Þjóðviljinn - 22.06.1955, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 22.06.1955, Qupperneq 7
-Miðvikudagur 22. júní 1955 — ÞJÓÐVTLJINN — (7 Hans Kirk: 24. dagur Kona hans var með höfuðverk og hann var þegar bú- inn að tilkynna forföll hennar. Hann ók viö heima hjá Jóhannesi Klitgaard viö St. Önnu torg og sótti hann og frú Evelyn. Jóhannes maldaöi í móinn, svo heimskuleg- ur gleðskapur átti ekki við á þessum tímum, en frú Eve- lyn vann hann á sitt band; — Elsku bezti Jóhannes, þú veizt hvað mér þykir leið- inlegt að fara út án þín, sagði hún. Mér finnst þú vera svo mikil skrautfjöður í samkvæmislífinu og þú þarft sjálfur hvíldar við eftir allt erfiðið. Ég sé þig næstum aldrei. — Og ekki heldur við í fyrirtækinu, sagði Tómas. — En hvaö heyri ég, er hann ekki þar heldur? spurði fi*ú Evelyn. Hvaö í ósköpunum a'ðhefst hann þá? Held- urðu að hann eigi ástmeyjar, mágur? Ef til vilLfer hann í gleðihús og drekkur whisky með einhverju siðlausu kvenfólki. Það er nefnilega oft whiskylykt af þér, Jó- hannes. Jóhannes Klitgaard nísti tönnum af illsku. Þessi bann- sett kvensnift var með hortugheit við mann sem sinnti viöskiptum sínum samvizkusamlega. Og þaö hábölvaö- asta vSr að þau höföu ekki gert með sér kaupmála, og hvernig í fjandanum gat hann losnað við hana? Þaö yrði ekki útlátalaust, því að hún hafði áreiöanlega einhverja hugmynd um hvernig fjárhagur hans var. íbúð Emmanúels á Friðriksbergi, sem var fjögur her- bergi og eftir allra nýjustu tízku, var notalega lýst og skreytt blómum í öllum skotum, þegar þau komu. Sjálf- ur var hann í heimajakka úr silki með rauðgult blóm í hnappagatinu og bauö þau hjartanlega velkomin. Þarna var daufur ilmur af ilmvatni og tóbaksreyk og bækur í fögru bandi og glæsileg málverk sýndu óvéfengjanlega menningarlegan þroska húsráöanda. AÖ utan heyröist dauft skrölt í sporvögnum hinnar myrkvuðu borgar. — Það var leiðinlegt að Margrét gat ekki komiö, sagði hann. Og Þorsteinn og Sara hafa líka tilkynnt forföll. En mér finnst, að eimitt á þessum erfiðu tímum verðum við ekki aðeins aö halda við tengslunum innbyrðis, held- ur einnig halda- sambandi við hina ungu boöbera menn- ingarinnar. Jóhannes langaði mest til aö hrópa: — Æ, haltu kjafti! Hann hataði þennan tilgerðalega spjátrung sem var bróð- ir hans og hafði aldrei á ævinni unnið sér inn eyri sjálf- ur, heldur lifað á fyrirtækinu. Hvern fjandann þóttist hann vera með allt sitt menningarlíf og ljóðin sín, sem allir vissu aö komu a'ðeins út vegna þess a'ð hann gat sjálfur kostað útgáfuna? En ekki vantaði hann montiö. — Við verðum aö tala saman bræöurnir, sagði Tómas. Evelyn, ef þaö koma gestir áður en við erum búnir, verð- ur þú að sýna samkvæmishæfni þína og taka á móti þeim. — Kæri mágur, ég skal vefja þeim um litla fingurinn á mér, sagði Evelyn, og bræöurnir fóru inní vinnustofu Emmanúels sem var í göfugum bláum litum og var skreytt gylltum rússneskum íkonum og stóru miðaldar- krossmerki þar sem þyrnikrýndur Kristur engdist af kvölum. Emmanúel settist við skrifboröið og setti við- skiptalegan svip á magurt andlitið með ennistoppinn og löngum augnahárum. — f stuttu máli sagt, sagði Tómas. ÞjóÖverjarnir hafa heimtað að fyrirtækið vinni fyrir þá og stjórnin hefur gefið skriflega yfirlýsingu um að þaö sé þjóðfélagsleg skylda okkar að hlýða. Það verður ekki hjá því komizt, og 1 dag hef ég hafið undirbúning aö því að byggja flugbrautir á flugvellinum við Álaborg. Þetta verður um- fangsmikið verk. — Ég vænti þú hafir gert almennilegan samning, sagði Jóhannes Klitgaard. Fyrst við eigum að vinna fyrir þá, þurfum við líka að fá þaö ríflega borgaö. — Hvaö segir gamli ma'ðurinn? spurði Emmanúel. — Hann veit ekkert um það ennþá. — Skyldi honum líka það? — Það er óvíst, og í rauninni líkar engum okkar þaö. Hœttan af hernáminu Þýzka rannsóknarskipið Framhald af 3. síðu. Framhald aí 5. síðu. á 5 klst. Þó eru aðrir enn hógværari. Hermann Jónas- son hefur fengið sem svar- ar 9 klst. eyðslu hersins, og Sigurður Bjamason ámóta því, sem herinn eyðir á 12 klst. til þess að festa sig hér í sessi. Kostnaður við allar brúagerðir á landinu svarar til þess, sem herinn eyðir á 4 dögum. Til eflingar menn- ingarsambandi við Vestur-ís- lendinga, sem við viljum mjög gjarnan hafa, er eins og her- inn notar hér á 4 mín. Og til umbóta á Þingvöllum, helg- asta stað landsins, eins og herinn eyðir á 11 mín. Á sama tíma hefur hvað eftir.annað vofað yfir stöðv- un aðalatvinnuvega þjóðar- innar sökum mannfæðar, þar sem herinn hefur sogað til sín vinnuaflið, og í stað þess hefúr þurft að flytja inn er- lendan verkalýð og sjómenn til nauðsynlegra athafna fyr- ir íslenzku þjóðina. Hér horf- ir í algert óefni svo sem í flestu hjá núverandi ríkis- stjórn og fylgifiskum henn- ar. Spillingin er orðin svo mögnuð í hinu pólitíska sam- starfi núverandi stjórnar- floka, að ríkisstjórnin hang- ir saman þvi nær eingöngu á gróðahagsmunum í sambandi við herinn og valdabraski í skjóli erlends valds. Hafi núverandi hæstv. ut- anríkisráðherra, dr. Kristinn Guðmundsson, tekið að sér ráðherradóm fyrir annað og meira en vegtyllusakir og ætlað að vinna betri verk og þjóðnýtari er fyrirrenn- ari hans og standa einarðari gegn ágengni hersins, þá er alþjóð nú ljóst og má honum sjálfum vera ljósast, að lion- um hefur hrapalega mistek- izt. Fyrir utan ýmsar hlálegar blekkingar, sem farið hafa fram milli hans og herliðs- manna, hafa í hans ráðherra- tíð og undir hans handleiðslu, gerzt þau óhugnaniegu tíð- indi, að sterkir ráðandi aðilar íslenzkir, íslenzkir atvinnu- rekendur, íslenzkir verktak- ar og jafnvel stórir hópar iðn- aðarmanna hafa í vaxandi mæli fengið áhuga fyrir hern- aðarframkvæmdum á Islandi einvörðungu í gróðaskyni, skeytandi hvorki um skömm né heiður, kjósa aðeins meiri hervirki, stærri bandaríska borg á íslandi, fleiri dollara. vona að þessi tilraun með frvöfalt þilfar ætti eftir að valda straumhvörfum í bygg- ingu togara. Víðtækar fiskirannsóknir. Anton Dhorn hefur eins og áður er sagt verið við rann- sóknir við strendur Grænlands og á hafinu milli íslands og Grænlands. Hefur sérstök á- herzla verið lögð á að rann- saka karfamið. Þá hafa einnig verið gerðar tilraunir með ný veiðarfæri, m. a. flotvörpu sem er endurbót á Larsens-vörp- unni svonefndu en getur fisk- að mun dýpra, eða í allt að 400 m dýpi. Skipverjar á Anton Dhorn eru 27 en vísindamennirnir 18. Þá eru og læknir og hjúkrun- armaður. Einn Islendingur, Jakob Magnússon doktor í fiski fræði frá Kielarháskóla, var og með í þessari fyrstu ferð skips- ins. Hann hefur lagt sérstaka stund á karfarannsóknir og mun nú, er hann hverfur áf Anton Dhorn, halda þeim á- fram hér. Anton Dhorn heldur frá Reykjavík á laugardaginn. I júlí mun skipið verða við síld- arrannsóknir á Norðursjó, í september við rannsóknir hér við land og við Grænland og í nóvember-desember á fiskimið- unum við Lófót og í Barents- hafi. elitiili s þ állur Unga hásmóðirin og eldhúsföt Ungar, nýbakaðar húsmæður hugsa mikið um útlitið og ekk- ert er eðlilegra en að þær hugsi Hka um það að eignast snotra eldhúskjóla, svo að þær líti líka vel út við eldhússtörfin. En jafnvel eldhúsföt eru mishent- ug, einkum eru svuntur mis- jafnar að gæðum. Álirif auglýsinga og kvikmynda Án þess að við gerum okkur það ljóst hefur smekkur okkar á svuntum orðið fyrir miklum áhrifum af kvikmyndum og aug- lýsingum. 1 auglýsingum fyrir þvottaefni og búsáhöld og því- líkt í erlendum blöðum eru kon- urnar venjulega með litla, létta svuntu með pífum og pírumpári. 1 kvikmyndum er kvenhetjan iðulega sýnd í eldhúsinu með ör lítinn svuntubleðil sem hlífir kjólnum sáralitið. Reynda. hús- móðirin veit vel að þessar svuntur eru óhentugar, en unga húsmóðirin kemst oft ekki að raun um það fyrr en hún er sjálf búin að reyna þær. Hvað á að forðast? Svuntur sem nota á við mat- artilbúning og daglegar hrein- gerningar mega ekki vera stutt- ar ef þær eiga að koma .að fullu gagni. Blúndur og pífur geta verið fallegar, en maður fær venjulega nóg af að strjúka og forðast efni sem erfitt er að þvo. Ef svuntur eru kejrptar til- búnar þarf að aðgæta vasana vel. Stórir vasar sem standa út eru óhentugir, því að þeir eru alltaf að festast í hurðarhún- um og læsingum. Sléttir vasar eru miklu heppilegri. Svuntur eign að \ era síðár Fyrsta krafan sem gera verð- ur til hentugrar svuntu er að hún sé síð og gallinn á tilbún- um svuntum er venjulega sá að þær eru talsvert styttri en venjuleg kjólasídd. Það bætir lítið úr skák þótt kjóllinn sé hreinn á maganum ef faldurinn er allur blettóttur. Vel síð svunta úr þvottekta bómullar- efni með djúpum, sléttum vös- um er hentugasta svuntugerð sem. hugsazt getur. Ef maður á tvær slíkar svuntur til. skipt- anna er maður vel birgur. Marg- ir. kjósa heldur plastsvuntu til að nota á móti bómullarsvuntu, en plastsvunturnar eru fæstar sterkar og eru því óhentugar til daglegrar notkunar. Þær eru aftur á móti hentugar sem auka- svuntur við sérstök störf: Þeg- ar maður baðar ungbörn, skol- ar stórþvott o.þvl. Bómuilar- svuntur endast miklu betur. hlAAIflI llklftl Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu -— Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb) — Fréttastjóri: Jón Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guðmundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson. — Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu- stíg 19. — Sími; 7500 (3 línur). — Áskriftarverð kr. 20 á mán. í Rvík og nágrenni; .kr. 17 annars staðar. — Lausasöluverð kr. 1. — Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.