Þjóðviljinn - 07.07.1955, Síða 5
Fimmtudagur 7. jálí 1955 — ÞJÓÐVTLJINN — (5
Bregða þarf tafarbust við til að
bjarga byggðunum við Húnaflóa
Útvega þarf ný)an togara fyrir Húnaflóahafnirnar ef
takast á að snúa viS fólksstraumnum úr bygg&unum
Einar Olgeirsson alþm. var fyrir nokkru á ferð um
Noröurland og ræðir í eftirfarandi viötali hvað gera
þurfi til þess að stöðva flóttann úr þessum byggðum og
tryggja fólkinu mannsæmandi lífskjör.
Víða úti um land er lífsbarátta alþýðunnar hörð. í
sumum byggðum Strandasýslu mun hún vera einna
hörðust. Meðaltekjur á hvern einstakling í Strandasýslu
eru 7 þús. og 800 kr. á sama tíma og meöaltekjur á
einstakling hér í Rekjavík eru 15 þús. og 600 kr.
Á ferð sinni um Stranda-
sýslu hitti Einar allmarga
bændur úr Strandasýslu og
verkamenn á Hólmavík að
máli og ræddi við þá um
vandamálin og verkefnin
framundan.
— Það sem mest er áber-
andi norður þar, segir Einar,
er að fólkið er að flytja burtu
af jörðunum. Og á stöðum
eins og Hólmavík búa menn
ýmist við verulegt atvinnu-
leysi eða verða að leita burtu
frá fjölskyidum sínum og
vera lengi fjarvistum sökum
atvinnuleysis.
Afli farið þverr-
andi
— Orsökin til þessa er sú,
að afli hefur farið þverrandi
á undanförnum árum og at-
vinna og tekjur af fiskveiðum
því farið minnkandi.
Útlendir togarar „girða“
miðin raunverulega af, þ. e.
toga á miðunum úti í flóan-
um og ausa upp fiskigöngun-
um svo þær komast aldrei inn
í flóann nema að litlu leyti.
Þarf í senn ný-
tízku togara og
útfærslu fiskveiði-
takmarkanna
— Til þess að bæta úr þessu
ástandi þarf í fyrsta lagi ný-
tizku togara sem leggur upp
tií skiptis á Hólmavík
Drangsnesi og I Höfðakaup-
stað (Skagaströnd).
t öðru lagi þarf að færa
fiskveiðitakmörkin út.
Það er engum efa bundið
að um þetta eru menn sam-
mála beggja megin við Húna-
fióa. Jafnhliða því er að
framan greinir þarf að sjálf-
sögðu að auka vélbátaflotann.
'*§*&**'■'■ •" 'j v.Vtttel
Þjóðin má
við því
ekki
— Einmitt daginn sem við
komum í Kollafjörð, sagði
lEinar, voru tveir bændur að
flytja burt af jörðum sínum.
Þjóðin má ekM \ið þ\t and-
íega, — svo ekki sé talað um
allt það efnahagslega sem
fer forgörðiun — að þetta
harðgerða fólk sem elst upp
í þessum byggðarlögum og
myndar hinn sterka kjarna,
sem er íslenzk þjóð, rótslitni
óg yfirgefi byggðir sínar.
X>ess vegna verður að gera
ráðstafanir til þess að byggð-
ariögin geti haldizt við, og
ekki aðeins haldizt við, held-
ur að fólkinu séu tryggð
mannsæmandi lífskjör.
Tölur sem tala
— Þess vegna verður, held-
ur Einar áfram, að fá fólk-
inu stórvirk atvinnutæki, svo
stórvirk framleiðslutæki að
afkoma þess geti orðið eitt-
hvað sambærileg við það sem
hún er annarsstaðar.
Hagtíðindin tala sínu
máli um kjörin í byggðum
Strandasýslu. Árið 1953
voru meðal-árstekjur á
íbúa í Strandasýslu 7 þús.
og 800 kr., — lægstu með-
altekjur á landinu. Sama
ár voru meðaltekjur á ein-
stakling í Reykjavík 15
þús. og 600 kr. og í Kefla-
vík 17 þús. og 200 kr.
netto tekjur á hvern ein-
stakling.
Frá Hólmavík. Myndin er tekin út á höfnina og pví sést
ekki nema nokkur hluti hyggöarinnar.
k
Frá KoUafirði.
Það er ekki nóg
að tala um jafn-
vægi í byggð
landsins
— Það er ekki nóg að tala
um jafnvægi í byggð lands-
ins, eins og gerðar eru sam-
þykktir um á Alþdngi, en
hindra svo með hringavit-
iausri og afturhaldssamri
pólitík að stórvirkustu at-
vinnutækjunum, togurunum
sé fjölgað, einmitt þeim at-
vinnutækjum sem gætu lagt
grundvöllinn að bættri af-
komu heilla byggðarlaga.
Sósíalistaflokkurinn hefur
þing eftir þing flutt tillögur
um kaup á a. m. k. 10 ný-
tízku togurum, en afturhaldið
alltaf svæft það mál og hafa
nú ekki í 7 ár samfleytt ver-
ið gerðar ráðstafanir til þess
að bæta við togaraflota Is-
lendinga.
Skólamál dreif-
býlisins
— Enginn gagnfræðaskóli
er í Strandasýslu við Hrúta-
fjörðinn, segir Einar enn-
fremur. Reykjaskólinn hefur
ekki verið starfræktur undan-
farið. Fólkið býr þarna enn
við sömu erfiðleikana í
skólamálum og meðan gagn-
fræðaskólar voru aðeins á fá-
um stöðum á landinu. Raun-
verulega ætti rikið að styrkja
sérstaklega fólkið sem vegna
hinnar dreifðu byggðar á erf-
iðara með að veita börnum
sínum þá m^nntun sem þau
þarfnast og þau eiga kröfu
til að fá samkvæmt lögum.
Það er því athugandi hvort
ríkið ætti ekki að veita hærri
styrk til skóla í slíkum hér-
uðum.
Bændur og verka-
menn eiga að taka
höndum saman
— Hvað segir fólkið í þess-
um byggðum um stjóramálin?
— Alstaðar er mikill áliugi
hjá mönnum fyrir að skapa
vinstri einingu. Bæði fylgj-
endur Sósíalistafiokksins og
Alþýðuflokksins eru sammála ■
um að þessir flokkar verði að
taka höndum saman. Smá-
bændur eru margir í Stranda-
sýslu sem heyja þarna ákaf-
lega erfiða lífsbaráttu og gera
kröfu tíl þess að bændur og
verkamenn taM höndum sam-
an og stjórni landinu í sam-
einingu.
Aðgerðir þola
enga bið
Mönnum er ljóst að aðgerð-
ir þola enga bið ef fólkið á
ekki að búa við lítt þolandi
kjör og byggðin að ganga
saman.
Rafvirkjun er nýlega lokið,
og um það er allt gott' og
ánægjulegt að segja. En það
eitt megnar ekki að breyta
kjörum fólksins. Til þess þarf
stórvirk atvinnutæki sem
leggja grundvöll að nútíma-
þjóðfélagi og þeirri afkomu
sem menn gera kröfu til
að njóta á íslandi.
Vinnandi stéttirn-
ar eiga að ráða
þessu landi
— Gegn því bandaríska
valdi, segir Einar að lok-
um, sem nú eyðir landið,
sóar \innuafli Islendinga
tíl óþarfaverka og spillir
þjóðinni með áhrifum sín-
um, gegn þessu valdi }>arf
að koma samstarf verka-
manna og bænda og ann-
arra vinnandi stétta, sera
tryggir okkur yfirráðin
yfir Iandgrunninu, þrátt
brezku nýlendukúgarana;
samstarf sem tryggir okk-
ur yfirráðin yfir landinu,
þrátt fyrir yfirgang og
f jandskap bandaríska auð-
valdsins; samstarf sera
fær hinum duglegu og
harðgerðu \innandi stétt-
um þessa Iands í hendur
þau nýtízku tæM og það
sldpulagða samstarf á
vinnu þeirra sem gerir
mögulegt að skapa fólk-
inu góða afkomu. Hið dug-
mikla \innandi fólk þessa
lands á sMlið að njóta
þeirrar afkomu sem vinna
þess veitír því fullan rétt
tíl.
Framanritað. er í stuttu
máli kjarninn úr því sem.
Einar Olgeirsson hafði að
segja úr ferð sinni um
Strandasýslu. Vafalaust vildu
lesendur Þjóðviljans gjarna
fá meira að heyra frá honum
af Norðurlandi.
J. B.
<$>-
Fokheldar íbúðir
Höfum til sölu fokheldar íbúðir (ásamt allri hitalögn
með ofnum, allri vatns- og skolplögn að hreinlætistækj-
um og múrhúðun utan húss) í Laugarneshverfi. Ibúð-
imar eru í blokkbyggingu, 4—5 herbergja og 3ja herb.
Öllum íbúðunum fylgja geymslur, eignahluti að þvotta-
húsi og þurrkstofu, geymslur fyrir barnavagna og reið-
hjól, matvælahólf og verkstæði, auk lóðarleiguréttinda.
íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar um næstu ára-
mót. — Allar nánari upplýsingar gefur
Máliluiningsskrifstoía Guðlaugs og
Einars Gunnars Einarssonar
Aðalstræti 18 — Sínú 82740.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■«
Skriístofur vorar eru fiuttar i
Tjarnargötu 10,4. hæð
(Inngungur frá Vonarstræti)
N. MANSCHER & Co.
Endurskoðunarskrifstofa