Þjóðviljinn - 22.06.1955, Side 5

Þjóðviljinn - 22.06.1955, Side 5
I -Miðvikudagur 22. júní 1955 — ÞJÓÐVIUINN — (5 ræðu sem Gunnar M. Magn- iiss flutti við 1. umræðu frv. sósíalistaþingmanna um upp- sögn hernámssamningsins og brottflutning bandaríska hers- ins af fslandi. — Hér neðir Guniiar samvistir hersins og fslendinga og hinar marg- rómuðu „endurbætui’" Fram- sóknarflokksins á hernáms- máiunum. Þjóðviljinn birti kafla úr þessari sömu ræðu 27. maí og 9. júní. Þegar svipt hefur verið burtu öllum rökum fyrir her- setu og sýnt fram á fánýti þessara svokölluðu varna hér á landi, skal örlítið vikið að sambúðinni við setuliðið og hvaða áhrif samvinna við það hefur haft á þjóðlíf íslend- inga og sjálfstæði. Ég hef áður minnzt á hinn borubratta hershöfðingja Mac Gaw, sem hingað kom með herinn 7. maí 1951. Það kom brátt í ljós, að hann leit á stjórnarvöld landsins sem fyr- irgreiðslumenn í hverju því, sem honum þóknaðist að láta framkvæma. Hann setti á eig- in spýtur reglur í ýmsu, er samkvæmt samningum virðist ekki hafa verið á hans færi eingöngu, en íslenzka ríkis- stjórnin samþykkti eftir á eða lét afskiptalaust. Hann lét dátt við íslenzka embætt- ismenn og sótti strax eftir kynnum við þá. Það var auðsætt í upphafi, að hershöfðinginn átti strax að leggja grundvöllinn að ó- rjúfandi sambandi milli hers- ins og Bandaríkjastjórnar annarsvegar en hinsvegar við alla auðsveipa ráðamenn ís- lenzka, sem þjónustu mátti af vænta. Vakti það nokkra at- hygli, að eftir tveggja mán- aða dvöl hér á landi fór hann í yfirreið um landið og í heim- sóknir til sýslumanna vestan- lands og norðan og allt til Austurlands. Fyrirgreiðslu fékk hann í stjórnarráðinu. Voru sýslumönnum ýmist sím- uð eða send í símskeyti fyrir- mæli um að taka vinsamlega á móti hershöfðingjanum þeg- ar hann bæri að garði. Þetta var því opinber heimsókn, og er ekki annars getið en að sýslumenn hafi brugðizt vel við, tekið hershöfðingjanum opnum örmum og slegið upp mannfagnaði. Er orð á því haft, að í Stykkishólmi hafi hershöfðinginn drukkið fast og látið svo um mælt til af- sökunar, að svona á sig kom- inn hefði hann sjaldan verið fyrr, sem sagt í „kjallara- ástandi“. Þetta opinbera heimsóknar- ferðalag hershöfðingjans vakti þeim mun meiri athygli og gagnrýni margra, að um sömu mundir var forseti íslands, herra Sveinn Björnsson, í op- inberum heimsókum einmitt á Norðurlandi. Mac Gaw tók þá upp þann sið að bjóða til bækistöðva sinna á Keflavík- urvelli ýmsum forráðamönn- um þjóðarinnar og eiga með þeim gleðskap við víndrykkju. Meðal gesta þar, auk ein- stakra ráðherra og embættis- manna úr Rvík, voru nokkrir sýslumenn þeir, er hers- höfðinginn hafði heimsótk Og hershöfðinginn gat verið hróð- ugur, þvi að ríki hans í rik- inu var ekkert smáræði til að byrja með. Það náði yfir parta úr 30 jörðum í 5 hrepp- um. Það var 9000 hektarar að stærð, eða til samanburðar rúmlega fjórum sinnum stærra en Reykjavík öll, Sel- tjarnarnesið allt og að auki landssvæðið inn að Elliðaám. Þar var einn af stærstu flug- völlum heims með malbik- uðum fjórum rennibrautum, samtals um 9 km Iöngum. Þar var vísir að bandarískri borg og þá þegar búsettar þar 112 fjölskyldur Bandaríkja- manna, auk hermanna, sem hann kom með. Hernámsblöð- in, Alþýðublaðið, Morgunblað- ið og Tíminn, héldu uppi lát- lausri vörn fyrir hersetunni og hvers konar gagnrýni á hendur hemum. En það var sérstaklega athyglisvert, að málsvörn þeirra snérist venjulega i^ppí árásir á Ráðstjórnarríkin. Þótt Morgunblaðið og Al- þýðublaðið væru jafnan til- tæk til hvers konar auðvirði- legustu þjónustu fyrir her- inn, var þó almannarómur að bændablaðið Tíminn gengi Gunnar M. Magnúss: allra blaða lengst í þjónustu- samlegum skrifum fyrir her- liðið. Frægasta dæmið um það er grein, sem Tíminn nefndi „Einkaviðtal Tímans við Mac Gaw hershöfðingja". Til þess að sýna hvílík dauðáfroða þessi greinasam- setningur yfirleitt var, vil ég taka hér upp nokkrar setningar úr Tímanum, með leyfi forseta. Blaðamaðurinn spyr: Telur þú mikla hættu á því að styrjöld skelli á? — Maður veit aldrei hvað morgundagurinn kann að færa, segir hershöfðinginn. Blaðamaðurinn: Er mikil árásarhætta fyrir Island, ef til styrjaldar kemur ? — Maður veit það aldrei, segir hershöfðinginn. Blaðamaðurinn: En hvað þá um árásarhættuna fyrir Island ? — Um það getur maður ekkert sagt, en áreiðanlega er bezt að vera við öllu bú- inn, segir hershöfðinginn. Blaðamaðurinn segir: Eru varnir landsins komnar í við- unandi horf? — Þær verða traustari og traustari, segir hershöfðing- inn. I lok viðtalsins spyr blaða- maðurinn: Telur þú að íslend- ingar geti sjálfir tekið að sér varnir landsins? Hershöfðinginn svarar: — Það er ekki í mínum verka- hring að segja Islendingum fyrir verkum í því efni. Það eru þeir einir og engir aðrir, sem verða að segja til, hve- nær og hvort þeir vilja sjálf- ir taka slíkt á sig. Þetta var með mikilli prakt sent út um sveitir landsins. En það er grunur margra, að uppskera Tímamanna sé farin að koma í Ijós og muni sem betur fer vera í öfugu hlut- falli við tilganginn. Til þess frekar að árétta það, sem ég hef sagt, er rétt að varpa hér fram nokkrum spurningum og láta stað- reyndirnar -svara þeim. Hefur hersetan bætt at- vinnuvegi landsmanna? Hefur hún létt fjárhagslegar byrð- ar þjóðarinnar, lyft þjóðinni menningarlega, stutt okkur á alþjóðavettvangi, verið fyrir- mynd okkar í nokkru því, er til manndóms má verða? Þessu er fljótsvarað. Her- námsvinnan hefur grafið und- an atvinnuvegum landsmanna. Herinn hefur aukið á sundr- ung innan lands, lamað sið- ferðisþrek æskulýðsins, sagt ríkisstjórninni fyrir óheilla- verkum, skammtað okkur rétt á alþjóðavettvangi. Banda- ríkjamenn hafa lagzt mjög á manndóm íslendinga stimplað farmenn okkar sem misindismenn, sent fingraför . ..-.■MgE . fjölmargra íslendinga til Bandaríkjanna, rekið hér ó- löglega útvarpsstöð, talað gegnum hana til æskulýðs Is- lands cg ginnt hann á þann hátt til kynningarsambanda. Þeir reka hér fyrirlitlegar njósnir, blanda sér í innan- landsmál, hafa á margan hátt brotið á okkur lög og líta á okkur sem væntanlega ný- lenduþjóð. Og hvernig er svo virðingin hjá herraþjóðinni ? Strax brutu þeir reglur um bæjarleyfi hermanna, og þeg- ar Mac Gaw setti á sitt ein- dæmi reglur um framleng- ingu bæjarleyfis, þagði ríkis- stjórnin við og samþykkti síð- an. Síðan, þegar andmæli 'risu gegn bæjarflakki liermanna, höfðu þeir fataskipti að kröfu utanríkisráðherra, lögðu niður hermannabúninginn á flakki sínu en tóku upp venju- legan borgaralegan klæðnað sem opnaði þeim leið til að fara ferða sinna á lúmskan hátt. Þar sem íslenzkir og banda- rískir lögreglumenn hafa starfað saman á vellinum, er munurinn sá, að íslenzki lög- regluþjónninn er vopnaður kylfu en sá bandaríski skamm byssu. Komið hefur það fyrir við smávegis ágreining milli þeirra aðila að sá bandaríski hefur tekið upp skammbyss- una og gefið í skyn þar með að byssan mundi ráða úr- slitum. Hermennirnir hafa á vellinum óspart notað tæki- Hættan og smánin aí hernáminu færið til þess að henda gam- an að Islendingum, sem vinrta þar. Þeir hafa kastað í sorp- tunnur vallarins ýmsum eigu- legum hlutum, sem ekki eru með öllu ónýtir, til þess að ginna íslendinga. Þeir hafa ögrað verkamönnum að hirða úr draslinu, og þetta hefur tekizt. Þeir hafa oft sætt fær- is að snapa úr sorpinu og draga upp úr því ýrnsa hluti en innan við gluggana hafa hópar hermanna staðið ■ og hlegið dátt að þessari niður- lægingu Islendinga. Þegar hernámsvinnan hófst fyrir alvöru í ágúst 1951, voru áætlanir um fyrstu fram- kvæmdir til þess að byggja yfir Bandaríkjamenn á ís- landi 11 millj. kr. Það var ausið i hernaðarframkvæmdir. Þegar komið var fram á árið 1953, unnu á Keflavíkurflug- velli um 3 þús. íslendingar, meiri hlutinn við hernaðar- framkvæmdir, þar af yfir 200 trésmiðir, 130-150 vörubíl- stjórar, 70-80 pípulagninga- menn, 30-40 rafvirkjar, 40-50 járnsmiðir, 20-30 múrarar og álíka margir málarar auk fámennari hópa ýmsra ann- arra starfsgreina og svo mik- ill fjöldi íverkamanna. Og svo er nú komið að til hern- aðarframkvæmda, og til þess að byggja bandaríska borg á íslandi drýpur nú 1 millj. kr. hvern dag ársins sýknt og heilagt. Þegar litið er á hinn geysi- lega fjáraustur Bandaríkja- manna til hernaðaraðgerða hér á landi á sama tíma og borið saman við það sem Al- þingi veitir til ýmis konar framkvæmda og reksturs rík- isstofnana, sézt bezt hvert stefnir. Skulu hér nefnd ör- fá dæmi. Árið ’54 var veitt til nýrra varna á 184 stöðum alis á landinu fjárhæð, er svar- ar því sem herinn eyðir í sín- ar framkvæmdir á 10 dögum. Af því fé hafa þrír hernáms- forkólfarnir fengið fyrir kjör- dæmi sín sem hér segir: Ól- afur Thórs fyrir sitt kjör- dæmi 220 þús. kr„ eins og herinn eyðir til framkvæmda Framhald á 7. síðu. „Ég er McGaw“

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.