Þjóðviljinn - 28.04.1955, Side 7
Fimmtudagur 28. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Brich Maria REMARQUE:
Að elska ...
• • • og deyja
_3Í
112. dagur
Sex skipbroismannaskýlum komið
upp fyrir söfnunarfé deildarinnar
Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Rvik
minnist 25 ára afmælis
Kvenuadeild Slysavarnafélagsins í Reykjavík — elzta kvenna-
deildina á landinu — á 25 ára afmæli í dag, 28. apríl. A þess-
um aidarfjórðungi hafa deiidarkonur safnað 527 þús. krónum,
sem varið hefur vérið til slysavarnamála, m.a. til að kaupa og
útbúa 6 skipbrotsmannaskýli.
— þeir hefðu getað þaö fomiálalaust. Hefuröu nokkra
hugmynd um hvaða erindi þeir eiga viö hana?“
„Faðir hennar er í fangabúðum. Og hún bjó hjá kven-
manni, sem hefur ef til vill kært hana. Líka getur verið
að hjónaband okkar hafi beint athygli þeirra aö henni“.
Jósef hugsaði sig enn um. „Eyðilegöu allt sem gæti
staðið í sambandi viö handtöku föður hennar. Bréf, dag-
bækur og allt þess háttar. Og svo skaltu fara. Einn.
Varstu ekki að hugsa um þaö?“
„Jú. Ég segi þeim að bréfið hafi ekki komið fyiT en í
morgun og ég hafi ekki náð í konuna mína í verksmiðj-
unni“.
„Það er bezt. Reyndu aö komast að hvaö er á seyði.
Þér verður ekkert gert. Þú veröur að fara aftur á víg-
stöðvarnar hvort sem er. Það er engin hætta á aö þeir
hindri þig í því. Ef þú þarft á felustaö að halda handa
konunni þinni, þá get ég gefið þér heimilisfang. En
fyrst skaltu fara á skrifstofuna. Ég verð hérna síðdegis
í dag“. Jósef hikaði andartak. „í skriftastól séra Bieden-
diecks. Þarna sem skiltið hangir sem á stendur „Fjar-
verandi“. Þar get ég sofið smástund“.
Gráber reis á fætur og gekk út. Eftir svalt hálfrökkriö
í kirkjunni var birtan úti fyrir nístandi og miskunnar-
laus, rétt eins og Gestapo hefði tekiö hana í þjónustu
sína. Hann gekk hægt eftir götunum. Honum fannst
sem hann gengi undir glerhjálmi. Allt í kringum hann
var orðið undarlegt og óraunverulegt. Kona meö barn í
fangi var tákn öryggis, sem vakti hjá honum beizka
öfund. Maöur sem sat á bekk og las dagblað var ímynd
áhyggjuleysis og tvær hlæjandi mannverur voru leifar
fyrri veraldar, sem allt í einu hafði hrunið til grunna.
Yfir honum einum hvíldi dimmur skuggi óttans, sem
aðskildi hann frá öðru fólki eins og hann væri haldinn
drepsótt.
Hann gekk inn í Gestapó bygginguna og sýndi bréfiö.
S.S. maður vísaði honum eftir gangi og inn í hliðar-
álmu. Það var herskálaþefur í göngunum. Hann þurfti
að bíða í herbergi meö þrem öðrum. Einn máðurinn stóð
úti við glugga sem vissi út að húsagaröi. Hann hélt
höndumun fyrir aftan bak og með hægri hendi sló hann
án afláts á vinstra handarbakið. Hinir tveir mennimir
sátu og horfðu beint fram fyrir sig. Annar var sköllóttur
og með skarð í vör sem hann reyndi að dylja með því að
bera höndina fyrir það; hinn var meö Hitlersskegg og fölt
heilsuleysislegt andlit. Allir þrír litu snöggt á Gráber um
leið og hann kom inn en flýtti sér að líta undan aftur.
S.S.maður með gkraugu kom inn. Þeir risu allir upp
samtímis. Gráber var næstur dyrunum. „Hvað eruð þér
að gera hér?“ spurði S.S.maðurinn undrandi. Hennenn
vom yfirleitt kallaðir fyrir herrétt.
Gráber sýndi honum bréfið. S.S.maðurinn las það.
„Þetta er alls ekki til yðar. Þetta er til einhverrar ung-
frú Knise“.
„Það er konan mín. Við vorum gefin saman fyrir
nokkram dögum. Hún vinnur í einni af verksmiðjum
ríkisins. Ég hélt ég gæti sinnt þessu fyrir hana“.
Gráber dró upp vígsluvottorð sem hann hafði haft
með sér af forsjálni. S.S.maðurinn boraði hugsandi í eyr-
að á sér. „Jæja, ég hef ékkert við þaö aö athuga. Her-
bergi sjötíu og tvö í kjallara".
Hann rétti Gráber skjölin aftur. í kjallara, hugsaði
Gráber. Hræöilegustu sögurnar gengu um kjallarann í
Gestapobyggingunni.
Hann gekk niður stigann. Tveir menn sem komu á
móti honum horfðu á hann öfundaraugum. Þeir héldu
aö hann væri á útleiö, frjáls maður en þeir ættu allt
eftir.
Herbergi númer sjötíu og tvö var stór salur með skjala-
skápum og ótal milligerðum. Þreytulegur skrifstofumaö
ur tók við bréfi Grábers. Gráber útskýrði fyrir honum
hvers vegna hann væri kominn og sýndi skjöl sín einu
sinni enn .
Skrifstofumaðurimi kinkaði kólli. „Getið þér skrifað
undir fyrir hönd konu yðar?“
Afmælis kvennadeildarinnar
verður minnzt með sérstakri
dagskrá í útvarpinu í kvöld,
en á laugardagskvöldið halda
félagskonur hóf í Sjálfstæðis-
húsinu. Hefst það kl. 6 og
verður þar margt til skemmt-
unar.
Myndarlegt afmælisrit.
í tilefni afmælisins kemur
einnig út veglegt afmælisrit,
sem nefnist Sága kvennadeild-
arinnar í Reykjavik og er 90 Söngflokkur deildarinnar,
hverjum tíma. Skipbrotsmanna-
skýlin sex, sem komið hefur
verið upp fyrir söfnunarfé
þeirra, eru á Meðallandssandi,
Fossfjöru, Skeiðarársandi,
Breiðamerkursandi, Dritvík á
Snæfellsnesi og Keflavík við
Látrabjarg. Ennfremur má geta
þess að nú eru í sérstökum
sjóði deildarinnar 75 þús. krón-
ur, sem verja á til kaupa á
þyrilvængju.
síður. Fremst í ritinu er ávarp
Guðrúnar Jónasson, formanns
deildarinnar, síðan rekur Eygló
Gísladóttir sögu deildarinnar og
fylgja greininni fjölmargar
myndir, þá eru stuttar greinar
um ýmsar helztu forystukonur
deildarinnar, örstutt ágrip af
sögu allra kvennadeilda Slysa-
varnafélagsins á landinu með
mörgum myndum og ennfrem-
ur þrjú kvæði, sem ýmist hafa
verið ort til Kvennadeildarinnar
í Reykjavík eða um slysavarna-
mál. Margt fleira er í þessu
riti, sem er hið myndarlegasta.
Sex skipbrots-
mannaskýli.
Eins og áður er sagt er
Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins í Reykjavík elzta kvenna-
deildin á landinu, stofnuð 28.
apríl 1930. Aðalstarf félags-
kvenna hefur frá upphafi verið
að safna fé til þeirra hluta,
sem þær hafa talið nauðsynleg-
asta í slysavarnamálunum á
Kvennadeildin hefur haldið
fundi reglulega frá stofnun og
hafa þeir að jafnaði verið fjöl-
sóttir. Þá hefur nýlega verið
stofnaður kór innan deildarinn-
ar og syngur hann í fyrsta sinn
opinberlega í útvarpsdag-
skránni í kvöld og í afmælis-
hófinu á laugardag. Stjórnandi
kórsins er Jón ísleifsson.
Formaður í 25 ár.
Guðrún Jónasson hefur verið
formaður kvennadeildarinnar
frá upphafi. Með henni eru nú
í stjórn Gi'óa Pétursdóttir, Ey-
gló Gísladóttir, Guðrún Magn-
úsdóttir, Sigríður Pétursdóttir,
Ingibjörg Pétursdóttir, Guðrún
Ólafsdóttir, Þórhildur Ólafs-
dóttir og Ástríður Einarsdóttir.
Dívanar
Ódýrir dívanar fyrirliggjandi
Fyrst til okkar — það
borgar sig.
Verzl ÁSBRÚ,
Grettisgötu 54,
sími 82108
SUíðamót MA
Skíðamót Menntaskólans á
Akureyri fór fram í Vaðlaheiði
20. apríl s.l.
Keppt var í tvénnu lagi,
sveitakeppni á milli bekkja og
einstaklingskeppni (kepp. 22).
Eflaust hefði þátttakan orðið
meiri að þessu sinni ef ferðir
bekkjanna í Útgarð, skíoaskála
M.A.,hefðu ekki failið niður í
vetur, þannig að minna varð um
skíðaferðir en t.d. í fyrra. Þá
féll einnig niður hin árlega
Útgarðsganga (úr Útgarði og
heim að skóla) en það er einnig
sveitakeppni milli bekkja.
Úrslit í sveitakeppninnl
Sveit 6. bekkjar 220.0 sek.
Sveit 5. bekkjar 239.7 sek.
Sveit 4. bekkjar 250.4 sek.
Sveit 2. og 3. bekkjar 271.6 sek.
Einstaklingskeppni í svígi
Njörður P. Njarðvík 6. b. 43.4
Helgi Valdimarsson 5. b. 44.4
Árni B. Árnason 4. b. 45.2
Jón Kristjánsson 4. b. 45.7
Skíðomót Reykiavíkier 1955
Stórsvigsképpni Skiðamóts
Reykjavíkur fór fram í Skála-
felli s.l. sunnudag. Keppni hófst
kl. 14.30. Keppt var í öllum
Gunnar M. Magnúss:
Börnin frá Víðigerði
Stjáni var étandi á milli og í bezta skapi.
En Geiri sneri sér frá honum og svaraði hon-
um ekki frekar. Stjáni hafði svo hátt, að fólk-
ið í næstu klefum hafði heyrt alla romsuna,
og þar á meðal Finnur og Guðmundur Ás-
geirsson, fyrrverandi bændur í 'Víðigerði.
Það var ekki í fyrsta skipti, sem Stjáni hafði
skaprauna:ð þeim, en nú voru þeir orðnir
bálvondir út af framkomu hans, og það var
ekki laust við að þeim batnaði klígjan, þegar
þeir voru að hugsa um, hvernig þeir gætu
losnað við þennan gallagrip, því að hann gæti
haft slæm áhrif á alla smákrakkana, ef hann
væri með þeim.
— Veðrið var gott um daginn, hægur vind-
ur, en þung undiralda. Þess vegna tók skipið
þungar dýfur og hliðarveltur. Margir reyndu
að herða sig upp, og fóru upp á þilfar, til þess
að draga að sér svala hafgoluna. Það var
solarlaust, og himininn hulinn gráum skýj-
um, en allt 1 kring sást út á endalausan sjóinn.
Margir karlmenn voru á þiljum, en börn
fengu ekki að koma undir bert loft, og kon-
ur vildu halda kyrru fyrir niðri.
flokkum karla og í kvenna og
drengjaflokkum. Veður var
heldur óhagstætt til keppni,
austan hvassviðri og dálítil
snjókoma. Úrslit í einstökum
flokknum urðu sem hér segir:
(Keppendur voru milli 30 og
40).
A-flokkur karla
Úlfar Skæringsson I.R. 1.08.5
Sigurður R. Guðjónss. Á. 1.09.1
Stefán Kristjánsson Á. 1.11.7
B-flokkur karla
Óskar Guðmundsson KR 1,10.0
Elfar Sigurðsson KR 1.11.5
Jakob Albertsson ÍR 1.13.9
C-flokkur karla
Svanberg Þórðarson ÍR 1.05.5
Guðm. Þórðarson iR 1.05.5
Guðm. Jónsson Hverag. 1.12-0
Lárus Ágústsson Víking 1.16.8
Drengjaflokkur
Úlfar Andrésson IR 1.10.9
Sigurður Einarsson IR 1.12.9
Kvennafiokkur
Arnheiður Árnadóttir Á. 1.04.7
Guðlaug Guðjónsdóttir ÍR 1.12.5
Gréta Hjálmarsd. Vík. 1.24.4
LIGGUR LEIDIN