bíða ósigur 1 Hafi auðmannastéttin á íslandi ekki gert sér ljóst áður hvílík Sókndirfska og þróttur og úthald býr í íslenzkri verkalýðsstétt þá hefur hún fengið að sannreyna það í yfirstandandi vinnudeilu. Um 7000 vinnandi menn og konur hafa háð hetjubaráttu fyrir rétti sínum í sex vikna verkfalli og af slíkri festu og einurð að ieðruleysi þessa fólks og óbifandi sigurvilji hefur vakið aðdáun tillrar þjóðarinnar. Því þrátt fyrir mikilsverðan stuðning annars verkalýðs og alls almennings sem hefur sýnt skilning sinn á gildi þess að verkalýðsfélögin sigri í deilunni hefur að sjálfsögðu mest reynt á þau alþýðuheimili og þá meðlimi verkalýðsfélaganna sem cru beinir aðílar að verkfallinu. Á þeim hefur meginþunginn hvílt og gerir það óhjákvæmilega þar til sigur er unninn. Þetta alþýðufólk hugðist auðmannastéttin leggja að velli með Jiví að draga verkfallið á langinn og svelta alþýðuhemilin til upp- gjafar. Hugarfarið og hugsjónirnar eru svo sem í samræmi við inanngildi þeirrar auðstéttar sem allt reiknar til peninga og hikar ekki við að selja af hendi dýrmætustu réttindi þjóðar sinnar fái Þún aðeins nægilegt fé í aðra hönd og aukna tryggingu fyrir á- framhaldandi valdaaðstöðu. Það er athyglisvert og nauðsynlegt fyrir þjóðina að festa sér það vel í minni, að höfuðforkólfar at- vinnurekendavaldsins hafa að mestu haldið óbreyttri gróðaað- ttöðu þrátt fyrir þá víðtæku framleiðslustöðvun og þau milljóna- töp sem þeir hafa leitt yfir þjóðarbúið með atferli sínu. Kefla- víkurvinna bandaríska hernámsliðsins reyndist þeirra varasjóður úsamt beinum framlögum frá bandarísku auðvaldi. Þrátt fyrir þennan fjárhagslega aðstöðumun er auðstéttin Öæmd til að bíða ósiguc en verkalýðurinn á sigurinn vísan, hvort eem atvinnurekendur kjósa að halda stríðinu áfram eða viður- kenna ósigur sinn innan tíðar. Með hverjum degi sem líður án ’ausnar á deilunni þyngist dómur þjóðarinnar yfir atferli at- vinnurekenda og brátt verður þeim um megn að rísa undir því filmenningsáliti sem einhuga fordæmir ábyrgðarleysi þeirra og ppinskáan fjandskap við þjóðarhagsmuni. THLENTS b.f. Hérna á verðinum við Smá- löndin öndum við að okkur indælu næturlofti. Himinninn er blásvartur alsettur stjörn- um. Þó er sigurhátíð vorsins yfir vetrinum, páskarnir, ný- gengin um garð. Ég stend úti- fyrir kaffiskýli í líki strætis- vagns og tala við gamlan verkamann, félaga minn, sem hefur meiri reynslu en ég í verkföllum. Ég hef oft séð þennan mann áður, en aldrei talað við hann fyrr. Hann er mjög trúaður og kirkjuræk- inn. Auk þess hefur hann kos- ið Sjálfstæðisflokkinn í síð- astliðin 28 ár. Af kristilegu uppeldi kaus hann sér það hlutskipti í lífinu að verða verkamaður, þó hann, sam- kvæmt hæfileikum sínum gæti gegnt ábyrgðarmiklum stöð- um í þjóðfélaginu. En það má að vísu segja um marga aðra verkamenn, sem ekki hafa haft efni á að mennta sig. Fjársjóður á hininum Þessi gamli félagi minn hafði einnig góða aðstöðu í þjóðfélaginu til þess að geta orðið ríkur af veraldlegum auði. Hann kann Fjallræðuna utanbókar. Og hann vitnaði oftar en einu sinni í Fjallræð- una meðan ég talaði við hann: „Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar sem mölum og ryð eyðir, og þar sem þjófar brjót- ast inn og stela, en safnið yður fjársjóðum á himni, þar sem hvorki eyðir mölur né ryð, og þar sem þjófar brjót- ast ekki inn og stela, því að þar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera“. Talenta h.f. Við héldum samtalinu á- fram. Ég spurði hvort hann tryði því, að talað væri um það í bænum, að margir af lánardrottnum Ragnars Blön- dals h.f. væru „kristilegir Sjálfstæðismenn“ eins og hann. Já, hann hélt það nú. Honum fannst -ekki nökkur vafi á því. Ertu ekki Sjálf- stæðismaður? spurði ég. En hann svaraði: Eg hef kosið Sjálfstæðisflokkinn í 28 ár, en þetta verkfall hefur sannað mér það, að Sjálfstæðisflokk- urinn er flokkur þeirra, sem hafa Mammon fyrir guð, en það er ekki hægt fyrir kristið fólk að þjóna bæði Guði og Mammon í senn. Ég spurði félaga minn, hvort hann hefði þá heyrt, að sumir af lánardrottnum Ragn- ars Blöndals h.f. væru í leyni- félagi, sem heitir Talenta h.f. Það væri svo sem eftir þess- um kristilega Sjálfstæðis- mönnum, þeir eru bókstafs- trúar og tileinka sér auðvitað dæmisögu Krists um talent- urnar, sagði félagi minn. Ég var búinn að gleyma þessari dæmisögu og bað hann að hafa hana yfir. Ég vildi vita hvers konar dæmisaga það væri, sem Sjálfstæðisflokkurinn tekur bókstaflega og lifir eftir. En félagi minn sagði mér að lesa Matt. 25. kapitula. Ef maður tekur þennan kapitula bók- staflega, sagði hann, þá hlýt- ur maður að leggja áherzlu á auðsöfnun og eignast fjársjóð á jörðu. Enda er það í sam- ræmi við uppeldi ungu kyn- slóðarinnar. í samræmi við uppeldi ungu kynslóðarinnar ? — hvað áttu við ? spurði ég. Faðirvorið Hérna um árið, sagði félagi minn, bað kennari nokkur börnin um að skrifa „Faðir- vorið'1. Kennarinn ætlaði að grennslast eftir því, hve mörg börn í bekknum kynnu „Fað- irvorið“. Einn drengjanna í bekknum byrjaði faðirvorið á þessa leið: „Faðir vor, þú sem ert á jörðu“. Faðir þessa drengs var auðvitað kristileg- ur Sjálfstæðismaður. Ég vil, sagði félagi minn, að Sjálf- stæðisflokkurinn verði kallað- ur Talenta h.f. Pólitík Okkur bar saman um það, að Sjálfstæðisfl. reyndi af öll- um mætti að eyðileggja ár- angur okkar af þessu verk- falli. Verkföll hafa ætíð verið pólitísk. Öll verzlun og atvinna er í höndum stjómmálamanna. Að tala um ópólitísk verkföll er hjóm. Hitt er annað mál að hinum pólitísku flokkum geðj- ast mismunandi vel að kröf- um verkamanna. Ef t.d. verka- maður úr Sjálfstæðisflokknum stendur með sínu verkalýðsfé- lagi í kaupdeilu og berst með stéttarbræðrum sínum, er hann umsvifalaust kallaður laumukommúnisti, ef ekki Moskvukommúnisti. Það er því ekki neinn smáheiður í því, að vera kallaður kommúnisti. Sjálfstæðisflokkurinn vill evði- leggja árangurinn af verkfall- inu. Ekki út af kaupkröfunum, heldur vegna þess, að ef verk- fallið tapaðist trúir hann því, að þar með verði allri vinstri- samvinnu komið fyrir kattar- nef. En verkalýðurinn verður aldrei sigraður, hvorki í þessu verkfalli né á öðriim vettvangi. Um þetta voram við sammála, félagi minn og ég. Og þegar hér var komið sögu sást til bifreiðar, sem kom úr bænum. Nokkrar ungar blómarósir stigu út úr bifreiðinni, þær báru kassa fulla af brauði. og kaffibrúsum. Þetta voru matseljurnar okkar. Þær höfðu líka með sér dagblöðin. Morg- unblaðið, Þjóðviljann, Alþýðu- blaðið og Tímann. Við fórum inn í líkið af strætisvagninum til þes að fá okkur kaffisopa og lesa blöðin. Þetta var ró- leg nótt vegna þess, að nóttina áður áttum við í höggi við verkfallsbrjóta. Verkfallsbrjót arnir virðast sælast eftir á- tökum. Þeir um það. Da gsbr ú narverkamaður Framsóknarflokkurinn og vinstra sanistarf Kjósendur Framsóknar- flokksins eru undantekningar- lítið vinstri sinnað fólk. Þetta er fólk sem verður að berjast fyrir sínu brauði í sveita síns andlits. Hinn sjálfsagði banda- maður þessa fólks í sveitum landsins er verkalýður bæj- anna. Vegni verkalýðnum illa, hvort sem orsökin er atvinnu- leysi eða of lágt kaupgjald, þá færist hið slæma ástand fljótt yfir á herðar alþýðu í sveitum Iandsins, í mynd sölutregðu til að byrja með, sem síðar get- ur leitt til verðhruns á íslenzk- um sveitaafurðum ef ástandið við sjávarsíðuna verður mjög alvarlegt. Þetta er svo auð- skilið mál, að hvert barn get- ur tileinkað sér þessi sannindi. Þetta er líka auðbröskurum Sjálfstæðisflokksins ljóst, enda hafa þeir lengi óttazt samstarf alþýðu til sjávar og sveita. Og þó undarlegt megi teljast, þá hefur auðmönnum Reykjavík- ur alltaf tekizt að spilla því að slíkt samstarf kæmist á í alvöru. Helzta ráðið sem til þessa hefur verið notað af auðstétt- inni, er að ánetja sér að meira eða minna leyti kosna fulltrúa Framsóknarflokksins, gegnum allskonar gróðasamtök. Á þennan hátt hefur auðburgeis- um Reykjavíkur tekizt að smá fjarlægja sjónarmið valda- manna Framsóknar sjónar- miðum hinna almennu kjós- enda flokksins, enda er þetta hugsað frá hendi auðmanna sem bragð til að lama Fram- sóknarflokkinn. Þetta sjá ýms- ir menn flokksins en til þessa hafa þeir ekki fengið að gert. Það er ekkert vafamál að bændur og önnur alþýða í sveitum landsins vilja vinstra samstarf Framsóknarflokksins við alþýðu bæjanna, þar er ennþá í fullu gildi kjörorð Tryggva heitins Þórhallsson- ar „Allt er betra en íhaldið". Foringjar Framsóknarflokks- ins vita þetta vel, en þeir haf- ast ekki að. Þeir una sér vel margir hverjir við kjötkatla íhaldsins, og hinar sameigin- legu gróðalindir hjá handhöf- um dauðans á Keflavíkurflug- velli. Ennþá hefur sveitaalþýðan tekið gildar afsakanir Fram- sóknar fyrir því að ekki hefur verið komið á vinstra. sam- starfi, en svo verður ekki um langa framtíð. Þjóðfylking al- þýðu til sveita og sjávar er það sem koma skal og koma verður, til að bjarga íslenzk- um arfi inn í framtíðina og skapa hér traust menningar- þjóðfélag, þar sem skapendum auðsins sé tryggð réttlát skipt- ing þjóðarteknanna á hverjum tíma. Skilyrðin til að stíga þetta spor eru þegar fyrir hendi, það vantar aðeins manndóm til að framkvæma þetta. Og manndómurinn er til sé hans leitað af einlægum huga. Það verður ekki tekið gilt öllu lengur, þó einhverjir foringjar Framsóknarflokks- ins segi: Við getum ekki unn- ið með Sósíalistaflokknum. „Til þess að hægt sé að mynda vinstri stjórn verður Alþýðu- flokkurinn að verða svo öfl— ugur að hann geti myndað hreinan meirihluta með Fram- sóknarflokknum“. Svona mótbárur falla mark- lausar. Þetta þýðir á venju- legu íslenzku máli: við viljum ekki koma á vinstri samvinnu. því eins og í pottinn er búi5 í íslenzkum stjómmálum, þá veit hver maður að vinstra samstarfi verður aldrei komið á án þátttöku Sósíalistaflokks- ins, sem er skanaður af ís- lenzkri alþýðu og brjóstvöm hennar. íslenzk alþýða sem f síðustu kosningum til Alþingis kaus Framsóknarflokkinn, Sósíalistaflokkinn, Alþýðu- flokkinn og Þjóðvamarflokk- inn er hreinn og ótvíræður meirihluti íslenzku þjóðarinn- ar, og það er þessi meirihluti Framhald á 6. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.